Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 15
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 15 Glæsilegt endaraðhús í Fossvogi m. innb. bílskúr FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Vorum að fá til sölu vandað 230 fm raðhús á tveimur hæðum með einföldum innbyggðum bílskúr. Á efri hæð hússins eru samliggjandi stofur með arni, eldhús, hol og gesta w.c. Stórar suðursvalir með útsýni. Á neðri hæð eru 4 góð svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og sjónvarpshol. Parket á gólfum og flísalögð baðherbergi. Falleg ræktuð suðurlóð og endurnýj- aðar stéttar fyrir framan húsið með hitalögnum. Nánari uppl. á skrifstofu. AÐ viðstöddu fjölmenni var síðast- liðinn laugardag haldinn hátíðar- fundur í Hóladómkirkju til að minn- ast hundrað og tuttugu ára afmælis skólans, að aflokinni brautskrán- ingu nemenda liðins skólaárs, en þar var um að ræða sjö tamninga- menn, fimm fiskeldisfræðinga og sex ferðamálafræðinga sem hafa nú lokið námi við skólann. Athöfninni stjórnaði Elín R. Lín- dal, formaður skólanefndar, og eftir að Skúli Skúlason skólameistari hafði boðið góða gesti velkomna, tók til máls landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson. Sagði ráðherra að til þessa merka menntaseturs sæktu nemendur frá landinu öllu, auk þess sem fjölmargir erlendir nemar sæju sinn besta kost að stunda nám á Hólum og bæri það vitni þeirri virð- ingu sem starf það sem hér væri unnið nyti hérlendis og erlendis. Hér sagði Guðni vera einn af mörgum þekkingarbrunnum, sem ungt fólk gæti ausið af til þess að auka kunnáttu sína og víðsýni og búa sig sem best undir líf og starf í síbreytilegu menningar- og tækni- þjóðfélagi. Bændaskólarnir stofnaðir á erfiðleikatímum Þá hvarf ráðherra í ræðu sinni aftur til þess tíma þegar fátækt og vonleysi sótti að íslenskri þjóð, vest- urfarið í algleymingi og fjölmargir áttu þess ekki kost að sjá sér og sín- um farborða. Á þessum viðsjártím- um sáu Íslendingar það ráð best að stofna fjóra búnaðarskóla, og taldi ráðherra að það meðal annars hefði náð að blása kjarki í brjóst þeirra sem eftir sátu. Sagði ráðherrann að enn væru búnaðarskólarnir, þó aðeins væru nú þrír, hornsteinar þeirra byggða þar sem þeir væru og í skjóli þeirra dafnaði menntun og menning sem sækti afl og næringu til landsins í gegnum fornar rætur mennta og menningar. Næstur tók til máls Vilhjálmur Egilsson alþingismaður og gerði grein fyrir störfum nefndar sem skipuð var af landbúnaðarráðherra í maí síðastliðnum og hefur nú lokið störfum. Átti nefndin að gera til- lögur um uppbyggingu Hóla sem mennta- og vísindaseturs og sagði ræðumaður að nefndarmenn hefðu gengið út frá spurningunni varðandi það – hvaða þarfir eru það sem skólinn þarf, og er tilbúinn að bregðast við og uppfylla á næsta áratug. Stofnun þriggja vísindasjóða Sagði hann að nefndarmenn hefðu verið um það sammála að byggja þyrfti upp rannsókna- og vísindastarf á Hólum og á þann veg að þoka kennslu og námi á Hólum yfir á háskólastig. Í tillögunum sagði hann einnig drög að reglugerð fyrir skólann, en þar væri lagt til að stofnaðir yrðu þrír vísindasjóðir, sem yrðu í vörslu skólans, og myndu nokkur ráðuneyti koma að fjármögnun þeirra, þannig mundi samgönguráðuneyti koma að sjóði varðandi ferðamálasvið skólans, sjávarútvegsráðuneytið að fiskeldis- sviði, og landbúnaðarráðuneytið að hrossaræktarbraut