Morgunblaðið - 01.09.2002, Síða 48
DAGBÓK
48 SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Hver gefur fuglunum?
ÉG fór niður að Tjörn fyrir
stuttu og varð hneyksluð að
sjá hvað fuglarnir þar voru
svangir. Varð ég að hætta
að gefa þeim vegna ágangs.
Önnur kona sem þarna var
hætti einnig við vegna
ágangs fuglanna. Hver sér
um að gefa fuglunum á
Tjörninni? Eða eru það ein-
ungis borgarbúar sem
koma með brauð að gefa
fuglunum?
Dýravinur.
Frábær
blaðaútburður
MIG langar að þakka fyrir
frábæran blaðaútburð á
Morgunblaðinu. Ég hef bú-
ið í Depluhólum í 26 ár og
hef aldrei þurft að hringja
eftir blaði. Finnst það sýna
frábæra þjónustu, bæði hjá
blaðberum og þeim sem
stjórna dreifingunni.
Ánægður áskrifandi.
Fróðir svæðis-
leiðsögumenn
NÝLEGA var grein í
Morgunblaðinu þar sem
bent var á að þeir sem
ferðast um landið geti pant-
að svæðisleiðsögumenn til
að ganga með sér eða aka
um ákveðinn landshluta,
dal eða bæ, fjörð eða fjall.
Mér fannst þetta sniðug
hugmynd og lét verða af
þessu þegar fjölskyldan fór
í sumarfrí nýlega. Við feng-
um svæðisleiðsögumann á
tveimur stöðum til að fræða
okkur um umhverfið og líf
fólksins sem þar bjó áður
og mannlífið nú um stundir.
Í stuttu máli sagt þá voru
þetta mjög eftirminnilegar
ferðir sem bæði þeir eldri í
hópnum og líka þeir yngri
höfðu stórgaman af.
Ég vil því benda öllum
sem eru á ferð um landið í
sumarleyfinu að nota sér
þessa möguleika. Þeir
verða ekki vonsviknir.
Ferðalangur.
Bóka leitað
ÉG er að leita að tveimur
bókum sem virðast hvergi
fást. Þetta eru bækur eftir
Ágúst Jónsson, fæddur
1868, dó 1945. Bækurnar
heita Þyrnar og rósir (1930)
og Áfangar (1935). Þeir
sem gætu liðsinnt mér vin-
samlega hafi samband við
Einar Má Kristjánsson í
síma 869 1230.
Tapað/fundið
GSM-sími týndist
NOKIA 8310 hvítur og
dökkblár týndist á
skemmtistaðnum Nasa 11.
ágúst sl. Finnandi hafi sam-
band í síma 863 8079 eða
698 9878. Fundarlaun.
Álstigi tekinn
í misgripum?
ÁLSTIGI týndist frá
Skriðustekk, gæti hafa ver-
ið tekinn í misgripum. Þeir
sem kannast við að hafa
tekið stigann hafi samband
í síma 897-2649.
Fylkisstelpur
á Siglufirði
ÞEGAR Ingunn í 4. flokki
kom af pæjumótinu á Siglu-
firði 8.–11. ágúst sl. vantaði
tvær flíkur í farangurinn
hennar. Önnur er Fylkis-
stuttbuxur (eldri gerðin) og
hin er rennd svört vindúlpa
með appelsínugulum kanti
yfir rennilásinn og hettu,
CUTT. EDGE nr. 170.
Báðar flíkurnar eru merkt-
ar með nafninu hennar og
símanúmeri. Ef einhver
rekst á þessar flíkur vin-
samlegast látið vita í síma
567 3379, 690 4130 eða
698 8991.
Dýrahald
Tík í óskilum
SVÖRT og hvít tík, 3–4
mán. er í óskilum að
Hundahótelinu Leirum.
Eigandi hafi samband í
síma 566 8366 eða 698 4967.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA finnst vatnsmelónurgóðar og reyndar flestum á
heimili hans. Því er þetta frábær árs-
tími þegar melónuframboðið er í há-
marki hér á landi. Í síðustu viku hljóp
aldeilis á snærið hjá honum því kíló-
verðið af þessum líka frábæru stein-
lausu vatnsmelónum kostaði aðeins
69 krónur í Bónus. Þrisvar var keypt
rúmlega fimm kílóa melóna og Vík-
verji borgaði innan við 350 krónur
fyrir hverja melónu. Það er ekki eins
og hann þurfi að kaupa heila melónu í
Bónus því þeir skera þær niður með
bros á vör og skipta þeim í þá
skammta sem hver vill. En þær
hverfa eins og dögg fyrir sólu þegar
þær eru komnar niðurskornar í ís-
skápinn heima hjá honum.
