Morgunblaðið - 11.09.2002, Side 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 13
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
ÞÆR voru í sólskinsskapi vinkon-
urnar Hafdís og Elva Katrín þar
sem þær gerðu stuttan stans á Ráð-
hústorgi til að njóta veðurblíðunnar
á leið heim út skólanum í gær. Þær
stöllur voru afar ánægðar með að
sumarið hefði loks gert vart við sig
norðan heiða og vonuðu svo sann-
arlega að blíðunnar nyti við sem
lengst. Eins og sést á myndinni fór
hitamælirinn á Ráðhústorgi upp í
21 stig um miðjan daginn.
Morgunblaðið/Kristján
Í sólskinsskapi
HJÁ Reyni–ráðgjafastofu á Akureyri
er komið út þjálfunarefnið Stig af
stigi, sem ætlað er að auka félags– og
tilfinningaþroska barna. Stig af stigi
er notað til að kenna börnum að skilja
aðra og láta sér lynda við þá, að leysa
úr vanda og byggja upp félagslegan
skilning. Börnunum er þar að auki
kennt að hafa stjórn á æsingi og reiði.
Endurtekin reynsla hefur leitt í
ljós að þjálfun með Stig af stigi hefur
mjög jákvæð áhrif á hegðun barna,
byggir upp gagnkvæman skilning,
eykur samhjálp milli barnanna, styð-
ur jákvæði í samskiptum og dregur
úr ofbeldi, segir í fréttatilkynningu
frá Reyni–ráðgjafastofu. Stig af stigi
hefur náð miklum vinsældum í skól-
um í Danmörku og Noregi, þar sem
rúmlega 60% grunnskóla eiga og
nota efnið. Leikskólar í báðum lönd-
unum eru nú óðum að taka það upp
líka.
Stig af stigi er samið af Kathy Bel-
and fyrir Commitee for Children, í
Seattle í Bandaríkjunum. Sérfræð-
inganefnd á vegum U.S. Department
of Education gaf efninu hæstu ein-
kunn fyrir „skýrar og aldurssvarandi
kennsluaðferðir“ ásamt „vel skjal-
festum árangri með vönduðum rann-
sóknum“. Rannsóknir sem staðfesta
árangur af þjálfun með efninu hafa
verið gerðar í Þýskalandi, Svíþjóð,
Bretlandi og Svíþjóð, auk Bandaríkj-
anna.
Þórir Jónsson kennari á Ólafsfirði
þýddi efnið fyrir Reyni–ráðgjafa-
stofu, en það var tilraunakennt og
staðfært með aðstoð kennara í fimm
grunnskólum og þremur leikskólum
síðastliðið skólaár.
Það er fyrsti þáttur Stigs af stigi
(fyrir 4-6 ára börn) sem nú kemur út
á íslensku, en ráðgert er að annar
þáttur (fyrir 7-8 ára börn) komi út í
maí 2003.
Auk þess að standa að útgáfu og
dreifingu efnisins býður Reynir–ráð-
gjafastofa upp á námskeið sem veita
kennurum réttindi til að kenna Stig
af stigi. Starfsmenn ráðgjafastofunn-
ar á Akureyri standa fyrir námskeið-
um norðan heiða og á Austurlandi en
fulltrúar ráðgjafastofunnar á Suður-
landi, á Stór-Reykjavíkursvæðinu, á
Vesturlandi og Vestfjörðum munu
sjá um námskeiðin hver í sínu héraði.
Þjálfunarefnið Stig af stigi komið út
Ætlað að auka
félags- og tilfinn-
ingaþroska barna
„STARFSÞRÓUN í eyfirskum fyr-
irtækjum“ er yfirskrift ráðstefnu
sem haldinn verður í dag, miðviku-
daginn 11. september, frá kl. 13 til
16.30 í Kvosinni, sal MA.
Markmiðið með ráðstefnunni er að
vekja athygli á þeirri starfsþróun
sem fyrirtæki á svæðinu eru að vinna
að, öðrum til hvatningar og innblást-
urs.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra mun setja ráð-
stefnuna.
