Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í GÆR voru 60 ár liðin frá því að
skotið var með vélbyssu úr þýskri
herflugvél á íbúðarhúsið Hamar á
Breiðdalsvík. Af því tilefni afhjúp-
aði Birgir Einarsson, sem bjó í hús-
inu þegar árásin var gerð, minning-
arskjöld sem hann lét gera um
atburðinn.
Þá hefur hann einnig merkt með
málningu hvar sprengikúlurnar
lentu á húsinu, en níu göt komu á
húsið í árásinni og fór ein kúlan í
gegnum tvöfaldan steinvegg og
endaði í öðrum vegg inni í húsinu.
Árásin var gerð klukkan 9:40 að
morgni 10. september 1942 og var
skjöldurinn afhjúpaður á sama tíma
í gær.
„Þetta er mér enn ofarlega í
huga og verður sjálfsagt meðan
maður tórir,“ segir Birgir sem var
fjórtán ára þegar árásin var gerð.
„Ég er eins og ég var þennan dag
fyrir sextíu árum, enn að hugsa um
þetta. Það var mikil mildi að enginn
skyldi slasast, kúlurnar komu svo
nálægt glugganum og maður var
fyrir innan,“ segir Birgir.
Hann telur að Hamar sé eina
íbúðarhúsið sem ráðist hafi verið á
úr flugvél á Íslandi í síðari heims-
styrjöld. Hamar stendur við Ásveg
á Breiðdalsvík og segir Birgir að
áhugasömum sé velkomið að skoða
minningarskjöldinn og förin eftir
sprengjurnar.
60 ár liðin frá því loftárás var gerð á íbúðarhús á Breiðdalsvík
„Þetta er mér enn
ofarlega í huga“
Ljósmynd/Hákon Hansson
Birgir við minningarskjöldinn ásamt barnabörnum sínum sem einnig
búa í Hamri ásamt foreldrum sínum. Vinstra megin við Birgi stendur
Aðalheiður Kristín, þá Auður og Arnþór Ingi Hermannsbörn.
HARPA Ingólfsdóttir var ein fjög-
urra skákmanna í liði Mennta-
skólans í Hamrahlíð sem sigruðu á
Norðurlandamóti framhaldsskóla
með miklum yfirburðum í Svíþjóð
um síðustu helgi. Aldrei áður hefur
kona verið í sigurliðinu, hvað þá
tvær, en auk Hörpu tefldi Aldís
Rún Lárusdóttir fyrir lið MH á
mótinu. Stefán Kristjánsson og
Davíð Kjartansson voru einnig í lið-
inu.
Harpa tefldi á þriðja borði í Sví-
þjóð og vann fjórar skákir af fimm
og gerði eitt jafntefli. Harpa er
komin heim aftur og er tekin til við
kennslu í Heppuskóla á Höfn, þar
sem hún hefur ráðið sig sem leið-
beinanda í vetur.
Hún hefur teflt frá níu ára aldri
og er í fremstu röð íslenskra skák-
kvenna. „Ég er næstbest,“ segir
hún og telur Guðfríði Lilju Grét-
arsdóttur vera þá bestu. Harpa seg-
ir að 14 til 15 ára stelpum þyki ekki
mjög töff að stunda skák og það sé
kannski ekki síst ástæðan fyrir rýr-
um hlut kvenna í íslensku skáklífi.
„Mér fannst það bara allt í lagi
og hélt áfram að tefla, enda er ég
lítið fyrir það að láta hafa áhrif á
mig,“ segir Harpa. Hún byrjaði að
keppa fyrir alvöru þrettán ára
gömul þegar hún tók þátt í Íslands-
móti kvenna. Næsta mót sem hún
tekur þátt í er Ólympíumótið í Slóv-
eníu næsta mánuði og teflir á öðru
borði.
Nálægt fyrsta áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli
Harpa segir að íslenskar skák-
konur hafi hingað til þurft að berj-
ast fyrir því að fara á Ólympíumót
og að þær hafi sjálfar safnað fyrir
ferðakostnaði. Nú fari þær jafn-
fætis karlaliðinu hvað það varðar.
