Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 37 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Snyrtifræðingar Til leigu er herbergi með tækjum. Einnig til leigu aðstaða fyrir nuddara. Allar upplýsingar í síma 551 0311. Bakarí — afgreiðsla Okkur vantar duglegan og hressan starfskraft til afgreiðslustarfa nú þegar. Vinnutími frá kl. 13.00—18.30 alla virka daga. Framtíðarstarf. Upplýsingar á staðnum eftir kl. 13. Bakarinn á hjólinu, Álfheimum 6. Evrópuverkefni í líftækni Sérfræðingur í sameindaerfðafræði Fullt starf við ferjun og tjáningu gena úr svepp- um og fléttum. Doktors- eða meistaragráðu krafist. Starf við rekstur og stjórnun Hálft starf sem getur hentað með námi. Góð þekking á lífvísindum, færni í ensku og áhugi á rekstri verkefna nauðsynlegur. Upplýsingar veitir Ólafur S. Andrésson í símum 567 4700 og 864 2149. Umsóknir sendist Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 112 Reykjavík, eða til osa@hi.is fyrir 18. september. Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisáætlun Háskóla Íslands. Samband íslenskra sveitarfélaga Sviðsstjóri Samband íslenskra sveitarfélaga óskar eftir að ráða sviðsstjóra á kjarasvið í tengslum við endurskipulagningu á starfsemi sambandsins. Starfið felst m.a. í yfirumsjón og ábyrgð eftirtalinna verkefna: ■ Vinnu fyrir Launanefnd sveitarfélaga. ■ Vinnu við undirbúning og gerð kjarasamn- inga. ■ Samskiptum við aðila vinnumarkaðarins. ■ Ráðgjöf varðandi vinnumarkaðs- og starfs- mannamál. ■ Kjararannsóknum. ■ Þjónustu við sveitarfélög varðandi starfs- mannamál. Menntunar- og hæfniskröfur: ■ Háskólamenntun á sviði viðskipta og/eða stjórnunar. ■ Reynsla af kjarasamningagerð. ■ Þekking á vinnumarkaðsmálum. ■ Reynsla af sveitarstjórnarmálum og stjórn- unarstörfum. ■ Góð tölvukunnátta. ■ Góð samskiptahæfni. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu berast fyrir 20. september til Þórðar Skúlasonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, Háaleitis- braut 11, 128 Reykjavík, sem veitir nánari upp- lýsingar um starfið í síma 515 4900. R A Ð A U G L Ý S I N G A R BÍLAR        Þetta einstaka eintak til sölu. Árg. 2000, ekinn aðeins 24 þús. kílómetra. Eins og nýr. V6 - 194 hestöfl. Verð 3.200.000. Engin skipti. Uppl. í síma 896 8555. TIL SÖLU Land til sölu Bræðraland, skammt sunnan Húsavíkurkaup- staðar, er til sölu, rúmir 13 ha. Til margra hluta nytsamlegt. Upplýsingar gefa Örlygur Hnefill Jónsson hdl., sími 464 1305 og Kristján Páls- son, sími 464 1139 og 896 7790. TILKYNNINGAR Hafnarfjarðarbær Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi fyrir „Jófríðarstaðir — Skuld“ í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 3. september 2002 að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi fyrir "Jófríðarstaði - Skuld" í Hafnarfirði í samræmi við 1. mgr. 26.gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Breytingin felur í sér stækkun til austurs á lóð og byggingarreit fyrir leikskólann Hvamm og færsla á stíg. Breytingin verður til sýnis í afgreiðslu umhverf- is- og tæknisviðs, Strandgötu 8 - 10, þriðju hæð, frá 11. september 2002 - 10. október 2002. Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskipu- lagi. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til bæjarskipulags í Hafnarfirði, eigi síðar en 25. október 2002. Þeir sem ekki gera athugasemd við breytinguna teljast samþykkir henni. Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar. Innköllun vegna rafrænnar skráningar hlutabréfa í SR-mjöl hf. Mánudaginn 23. september 2002 verða hlutabréf í SR-mjöl hf. tekin til rafrænnar skrán- ingar hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í sam- ræmi við ákvörðun stjórnar SR-mjöl hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrir- tækinu í samræmi við ákvæði laga og reglu- gerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í SR-mjöl hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi. Hér með er skorað á alla eigendur ofan- greindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé rétti- lega fært í hlutaskrá SR-mjöl hf. að stað- reyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár SR-mjöl hf., Kringlan 7, 103 Reykjavík eða í síma /netfangi 520 3300/ info@srmjol.is . Komi í ljós við slíka könn- un að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagn- vart félaginu fyrir nefndan dag. Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hluta- bréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyritæki eða spari- sjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands hf. fyrir skrán- ingardag. Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafn- framt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skrán- ingar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum. Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignar- hlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reiknings- stofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa. Stjórn SR-mjöl hf. Til sveitarstjórnarmanna frá Fjárlaganefnd Alþingis Fjárlaganefnd Alþingis ráðgerir að gefa sveitar- stjórnarmönnum kost á að eiga fund með nefndinni dagana 23.—30. september nk. frá kl. 8.30—18.00. Uppl. og tímapantanir eru í síma 563 0405 frá kl. 9.00—16.00 eigi síðar en 20. sept. nk. Rannsóknaboranir á vestursvæði við Kröflu í Skútustaðahreppi Mat á umhverfisáhrifum — úrskurður Skipulagsstofnunar Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif- um. Fallist er á rannsóknaboranir á vestur- svæði Kröflu í Skútustaðahreppi eins og þeim er lýst í framlögðum gögnum framkvæmdar- aðila. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is . Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 16. októ- ber 2002. Skipulagsstofnun. ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.