Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 39
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Dalvíkurbyggð
Útboð
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í lagningu
hitalagna og endurnýjun á neysluvatnslögnum
í Húsabakkaskóla, heimavist, (syðra hús).
Útboðsgögn eru til afhendingar á Verkfræði-
stofu Norðurlands, Hofsbót, Akureyri, og hjá
Tæknideild Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu Dalvík.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Tækni-
deildar Dalvíkurbyggðar kl. 10.30 þann
23. sept. 2002 að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska.
Bæjartæknifræðingur.
Laugavegur
Til leigu mjög gott ca 133 fm verslunarhúsnæði
á götuhæð við Laugaveg neðan Frakkastígs.
Stórir gluggar.
Upplýsingar í síma 891 6680 á kvöldin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Allsherjaratkvæðagreiðsla
vegna ársfundar Starfsgreinasambands
Íslands
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við
kjör fulltrúa á ársfund Starfsgreinasambands
Íslands, sem haldið verður á Hótel Selfossi
dagana 17. og 18. október 2002.
Tillögur skulu vera um 36 aðalmenn og 36 til
vara.
Tillögum, ásamt meðmælum 120 fullgildra
félagsmanna, skal skila á skrifstofu Eflingar-
stéttarfélags, Sætúni 1, eigi síðar en miðviku-
daginn 18. september kl. 12.00.
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags.
Skrifstofuherbergi
við Suðurlandsbraut
Til leigu nokkur góð skrifstofuherbergi með
aðgangi að kaffistofu. Upplýsingar gefur Þór
í síma 899 3760 eða Steinunn í síma 553 8640.
ATVINNUHÚSNÆÐI
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60
Samkoma í Kristniboðs-
salnum í kvöld kl. 20.30.
„Ég veit hvar þú býrð“
Ragnar Gunnarsson talar. Kaffi
og meðlæti til sölu á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
2.—15. sept. Laugavegurinn
— hraðferð. Grill í Bás-
um innifalið í verði. Trússferð.
Brottför frá BSÍ kl. 20:00. Verð kr.
17.900/20.400. Fararstjóri: Hákon
Gunnarsson. ÖRFÁ SÆTI LAUS.
13.—15. sept. Básar á Goða-
landi — Grillferð. Árleg grill-
ferð í hjarta Goðalands. Grill
laugardagskvöld innifalið. Brott-
för frá BSÍ kl. 20:00. 7.800/8.800 í
tjaldi. Fararstjóri: Sylvía Krist-
jánsdóttir. Uppselt í skála, ennþá
laust í tjaldi.
14.—15. sept. Fimmvörðu-
háls. Lokaferð ársins. Brottför
frá BSÍ kl. 8:30. Verð kr. 7.700/
9.200.
15. sept. Reykjavegurinn (R-
7): Lambafell — Dyradalur.
Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr.
1.500/1.700. Fararstjóri: Steinar
Frímannsson.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Glæsileg 4 herbergja íbúð
til leigu
fyrir reyklaust og reglusamt fjölskyldufólk. Sér-
bílastæði og geymsla fylgir. Laus strax.
Upplýsingar í síma 695 0925.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
mbl.is
ÍÞRÓTTIR
Í KJÖLFAR umræðu um heilsu-
gæslulækna sem fram fór í útvarpi
nýverið hefur Morgunblaðinu borist
athugasemd frá stjórn Félags ís-
lenskra heimilislækna auk fréttatil-
kynningar frá heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu og fara þær
hér á eftir. Fyrst yfirlýsing stjórnar
FÍH og síðar frétt ráðuneytisins.
Hefur ekki viljað gera
samning við sérfræðinga
í heimilislækningum
„Stjórn Félags íslenskra heimilis-
lækna (FÍH) lýsir undrun sinni á
sérkennilegum málflutningi Elsu
Friðfinnsdóttur, aðstoðarmanns
heilbrigðisráðherra, í viðtali í
fréttaþættinum „Hér og nú“ í út-
varpinu að morgni 6. september sl.
Af einhverjum ástæðum sá aðstoð-
armaðurinn tilefni til að fjalla opin-
berlega um og túlka fyrir almenn-
ingi drög að skýrslu um Heilsu-
gæsluna í Reykjavík sem enn er í
vinnslu og merkt sem „trúnaðar-
mál“.
Aðstoðarmaður ráðherra hélt því
fram í þættinum að helstu vanda-
málin sem steðji nú að heilsugæslu
landsmanna séu að vinnuafköst
lækna hafi minnkað og að þeir fari
sér hægt í vinnunni. Stjórn FÍH
hefur ekki séð drögin að umræddri
skýrslu, sem virðist hafa verið til-
efni umfjöllunar fréttastofu útvarps
á málinu. Það er bæði óþolandi og
afar ósanngjarnt að pólitískur að-
stoðarmaður ráðherra skuli fara
með svo alvarlegar dylgjur um heila
stétt. Tilgangurinn virðist einvörð-
ungu vera sá að gera störf heim-
ilislækna tortryggileg í augum
þjóðarinnar. Með svo villandi
málflutningi virðist heilbrigðisráðu-
neytið vera að beina sjónum al-
mennings frá eigin umkomuleysi í
að leysa vandamál heilsugæslunnar,
sem að mati FÍH þolir ekki frekari
bið.
