Morgunblaðið - 11.09.2002, Page 39

Morgunblaðið - 11.09.2002, Page 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 39 TILBOÐ / ÚTBOÐ Dalvíkurbyggð Útboð Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í lagningu hitalagna og endurnýjun á neysluvatnslögnum í Húsabakkaskóla, heimavist, (syðra hús). Útboðsgögn eru til afhendingar á Verkfræði- stofu Norðurlands, Hofsbót, Akureyri, og hjá Tæknideild Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu Dalvík. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Tækni- deildar Dalvíkurbyggðar kl. 10.30 þann 23. sept. 2002 að viðstöddum þeim bjóð- endum sem þess óska. Bæjartæknifræðingur. Laugavegur Til leigu mjög gott ca 133 fm verslunarhúsnæði á götuhæð við Laugaveg neðan Frakkastígs. Stórir gluggar. Upplýsingar í síma 891 6680 á kvöldin. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna ársfundar Starfsgreinasambands Íslands Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör fulltrúa á ársfund Starfsgreinasambands Íslands, sem haldið verður á Hótel Selfossi dagana 17. og 18. október 2002. Tillögur skulu vera um 36 aðalmenn og 36 til vara. Tillögum, ásamt meðmælum 120 fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu Eflingar- stéttarfélags, Sætúni 1, eigi síðar en miðviku- daginn 18. september kl. 12.00. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags. Skrifstofuherbergi við Suðurlandsbraut Til leigu nokkur góð skrifstofuherbergi með aðgangi að kaffistofu. Upplýsingar gefur Þór í síma 899 3760 eða Steinunn í síma 553 8640. ATVINNUHÚSNÆÐI SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60 Samkoma í Kristniboðs- salnum í kvöld kl. 20.30. „Ég veit hvar þú býrð“ Ragnar Gunnarsson talar. Kaffi og meðlæti til sölu á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. 2.—15. sept. Laugavegurinn — hraðferð. Grill í Bás- um innifalið í verði. Trússferð. Brottför frá BSÍ kl. 20:00. Verð kr. 17.900/20.400. Fararstjóri: Hákon Gunnarsson. ÖRFÁ SÆTI LAUS. 13.—15. sept. Básar á Goða- landi — Grillferð. Árleg grill- ferð í hjarta Goðalands. Grill laugardagskvöld innifalið. Brott- för frá BSÍ kl. 20:00. 7.800/8.800 í tjaldi. Fararstjóri: Sylvía Krist- jánsdóttir. Uppselt í skála, ennþá laust í tjaldi. 14.—15. sept. Fimmvörðu- háls. Lokaferð ársins. Brottför frá BSÍ kl. 8:30. Verð kr. 7.700/ 9.200. 15. sept. Reykjavegurinn (R- 7): Lambafell — Dyradalur. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr. 1.500/1.700. Fararstjóri: Steinar Frímannsson. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Glæsileg 4 herbergja íbúð til leigu fyrir reyklaust og reglusamt fjölskyldufólk. Sér- bílastæði og geymsla fylgir. Laus strax. Upplýsingar í síma 695 0925. HÚSNÆÐI Í BOÐI mbl.is ÍÞRÓTTIR Í KJÖLFAR umræðu um heilsu- gæslulækna sem fram fór í útvarpi nýverið hefur Morgunblaðinu borist athugasemd frá stjórn Félags ís- lenskra heimilislækna auk fréttatil- kynningar frá heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu og fara þær hér á eftir. Fyrst yfirlýsing stjórnar FÍH og síðar frétt ráðuneytisins. Hefur ekki viljað gera samning við sérfræðinga í heimilislækningum „Stjórn Félags íslenskra heimilis- lækna (FÍH) lýsir undrun sinni á sérkennilegum málflutningi Elsu Friðfinnsdóttur, aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra, í viðtali í fréttaþættinum „Hér og nú“ í út- varpinu að morgni 6. september sl. Af einhverjum ástæðum sá aðstoð- armaðurinn tilefni til að fjalla opin- berlega um og túlka fyrir almenn- ingi drög að skýrslu um Heilsu- gæsluna í Reykjavík sem enn er í vinnslu og merkt sem „trúnaðar- mál“. Aðstoðarmaður ráðherra hélt því fram í þættinum að helstu vanda- málin sem steðji nú að heilsugæslu landsmanna séu að vinnuafköst lækna hafi minnkað og að þeir fari sér hægt í