Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 2

Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 2
FORELDRAR Ítalans Davides Paitas, sem saknað hefur verið síð- an 10. ágúst, halda aftur til Ítalíu í dag. Þau hafa dvalið hér á landi undanfarna daga og kynnt sér hvernig leitarstarfi vegna hvarfs sonar þeirra var háttað. Að sögn Péturs Björnssonar, ræðismanns Ítalíu á Íslandi, eru hjónin ákaf- lega þakklát fyrir það sem gert hefur verið til að hafa uppi á syni þeirra. Að sögn Péturs komu hjónin Mara og Luciano Paita hingað til lands síðastliðinn föstudag en dag- inn eftir fóru þau til Akureyrar þar sem þau áttu fund með lög- reglu og björgunarsveitarfólki. Bók með minnispunktum björgunarsveitarmanna „Þau sáu að allt hafði verið gert sem í mannlegu valdi stóð til að leita að honum og meðal annars sagði frúin mér að hún hefði séð heila bók með minnispunktum björgunarsveitarmanna og öðru slíku. Þar sá hún hvað þetta var ít- arleg leit og hvað þetta hafði verið vel gert,“ sagði Pétur. Hjónin höfðu með sér föggur Davides sem hann skildi eftir sig. Sem kunnugt er gaf Davide, sem er 33 ára, sig á tal við sundlaug- arstarfsmann á Grenivík fyrir um fjórum vikum og bað hann að gæta fyrir sig búnaðar á meðan hann færi í gönguferð á Látraströnd. Var reiknað með að hann yrði kominn til baka innan tveggja daga en síðan hefur ekkert til hans spurst. Að sögn Daníels Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns á Akureyri, verður ekki um frekari leit að ræða nema fram komi nýjar vís- bendingar um afdrif Paita. Ekki mögulegt að fara á svæðið Pétur segir ítalskan mann og konu hans hafa tekið á móti hjón- unum fyrir norðan og voru þau þeim innan handar meðan á dvöl þeirra þar stóð. Meðal annars fóru hjónin í skoð- unarferð um Grenivík og upp í Ólafsfjarðarmúla en að sögn Smára Sigurðssonar, formanns svæðisstjórnar björgunarsveitanna á Akureyri, óskuðu þau eftir því að fara um svæðið þar sem talið er að Davide hafi horfið en það hefði ekki verið mögulegt. Kynntu sér leitarstarfið Foreldrar Ítalans Davides Paitas sem saknað hefur verið síðan 10. ágúst STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra segir að sér hafi ekki verið kynnt hugsanleg kaup Columbia Ventures á tvöfalda sæstrengnum Hibernia, sem liggur á milli Bret- lands, Írlands, Kanada og Banda- ríkjanna, og hugmyndir fyrirtækis- ins um að mögulegt sé að tengja Ísland við strenginn. Ráðherra seg- ist því ekki hafa tekið neina afstöðu til þessarar hugmyndar. Á morgun standi til að stofna undirbúnings- félag vegna Farice-verkefnisins, lagningar sæstrengs milli Íslands, Færeyja og Skotlands. „Verkefni þessa undirbúnings- félags er að finna leið sem er hag- stæðust fyrir okkur Íslendinga og tryggir hagsmuni okkar og öryggi í fjarskiptum. Við útilokum ekkert út af fyrir sig, en þetta verður fyrst og fremst í höndum símafyrirtækj- anna,“ segir Sturla. Færeyingar munu eiga 20% hlut í undirbúningsfélaginu og Íslendingar 80%. Kostnaður við lagningu strengsins hefur verið áætlaður um 6 milljarðar. Aðspurður hvort Íslendingar séu háðir því að niðurstaðan henti einnig Færeyingum segir Sturla ekkert hægt að segja um það á þessu stigi. Áfram verði unnið að framgangi Farice-verkefnisins. „Við vinnum alveg fullum fetum að því áfram og ég tel það mjög mikið hagsmunamál fyrir okkur að finna framkvæmanlega lausn sem tryggir öryggi í fjarskiptum. Við getum ekki búið við neins konar óöryggi í því. Okkur ber skylda til að velja hag- stæðustu lausnina fyrir okkur. Það er verið að vinna með Færeyingum að þessu máli og það hefur ekkert komið upp sem á að geta truflað það á þessu stigi,“ segir Sturla. Heiðrún Jónsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Landssímans, segist líta á þetta sem sjálfstæða fjárfestingu Columbia Ventures. Engar viðræður hafi farið fram milli Símans og Col- umbia Ventures um hugsanlega tengingu sæstrengsins við Ísland og aðkomu Símans að því, en samstarf þar um sé ekki útilokað. Áfram verði unnið að Farice-verkefninu, sem Síminn hafi unnið að ásamt íslensk- um stjórnvöldum og öðrum símafyr- irtækjum. Íslandssími er eitt þeirra, en eftir sameiningu við Halló-Frjáls fjarskipti er fyrirtækið að stærstum hluta í eigu Columbia Ventures. Sím- inn hafi varið um 150 milljónum króna í Farice-verkefnið til rann- sókna og undirbúnings, en unnið hef- ur verið að því á annað ár. Heiðrún segir margt óljóst í þessu sambandi. „Ef Columbia Ventures kaupir strenginn og ákveður eftir hagkvæmniathugun að tengja hann við Ísland eru að sjálfsögðu forsend- ur fyrir því að skoða mögulegt sam- starf, ef þeir eru tilbúnir til þess.