Morgunblaðið - 11.09.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 9
Frumsýning í september:
Spennandi sýningar þar sem söngvarar og dansarar skemmta gestum !
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.- Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
...framundan
RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI
Fös. 13. sept. Stórdansleikur, Sálin.
Fös. 20. sept. Golfsamband Íslands
& Bylgjan.
Fös. 27. sept. Geir Ólafsson og bigband
Fim 3. okt. Konukvöld, Létt FM 96.7.
Lau. 5. okt. KSÍ lokahóf - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Sun. 6. okt. Jazzhátíð Reykjavíkur.
Fim 10. okt. Októberfest.
Fös. 11. okt. Októberfest.
Lau. 12. okt. Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fös. 18. okt. Pacha FUTURA II.
Lau. 19. okt. Viva Latino.
Fös. 25. okt. Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fös. 8. nóv. Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 9. nóv. 80 ára afmæli Fáks og
og uppskeruhátíð hestamanna.
Sun. 10. nóv. Íslandsmeistaramótið
í vaxtarækt.
Fös. 15. nóv. Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fim. 21. nóv. Herra Ísland.
Fös. 22. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 23. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fös. 29. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 30. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 7. des. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fös. 13. des. Jólahlaðborð -
ELVIS the King.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 14. des. Jólahlaðborð -
ELVIS the King.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Frábær sýning,
sem slegið hefur
rækilega í gegn!
Miðaverð:
6,400 kr.
fyrir sýningu
og kvöldverð .
2,500 kr.
fyrir sýningu.
Húsið opnar
klukkan 19:00
fyrir matargesti.
Sýningin hefst
kl. 22:00
Sýningar til jóla:
12. október, 3ja rétta kvöldverður
19. október, 3ja rétta kvöldverður
25. október, 3ja rétta kvöldverður
8. nóvember, 3ja rétta kvöldverður
15. nóvember, 3ja rétta kvöldverður
22. nóvember, jólahlaðborð
23. nóvember, jólahlaðborð
29. nóvember, jólahlaðborð
30. nóvember, jólahlaðborð
7. desember, jólahlaðborð
SálinStór dansleikur
Föstudagur 13. september:
Ný sending
Stakir jakkar
Frábært úrval af síðbuxum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Hágæða
undirföt
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
NÍTJÁN tilboð bárust í uppbygg-
ingu Þórsmerkurvegar frá varnar-
garði og út fyrir Nauthúsagil, en
tilboð voru opnuð á mánudag. Þrír
aðilar buðu mjög svipaða upphæð í
verkið. Því þarf að fara ítarlega yfir
öll tilboðsgögn áður en gengið verð-
ur til samninga við verktaka, sam-
kvæmt upplýsingum Vegagerðar-
innar á Selfossi.
Fyrirtækin Nóntindur ehf., Guð-
jón Jónsson og Suðurverk hf. buðu
tæplega 6 milljónir króna hvert.
Háfell ehf. átti hæsta tilboðið, rúm-
ar 16 milljónir króna.
Uppbygging á vinsælum
ferðamannastað
Vegarkaflinn sem byggja á upp
er um 2,5 km. Verki skal að fullu
lokið 15. nóvember nk. Í fyrra var
hluti Þórsmerkurvegarins byggður
upp og er vegagerðin nú framhald
þeirra framkvæmda.
„Þetta er gert til að fá veginn
upp úr jörðinni, ef svo má segja,
svo að það sé betra að halda honum
við og keyra hann,“ segir Sigurður
Kr. Jóhannsson, deildarstjóri fram-
kvæmda hjá Vegagerðinni á Sel-
fossi.
„Vegurinn hefur ekki þótt góður
hingað til. Þórsmörk er mjög vin-
sæll ferðamannastaður og með upp-
byggingu vegarins er verið að létta
undir með farþegum.“
Nítján til-
boð í Þórs-
merkurveg
Þrír aðilar buðu
svipaða upphæð
MAGNÚS Magnússon, sjónvarps-
maðurinn kunni á Bretlandseyjum
og rithöfundur, hefur verið skip-
aður heiðursrektor Caledonian-
háskólans í Glasgow í Skotlandi
og tekur hann formlega við emb-
ættinu 10. október næstkomandi.
„Þetta er spennandi,“ segir
Magnús Magnússon, en hann tekur
við af David Nickson lávarði sem
hefur verið heiðursrektor skólans
frá stofnun hans 1993. „Þetta er
ólaunað starf og ég starfa ekki við
háskólann en kem fram fyrir hans
hönd. Helsta verkefnið felst í að
stjórna útskriftarhátíðunum, setja
hattana á stúdentana og sjá um
árlega veislu á vegum háskólans
auk þess sem ég aðstoða við að
kynna Caledonian-háskólann við
ýmis tækifæri víða um heim.“
Caledonian-háskóli er einn af
stærstu háskólum Skotlands með
meira en 14.000 stúdenta. Hann er
í hópi fjögurra helstu háskóla
Bretlands, sem styðja þá sem
minna mega sín til háskólanáms,
og samkvæmt opinberum tölum er
meiri spurn hjá fyrirtækjum eftir
útskriftarnemum skólans en ann-
arra háskóla Skotlands. Við-
skiptadeild skólans er sú stærsta í
Skotlandi og sú fjórða fjölmenn-
asta í Bretlandi og heilbrigð-
isdeildin er ein af þeim stærstu í
Evrópu auk þess sem mikil
áhersla er lögð á vísindi
og tækni auk annarra
greina.
Í fyrra var Magnús
sæmdur heiðursdokt-
orsnafnbót við Caledoni-
an-háskóla, en hann hef-
ur verið gerður að
heiðursdoktor við
marga háskóla. Hann
segir að með nafnbót-
inni í fyrra hafi sér ver-
ið sýndur mikill heiður
og hann hafi ekki átt
von á að hún leiddi til
enn meiri sæmdar. „Ég
er mjög ánægður með
þessa upphefð. Lengst
af hef ég einbeitt mér
að því liðna, hef allur
verið í sögunni, en í
þessu starfi einbeiti ég
mér að framtíðinni. Það
er mjög spennandi að
umgangast ungt fólk á
ný, að hjálpa því á
næsta stig lífsins. Fram-
tíðin blasir við, þegar
hattar eru settir á 400
útskriftarnema á einu
síðdegi, og það er
ánægjuleg tilfinning.“
Magnús hefur verið iðinn við
skriftir og í liðinni viku kom út
annað bindi með þýðingum hans á
Íslendingasögum, en á næstunni
koma tvær bækur út eftir hann.
„Ég hef alltaf haft nóg að gera og
vinnan er skemmtileg,“ segir
Magnús, sem er á áttræðisaldri.
Magnús
Magnús-
son heið-
ursrektor
Ljósmynd/Colin Garvie/Centre Press News Agency
Magnús Magnússon, heiðursdoktor Caled-
onian-háskólans í Glasgow í Skotlandi.
Caledonian-háskólinn í Glasgow í Skotlandi
KONUR sem farið var að svipast um
eftir í gærmorgun á hálendinu milli
Landmannalauga og Hólaskjóls
komu fram um hádegisbilið í gær á
tjaldstæðinu í Vík í Mýrdal.
Amaði ekkert að þeim, en boð frá
þeim um að þær væru komnar til
byggða misfórust og því hófst eft-
irgrennslan.
Eftirgrennslan
þar sem boð
skiluðu sér ekki
♦ ♦ ♦