vinnunni. Stjórn FÍH hefur ekki séð drögin að umræddri skýrslu, sem virðist hafa verið til- efni umfjöllunar fréttastofu útvarps á málinu. Það er bæði óþolandi og afar ósanngjarnt að pólitískur að- stoðarmaður ráðherra skuli fara með svo alvarlegar dylgjur um heila stétt. Tilgangurinn virðist einvörð- ungu vera sá að gera störf heim- ilislækna tortryggileg í augum þjóðarinnar. Með svo villandi málflutningi virðist heilbrigðisráðu- neytið vera að beina sjónum al- mennings frá eigin umkomuleysi í að leysa vandamál heilsugæslunnar, sem að mati FÍH þolir ekki frekari bið. Vinnulag og starfshættir heimils- lækna þróast og breytast hratt í nú- tímanum rétt eins og hjá öðrum sérfræðilæknum. Fjöldi atriða hafa bein áhrif á þessa þróun og má þar nefna örar framfarir í læknisfræði, breytta aldurssamsetningu þjóðar- innar, tilfærslu á verkefnum, hlut- fallslega og alvarlega fækkun í heimilislæknastétt, vaxandi kröfur almennings um síaukna þjónustu og svo mætti áfram telja. Mergur málsins er sá að heil- brigðisráðuneytið hefur alls ekki viljað gera samning við sérfræðinga í heimilislækningum, sem geri þeim kleift að starfa á eigin vegum eins og aðrir sérfræðilæknar geta gert. Þessi afstaða ráðuneytisins leiðir til mismununar milli lækna og er ein helsta orsök þess að rúmlega 50 sérmenntaðir heimilislæknar hafa á undanförnum árum horfið til ann- arra starfa í lengri eða skemmri tíma. Sú öfugþróun, sem nú á sér stað og sér ekki fyrir endann á, leiðir til enn vaxandi skorts á heimilislækn- um sem bitnar á almenningi í land- inu. Aðgerðir ráðuneytisins í marg- frægu vottorðamáli og nú síðast ofangreint innlegg aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra í umræðuna veldur því að enn fleiri heimilis- læknar munu flæmast í önnur störf. Það er dapurt til þess að vita að þrátt fyrir að fyrirsjánlegt sé að innan skamms verði með öllu lækn- islaust á Suðurnesjum og í Hafn- arfirði sér heilbrigðisráðuneytið enga ástæðu til þess aðhafast neitt í málinu. Stjórn Félags íslenskra heimilis- lækna lýsir fullri ábyrgð á hendur heilbrigðisráðherra á þeirri stöðu sem upp er komin í heimilislækn- ingum í landinu. Almenningur á það skilið að stjórnvöld meti heimilis- lækningar til jafns við aðrar sér- greinar læknisfræðinnar og leysi þannig þann brýna vanda sem að steðjar.“ Misskilningur, segir ráðuneytið Tilkynning heilbrigðisráðuneytis- ins fer hér á eftir: „Ranghermt er í yfirlýsingu stjórnar Félags íslenskra heimilis- lækna, sem send hefur verið fjöl- miðlum, að aðstoðarmaður heil- brigðismálaráðherra hafi í útvarps- viðtali gert skýrsludrög Ríkis- endurskoðunar um Heilsugæsluna í Reykjavík að umtalsefni, en í yfir- lýsingu stjórnarinnar segir: „Af ein- hverjum ástæðum sá aðstoðarmað- urinn tilefni til að fjalla opinberlega um og túlka fyrir almenningi drög að skýrslu um Heilsugæsluna í Reykjavík sem enn er í vinnslu og merkt sem „trúnaðarmál“.“ Viðtalið við aðstoðarmann heil- brigðismálaráðherra staðfestir að ekki er vitnað í nefnd skýrsludrög. Aðspurð um atriði í skýrsludrög- unum segir aðstoðarmaður ráð- herra t.d.: „... við verðum held ég að bíða eftir skýrslu og niðurstöðu Ríkisendurskoðunar til þess að sjá þær tölur og heyra þá að sjálfsögðu skýringar stjórnenda í heilsugæsl- unni og heilsugæslulækna á því. Þeirra hlið er auðvitað eitthvað sem við verðum að hlusta eftir líka.“ Af þessu má sjá að misskilnings gætir í yfirlýsingu stjórnar félags heimilislækna.