Fjallað verður m.a. um þjálfun
nýrra starfsmanna, greiningu á þörf-
um í starfsþróunarmálum, gerð
fræðsluáætlana, innleiðingu árang-
ursmats og uppbyggingu fyrirtækja-
skóla.
Starfsþróun
í eyfirskum
fyrirtækjum
UMFERÐARVIKA í Hafnar-
firði 2002 verður haldin dagana
16.–22. september nk. en Um-
hverfisstofnun Evrópusam-
bandsins hefur útnefnt sömu
viku sem evrópska umferðar-
viku. Mánudagurinn 16. verður
tileinkaður almenningssam-
göngum og miðvikudagurinn
18. september verður tileinkað-
ur hjólreiðum.
Næstkomandi miðvikudags-
kvöld fer fram í Víðistaðakirkju
minningarathöfn vegna fórnar-
lamba umferðarslysa þar sem
sr. Bragi J. Ingibergsson mun
ásamt öðrum prestum úr Hafn-
arfirði sjá um stutta helgi-
stund. Athöfnin hefst kl. 20.
Umferðarvika 2002
Hjólreiða-
dagur nk.
miðvikudag
Hafnarfjörður
BÆJARSTJÓRI Mosfellsbæjar og
formaður félagsmálanefndar hafa
óskað eftir fundi með heilbrigðisráð-
herra þar sem ítreka á beiðni um
styrk til byggingar á hjúkrunarheim-
ili og að heimild verði veitt til rekst-
urs á fleiri dagvistarrýmum í bænum.
Í Mosfellsbæ er ekkert hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða og einungis fjög-
ur dagvistarrými eru í bæjarfélaginu.
Að sögn Herdísar Sigurjónsdóttur,
formanns félagsmálanefndar Mos-
fellsbæjar, hafa bæjaryfirvöld ítrek-
að óskað heimildar fyrir fleiri dag-
vistarrými við þjónustumiðstöð
aldraðra við Hlaðhamra, líkt og áður
hafði verið gert ráð fyrir.
Samkvæmt sameiginlegri tillögu
Mosfellbæjar og heilbrigðs- og
tryggingamálaráðuneytisins sem
undirrituð var af Unni V. Ingólfsdótt-
ur, félagsmálastjóra Mosfellsbæjar,
og Hrafni Pálssyni, deildarstjóra í
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti, í maí á síðasta ári var
gert ráð fyrir að heimild yrði fyrir 12
dagvistarrýmum við Hlaðhamra frá
og með 1. september 2002. Í dag hef-
ur einungis fengist heimild fyrir fjór-
um dagvistarrýmum og segir í fund-
argerð félagsmálanefndar frá 27.
ágúst síðastliðnum, að mikilvægt sé
að þeim verði fjölgað þar sem ekkert
hjúkrunarheimili sé í Mosfellsbæ.
Fjöldi manns sé hins vegar á vist-
unarskrá auk þess sem meðalaldur
íbúa á Hlaðhömrum sé hár og
umönnunarþörf mikil.
Gert ráð fyrir byggingu 20
rýma hjúkrunarheimilisdeildar
Að sögn Herdísar snýst málið ann-
ars vegar um að heimild verði veitt
fyrir fleiri dagvistarrýmum og hins
vegar að heimiluð verði bygging
hjúkrunarheimilisdeildar. Sam-
kvæmt tillögu Mosfellsbæjar og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytis
er gert ráð fyrir að heimiluð verði
bygging 20 rýma hjúkrunarheimilis-
deildar sem fái heimild fyrir rekstri 1.
október 2004.
Lagt er til að framkvæmdasjóður
aldraðra hefji styrkveitingar til heim-
ilisins árið 2003, sem nemur 40% af
byggingarkostnaði þegar upp verði
staðið, og að vilyrði fyrir styrkveit-
ingunni verði afgreitt í byrjun árs
2002.
„Við viljum benda á þessa hluti á
fundi með ráðherra og ekki síst að við
höfum fjórum sinnum sótt um fé í
framkvæmdasjóð aldraðra en alltaf
fengið synjun,“ segir Herdís.
