Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 24
UMRÆÐAN 24 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENDINGAR eru óumdeilan- lega ein ríkasta þjóð heims. Fyrir það eigum við auðvitað að vera þakklát en því fylgir líka ábyrgð, m.a. gagnvart komandi kynslóðum. Við eigum að nota auð okkar, ekki bara handa okkur sjálfum, heldur líka til að búa í haginn fyrir kom- andi kynslóðir í þessu landi. Margar fátækar þjóðir hafa ekki efni á að hugsa svona, öll orkan fer í brauð- strit og engir möguleikar á að hugsa um komandi kynslóðir. Við erum aftur á móti í þeirri óskastöðu að geta verið framsýn og horft aldir fram í tímann. Okkur ber að skila landinu ásamt landgrunni og auð- lindum þess í ástandi sem er a.m.k. jafn gott og þegar við tókum við því. En þrátt fyrir auð okkar ætlum við nú að sóa náttúruperlum fyrir skammtímagróða. Erlendir ferða- menn koma í stríðum straumum til að dást að töfrum íslenskrar nátt- úru og landsmenn sjálfir kunna í vaxandi mæli að meta þá. Hvernig getum við réttlætt það fyrir börnum okkar í framtíðinni? Hve lengi endast uppistöðulón? Samkvæmt útreikningum Lands- virkjunar hálffyllist Hálslón við Kárahnjúka af jökulleir á um 200 árum (útreikningar miða við að það fyllist á 400 árum) og lón í Þjórs- árverum (Norðlingaölduveita) hálf- fyllist á 100 árum. Þegar lónin eru orðin hálffull verður miðlunargeta þeirra verulega skert og þar með orkuframleiðslan. Fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir skapa ný og al- varleg vandamál, sbr. úrskurði Skipulagsstofnunar, og gera ekki annað en að tefja fyrir því að lónin fyllist. Auðvitað má deila um það hvort 200 ár sé langur tími en sam- kvæmt venjulegum útreikningum eru það ekki nema 5–7 kynslóðir. Eru uppistöðulón vatnsafls- virkjana sjálfbær? Meðal tískuhugtaka samtímans eru sjálfbær þróun (e. sustainable development) og sjálfbær nýting en hver er merking orðsins sjálfbær og eru vatnsaflsvirkjanir sjálfbærar? Sjálfbær nýting merkir nýtingu sem gerir okkur kleift að mæta þörfum okkar án þess að takmarka möguleika komandi kynslóða á að mæta sínum þörfum. Samkvæmt þessu er augljóst að uppistöðulón umræddra vatnsaflsvirkjana eru ekki sjálfbær vegna þess að þau endast ekki nema 5–7 kynslóðir eða svo. Með sölu raforku sem fram- leidd er með tilstuðlan þessara Eru vatnsafls- virkjanir sjálfbærar? Vatnsaflsvirkjanir Margir eru undrandi og reiðir, segja Magnús Jóhannsson og Rann- veig Magnúsdóttir, yfir því að farið hafi verið bakdyramegin við lögin og Kárahnjúkavirkjun rekin í gegn. FYRIR kosningar til borgar- stjórnar í vor lögðum við sjálfstæð- ismenn áherslu á þrjú meginatriði varðandi hag eldri borgara:  Stórlækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts.  Fjölgun hjúkrunarrýma.  Öfluga heimaþjónustu. Væri þessi þríþætta leið okkar farin yrði á skömmum tíma unnt að gjörbreyta aðstöðu eldri borgara. Vítahringur málefna eldri borgara í Reykjavík yrði rofinn með fram- kvæmd þríhliða áætlunar okkar sjálfstæðismanna. Með því að auðvelda eldri borg- urum að búa áfram í eigin húsnæði við betri heimaþjónustu er dregið úr þörf fyrir hjúkrunarrými. Skortur á hjúkrunarrými Frumkvæði Reykjavíkurborgar með 250 milljóna króna framlagi á ári til að reisa hjúkrunarrými, eins og við sjálfstæðismenn leggjum til, sýndi í verki vilja borgaryfirvalda til samstarfs um þetta brýna verkefni. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið telur, að fjölga þurfi hjúkrunarrýmum í Reykjavík um 236 fyrir árið 2007. Undir stjórn R- listans síðustu átta ár hefur hjúkr- unarrýmum fjölgað um 79. – Árin á undan beitti Sjálfstæðisflokkurinn sér fyrir því því að reisa 230 hjúkr- unarrými í Reykjavík auk mörg hundruð þjónustu-, leigu- og sjálfs- eignaríbúða. Þörf er á sambærilegu átaki nú og sjálfstæðismenn leiddu á sínum tíma. Samkvæmt reglum Fram- kvæmdasjóðs aldraðra, sem er far- vegur fyrir fé frá ríkinu til að standa undir stofnkostnaði við hjúkrunar- rými, má hann ekki lána nema 40% af byggingarkostnaði. Fáeinum dög- um fyrir kosningar ritaði borgar- stjóri hins vegar undir viljayfirlýsingu með heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra, þar sem lýst var yfir, að reisa skyldi nýtt 100 rýma hjúkrunarheimili í Sogamýri. Heilbrigð- is- og tryggingaráðu- neytið hét að greiða 70% kostnaðar við byggingu heimilisins og Reykjavíkurborg 30%. Nú hefur aðstoð- armaður heilbrigðis- ráðherra sagt, að flokka beri hjúkrunar- heimili sem sjúkrahús og ríkinu sé skylt að leggja fram 85% kostnaðar við byggingu og bún- að þeirra, þótt annað hafi tíðkast. Samkvæmt þeim orðum samdi borg- arstjóri af sér með kosningayfirlýs- ingunni með heilbrigðisráðherra. Lækkun fasteignaskatta felld Tillaga okkar sjálfstæðismanna um lækkun fasteignaskatta var til umræðu og afgreiðslu í borgarstjórn fimmtudaginn 5. september. Nú eru um 32 þúsund Íslendingar 67 ára og eldri. Ef litið er á heim- ilisaðstæður þeirra, sem eru á aldrinum 65 til 80 ára býr ríflega 91% í eigin húsnæði. Þess vegna skiptir mjög miklu, hvernig sveitar- félög koma til móts við eldri borgara með skatt- heimtu á heimili þeirra. Eldri borgurum og öryrkjum hér í Reykja- vík og í öðrum sveitar- félögum hefur áður ver- ið veittur afsláttur á fasteignaskatti. Borgar- ráð samþykkti til dæmis reglur um slíkan afslátt til þessara hópa við álagningu þessa árs. Hækkaði þá tekjuviðmið um 19% frá fyrri álagningu. Við sjálf- stæðismenn lögðum til, að þetta tekjuviðmið hækkaði um 50% frá því sem nú er. Þegar athugað er hvað 50% hækk- un á tekjuviðmiðun mundi hafa í för með sér í tekjutapi fyrir borgarsjóð, verður að byggja á spám. Varlegt er að áætla að það yrði milli 200 og 220 m. kr. Frá því að ný borgarstjórn var kjörin höfum við sjálfstæðis- menn lagst gegn kaupum á eignum Jóns Ólafssonar við Laugaveg fyrir 140 milljónir króna og framkvæmd- um vegna fornminja við Aðalstræti fyrir meira en 500 milljónir króna eða samtals um meira en 640 millj- ónir króna. R-listinn felldi tillögu okkar sjálf- stæðismanna um lækkun fasteigna- skatta á eldri borgara með þeim höf- uðrökum, að ekki mætti mismuna með þessum hætti í þágu þessa hóps. Skattalækkun á eldri borgara felld Björn Bjarnason Aldraðir Vítahringur málefna eldri borgara í Reykja- vík yrði rofinn, segir Björn Bjarnason, með framkvæmd þríhliða áætlunar okkar sjálf- stæðismanna. Höfundur er oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn Reykjavíkur. VIKA símenntunar veitir stjórnendum gull- ið tækifæri til að kanna stöðu menntamála í sínu fyrirtæki og móta fræðslustefnu. Kröfur um hæfni starfsfólks á vinnumarkaði eru meiri nú en nokkru sinni áð- ur. Þörf fyrir sveigjan- leika og þekkingu hefur aukist í kjölfar harðari samkeppni og þróunar í samskiptatækni. Hæft starfsfólk er það sem skilur á milli fyrirtækja sem standa framarlega á sínu sviði og þeirra sem fara halloka. Menntun og nýting mannauðs er því nauðsynlegur þáttur í rekstri fyrirtækja og eru æ fleiri fyr- irtæki farin að starfa samkvæmt öfl- ugri fræðslustefnu. Olíufélagið ehf. hefur markað sér ákveðna stefnu í fræðslumálum starfsmanna og er mikil áhersla lögð á endurmenntun. Markmiðið er að starfsmenn fái nauðsynlega starfs- þjálfun og fræðslu til að bæta frammi- stöðu sína í starfi svo þeir verði sem hæfastir og auki með því samkeppn- ishæfni