skólans, og einnig sagði Vilhjálmur að tillögur þessar hefðu þegar verið kynntar fjármálaráðherra. Vilhjálmur sagði að hér þyrfti að svara hinni miklu rannsóknarþörf í þeim greinum landbúnaðarins sem hér væru stundaðar og einnig að þekkingarsetur sem Hólar hefði mjög miklu hlutverki að gegna í byggðaþróun héraðsins. Síðan tók landbúnaðarráðherra við skýrslunni og þakkaði nefndinni góð störf. „Green globe“-vottun fyrir ferðaþjónustubændur Næstur tók til máls Sturla Böðv- arsson samgöngumálaráðherra og fagnaði útskrift nýrra sérfræðinga í ferðaþjónustu og benti á að þessi grein væri nú í þriðja sæti varðandi gjaldeyrissköpun í þjóðarbúið og benti á að góð menntun væri hér sem alls staðar annars staðar lykill að áhrifamiklu starfi og fagnaði hann þeim áformum og vilja Hóla- manna að byggja upp frumkvöðla í þessari grein, fólk sem hefur menntun og þor til að takast á við þennan málaflokk. Þá benti hann á að Byggðasjóður þyrfti enn frekar að koma að mál- efnum ferðaþjónustunnar og þá raunar í stað ferðamálasjóðs. Þá kynnti ráðherra það hlutverk Hóla- skóla að verða úttektaraðili á al- þjóðlegum gæðastaðli ferðaþjón- ustubænda, svo nefndri Green Globe vottun, en á vegum skólans færi nú fram þróun á þessum út- tektarstaðli og væri um þriggja ára verkefni að ræða. Heiðursbúfræðingur Allmargir fleiri tóku til máls svo sem Ársæll Guðmundsson, sveitar- stjóri Skagafjarðar, þá Valgeir Bjarnason aðstoðarskólameistari sem flutti stiklur úr sögu Hólaskóla, og Pétur Bjarnason, stjórnarmaður í nýendurvöktu Hólamannafélagi. Síðan tók til máls Skúli Skúlason skólameistari og sæmdi Gísla Páls- son, bónda og framkvæmdamann á Hofi, „heiðursbúfræðingsnafnbót“ Hólaskóla. Rakti Skúli æviferil Gísla sem stundaði nám á Hólum á árunum 1940–42, og útskrifaðist þá sem bú- fræðingur. Allar götur síðan, sagði Skúli, hefur Gísli verið einn af traustustu velunnurum skólans og var meðal annars formaður skólanefndar Hólaskóla frá 1980 og einnig stjórn- arformaður Hitaveitu Hjaltadals frá stofnun hennar einnig 1980 og allt til þessa dags. Þá drap hann á ótal mörg atriði sem Gísli hefði lagt lið og beinlínis hrundið í framkvæmd á Hólum, svo sem byggingu sund- laugar á sínum tíma. Gísli Pálsson þakkaði þann heiður sem sér væri með þessu sýndur. Síðan fluttu skólanum árnaðaróskir og góðar bókagjafir Páll Skúlason háskólarektor, Eysteinn Árnason til minningar um föður sinn Árna Björnsson og síðast Magnús B. Jónsson, rektor Landbúnaðarhá- skólans á Hvanneyri. Milli atriða léku listamennirnir Laufey Sigurðardóttir á fiðlu og Páll Eyjólfsson á gítar. Að lokum árnaði Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup Hólaskóla, allra heilla og þakkaði fyrir að fá enn einu sinni að eiga samleið með skóla- og menningarstarfi því sem fram færi á Hólastað. Morgunblaðið/Björn Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra tók á hátíðinni við skýrslu nefndar sem Vilhjálmur Egilsson stýrði þar sem tillögur eru settar fram um uppbyggingu Hóla sem mennta- og vísindaseturs. Morgunblaðið/Björn Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla, sæmdi Gísla Pálsson á Hofi heiðursbú- fræðingsnafnbót skólans við athöfnina á laugardag er 120 ára afmælis Bændaskólans á Hólum var minnst með hátíðarfundi í Hóladómkirkju. Merkt menningarsetur með nema hvaðanæva af landinu Hólar í Hjaltadal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.