Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 17 Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! Ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! 5 gerðir - margir litir Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900 60 ára frábær reynsla. menn töldu, að þeir væru fleiri og haft var eftir farþega, sem komst lífs af, að meira en 150 manns hefðu far- ist. Með lestinni voru 535 farþegar. Þrettán af vögnum lestarinnar fóru út af teinunum þegar hún var að fara yfir brú og féll einn þeirra 90 metra niður í Dhave-ána fyrir neðan. Aðrir tveir héngu út af brúnni en hinir lentu hver ofan á öðrum. Ýjað að hryðjuverki Bandaru Dattatreya, aðstoðar- járnbrautaráðherra, sagði, að hugs- anlega bæru kommúnistar eða maó- ískir skæruliðar ábyrgð á slysinu. Lal Krishna Advani, innanríkisráð- herra Indlands, kvað hins vegar of snemmt að segja nokkuð um ástæðu slyssins. Lestarslys eru mjög tíð á Indlandi enda er járnbrautakerfið gamalt og viðhald ónógt. Með lestunum ferðast um 13 milljónir manna á dag og starfsmenn þeirra eru 1,6 milljónir. Lítið hefur þó borið út af með lest- ina, sem fór út af sporinu í gær, Rajdhani-hraðlestina, enda er það aðeins fyrir efnafólk að ferðast með henni. Kostar farmiðinn allt að 13.000 ísl. kr., sem er miklu meira en venjuleg mánaðarlaun óbreyttra Indverja. AÐ minnsta kosti 80 manns týndu lífi í gær á Indlandi og 180 slösuðust er hraðlest fór út af sporinu er hún var að fara yfir brú. Lenti einn lest- arvagnanna úti í ánni en aðrir tveir héngu út af henni. Talið er hugsan- legt, að um hafi verið að ræða hryðjuverk. Nitish Kumar, járnbrautaráð- herra Indlands, kom í gær á slys- staðinn og fullyrti þá, að átt hefði verið við teinana áður en lestin, sem var á leið frá Kalkútta til Nýju- Delhi, kom aðvífandi á 130 km hraða. Sagði hann, að um 50 manns hefðu farist í slysinu en aðrir embættis- AP Slysið varð við bæinn Rafiiganj í Bihar-ríki. Ekki er talið útilokað, að átt hafi verið við lestarteinana. Hugsanlega um hryðjuverk að ræða Tugir manna fórust í lestarslysi á Indlandi Gaya. AFP. IAN Huntley kom fyrir rétt í Bret- landi í gær en hann er ákærður fyr- ir að hafa myrt stúlkurnar Holly Wells og Jessicu Chapman í síðasta mánuði. Dómari úrskurðaði að Huntley, sem er 28 ára, skyldi sæta frekari geðrannsóknum og var hann því fluttur aftur til Rampton- réttargeðdeildarinnar í Nott- ingham-skíri, en þar hefur hann dvalið frá því að lögregla ákærði hann fyrir morð 20. ágúst sl. Bættu saksóknarar í gær við ákæru á hendur honum fyrir að hindra framgang réttvísinnar en þeir telja að Huntley og kærasta hans, Maxine Carr, hafi í samein- ingu ákveðið að bera ljúgvitni við yfirheyrslur lögreglumanna. Huntley kom til réttarins í Pet- erborough um áttaleytið í lög- reglubíl með dökkar rúður. Þrír lögreglubílar fylgdu bíl Huntleys og um 50 lögreglumenn voru á staðnum til að varna því að hann fengi sömu móttökur og Carr, þeg- ar hún kom fyrir rétt en hróp voru þá gerð að henni. Aðeins höfðu þó um 200 manns komið saman til að lýsa andstyggð sinni. Huntley látinn sæta frekari geðrannsókn Reuters JAFNRÆÐI var með Rússum og „heiminum“ í sjöttu og sjöundu umferð skákmótsins í Moskvu í gær. Að þeim loknum stóðu leikar þannig, að heimurinn hafði fengið 35,5 vinninga en Rússar 34,5. Í sjöttu umferð unnu hvorir tvær skákir en hinum sex lauk með jafntefli. Í þeirri sjöundu vann hvort lið eina skák en jafn- tefli varð í átta. Það vakti athygli í fyrradag þegar Judit Polgar, eini kvenmað- urinn í mótinu, sigraði Garrí Kasparov og í sjöttu umferðinni í gær hafði hún lengi töglin og hagldirnar gegn Vladímír Kram- ník, næststigahæsta skákmannin- um, en honum tókst þó að hanga á jafnteflinu. Í sjöundu umferðinni brást henni hins vegar bogalistin gegn Alexei Dreev. „Heimurinn“ með forystu Moskvu. AP. Skákmótið í Moskvu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.