Víkverji getur gengið heiman frá
sér bæði í Hagkaup og Bónus. Hann
lagði því leið sína bæði í Bónus og
Hagkaup fyrir síðustu helgi. Sæll og
ánægður keypti hann sína melónu í
Bónus og þegar hann kom í Hagkaup
voru sérstakir melónudagar þar. Á
boðstólum voru nokkrar melónuteg-
undir og þar á meðal nákvæmlega
eins vatnsmelónur og hann keypti í
Bónus, með samskonar límmiða á
sem á stóð Sandias El-Canerito. En
þarna kostaði kílóið ekki 69 krónur
heldur 139 krónur. Semsagt fimm
kílóa melónan kostaði í Hagkaup um
700 krónur í stað 350 króna. En hver
ætli munurinn hafi verið á gæðum.
Víkverji stóðst ekki mátið og varð sér
úti um smá melónu bita í Hagkaup
líka, bara til að sjá gæðamuninn. En
það var enginn munur, ef einhver þá
voru fleiri steinar í Hagkaupsmelón-
unni. Nú spyr Víkverji forráðamenn
Bónuss og Hagkaupa. Hvað skýrir
verðmuninn?
x x x
VÍKVERJI brá sér í vikunni í bíóog sá íslensku kvikmyndina
Maður eins og ég eftir Róbert Dougl-
as. Það kom á óvart að myndin var
komin í sal fimm í Háskólabíói þar
sem hvíta tjaldið er lítið stærra en
frímerki. Auglýsingaherferðin fyrir
myndina hófst nokkrum vikum áður
en hún var frumsýnd, en tveimur vik-
um eftir að sýningar hófust er hún
komin í minnsta sal kvikmyndahúss-
ins.
Víkverja varð því hugsað til þess
að ending kvikmynda í bíóhúsunum
væri orðin ansi stutt og þeir, sem
ættu erfitt með að finna tíma til að
komast í bíó yrðu að hafa sig alla við
ef þeir ætluðu að sjá myndir í stærstu
sölunum þar sem þær njóta sín best.
Á móti kemur að myndin er sýnd á
sama tíma í þremur kvikmyndahús-
um í Reykjavík, einu á Akureyri og
einu í Keflavík.
x x x
KVIKMYNDIN Maður eins og égreyndist hins vegar vera ágætis
skemmtun og meira að segja bráð-
fyndin á köflum þrátt fyrir nokkra
hnökra, sem hefði verið hægt að laga
án mikillar fyrirhafnar, þar á meðal
nokkur atriði þar sem leikararnir
virtust ekki alveg átta sig á hvað þeir
ættu að segja næst.
Myndin fjallar meðal annars um
þann vandræðagang, sem getur orðið
þegar tveir menningarheimar mæt-
ast og annar aðilinn byggir þekkingu
sína á hinum á afar takmörkuðum
upplýsingum. Þessum efnivið er
komið til skila á látlausan og mann-
legan hátt, sem sýnir að aðstandend-
ur myndarinnar eiga framtíðina fyrir
sér.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 jafnlyndur, 8 útlimur, 9
beygur, 10 elska, 11 snót-
in, 13 líffærið, 15 gljái, 18
drepur, 21 álít, 22 súta,
23 vesælum, 24 móðga.
LÓÐRÉTT:
2 gleður, 3 ávöxturinn, 4
ekki þekkt, 5 kurr, 6 iðk-
um, 7 uppstökk, 12 grein-
ir, 14 fiskur, 15 nytsemi,
16 hetjudáð, 17 bala, 18
bærast, 19 auðlindin, 20
sterk.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bauja, 4 strit, 7 regin, 8 árnum, 9 agn, 11 ilma,
13 hrum, 14 nemur, 15 vagn, 17 ólma, 20 sló, 22 lotan, 23
dugir, 24 Ránar, 25 lúnar.
Lóðrétt: 1 barði, 2 ungum, 3 asna, 4 skán, 5 rænir, 6 tím-
um, 10 gömul, 12 ann, 13 hró, 15 volar, 16 gátan, 18 lög-
un, 19 akrar, 20 snar, 21 ódæl.
K r o s s g á t a
ÞVÍ var sannarlega fagn-
að á mínu heimili þegar
kom að menningarnótt í
Reykjavík 2002.