Á sterku móti á Spáni í fyrra komst
hún mjög nálægt fyrsta áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli kvenna
og lagði m.a. stórmeistara að velli
við taflborðið. Hún segir að það sé
því jafnréttisbarátta í skákheim-
inum sem og annars staðar.
Harpa segist ætla að halda
ótrauð áfram að tefla og bæta sig
en stórmeistaratitill sé ekki á dag-
skrá alveg á næstunni. Harpa kenn-
ir náttúrufræði og dönsku í vetur
og stefnir á háskólanám næsta vet-
ur.
„Annaðhvort fer ég í Kennarahá-
skólann eða í sálfræði, það fer eftir
því hvort þeir verða mjög vondir
við mig krakkarnir á Hornafirði,“
segir Harpa Ingólfsdóttir.
Tvær stúlkur í sigurliði MH á Norðurlandamóti
Jafnréttisbarátta
í skákheiminum
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Harpa Ingólfsdóttir skákkona með Norðurlandameistarabikarinn.
Hornafirði. Morgunblaðið.
NEFND um framtíð ferjusiglinga um
Breiðafjörð ræddi við heimafólk í
Skáleyjum og Flatey í gær varðandi
samgöngur yfir Breiðafjörð og önnur
nefnd starfar í sambandi við sam-
göngur til Vestmannaeyja en þær
eiga báðar að skila af sér fyrir áramót.
Kristján Vigfússon, formaður
starfshóps um samgöngur til Vest-
manneyja og formaður nefndar, sem á
að gera tillögur um framtíð ferjusigl-
inga um Breiðafjörð, segir að gert sé
ráð fyrir að skila skýrslu varðandi
Breiðafjörðinn í haust og tillögur til
lengri tíma varðandi Vestmannaeyjar
eigi að liggja fyrir fyrir jól.
Hann segir að nefndin varðandi
Vestmannaeyjar hafi ekki komið sam-
an síðan hún skilaði áfangaskýrslu um
málið í ágúst sl. Í framlagðri áfanga-
skýrslu hafi verið tillögur til úrbóta til
skemmri tíma eins og t.d. fjölgun
ferða með Herjólfi og bættar aðstæð-
ur á Bakkaflugvelli. Í lokaskýrslunni
verði hins vegar litið til framtíðar-
möguleika í samgöngum til og frá
Vestmannaeyjum. Þar megi t.d. nefna
hugmyndir um ferjubryggju í Bakka-
fjöru og um svifnökkva, nýja ferju og
svo framvegis. Þessi mál séu skammt
á veg komin en þau verði skoðuð nán-
ar.
Að sögn Kristjáns hefur nefndin
varðandi Breiðafjörðinn komið þrisv-
ar saman. Ljóst sé að heimamenn vilji
sem mesta og besta þjónustu, en
nefndin geti hvorki tekið undir né
staðfest væntingar enda eigi hún eftir
að móta tillögur sínar.
Baldur uppfyllir ekki kröfur
Pétur Ágústsson skipstjóri er í
nefndinni sem á að gera tillögur um
framtíð ferjusiglinga um Breiðafjörð,
en hann rekur Sæferðir ehf., sem rek-
ur ferjuna Baldur á Breiðafirði. Hann
hefur bent á og rökstutt að nauðsyn-
legt sé að halda úti ferjuflutningum
yfir Breiðafjörð en Baldur uppfylli
langt því frá þær kröfur sem gerðar
séu til slíkra flutninga.
Þar sem nefndin sé enn að störfum
og eigi eftir að skila af sér segir Pétur
að ekki sé rétt að vera að greina frá
einhverju séráliti sínu enda komi
nefndin til með að skila sinni skýrslu
sameiginlega. Hins vegar hafi hann
sagt og leggi almennt áherslu á að
samgöngur við þennan landshluta
verði að bæta. Mjög skiljanlegt sé að
íbúar á suðurfjörðum Vestfjarða vilji
fá almennilegan heilsársveg suður, en
samt sem áður eigi siglingar yfir
Breiðafjörð fullkomlega rétt á sér og
verði áfram, þó að ekki væri nema
vegna ferðamanna.
