Morgunblaðið - 11.09.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR erlendir ferðamenn sluppu
ómeiddir úr bílveltu síðdegis í gær.
Ferðalangarnir voru á bílaleigubíl og
valt hann eina veltu niður brattan
vegkant á Jökuldal og hafnaði á hjól-
unum.
Að sögn lögreglunnar á Egilsstöð-
um er jeppinn talinn ónýtur.
Bílvelta
á Jökuldal
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sendi frá sér yfirlýsingu
í gærmorgun, þar sem fram kom að
hún hygðist ekki bjóða sig fram til
Alþingis í vor. „Niðurstaða mín er sú
að ekkert það hafi gerst á vettvangi
stjórnmálanna sem knýi á um að ég
breyti þeirri afstöðu sem ég tók í vor
og söðli um,“ segir hún m.a. í yfirlýs-
ingu sinni.
Í könnun sem Gallup gerði fyrir
þjóðmálaritið Kreml.is og birt var í
byrjun síðustu viku kom fram að færi
Ingibjörg Sólrún fyrir lista Samfylk-
ingarinnar í næstu alþingiskosning-
um myndi flokkurinn auka fylgi sitt
um tæplega þriðjung. Í kjölfarið
sagðist Ingibjörg Sólrún ætla að gefa
sér tíma til þess að fara yfir fyrri rök
um það hvort hún byði sig fram til
Alþingis.
„Ég sagði í vor að ég stefndi ekki
að þingframboði og ég endurtek það
núna,“ segir hún í samtali við Morg-
unblaðið. „Ég hef í sjálfu sér engu við
þetta að bæta. Og að halda áfram
endalausum vangaveltum um ein-
hverja óræða framtíð er eins og hver
önnur langavitleysa.“
Þegar Ingibjörg Sólrún er spurð
hvort ákvörðunin um að bjóða sig
ekki fram í vor hafi verið erfið segir
hún: „Nei. Hún var ekki erfið.“ Um
ástæðu þess að hún tók samt viku í
að hugsa málið segir Ingibjörg Sól-
rún: „Það er eingöngu vegna þess að
ég hef það vinnulag að vera alltaf
tilbúin að leyfa fólki að sannfæra mig
um sín sjónarmið. Ég vildi gefa fólki
kost á því að gera það. Ég fór yfir
þau rök sem fólk færði fram og fór
yfir þau sjónarmið sem lágu til
grundvallar afstöðu minni í vor. Ég
talaði við mjög marga og komst að
þeirri niðurstöðu að það hefði ekki
orðið nein sú breyting á vettvangi
stjórnmálanna sem gerði það að
verkum að ástæða væri til að ég
breytti afstöðu minni í þessum mál-
um.“
Ingibjörg Sólrún segist ennfremur
hafa hugleitt stöðu sína út frá þeim
skuldbindingum sem hún hafi tekist
á hendur fyrir kjósendur R-listans,
því til þeirra sæki hún umboð sitt.
„Þeir eru mitt bakland. Og ég vildi
meta stöðu mína gagnvart þeim.“
Ingibjörg segist aðspurð einnig hafa
rætt þessi mál við Halldór Ásgríms-
son, formann Fram-
sóknarflokksins, og
Steingrím J. Sigfússon,
formann Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns
framboðs. Innt eftir því
hvað rætt hafi verið um
á þeim fundum segir
hún: „Ég var fyrst og
fremst að ræða við þá
um stöðuna í landsmál-
unum og reyna að meta
hvernig landið lægi
þar.“ Ingibjörg ítrekar
á hinn bóginn að öll þau
samtöl sem hún hafi átt
við þá sem og aðra síð-
ustu viku um framboðs-
málin séu trúnaðarmál.