“ Yfirlýsingar vegna umræðu um heilsu- gæslulækna SÁLFRÆÐINGARNIR Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson kenna fólki ýmsar lausnir við verkkvíða og frestunaráráttu á námskeiði hjá Endurmenntun HÍ 26. september og 3. október kl. 9:00–12:00. Leitað er svara við því hvað valdi verkkvíða, hvernig hann lýsir sér og hvaða leiðir eru færar til að vinna bug á honum. Lögð er áhersla á að þátttakend- ur setji sér skýr markmið og til- einki sér árangursríkar aðferðir til að kljást við kvíðann. Þátttakendur vinna sjálfvalin verkefni og er markmiðið að aðstoða þá við að skilja þann vítahring sem þeir hafa verið fastir í og finna leiðir til að rjúfa hann, segir í fréttatilkynn- ingu. Frekari upplýsingar um þetta námskeið eru á vefslóðinni www.- endurmenntun.is og þar er jafn- framt hægt að skrá sig. Verkkvíði og frestunarárátta FIMMTUDAGSKVÖLD 12. sept- ember verða haldnir tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju og mun allur ágóði af miðasölu renna óskiptur til styrktar Kristínu Ingu Brynjars- dóttur og fjölskyldu hennar, en Kristín Inga lenti í alvarlegu slysi um miðjan ágústmánuð. Á tónleikunum koma fram þær Antonia Hevesa, sem er nýráðinn orgelleikari og kórstjóri Hafnar- fjarðarkirkju, og Alda Ingibergs- dóttir, söngkona. Antonía er fædd í Ungverjalandi en fluttist til Íslands árið 1992 og bjó á Siglufirði þar sem hún var organisti og kórstjóri við Siglu- fjarðarkirkju. Antonía hefur einnig fengist talsvert við raddsetningar og útsetningar og samið tónlist. Ár- ið 1998 gaf hún út „24 orgellög“, eigin útsetningar fyrir orgel. Hóf hún störf við Hafnarfjarðarkirkju 1. september síðastliðinn. Munu þær Antonía og Alda flytja kirkju- lega tónlist, létt óperulög og ís- lenska söngtónlist. Tónleikarnir hefjast kl.19 og standa í eina klukkustund. Styrktartónleikar í Hafnarfirði GUÐRÚN Jóhannesdóttir hefur opnað myndlistarsýningu í félags- heimilinu Gullsmára við Gullsmára 13 í Kópavogi í tilefni af áttræðisaf- mæli sínu. Sýningin er opin á sama tíma og félagsheimilið, kl. 9 til 17 alla virka daga. Heitt er á könnunni og heima- bakað meðlæti í boði. Afmælissýning í Gullsmára DR. KERSTIN Svensson, lektor við Háskólann í Lundi, verður gestur Félagsráðgjafar við Háskóla Íslands dagana 11.-14. september nk. Sér- svið dr. Svenson innan félagsráðgjaf- ar er félagsleg endurhæfing í fang- elsum og réttarkerfi. Rannsóknir hennar hafa m.a. fjallað um stefnumótun í málefnum unglinga í áhættuhópum, m.a. hvað snertir unglinsstúlkur á stofnunum og sjálfboðið starf í fangelsum. Einn- ig hefur hún rannsakað viðbrögð og viðhorf til átaka í fjölmenningarlegu samfélagi ásamt orðræðu um vímu- efnaneyslu. Heimsókn dr. Svenson tengist uppbyggingu kennslu, rannsókna og sérhæfingar í réttarfélagsráðgjöf og verður hún með málstofur fyrir kennara í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Dr. Kerstin Svenson heldur opin- beran fyrirlestur á ensku fimmtu- daginn 12. september kl. 16:15 í stofu 101 í Odda og hann ber heitið „Social Work in the Criminal Justice Syst- em: Punishment, Rehabilitation and Support.“ Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Fyrirlestur um félagslega endurhæfingu og refsingar AÐSÓKNIN að Garðyrkjuskóla rík- isins, Reykjum í Ölfusi hefur sjald- an eða aldrei verið jafn góð því nú stunda um 100 nemendur nám við skólann. Skólastarfið hófst á fullum krafti um síðustu mánaðamót en 50 nem- endur eru skráðir í reglulegt nám auk 53 nemenda sem stunda nám í skógrækt á Suðurlandi og Norður- landi undir yfirskriftinni: Grænni skógar. Í ár er í fyrsta skipti boðið upp á fjarnám á 4 af 6 brautum skólans, garðplöntubraut, ylrækt- arbraut, umhverfisbraut og skóg- ræktarbraut og hefur það nám mælst mjög vel fyrir og fer vel af stað. Nemendur koma víða af land- inu, flestir eru þó af suðvesturhorn- inu. Fjórir nemendur eru á heima- vist skólans, margir leigja húsnæði í Hveragerði og nágrenni og enn fleiri keyra á milli Reykjavíkur og skólans á hverjum degi, segir í fréttatilkynningu frá skólanum. Um 100 nem- endur í Garð- yrkjuskólanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.