Við fórum yfir dag-
skrárliðina og völdum
saman atriði sem öll fjöl-
skyldan hafði áhuga á.
Við sáum afar skemmti-
lega ballettsýningu í
Landsbankanum, góða
leiksýningu í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Hreint út
sagt frábæra tónleika
Önnu Pálínu og Að-
alsteins Ásbergs ásamt
sænsku tríói í Hljómskál-
anum og aðra stórkost-
lega með Gospelsystrum
og Margréti Pálma við
Skúlagötuna. Síðan var
komið við á nokkrum
stöðum og endað með
frábærri flugeldasýn-
ingu.
Bestu þakkir til allra
þessara frábæru lista-
manna.
Hinn 28. ágúst sl. spyr
ein ringluð í Velvakanda:
Hvað er verið að kenna
æskunni?
Jú, að meta menn-
inguna í sinni fjölbreytt-
ustu mynd, og velja það
sem hentar manni. Er
þetta menning að mati
borgarstjórnar?
Við skulum vona það
og einnig að næsta menn-
ingarnótt verði enn betri.
Alsæll fjölskyldufaðir.
Menningarnótt í ReykjavíkSkipin
Reykjavíkurhöfn: Pasc-
oal Atlantico kemur í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vetr-
arstarfið er að hefjast
eftir sumarfrí. Vinnu-
stofa byrjar mánud. 2.
sept. Skráning er hafin í
eftirtalin námskeið: leik-
fimi, myndmennt, leir-
kerasmíði, postulín og
ensku. Ef næg þátttaka
fæst verður jóga á
þriðju- og fimmtud. kl. 9.
Boccia á mánu- og fimm-
tud. kl. 10. Versl-
unarferðir verða fyrsta
miðvikud. hvers mán-
aðar, Búnaðarbankinn
kemur í miðstöðina
tvisvar í mánuði. Söng-
stund við píanóið á
þriðjud kl. 14. Skráning í
afgreiðslu og s. 562 2571.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 myndlist.
Púttvöllurinn er opin kl.
10–16 alla daga.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 almenn
handavinna, kl. 9–12
bútasaumur, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
11samverustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur. Vetrastarfið
hefst mánudaginn 2.
sept. Uppl. í s. 568 5052.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Mánud. 2. sept.
byrjar félagsstarfið á
Hlaðhömrum kl. 13 og
verður í vetur á mánu-
og fimmtud. í lok starfs á
mánud. verður leikfimi
kl. 16–16.30 Jógatímar
verða tilk. síðar. Bók-
bandsnámskeið byrjar
laugard. 7. sept. og verð-
ur á laugard. kl. 10–12.
Tréskurðarnámskeið
byrjar fimmtud. 5. sept.
kl. 13. Námskeið í postu-
línsmálun byrjar 18.
nóv.–9. des. Bókavörður
frá Bókasafninu í Mos.
mætir á fimmtud. kl. 14
með bækur til útláns,
boðið verður uppá bóka-
spjall frá kl. 15–16 sama
dag. Línudans, tveggja
mán. námskeið byrjar
laugard. 5. okt. kl. 11.
Kór eldri borgara, Vor-
boðar, verður með kór-
æfingar á fimmtud. í
Damos kl. 17–19, fyrsta
æfing 5. sept. Skrán-
ingar hjá Svanhildi í s.
586 8014 e.h. og 525 6714
f.h.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Vegna mikillar eft-
irspurnar í ferð á Suð-
urnesin sunnanverð
verður farin aukaferð ef
næg þátttaka fæst. Ekið
til Keflavíkur, þaðan far-
ið að Stekkjarkoti, Fitj-
um. Hafnirnar heimsótt-
ar. Síðan farið að
Haugsgjá, Reykjanesviti
heimsóttur. Síðan haldið
til Grindavíkur og Orku-
verið í Svartsengi heim-
sótt. Komið verður við í
Bláa lóninu og ekið að
Veitingahúsinu Sjáv-
arperlan í Grindavík -
þar sem snæddur verð-
ur kvöldverður. Lagt af
stað þriðjudaginn 3.
september frá Fé-
lagsmiðstöðinn Gjá-
bakka kl: 11 og frá Fé-
lagsmiðstöðinni
Gullsmára kl. 11.15.
Heimkoma áætluð um
kl 19.
Skráningarlistar liggja
frammi í Félagsmið-
stöðunm Gjábakka og
Gullsmára ásamt uppl.
Ferðanefnd (Bogi Þórir
s. 554 0233 eða Þráinn s.
