Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FJÓRÐA stærsta tryggingafélag Svía, Länsförsäkringar, keypti í gær 11,5% hlut Ikea í sænska bankanum JP Nordiska og gaf jafnframt út yf- irlýsingu um að það hefði áhuga á að auka við hlut sinn í Kaupþingi. Við þetta má ætla að Kaupþing hafi stuðning yfir 50% hluthafa í JP Nordiska en Kaupþing hefur til- kynnt yfirtökutilboð í öll bréf í sænska bankanum. Tryggingafélagið á 3,3% í Kaup- þingi síðan Kaupþing keypti verð- bréfafyrirtækið Aragon og greiddi tryggingafélaginu með hlutabréfum. Kaupþing á 28% hlut í JP Nordiska, eftir að hafa selt Nordiska bankan- um Aragon. Kaupþing hefur farið fram á hluthafafund í Nordiska og að þar verði skipt um stjórn og má bú- ast við að hluthafafundur verði í októberbyrjun. Annar stærsti hlut- hafi JP Nordiska, Lars Magnusson, sem á 13% hlut, hefur þegar lýst því yfir að hann sé jákvæður gagnvart því að Kaupþing auki hlut sinn í bankanum. Kaupþing, Länsförsäkr- ingar og Lars Magnusson eiga 52,5% hlut í bankanum. Länsförsäkringar tekur jákvæða afstöðu til Kaupþings og tilboðs þess í Nordiska bankann, að því er sænskir fjölmiðlar greina frá í gær. Haft er eftir upplýsingafulltrúa fyr- irtækisins, Christer Baldhagen, að ekki verði tekin endanleg ákvörðun um afstöðu tryggingafélagsins til til- boðsins fyrr en það hefur verið kann- að og metið. Reiknað er með að nið- urstaða vegna tilboðs Kaupþings liggi fyrir í lok nóvember. Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, lýsti því yfir við Reuters í gær að hann væri þess fullviss að yfirtökutilboð fyrirtækisins myndi ná fram að ganga. Stjórnarformaður Nordiska, Björn Wolrath, sem situr þar óháður öðrum hluthöfum, hefur sagt á móti að Kaupþingsmenn hafi ekki skilning á sænska markaðnum og sé að reyna að snúa upp hendur smærri hluthafa og þvinga þá til að samþykkja tilboðið. Báðar fylkingar staðhæfa að þær njóti stuðnings stjórnar Nordiska í þessari glímu. Yfirtökutilboð Kaupþings í þau 72% hlutafjár sem það ætlar sér að gera yfirtökutilboð í er um 727,6 milljónir sænskra króna eða sem nemur rúmlega 6,8 milljörðum ís- lenskra króna. Miðað við þetta kaup- verð metur Kaupþing sænska bank- ann á um 9,5 milljarða íslenskra króna. Greitt verður fyrir hvern hlut í JP Nordiska með 9,55 hlutum í Kaupþingi. Hluthafar í JP Nordiska eru yfir 10 þúsund og viðskiptavinir bankans eru á milli 50 og 60 þúsund. Länsförsäkringar kaupir 11,5% hlut í JP Nordiska og á 3,3% í Kaupþingi Morgunblaðið/Ásdís Kaupþing með yfir 50% stuðning VERÐ hlutabréfa í þeim 20 líf- tæknifyrirtækjum sem flokkast á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum til fyrirtækja sem stunda erfðarann- sóknir (e. genomics) lækkaði að meðaltali um 66,6% frá áramótum til loka viðskipta síðastliðinn mánu- dag. Meðal þessara hlutabréfa eru bréf í deCODE Genetics sem lækk- uðu um 76,7% á sama tíma, að því er kemur fram í upplýsingum um líftæknimarkaðinn frá Thomson Financial Corporate Group. Sex fyrirtækjanna 20 lækkuðu meira í verði en deCODE frá ára- mótum og tíu þeirra lækkuðu um