Pétur bendir á að Baldur hafi ekki
verið smíðaður með þarfir nútímans í
huga, hvorki varðandi farþega- né
bílaflutninga. Skipið sé hæggengt,
bílaþilfarið allt of þröngt, skipið allt of
lítið, sjóhæfnin óþægileg, aðstaða far-
þega mjög ófullkomin og aðbúnaður
áhafnar algerlega óhæfur. Nauðsyn-
legt sé að fá hraðskreiðara og stærra
skip sem sigldi tvisvar á dag allt árið
svo menn hefðu fleiri valkosti. „Ferju-
flutningar yfir Breiðafjörð verða ekki
aflagðir, þó að það komi nýr og betri
vegur, sem er samt nauðsynlegt að
fá,“ segir hann.
Undirskriftir í Eyjum
Undirskriftalistar hafa legið
frammi víða í Vestmannaeyjum þar
sem mótmælt er ófremdarástandi í
samgöngumálum eyjanna. Þess er
krafist að ríkisvaldið tryggi að
minnsta kosti tvær ferðir með Herj-
ólfi á dag allt árið og geri nú þegar
ráðstafanir til að fá nýja og hrað-
skreiða ferju til landsins.
Kristján Bjarnason, garðyrkju-
stjóri í Vestmannaeyjum, kom undir-
skriftasöfnuninni af stað og segir
hann að um 1.200 manns hafi þegar
skráð sig á listana, en um 2.100 séu á
kjörskrá í Eyjum.
Hann segir að slæmt ástand í sam-
göngumálum Eyja hafi verið helsta
umræðuefni Eyjamanna undanfarna
mánuði, en í nýju byggðaáætluninni,
sem hafi verið samþykkt í vor, standi
skýrum stöfum að það sé vilji ríkis-
stjórnarinnar að leita allra leiða til að
bæta samgöngur.
Að sögn Kristjáns þykir Eyja-
mönnum þjónusta Herjólfs hafa
versnað auk þess sem hann segir að
flugið sé dýrara en áður og ferðum
hafi fækkað. Skipið anni ekki flutn-
ingsþörfinni og því sé fyrsta skrefið að
fá fleiri ferðir. Síðan þurfi að huga að
stærri og hraðskreiðari ferju, en til
séu skip, sem geti farið frá Vest-
mannaeyjum til Þorlákshafnar á
klukkutíma í stað nær þriggja tíma
eins og staðreyndin sé með Herjólf. Í
þessu sambandi beri líka að hafa í
huga að í desember 2000 hafi verið
samþykkt þingsályktunartillaga um
könnun á ferjuaðstöðu uppi á Bakka-
fjöru, en ekkert hafi verið gert í því
máli.
Að sögn Kristjáns er nú kjörið
tækifæri til að skoða nýja möguleika.
Herjólfur sé að fara í slipp um helgina
og til boða standi að fá norska ferju.
Breiðafjarðarferjan Baldur sé engin
lausn, því hún anni engu, taki 18 bíla
og einn jeppa, en Herjólfur taki 70
bíla og sé of lítill. Auk þess sé Baldur
um fjóra tíma á leiðinni.
Kristján segir að svifnökkvi hafi
líka lengi verið í umræðunni en ekki
hafi mátt minnast á þann möguleika á
æðstu stöðum. „Aðalatriðið og það
sem fer í taugarnar á mönnum hérna
er að við höfum dregist aftur úr miðað
við aðra landsmenn. Hér hefur verið
stöðnun í samgöngumálum en alls
konar endurnýjun hefur átt sér stað
uppi á landi. Bæjarbúum fækkar stöð-
ugt og þetta er hluti af því vandamáli.“
Framtíð
ferjusiglinga
til umræðu
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra lagði fram tillögu á ríkis-
stjórnarfundi í gærmorgun um að
þriggja ára samningur verði gerður
við grænlensku landsstjórnina um
flug á milli Íslands og Narsarsuaq á
Suður-Grænlandi. Flug þangað frá
Íslandi hefur nú legið niðri síðan á
síðasta ári eftir að Flugfélag Íslands
taldi fjárhagslegan grundvöll þess
brostinn.