Ekki skaðað R-listann
Þegar Ingibjörg Sólrún er spurð
hvort hún hafi orðið fyrir miklum
þrýstingi á báða bóga segir hún að
margir hafi haft samband en þrýst-
ingurinn hafi þó ekki verið „óeðlileg-
ur“, eins og hún orðar það. „Margt
fólk hafði samband við mig og vildi
koma sínum sjónarmiðum á fram-
færi á hvorn veginn sem var. Það var
allt saman gert af mjög heilum hug
og ég mat þau sjónarmið mikils. En
þrátt fyrir allt þetta hlýtur niður-
staðan alltaf að vera mín. Ég get ekki
framselt hana.“
Yfirlýsingin sem Ingibjörg Sólrún
sendi frá sér í gær fer hér á eftir:
„Í aðdraganda síðustu borgar-
stjórnarkosninga var ég þráspurð
um fyrirætlanir mínar á vettvangi
stjórnmálanna. Ég gaf margsinnis
skýr svör um að hugur minn stefndi
ekki til stjórnmálaþátttöku á lands-
vísu í komandi alþingiskosningum.
Að undanförnu hafa fjölmargir hvatt
mig til að endurskoða þessa afstöðu
mína og meðal annars vísað til skoð-
anakönnunar, sem birtist fyrir viku,
um hvaða þýðingu þátttaka mín í
komandi alþingiskosningum gæti
haft.
Ég hef vegið og metið þessi mál
með sjálfri mér og í samræðum við
aðra á síðustu dögum. Ég hef meðal
annars hugleitt stöðuna út frá þeim
skuldbindingum sem ég hef tekist á
hendur fyrir kjósendur Reykjavíkur-
listans og þeim markmiðum sem ég
hef sett mér í starfi borgarstjóra.
Niðurstaða mín er sú
að ekkert það hafi gerst
á vettvangi stjórnmál-
anna sem knýi á um að
ég breyti þeirri afstöðu
sem ég tók í vor og söðli
um.
Ég tel mikla mögu-
leika á því að kosningar
til Alþingis næsta vor
marki þáttaskil í land-
stjórninni – hvort sem
ég á þar hlut að máli
eða ekki. Ég er jafn-
framt sannfærð um að
góður árangur Reykja-
víkurlistans á undan-
förnum árum og öflugt
starf hans á næstu
mánuðum geti vísað veginn og skipt
kosningaúrslitin talsverðu máli.
Þeim fjölmörgu sem hafa haft
samband við mig vegna þessa máls
þakka ég stuðning og góð ráð, gefin
af heilum hug.“
Þegar Ingibjörg Sólrún er innt eft-
ir því hvað hún eigi við með því að R-
listinn geti vísað veginn segir hún:
„Það hvernig þessir þrír flokkar hafa
starfað saman að Reykjavíkurlistan-
um undanfarin átta ár ætti að geta
verið mönnum vitnisburður um það
að þessir flokkar geti náð saman og
ættu líka að geta náð saman í land-
stjórninni. En til að það geti orðið
þurfa menn fyrst og fremst að ná
saman um þær breytingar sem máli
skipta og leggja ágreiningsefni til
hliðar.“
Virðir ákvörðun
Ingibjargar
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir Samfylk-
inguna þakkláta Ingibjörgu Sólrúnu
fyrir að hafa gefið sér tíma til að
íhuga vandlega hvort hún ætti að
slást í baráttusveit flokksins fyrir
þingkosningarnar í vor. Árni Þór
Sigurðsson og Alfreð Þorsteinsson
borgarfulltrúar segja ákvörðun Ingi-
bjargar ekki koma á óvart.
„Þetta sýnir að við eigum öflugan
stuðningsmann í ráðhúsinu,“ segir
Össur og heldur áfram. „Ég dreg
enga dul á að ég hefði viljað sjá hana
koma inn í forystuhópinn. En ég virði
þessa ákvörðun. Hún sagði mér sjálf
í morgun (gærmorgun) á hvaða rök-
um hún hefði tekið ákvörðunina og
ég vona að almenningur virði ákvörð-
un hennar líka.