meira en 70%. Alls lækkuðu 18 fyr- irtækjanna um meira en 50% frá áramótum. Mesta lækkunin varð á Lynx Therapeutics, um 89,6%. Meðal annarra fyrirtækja á listan- um má nefna það stærsta, Mill- ennium Pharmaceuticals, sem hef- ur lækkað um 52,8% og Myriad Genetics hefur lækkað um 68,8% frá áramótum, því fyrirtæki er gjarnan líkt við deCODE og það á jafnframt í samstarfi við Iceland Genomics Corporation sem er móð- urfélag Urðar, Verðandi, Skuldar ehf. Verð hlutabréfa í deCODE breyttist ekki á Nasdaq-hluta- bréfamarkaðnum í gær, lokagengi dagsins var 2,28 dollarar á hlut. Markaðsvirði deCODE er því um 10,6 milljarðar íslenskra króna.                     !""!                                   !  "    #      !"#$#% !   $    %   & !'    #  ( %   )** + #$, %&'$, %'!$&, %'!$(, %')$&, %'*$ , %'$', %#!$*, %#'$&, %#($(, %*"$*, %*)$', %*)$#, %*#$*, %*($), %*$ , %*$ , %*$), %(&$#, %($#, %##$#, Mikil lækk- un erfða- fyrirtækja KRISTÍN Guðmundsdóttir, fjár- málastjóri hjá Granda hf. hefur sagt upp starfi sínu hjá Granda og mun láta af störfum innan tíðar. Nú hafa bæði for- stjóri og fjár- málastjóri fyrir- tækisins sagt upp störfum á skömmum tíma. Árni Vilhjálms- son, stjórnarfor- maður Granda gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra. „Ég er búin að vinna farsælt starf hjá Granda í átta ár og langar nú til að breyta til. Það er einfaldlega skýringin á þessari uppsögn. Ég mun svo taka ákvörðun á næstu vik- um hvar ég ræð mig til starfa, en mér hafa borist nokkur mjög áhuga- verð tilboð sem ég er að skoða,“ segir Kristín. Kristín hættir hjá Granda Kristín Guðmundsdóttir SAMSON eignarhaldsfélag ehf. hef- ur lýst yfir áhuga á að kaupa kjöl- festuhlut í Búnaðarbanka Íslands. Í tilkynningu frá Samson kemur fram að félagið hafi komið þessum áhuga á framfæri við framkvæmda- nefnd um einkavæðingu í júlí sl. Þá hefur félagið lýst yfir áhuga á að kaupa allt að 45% hlut í Landsbanka Íslands. Í tilkynningu sem Samson eignar- haldsfélag sendi frá sér í gær segir að félagið hafi fengið afhent bréf frá framkvæmdanefnd um einkavæð- ingu þar sem fram kemur að ákveðið hafi verið að ganga til viðræðna við félagið um kaup á umtalsverðum hlut í Landsbanka Íslands hf. „Af þessu tilefni vill Samson taka það fram að forsvarsmenn félagsins líta svo á að félagið hafi verið valið á þeim forsendum sem settar voru fram af hálfu félagsins í bréfi til framkvæmdanefndar 27. júní sl. og ítrekað var með bréfum hinn 25. júlí og 2. og 6. september og varða m.a. verðbil og greiðsluskilmála. Það er af hálfu Samson grundvallaratriði að forsendur viðræðna liggi fyrir áður en sest er að borðum. Félagið hefur frá upphafi lagt á það þunga áherslu, í bréfum til framkvæmdanefndar um einkavæðingu, að vinnureglur við söluferlið verði skýrar, en á nokkr- um fundum með nefndinni hefur ítrekað komið fram að verðuppboð væri ekki sú aðferð sem styðjast ætti við. Rétt er að minna á að forsvars- menn Samson eru alþjóðlegir fjár- festar sem hafa áhuga á að fjárfesta hér á landi. Þeir eru reiðubúnir að kaupa allt að 45% hlut í