Morgunblaðið - 11.09.2002, Qupperneq 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 7
Eldriborgaraveisla til
Benidorm
2. október
frá 69.950
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin í
hina vinsælu eldriborgaraferð í október til Benidorm, en hér er að
finna yndislegt veður á þessum árstíma og hvergi betra að lengja
sumarið. Sértilboð á okkar vinsælasta gististað, El Faro í 3 vikur. Á
meðan á dvölinni stendur nýtur þú
þjónustu reyndra fararstjóra
Heimsferða og getur valið um
fjölda spennandi kynnisferða og
kvöldferða á meðan á dvölinni
stendur.
Síðustu 28 sætin
Verð kr. 69.950
2. október – 3 vikur
Flug, gisting, skattar, ferðir til og frá
flugvelli, íslensk fararstjórn.
Alm. verð, kr. 73.450
HREFNA kom í nót dragnótarbáts-
ins Benjamíns Guðmundssonar SH í
gær þegar hann var á veiðum á
Breiðafirði. Hvalurinn var dasaður
þegar skipverjar uppgötvuðu hann
í nótinni en tókst að losa sig úr pok-
anum. Þá brugðu skipverjar lykkju
um sporðinn á honum og drógu
hann að landi.
Þorgrímur Benjamínsson skip-
stjóri sagði við Morgunblaðið að
hrefnan yrði skorin þá um kvöldið
og líklega yrði kjötið af henni borð-
að, enda hrefnukjöt ágætismatur.
Sagðist hann aldrei hafa fengið
hval í netin hjá sér áður.
Hrefnan var skoðuð og tekin af
henni sýni af sérfræðingi á höfninni
á Ólafsvík. Um er að ræða allt að 4
tonna skepnu og 8 metra langa.
Morgunblaðið/Alfons
Áhöfn Benjamíns Guðmundssonar SH við hrefnuna á bryggjunni í
Ólafsvík, frá vinstri Guðmundur Þorgrímsson, Rúnar Benjamínsson,
Sævar Sævarsson og Þorgrímur Benjamínsson.
Fjögurra tonna
hrefna í nót fiskibáts