Vinnulag og starfshættir heimils-
lækna þróast og breytast hratt í nú-
tímanum rétt eins og hjá öðrum
sérfræðilæknum. Fjöldi atriða hafa
bein áhrif á þessa þróun og má þar
nefna örar framfarir í læknisfræði,
breytta aldurssamsetningu þjóðar-
innar, tilfærslu á verkefnum, hlut-
fallslega og alvarlega fækkun í
heimilislæknastétt, vaxandi kröfur
almennings um síaukna þjónustu og
svo mætti áfram telja.
Mergur málsins er sá að heil-
brigðisráðuneytið hefur alls ekki
viljað gera samning við sérfræðinga
í heimilislækningum, sem geri þeim
kleift að starfa á eigin vegum eins
og aðrir sérfræðilæknar geta gert.
Þessi afstaða ráðuneytisins leiðir til
mismununar milli lækna og er ein
helsta orsök þess að rúmlega 50
sérmenntaðir heimilislæknar hafa á
undanförnum árum horfið til ann-
arra starfa í lengri eða skemmri
tíma.
Sú öfugþróun, sem nú á sér stað
og sér ekki fyrir endann á, leiðir til
enn vaxandi skorts á heimilislækn-
um sem bitnar á almenningi í land-
inu. Aðgerðir ráðuneytisins í marg-
frægu vottorðamáli og nú síðast
ofangreint innlegg aðstoðarmanns
heilbrigðisráðherra í umræðuna
veldur því að enn fleiri heimilis-
læknar munu flæmast í önnur störf.
Það er dapurt til þess að vita að
þrátt fyrir að fyrirsjánlegt sé að
innan skamms verði með öllu lækn-
islaust á Suðurnesjum og í Hafn-
arfirði sér heilbrigðisráðuneytið
enga ástæðu til þess aðhafast neitt í
málinu.
Stjórn Félags íslenskra heimilis-
lækna lýsir fullri ábyrgð á hendur
heilbrigðisráðherra á þeirri stöðu
sem upp er komin í heimilislækn-
ingum í landinu. Almenningur á það
skilið að stjórnvöld meti heimilis-
lækningar til jafns við aðrar sér-
greinar læknisfræðinnar og leysi
þannig þann brýna vanda sem að
steðjar.“
Misskilningur, segir
ráðuneytið
Tilkynning heilbrigðisráðuneytis-
ins fer hér á eftir:
„Ranghermt er í yfirlýsingu
stjórnar Félags íslenskra heimilis-
lækna, sem send hefur verið fjöl-
miðlum, að aðstoðarmaður heil-
brigðismálaráðherra hafi í útvarps-
viðtali gert skýrsludrög Ríkis-
endurskoðunar um Heilsugæsluna í
Reykjavík að umtalsefni, en í yfir-
lýsingu stjórnarinnar segir: „Af ein-
hverjum ástæðum sá aðstoðarmað-
urinn tilefni til að fjalla opinberlega
um og túlka fyrir almenningi drög
að skýrslu um Heilsugæsluna í
Reykjavík sem enn er í vinnslu og
merkt sem „trúnaðarmál“.“
Viðtalið við aðstoðarmann heil-
brigðismálaráðherra staðfestir að
ekki er vitnað í nefnd skýrsludrög.
Aðspurð um atriði í skýrsludrög-
unum segir aðstoðarmaður ráð-
herra t.d.: „... við verðum held ég að
bíða eftir skýrslu og niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar til þess að sjá
þær tölur og heyra þá að sjálfsögðu
skýringar stjórnenda í heilsugæsl-
unni og heilsugæslulækna á því.
Þeirra hlið er auðvitað eitthvað sem
við verðum að hlusta eftir líka.“
Af þessu má sjá að misskilnings
gætir í yfirlýsingu stjórnar félags
heimilislækna.“
Yfirlýsingar vegna
umræðu um heilsu-
gæslulækna
SÁLFRÆÐINGARNIR Þórkatla
Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi
Jónsson kenna fólki ýmsar lausnir
við verkkvíða og frestunaráráttu á
námskeiði hjá Endurmenntun HÍ
26. september og 3. október kl.
9:00–12:00. Leitað er svara við því
hvað valdi verkkvíða, hvernig hann
lýsir sér og hvaða leiðir eru færar
til að vinna bug á honum.