Landsbanka Íslands og getur verðmæti þess hlut- ar numið allt að 12 milljörðum ís- lenskra króna. Þá telur Samson rétt að fram komi að í bréfi til einkavæðingarnefndar hinn 25. júlí lýsti félagið yfir áhuga á að kaupa kjölfestuhlut í Búnaðar- banka Íslands hf. og að sá áhugi sé enn til staðar. Enda kom skýrt fram á fundi, hinn 28. ágúst, með fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu að með kaupum á hlut í Landsbanka Ís- lands útiloki fjárfestar ekki mögu- leika sína á að gerast einnig kjöl- festufjárfestir í Búnaðarbanka Íslands,“ segir í tilkynningunni. Viðræður hefjast strax eftir helgi Skarphéðinn Steinarsson, starfs- maður framkvæmdanefndar um einkavæðingu, segir að viðræður við Samson ehf. um kaup á kjölfestuhlut í Landsbankanum hefjist strax eftir helgi. Hann segir að hugsanleg sala Búnaðarbankans sé enn á frumstigi en nú, þar sem að búið er að ákveða hvern talað verður við í sambandi við sölu Landsbankans, verði þráðurinn aftur tekinn upp í því máli. Báðir bankarnir voru auglýstir til sölu í júní sl. og fimm aðilar sýndu áhuga á að kaupa hvorn þeirra. Í kjölfarið var ákveðið að tala fyrst við þá fjárfesta sem sýndu áhuga á Landsbankanum en snúa sér síðan að þeim er áhuga höfðu á að kaupa hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Skarphéðinn segir að einkavæð- ingarnefnd muni ekki tjá sig um hve hátt tilboð Samsons ehf. er né um það hve stóran hlut í Landsbankan- um ríkið ætli sér að selja. Aðspurður hvort allir þrír aðilarn- ir sem komu til greina sem vænt- anlegir kaupendur Landsbankans hafi lagt fram tilboð sagðist Skarp- héðinn ekki geta sagt neitt um það. „Það voru allir með verðhugmyndir, en það er fleira en verðið sem skoðað er við mat á hugsanlegum kaupend- um.“ Áhrifin yrðu svipuð og útgáfa nýs hlutafjár Í Hálffimm fréttum Búnaðar- banka Íslands í gær kom fram að áhrif sölu hlutafjárins í ríkisbönkun- um á markaðinn yrðu svipuð og áhrif af útgáfu nýs hlutafjár. Andvirði söl- unnar á Landsbanka og Búnaðar- banka færi í ríkissjóð en andvirði sölu hlutarins í Íslandsbanka færi að einhverjum hluta til að greiða niður erlendar skuldir fyrrum eigenda. Það væri því fé sem „fer út úr kerf- inu“ og verði ekki endurfjárfest á ís- lenskum hlutabréfamarkaði. Lítið sé um fjárfestingar útlendinga í ís- lenskum hlutabréfum og því sé kerf- ið fremur lokað. „Það fé sem fer til hlutafjárkaupa á Íslandi er því tak- markað og töluverð samkeppni um fjármagnið. Verði hlutafé Lands- bankans keypt fyrir erlent áhættu- fjármagn kemur nýtt fé inn í kerfið. Það getur haft mjög jákvæð áhrif á markaðinn og greitt fyrir hækkun- um á verði hlutabréfa.