Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 45
um svo pirraðir að við
rústuðum sviðið í lokin
á laginu „Stick’em
Up“!
Stuð með
Tommy Lee
Eftir skemmtilega
dvöl og vel heppnaða
tónleika í Ástralíu, lá
leiðin loks heim (fyrir
suma). Framundan var
um sólarhringsflug
heim til Íslands aftur
og þriggja mánaða lotu
nánast lokið. Ég ákvað
þó að verða eftir í Los
Angeles því hljóm-
sveitin Switched bauð
mér að rúlla með sér á
Ozzfest í viku (tón-
leikahátíð sem stýrt er
af rokkkónginum Ozzy
Osbourne). Ég þáði
það með þökkum enda
dágóður slatti af góð-
um böndum á boð-
stólum. Fyrsta Ozz-
festið var í San
Francisco í Kaliforníu
og voru meðlimir
Switched í góðu stuði
enda hentaði Ozzfest
þeim mun betur en Warped-hátíðin. Í
millitíðinni höfðu þeir farið í tónleika-
ferðalag til að hita upp fyrir Tommy
Lee og hann var tíður gestur í
Switched-rútunni þessa viku sem ég
var með í för. Ég var ekki með bak-
sviðspassa á þessum fyrstu tón-
leikum en öðlingurinn Tommy Lee sá
um að fylgja mér hvert sem ég vildi.
Fyrst á dagskránni var að berja The
Apex Theory augum en Quarashi
voru svo heppnir að fá að hita upp
fyrir þá í vor á MTV2-hátíðinni.
Flestir meðlimir hljómsveitarinnar
eru frá Armeníu og var söngvari
þeirra áður trommari hjá System Of
A Down (sem voru einmitt eitt af að-
alnúmerum Ozzfest). Það var hrein
unun að horfa og hlusta á Apex
Theory. Þeir tóku nokkur vel valin
lög af meistarastykkinu Topsy-Turvy
og hátt í 5 þúsund manns tóku vel
undir með þeim. Eitt allra skemmti-
legasta rokkband dagsins í dag. Eftir
að The Apex Theory hafði lokið sér af
tók ég smátíma í að skoða svæðið.
Ozzy var með nóg í boði eins og
venjulega; hægt var að fara í teygju-
stökk, fá sér húðflúr,
kaupa sér föt af ýmsum
toga, fá sér gat í líkam-
ann og margt margt
fleira. Nú fór að líða að
hápunkti hátíðarinnar
því sænsku snilling-
arnir í Meshuggah
voru við það að stíga á
svið þegar ég kom úr
labbitúrnum. Mes-
huggah hafa aukið vin-
sældir sínar til muna
vestan hafs og sér-
staklega eftir að Jack
Osbourne (sonur Ozzy)
fór að spila tónlistina
þeirra í sjónvarpsþætt-
inum The Osbournes
sem er einn vinsælasti
sjónvarpsþáttur Am-
eríku um þessar mund-
ir. Meshuggah steig á
stokk með miklum lát-
um og áhorfendur
kunnu vel að meta níð-
þunga tónlistina.
Margir úr öðrum
hljómsveitum hátíð-
arinnar (Down, System
Of A Down, Ozzy Osbo-
urne og Glassjaw) voru
mættir til að horfa á
Svíana. Bróðurpartur efnisskrárinn-
ar var af meistaraverkinu Chao-
sphere en þeir tóku einnig nokkur lög
af plötunni Destroy Erase Improve.
Eftir tónleikana fór ég svo að veiða
með einum af gítarleikurum sveit-
arinnar og æfði mig í sænskunni.
Hann sagði að sumarið hefði gengið
framar öllum vonum og var ánægður
með hversu marga nýja aðdáendur
hljómsveitin hafði eignast. Ég spurði
hvort það væru einhverjar líkur á að
þeir myndu spila á Íslandi og var
hann vongóður um að það myndi ger-
ast einhverntímann í vor þegar dag-
skránni í Bandaríkjunum væri lokið.
Vonbrigði … en svo léttir
Mestu vonbrigði Ozzfest voru
Down (sem er samsuða úr Pantera,
Corrosion Of Conformity og Crow-
bar) með Phil Anselmo í broddi fylk-
ingar. Þeir þurftu nánast hjálp á svið-
ið vegna þess hversu dópaðir þeir
voru og gátu svo varla spilað þegar
þangað var komið. Ekki mikil fag-
mennska þar á ferð. Eftir að hafa
horft á Hatebreed, System Of A
Down og Rob Zombie var loksins
komið að aðalnúmeri hátíðarinnar,
sjálfum Ozzy Osbourne. Hljómsveit
hans var stjörnum prýdd svo ekki sé
meira sagt. Sjálfur Zakk Wylde á gít-
arnum, Mike Bordin úr Faith No
More á trommum og Rob Trujillo úr
Suicidal Tendencies á bassa. Ozzy hóf
tónleikana á að spila 10 mínútna
kynningarmyndband fyrir viðstadda
þar sem hann hann gerði nett grín að
Madonnu, Ali G, Saddam Hussein og
fleirum. Hann steig svo loks sjálfur á
svið við mikinn fögnuð áhorfenda og
hóf leikinn. Ætla má að um 60 þús-
und manns hafi verið á stóra sviðinu
meðan hann spilaði. Hann tók nokkur
vel valin Black Sabbath-lög í bland
við eigið efni og djöflaðist fram og
aftur sviðsenda á milli allan tímann.
Alveg merkilegt að hann skuli geta
þetta ennþá, fimmtugur maðurinn.
Eftir tónleikana tók ég stefnuna á
Los Angeles en ég þurfti að ná flug-
vél til London daginn eftir. Fyrir lá
að spila á einum tónleikum með
Switched í Camden í London og
fljúga svo heim daginn eftir. Ég varð
orðinn langeygur eftir heimförinni
enda búinn að vera á ferðalagi í þrjá
og hálfan mánuð samfleytt.
En þegar uppi var staðið var þessi
ferð í alla staði frábær og sannarlega
einstök forréttindi að fá að hafa feng-
ið að taka þátt í þessu ævintýri með
Quarashi-strákunum.
Tarfurinn sjálfur lætur gítarinn væla.
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 45
Skráning er í síma 565-9500
Undirstaða árangursríkrar símenntunar er góður lestrarhraði.
Byrjaðu á grunninum og gerðu eftirleikinn auðveldan.
Höldum hraðlestrarnámskeið í fyrirtækjum og stofnunum
símenntun
Næsta almenna námskeið hefst 24. september.
www.h.is
HRAÐLESTRARSKÓLINN