Ég horfi hins vegar til þeirrar
staðreyndar að Samfylkingin er
núna á mjög góðu skriði. Henni hefur
aukist ásmegin allt þetta ár. Miðað
við síðustu skoðanakönnun er hún
komin yfir kjörfylgi. Ég einhendi
mér því baráttuglaður með mína
vösku sveit í það verkefni sem er
framundan, þ.e. í kosningabaráttu
sem við væntum að ljúki með því að
við tökum þátt í að mynda hér rík-
isstjórn að vori.“
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar Reykjavíkur og fulltrúi
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs á R-listanum, segir að nið-
urstaða Ingibjargar ætti ekki að
koma neinum á óvart. „Ég er mjög
feginn því að hún hefur tekið þessa
ákvörðun og styð hana heilshugar.“
Árni Þór minnir á að hann hafi lýst
þeirri skoðun sinni, eftir að umrædd
skoðanakönnun var kunngjörð, að
hann vildi ekki að Ingibjörg yfirgæfi
borgarmálin. „Ég tel að Ingibjörg sé
með þessari ákvörðun að fara eftir
þeim yfirlýsingum sem hún sjálf gaf
mjög afdráttarlaust.“
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi og fulltrúi Framsóknar-
flokksins á R-listanum, segir að
ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar um
að söðla ekki um komi sér ekki á
óvart. „Hún vildi kanna hvort breyt-
ingar hefðu orðið á hinu pólitíska
landslagi frá því í vor en svo reyndist
ekki vera,“ útskýrir Alfreð. „Það er
reginmunur á pólitískum aðstæðum
annars vegar árið 1994, þegar Ingi-
björg kom fyrst til skjalanna, og hins
vegar nú haustið 2002. Sá munur
felst aðallega í því að árið 1994 sam-
einuðust félagshyggjuflokkarnir á
vinstri vængnum um að leita til
hennar og óska eftir því að hún yrði
borgarstjóraefni. Núna er það Sam-
fylkingin ein og sér sem leitar til
hennar.“
Alfreð segir að síðustu að úr því
Ingibjörg Sólrún hafi ekki dregið
það lengur en raun ber vitni að
„höggva á þennan hnút“ telji hann að
Reykjavíkurlistinn hafi ekki borið
neinn skaða af atburðarásinni síð-
ustu daga. „R-listinn hefur heldur
styrkst ef eitthvað er.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hyggur ekki á framboð í komandi þingkosningum
Segir að ekkert knýi
á um að hún söðli um
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
STURLA Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, og Bjarni Djurholm, at-
vinnumálaráðherra Færeyja, und-
irrituðu í gær samstarfssamning
um ferðamál milli landanna
tveggja.
Samningurinn tekur gildi 1. jan-
úar næstkomandi og gildir í þrjú ár.
Löndin leggja fram jafnháa upp-
hæð, tíu milljónir til samstarfsins á
ári, en það gengur undir nafninu
Fitur.
Megintilgangur þessa samstarfs
er að auka ferðalög og önnur sam-
skipti milli Íslands og Færeyja. Í því
skyni styrkir verkefnið árlega fjöl-
marga íslenska og færeyska hópa
og einstaklinga, auk fyrirtækja sem
hafa skýr markmið með ferðalögum
sínum og í anda samstarfsins. Fitur
hefur einnig komið á samstarfi milli
skóla í löndunum tveimur.
Í samningnum er einnig lögð
áhersla á að auka enn frekar sam-
starf íslenskra og færeyskra flug-
félaga til að bæta megi samgöngur
milli landanna, enda eru öruggar
og tíðar ferðir undirstaða þess að
samskipti milli Íslands og Færeyja
verði tryggð. Eins er lögð áhersla á
að íbúar landanna beggja ferðist
meira innbyrðis. Sérstaklega er í
samningnum fjallað um samskipti á
sviði atvinnu- og menningarmála,
sem og íþrótta- og námsferðir auk
vinabæjatengsla.
Svipaður samningur hefur áður
verið í gildi milli landanna og sagði
Sturla að hann hefði gefið góða
raun og verið árangursríkur. Í
sama streng tók Bjarni og sagði að
ferðaþjónusta í báðum löndum hefði
notið góðs af samstarfinu.
Við sama tækifæri afhenti sam-
gönguráðherra Ásmundi Gíslasyni,
varaformanni Ferðamálasamtaka
Íslands, styrk að upphæð 9 milljónir
króna. Styrkurinn skiptist jafnt
milli samtakanna og landshluta-
samtakanna sem eru 8 talsins.
Fénu er ráðstafað í heimabyggð
og m.a. notað til auglýsinga, vef-
gerðar, blaðaútgáfu og ýmissa
verkefna annarra. Ferðamála-
samtök Íslands notuðu sinn hluta
styrksins til að byggja upp svonefnt
Ferðatorg sem kynnt var í Smára-
lind síðastliðið vor og miðaði að því
að kynna ferðir innanlands. Þar var
markaðsátakinu „Ísland - sækjum
það heim“ hleypt af stokkunum.