“ Þá kemur ennfremur fram í Hálf- fimm fréttum að hlutafé Landsbank- ans sé skráð í íslenskum krónum. Verði af kaupum Samson á hlut rík- isins muni félagarnir þurfa að skipta töluverðu magni af gjaldeyri yfir í krónur. Eftirspurn eftir krónum muni því aukast og það sé líklegt til að styrkja gengi hennar. Hér er um erlent áhættufjármagn að ræða, ekki lánsfjármagn. Þetta sé til þess fallið að auka bjartsýni og styðja þannig við gengi krónunnar. Greiningadeild BÍ telur ekki æskilegt að krónan styrkist mikið frá því sem nú er en telur afar eftirsóknarvert að fjár- festar fái aukna tiltrú á krónuna. Stöðug og sterk króna auki þar að auki svigrúm Seðlabanka Íslands til að lækka vexti. Samson vill einnig kaupa kjöl- festuhlut í Búnaðarbankanum Vill kaupa allt að 45% hlut í LÍ á allt að 12 milljarða VÆNTANLEGUR samningur Philips Green og Arcadia markar ákveðin tíma- mót í samskiptum Greens og banka- manna í City- fjármálahverfinu í London, en samskipti Green og bankamanna hafa hingað til ekki verið mjög hlýleg, eins og fram kemur á við- skiptavefnum break- ingviews.com sem rit- stýrt er af dálkahöfundinum þekkta, Hugo Dixon. Bob Wigley, ráðgjafi hjá Merrill Lynch-fjárfestingarbankanum, hef- ur starfað náið með Green að Arc- adia-samningnum, nánar en ráð- gjafar Greens úr bankaheiminum hingað til. Green hefur aðeins stuðst við ráðgjöf þegar að lagaum- hverfi og reglugerðum kemur, en séð sjálfur um alla stefnumótun. Þetta virðist hafa breyst þegar samstarf Greens og Bob Wigley hófst. Wigley var til staðar á öllum fundum Greens og Baugsmanna og var sá sem Green leitaði ráða hjá þegar hann frétti af húsleit lögregl- unnar hjá Baugi Group á Íslandi, að því er fram kemur í pistl- inum. Þar segir einnig að atburðir síðustu vikna hafi sýnt fram á að bankamennirnir í City séu farnir að þekkja Green og umbera lit- ríkt skapferli hans. „Hann er mikill frum- kvöðull“, „Hann setur á svið sýningu“ eru orðasambönd sem þeir nota um Green. Taveta In- vestments Limited, félag í eigu Philips Greens og fjölskyldu hans, gerði í gær formlegt yfirtökutilboð í bresku verslunarkeðjuna Arcadia. Í sameiginlegri tilkynningu í gær- morgun lýsa stjórnir Taveta og Arcadia því yfir að samkomulag hafi náðst um tilboð sem hljóðar upp á 408 pence a hvern hlut, eða um 850 milljónir punda samtals. Green treystir ráð- gjöfum nú betur Philip Green ORKUVEITA Reykjavíkur hagnað- ist um 2,07 milljarða á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Hagnaður fé- lagsins fyrir fjármagnsliði var 358 milljónir og EBITDA hagnaður nam 1.816 milljónum. Í fréttatilkynningu frá Orkuveit- unni kemur fram að ástæða þessa hagnaðar séu einkum mikil umskipti sem orðið hefur á fjármagnsliðum vegna hagstæðrar gengisþróunar. Á sama tíma í fyrra nam tap Orku- veitunnar 500 milljónum króna. Tekjur Orkuveitunnar fyrstu sex mánuðina í ár voru 5,5 milljarðar, rekstrargjöld 3,7 milljarðar og hand- bært fé frá rekstri 2,3 milljarðar. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ánægður með niðurstöðuna og bjóst við að seinni helmingur ársins yrði svipaður þeim fyrri ef gengi krón- unnar héldist stöðugt. Hann sagði að Orkuveitan fyndi fyrir verðlagsbreytingum í sam- félaginu en hann sagði að gjaldskrá félagsins hefði ekki hækkað í sam- ræmi við þær breytingar. „Gjald- skráin væri 6% hærri ef hún hefði fylgt almennum verðlagsbreytingum frá síðasta ári,“ sagði Guðmundur. Orkuveitan hagnast um 2,07 milljarða ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.