“ Hún segir að verkefnið sé stórt og miklir fjármunir í húfi. „Á endanum eru það bæði eigendur fyrirtækj- anna og viðskiptavinir þeirra sem borga brúsann og því hlýtur það að vera skylda okkar að gera þetta með sem hagkvæmustum og öruggustum hætti. Engar viðræður hafa átt sér stað, en við myndum ekki útiloka neitt samstarf án þess að kanna það frekar,“ segir Heiðrún. Hagstæðasta lausn- in verði fundin FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isDuranona leikur með Eyjamönnum í vetur / B1 Framarar komnir í úrslit bikarkeppninnar / B2 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Morgunblaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið „Sjónvarps- dagskráin“ frá Sonet ehf. Blaðinu verður dreift um allt land. FLIUGLEIÐIR fljúga með hálffull- ar vélar til Bandaríkjanna í dag, 11. september, þegar rétt ár er liðið frá hryðjuverkaárásunum á Bandarík- in. Vélar dagana fyrir og eftir eru hins vegar nánast sneisafullar, sam- kvæmt upplýsingum Guðjóns Arn- grímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða. „Það fer ekki á milli mála að þessi dagsetning er ofarlega í huga fólks, eins og kannski við var að búast,“ sagði Guðjón. Flugleiðir fara fjórar ferðir til fjögurra áfangastaða í Bandaríkjun- um; Boston, Baltimore, New York og Minneapolis. Fullbókaðar taka vélar félagsins 189 manns. Guðjón sagði engar sérstakar ráðstafanir gerðar af hálfu flugfélagsins vegna þessa. Allt væri með eðlilegum hætti. Jóhann Benediktsson, sýslumað- ur á Keflavíkurflugvelli, sagði að ör- yggiskröfur hefðu verið hertar í síð- ustu viku aðspurður hvort embættið hefði gripið til einhverra sérstakra ráðstafana vegna 11. september. Farþegar yrðu kannski varir við að aðgerðirnar og öryggisgæslan væru aðeins sýnilegri en ella, en hertar öryggisreglur hefðu í raun og veru gilt allt frá 11. september í fyrra. Hálffullar vélar til Bandaríkjanna „MÉR finnst rigningin góð,“ gæti litla hnátan hún Embla Eir Krist- insdóttir verið að hugsa þar sem hún situr á bekk í Seljugerði í Reykjavík. Óvenju mikil rigning var í Reykjavík í gær. Úrkoman mæld- ist þá 18 millimetrar, eða nálega fjórðungurinn af allri úrkomu ágústmánaðar, sem var 76,8 milli- metrar. Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum voru stórrigningar í gær og mældist þar mesta úrkoma á land- inu, 33 millimetrar. Morgunblaðið/RAX Mikil úrkoma LÖGREGLUNNI á Keflavíkurflug- velli hafa ekki borist upplýsingar um mann sem stöðvaður var á flugvell- inum á laugardag með falsað vega- bréf. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær fannst maðurinn látinn á gistiheimili í Keflavík á mánudag og er talið að hann hafi ráðið sér bana. Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, segir að óskir um upplýsingar um manninn hafi verið sendar til löggæslustofn- ana beggja vegna Atlantshafs en engin svör hafi borist. Maðurinn kvaðst sjálfur vera Írani en lögreglu fannst hann ekki hafa gert fullnægj- andi grein fyrir sjálfum sér. Við leit á honum fannst jafnvirði 500.000 króna í erlendum gjaldmiðlum sem lögregla lagði hald á. Jóhann segir að lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum hafi spurst fyrir um málið en litlar upplýsingar séu til um manninn. Hafa ekki fengið upp- lýsingar um manninn Samgönguráðherra og Síminn útiloka ekki samstarf við Columbia Ventures um lagningu sæstrengs MJÖG víðtækt rafmagnsleysi varð í Reykjanesbæ vegna óhapps við girðingarvinnu í Helguvík um klukkan 19 í gærkvöldi. Rafmagn fór af Leifsstöð og helmingi Kefla- víkur, öllu Sandgerði og sömuleiðis Garði. Var raf- magnslaust í þriðjungi Reykjanesbæjar í um 40 mín- útur þar til starfsmenn Hita- veitu Suðurnesja fundu bil- unina og gerðu við. Í ljós kom að verið var að bora fyrir girðingarstaurum við Helgu- vík og var boraður í sundur rafmagnsstrengur með fyrr- greindum afleiðingum. Við- gerð hélt áfram í gærkvöldi og nótt til að koma rafmagni aftur á í Helguvík. Víðtækt raf- magnsleysi í Reykjanesbæ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.