„Það var mikil ánægja með að pen-
ingunum var úthlutað út í héruðin
og menn gátu ráðstafað þeim eins
og þeir töldu best,“ sagði Ásmund-
ur.
Samstarfssamningur gerður milli Íslands og Færeyja á sviði ferðamála
Markmiðið að auka
ferðalög og koma á
samstarfi skóla
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Bjarni Djurholm atvinnu-
málaráðherra takast í hendur að lokinni undirskrift samningsins.
DRÖG að lokaskýrslu rannsóknar-
nefndar flugslysa í Noregi um flug-
atvikið á Gardermoen flugvelli í jan-
úar sl. verða send málsaðilum til
umsagnar í vikunni.
Farþegaþota Flugleiða lenti þá í
miklum vandræðum við aðflug og var
flugvélin aðeins 300 fet frá jörðu þeg-
ar hún hækkaði flugið á ný.
Þormóður Þormóðsson, rannsókn-
arstjóri rannsóknarnefndar flugslysa
er fulltrúi Íslands við rannsóknina.
Hann segir að þeir sem fái skýrsluna
til umsagnar séu flugmennirnir tveir,
fyrsta flugfreyja, Flugleiðir, Boeing-
verksmiðjurnar, flugumferðarstjórn-
in í Noregi og Flugmálastjórn Íslands
og Flugmálastjórn Noregs.
Þeir hafa síðan 60 daga til að skila
athugasemdum og má búast við að
lokaskýrsla verði gefin út eftir miðjan
nóvember.
Alvarlegt flugatvik við
Gardermoen í janúar
Drög að loka-
skýrslu send
málsaðilum
HARLEM Globetrotters koma
hingað til lands í nóvember á vegum
Körfuknattleikssambands Íslands
og leika hér sex leiki víðs vegar um
landið. Liðið kom hingað síðast fyrir
níu árum eða haustið 1993.
Pétur Hrafn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Körfuknattleikssam-
bandsins, segir að nýr aðili hafi
keypt liðið og þeir hafi haldið sýn-
ingar í Evrópu að undanförnu.
„Ferðir þeirra hingað hafa alltaf
heppnast mjög vel, við verið mjög
ánægðir með þá og þeir skilað okk-
ur svolitlu af aurum í kassann.
Globetrotters leika sex leiki hér, í
Keflavík, á Egilsstöðum, tvo í
Reykjavík og síðan á Akureyri og
Sauðárkróki. Um tvö lið er að ræða,
þ.e. Globetrotters sem spilar á móti
liði sem heitir Washington Gener-
als. Þarna eru fyrrum NBA-leik-
menn, þannig að hluta til er þetta
alvöru körfubolti en einnig er þetta
auðvitað sýning. Globetrotters áttu
75 ára afmæli í fyrra og þeir hafa
ferðast mjög víða um heim og hafa
heimsótt 115 lönd í heiminum,“ seg-
ir Pétur.
Harlem
Globetrotters
væntanlegir
HÚN er nefnd mamma Keikós í
Adressavisen í Þrándheimi, hún Þor-
björg Kristjánsdóttir, sem þjálfaði
háhyrninginn Keikó um hálfs árs
skeið á Íslandi fyrr á árum. Hún hefur
nú verið kölluð til Noregs til að annast
Keikó með Colin Baird, þjálfara hans.
Keikó er kvefaður og hefur ekki
verið eins fjörugur undanfarna daga
og hann var fyrstu dagana í Noregi,
þegar hann kom öllum á óvart og sló
samstundis í gegn. Hann mun þó vera
á batavegi og er búið að útvega stærri
bát frá Kristjánssundi svo þjálfarar
Keikós geti siglt með honum í sjónum
í heilsubótarskyni.
Í Adressavisen er talað um að flytja
eigi Keikó úr Skálavíkurfirði áður en
fjörðinn leggur í vetur en ekki hefur
verið ákveðið hvert á að fara með
hann.
Keikó lasinn
og fær
„mömmu“ til sín
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