Í minnisblaði samgönguráðherra
segir að sú ákvörðun Flugfélags Ís-
lands hafi komið mörgum spánskt
fyrir sjónir þar sem gert hafi verið
ráð fyrir auknum áhuga ferðamanna
á Suður-Grænlandi í kjölfar upp-
byggingar á bæ Eiríks rauða og
Þjóðhildarkirkju í Brattahlíð.
Fram kemur í minnisblaðinu að
grænlenska landsstjórnin hafi sótt
stíft að flug þetta verði hafið að nýju.
Landsstjórnin er tilbúin að leggja
fram 13,5 milljónir íslenskra króna á
ári gegn því að Ísland leggi fram 8,5
milljónir króna. Ráðherra segir að
verði þessi upphæð samþykkt hafi
Flugfélag Íslands lýst sig reiðubúið
til að gera þriggja ára samning við
stjórnvöld landanna um þetta flug.
Með samningnum er gert ráð fyrir
8 vikna flugi að sumri til og er það
mjög í samræmi við óskir þeirra sem
gleggst þekkja til ferðamála í Suður-
Grænlandi auk þess að vera háanna-
tími íslenskrar ferðaþjónustu.
Samkvæmt minnisblaðinu er von-
ast til þess að flugið auki aðdrátt-
arafl Íslands ekki síður en Græn-
lands enda geti ferðamenn notfært
sér í auknum mæli þann möguleika
að slá saman Íslands- og Grænlands-
ferð.
15 milljónir af eldri fjárheimild
Samgönguráðuneytið hyggst leita
eftir heimild fjármálaráðuneytis til
að nýta til þessa verkefnis 15 millj-
ónir króna af fjárlögum ársins 2000.
Þeir fjármunir voru upphaflega ætl-
aðir til uppbyggingar ferðamála í
Scoresbysundi á Grænlandi en hafa
ekki verið nýttir fram að þessu. Í
framhaldinu yrði síðan leitað eftir
frekari fjárveitingum til að geta upp-
fyllt samninginn við grænlensk
stjórnvöld á árunum 2004 og 2005.
Segir ráðherra í minnisblaðinu að
brýnt sé að flýta þessu máli þar sem
Flugfélag Íslands og fleiri ferða-
þjónustuaðilar vilji hefja kynningu
og sölu á ferðum til Suður-Græn-
lands hið allra fyrsta.
Samgönguráð-
herra með tillögu
fyrir ríkisstjórn
Vill endur-
reisn flugs
milli Ís-
lands og S-
Grænlands
FLUGFÉLAG Vestmannaeyja og
ferðaþjónustufyrirtækið Viking
Tours hefja áætlanaferðir milli
Reykjavíkur og Eyja á föstudag þar
sem Herjólfur fer í slipp á mánudag.
Er búist við að Herjólfur verði frá í
nokkrar vikur.
Viking Tours og Flugfélag Vest-
mannaeyja verða með 1-2 ferðir á
dag milli Reykjavíkur og Eyja og
verður flogið frá Eyjum kl. 8 á
morgnana að Bakkaflugvelli þar sem
rúta flytur farþegana til Reykjavík-
ur. Klukkan 16.30 fer rúta síðan frá
Reykjavík að Bakkaflugvelli þaðan
sem flogið er til Eyja kl. 18.30. Um
helgar verður flogið frá Eyjum kl. 10
yfir að Bakka.
Ferðir milli
Reykjavíkur,
Bakka og
Eyja byrja á
föstudag