Mjög veikir einstaklingar sem
tæpast geta verið heima við
Herdís segir að bæjarfélagið veiti
nú þegar meiri þjónustu en því beri
og einnig meira fjármagn í þeirri við-
leitni að koma til móts við aldrað og
sjúkt fólk. Hún segir að bæjaryfir-
völd hafi margsinns komið að máli við
heilbrigðisráðuneytið vegna málsins
þar sem óskað hafi verið eftir því að
öldrunarþjónusta í bæjarfélaginu
verði bætt.
Í júlí í fyrra fóru fulltrúar bæjar-
ráðs á fund heilbrigðisráðherra þar
sem beiðni um styrk til byggingar á
hjúkrunarheimili og heimild til rekst-
urs á dagvistarrýmum var ítrekuð.
Herdís segir að um mitt þetta ár
hafi bæjaryfirvöld fagnað áætlun
ráðuneytisins um uppbyggingu öldr-
unarþjónustu þar sem gert var ráð
fyrir að Mosfellsbær fengi um 100
milljónir króna samanlagt á árunum
2004-6 til þess að byggja upp hjúkr-
unarheimili í Mosfellsbæ.
Hún segir að óskað hafi verið eftir
skriflegri staðfestingu en að ekkert
svar hafi borist við þeirri beiðni.
„Eins og ég sé málið get ég tæp-
lega ímyndað mér að ríkið sé að spara
með því að hafa mikið veikt fólk á há-
tæknisjúkrahúsi í staðinn fyrir að
reyna að fjölga hjúkrunarrýmum.
Við gerum okkur grein fyrir því að
þörfin er ekki bara þarna en hún er
mjög brýn engu að síður og sýnileg.
Það eru mjög veikir einstaklingar
heima sem tæpast geta verið heima,“
segir Herdís. Hún segist vonast að
fundur með ráðherra verði í næstu
viku.
Bæjaryfirvöld óska eftir fundi með heilbrigðis-
ráðherra vegna þátttöku í öldrunarþjónustu
Einungis heimild fyrir
fjórum dagvistarrýmum
Mosfellsbær
NÝTT sambýli fyrir fimm fatlaða
einstaklinga hefur verið tekið í
notkun á Sólheimum 21b í Reykja-
vík. Íbúar á sambýlinu koma allir af
sambýli á Holtavegi 27 sem upp-
haflega var byggt sem heimili fyrir
börn en er nú orðið of þröngt fyrir
þá einstaklinga sem þar hafa búið.
Það er framkvæmdasjóður fatl-
aðra sem fjármagnar bygginguna
sem er samtals um 410 m² að stærð.
Í sambýlinu eru fimm íbúðir sem
hver um sig er 32m² en með flutn-
ingnum er lögð áhersla á einkarými
einstaklingsins og minna lagt í sam-
eiginlegt rými.
Við opnun sambýlisins á mánu-
dag voru viðstaddir fulltrúar Svæð-
isskrifstofu Reykjavíkur og félags-
málaráðuneytisins auk fulltrúa
ýmissa hagsmunasamtaka.
Björn Sigurbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur um málefni fatlaðra,
sagði í ræðu sem hann hélt í tilefni
af opnuninni að sjálfstæð búseta
fatlaðra væri stöðugt að ryðja sér
til rúms en vegna þessa þyrfti að
stórefla liðveislu. Þannig hefðu ósk-
ir vegna uppbyggingar á liðveislu
þegar verið reifaðar við Reykjavík-
urborg.
Björn sagði að á næstu mánuðum
yrði tekið í notkun nýtt sambýli í
Hólmasundi 2 fyrir sex unga ein-
staklinga. Einnig væri í bígerð að
taka í notkun sambýli í byrjun nóv-
ember fyrir einstaklinga af Kópa-
vogshæli og annað sambýli næsta
vor.
Nýtt sambýli fyrir fatlaða tekið í notkun
Morgunblaðið/Sverrir
Þórhallur Jónsson skoðaði nýju íbúðina sína á mánudag.
Meiri áhersla
lögð á einkarými
Heimar