Lögð er áhersla á að þátttakend-
ur setji sér skýr markmið og til-
einki sér árangursríkar aðferðir til
að kljást við kvíðann. Þátttakendur
vinna sjálfvalin verkefni og er
markmiðið að aðstoða þá við að
skilja þann vítahring sem þeir hafa
verið fastir í og finna leiðir til að
rjúfa hann, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Frekari upplýsingar um þetta
námskeið eru á vefslóðinni www.-
endurmenntun.is og þar er jafn-
framt hægt að skrá sig.
Verkkvíði og
frestunarárátta
FIMMTUDAGSKVÖLD 12. sept-
ember verða haldnir tónleikar í
Hafnarfjarðarkirkju og mun allur
ágóði af miðasölu renna óskiptur til
styrktar Kristínu Ingu Brynjars-
dóttur og fjölskyldu hennar, en
Kristín Inga lenti í alvarlegu slysi
um miðjan ágústmánuð.
Á tónleikunum koma fram þær
Antonia Hevesa, sem er nýráðinn
orgelleikari og kórstjóri Hafnar-
fjarðarkirkju, og Alda Ingibergs-
dóttir, söngkona.
Antonía er fædd í Ungverjalandi
en fluttist til Íslands árið 1992 og
bjó á Siglufirði þar sem hún var
organisti og kórstjóri við Siglu-
fjarðarkirkju. Antonía hefur einnig
fengist talsvert við raddsetningar
og útsetningar og samið tónlist. Ár-
ið 1998 gaf hún út „24 orgellög“,
eigin útsetningar fyrir orgel. Hóf
hún störf við Hafnarfjarðarkirkju
1. september síðastliðinn. Munu
þær Antonía og Alda flytja kirkju-
lega tónlist, létt óperulög og ís-
lenska söngtónlist. Tónleikarnir
hefjast kl.19 og standa í eina
klukkustund.
Styrktartónleikar
í Hafnarfirði
GUÐRÚN Jóhannesdóttir hefur
opnað myndlistarsýningu í félags-
heimilinu Gullsmára við Gullsmára
13 í Kópavogi í tilefni af áttræðisaf-
mæli sínu.
Sýningin er opin á sama tíma og
félagsheimilið, kl. 9 til 17 alla virka
daga. Heitt er á könnunni og heima-
bakað meðlæti í boði.
Afmælissýning
í Gullsmára
DR. KERSTIN Svensson, lektor við
Háskólann í Lundi, verður gestur
Félagsráðgjafar við Háskóla Íslands
dagana 11.-14. september nk. Sér-
svið dr. Svenson innan félagsráðgjaf-
ar er félagsleg endurhæfing í fang-
elsum og réttarkerfi.
Rannsóknir hennar hafa m.a.
fjallað um stefnumótun í málefnum
unglinga í áhættuhópum, m.a. hvað
snertir unglinsstúlkur á stofnunum
og sjálfboðið starf í fangelsum. Einn-
ig hefur hún rannsakað viðbrögð og
viðhorf til átaka í fjölmenningarlegu
samfélagi ásamt orðræðu um vímu-
efnaneyslu.
Heimsókn dr. Svenson tengist
uppbyggingu kennslu, rannsókna og
sérhæfingar í réttarfélagsráðgjöf og
verður hún með málstofur fyrir
kennara í félagsráðgjöf við Háskóla
Íslands.
Dr. Kerstin Svenson heldur opin-
beran fyrirlestur á ensku fimmtu-
daginn 12. september kl. 16:15 í stofu
101 í Odda og hann ber heitið „Social
Work in the Criminal Justice Syst-
em: Punishment, Rehabilitation and
Support.“
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
aðgangur ókeypis.
Fyrirlestur um
félagslega
endurhæfingu
og refsingar
AÐSÓKNIN að Garðyrkjuskóla rík-
isins, Reykjum í Ölfusi hefur sjald-
an eða aldrei verið jafn góð því nú
stunda um 100 nemendur nám við
skólann.
Skólastarfið hófst á fullum krafti
um síðustu mánaðamót en 50 nem-
endur eru skráðir í reglulegt nám
auk 53 nemenda sem stunda nám í
skógrækt á Suðurlandi og Norður-
landi undir yfirskriftinni: Grænni
skógar. Í ár er í fyrsta skipti boðið
upp á fjarnám á 4 af 6 brautum
skólans, garðplöntubraut, ylrækt-
arbraut, umhverfisbraut og skóg-
ræktarbraut og hefur það nám
mælst mjög vel fyrir og fer vel af
stað. Nemendur koma víða af land-
inu, flestir eru þó af suðvesturhorn-
inu. Fjórir nemendur eru á heima-
vist skólans, margir leigja húsnæði
í Hveragerði og nágrenni og enn
fleiri keyra á milli Reykjavíkur og
skólans á hverjum degi, segir í
fréttatilkynningu frá skólanum.
Um 100 nem-
endur í Garð-
yrkjuskólanum