554 0999)
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 10 verslunin opin, kl.
11.20 leikfimi, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Sléttu-
vegur 11. Vetrarstarfið
hefst 2. sept. með fé-
lagsvist kl. 14.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 10–
10.45 leikfimi, kl. 13
frjáls spilamennska
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Leikfimi
byrjar 2. september kl.
9.30 stólaleikfimi, kl.
10.15 leikfimi Haustferð
Kvenfélags Garðabæjar
í Heiðmörk verður 4.
sept. kl. 13.30. skráning
í síma 564 2115-
896 0908 og 896 2150.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un félagsvist kl. 13.30.
Glerskurður, skráning
hafin í Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Sunnudagur:
Dansleikur kl. 20.
Mánud: Brids kl. 13.
Danskennsla framhald
kl. 19 og byrjendur kl.
20.30. Þriðjud: Skák kl.
13. Miðvikud: Göngu-
hrólfar ganga frá
Hlemmi kl. 9.45.
Opið hús hjá Félagi
eldri borgara laug-
ardaginn 7. september
kl. 14–16 í Ásgarði.
Kynning á starfi og
markmiði félagsins.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Á morgun, kl. 9
aðstoð við böðun og
bókband. Sagan fellur
niður og alm. handa-
vinna byrjar 9.sept.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgunkl.
9–17 hárgreiðsla, kl. 14
félagsvist.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug, frá hádegi
spilasalur opinn,
kl.15.30 dans. Mynd-
listasýn Huga Jóhann-
essonar stendur yfir í
dag 13.–16.30, listamað-
urinn á staðnum.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun handa-
vinnustofan opin. Leið-
beinandi á staðnum kl.
9.30–12. Leikfimi hefst
þriðjud. 3. sept. tveir
hópar,, annar mæti kl.
kl. 9.05 og hinn kl. 9.55.
Kynning á starfsemi í fé-
lagsheimilinu Gjábakka
sept. til des. verður
fimmtud. 5. sept. kl. 14.
Þar munu FEBK, Hana-
nú og ýmsir áhuga-
mannahópar kynna sína
starfsemi, auk þess sem
skráning og kynning á
fyrirhuguðum nám-
skeiðum fer þar fram.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið virka daga kl.
9–17. Spiluð félagsvist á
mánudögum kl. 20.30.
Miðvikudaginn 4. sept.
kl. 14–17 verður kynning
á væntanlegri starfsemi
í Gullsmára í vetur, einn-
ig er skráning á þau
námskeið sem fyr-
irhuguð eru. Félag eldri
borgara í Kópavogi
kynnir fyrirhugaða
starfsemi sína. Frí-
stundahópurinn Hana-
nú kynnir sína starfsemi
t.d. bridshópinn, vef-
listahópinn, jóga, leir-
listahópinn, sönghópinn
Gleðigjafana, pútthóp-
inn, glerlistahópinn,
einnig verður kynning
og sýning á hlutum og
munum sem unnið er
með á hinum ýmsu nám-
skeiðum.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 postulínsmálun,
perlusaumur og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13.30 gönguferð.
Fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–11
ganga, kl. 9–15 fótaað-
gerð, kl. 9–12 myndlist,
kl. 9–16 opin handa-
vinnustofa. Leir-
námskeið hefst 5. sept-
ember, skráning hjá
Birnu í s. 568 6960.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9–16 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna. Miðviku-
daginn 18. september kl
13–16 byrjar fyrsti tré-
skurðartími vetrarins,
skráning hafin. Tví-
menningur í brids verð-
ur á þriðjudögum í vetur
frá kl.13–16.30. Upplýs-
ingar og skráning í síma
562 7077.
Vitatorg. Á morgun kl.
8. 45 smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir, sund og
boccia, kl. 13 handmennt
– almennt, glerbræðsla
og frjáls spil. Laus pláss
í eftirtöldum nám-
skeiðum: bókband,
myndlist, leirmótun,
körfugerð, mósaik og
smiðju. Farið verður í
dagsferð til Þingvalla 5.
sept. skráning í síma
561 0300.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar hefja brids-
vertíðina á nýjan leik -
eftir sumarhlé – í Gull-
smára 13 mánudaginn 2.
september. Tvímenn-
ingur. Skráning klukkan
12,45. á hádegi. Spil
hefst stundvíslega kl. 13.
Í dag er sunnudagur 1. september,
244. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Þetta býð ég yður, að þér elskið
hver annan.
(Jóh. 15, 17.)