fyrirtækisins. ESSO-skólinn var stofnaður til að framfylgja fræðslustefnu Olíufélags- ins er felur í sér þríþætt markmið: Nýliðafræðslu, þjálfun starfsmanna vegna nýrra eða breyttra verkefna og síðast en ekki síst endurmenntun. Sérstök námskeið eru haldin fyrir starfsfólk þjónustustöðvanna, þar sem farið er yfir tiltekna þjónustu- staðla sem fyrirtækið starfar eftir. Nýir starfsmenn fá einnig fræðslu um almennar eldvarnir og viðbrögð við eldsvoða. Verkleg námskeið í ásetn- ingu hjólbarða, peruskiptingum, ein- földum bílaviðgerðum og almennum eiginleikum bílsins eru einnig haldin með jöfnu millibili fyrir þá sem við það starfa. Margvísleg önnur námskeið eru í boði fyrir starfsfólk og leitast ESSO-skólinn við að fylgjast vel með öllum nýjungum varð- andi fræðslumál at- vinnulífsins. Einnig er áhersla lögð á að starfs- menn séu meðvitaðir um stefnu fyrirtækisins í málaflokkum sem þá snerta og að samvinna ríki innan hverrar starfseiningar. Hjá ESSO-skólanum er fræðsluþörf starfs- manna metin árlega í starfsmanna- samtölum og hún kortlögð með tilliti til heildarstefnu Olíufélagsins. Fræðslan er sniðin að þeim áætlunum sem eru efst á baugi hjá fyrirtækinu hverju sinni og þannig tryggt að hún sé eins markviss og kostur er. Skoðað er hverslags menntunar er þörf, t.d. þegar nýjungar í verkferlum eða tölvulausnum koma til sögunnar, og er viðkomandi starfsmönnum þá boð- ið að sækja námskeið í þeim efnum. Einnig eiga starfsmenn þess kost að sækja námskeið til að bæta frammi- stöðu sína á sviðum er snerta þá per- sónulega en nýtist þeim jafnframt í starfi. Í því sambandi má nefna nám- skeið til bættrar framkomu, aukins sjálfstrausts, betri íslenskukunnáttu og annars í þeim dúr. Þriðja hvern föstudagsmorgun stendur ESSO-skólinn fyrir sk. föstu- dagsfundum þar sem tiltekið efni er tekið fyrir hverju sinni, t.d. fundar- stjórn, samskipti á vinnustað, há- marksárangur í starfi og fleira þess háttar. Á fundina koma ýmist að- keyptir fyrirlesarar eða stjórnendur/ starfsmenn einstakra sviða innan fyr- irtækisins kynna verkefni og framtíð- aráætlanir. Markmið fundanna, sem eru opnir öllu starfsfólki Olíufélags- ins, er að efla upplýsingaflæði og samskipti milli starfsfólks og deilda innan fyrirtækisins. Þetta fyrirkomu- lag hefur sannað gildi sitt með góðri þátttöku og áhuga starfsmanna á að leggja sitt af mörkum. ESSO-skólinn býr yfir ört vaxandi aðfangasafni þar sem margt áhuga- vert fræðsluefni er að finna. Bækur, myndbönd, geisladiskar og tímarit hafa verið skráð í sérstaka aðfanga- skrá sem er aðgengileg starfsmönn- um og er unnt að fá þau lánuð. Komið er til móts við þarfir starfsmanna varðandi innkaup til safnsins og mið- ast það að mestu leyti við ábendingar og beiðnir sem ESSO-skólanum ber- ast. Starfsemi ESSO-skólans er yfir- gripsmikil og á að styðja við vel- gengni fyrirtækisins. Forsenda skil- virkrar fræðslustefnu er að þjálf- unarþörfin sé metin á raunhæfan hátt í nánu samstarfi einstakra yfirmanna og starfsmanna. ESSO-skólinn hefur það ekki aðeins að markmiði að auka færni og skilvirkni starfsmanna held- ur einnig að gera þá hæfari til að mæta auknum kröfum sem kunna að vera gerðar til þeirra í framtíðinni. Vel upplýstur mannauður er gulls ígildi því raunin er sú að fyrirtæki er ekkert annað en fólkið sem þar starf- ar. ESSO-skólinn Guðlaug Ólafsdóttir Símenntun Vel upplýstur mann- auður er gulls ígildi, segir Guðlaug Ólafsdóttir, því raunin er sú að fyrirtæki er ekkert annað en fólkið sem þar starfar. Höfundur er fræðslustjóri Olíufélagsins ehf. ÞAÐ voru naprir vind- ar fordóma, haturs og of- stækis sem gerðu snarpa, harða og miskunnarlausa hríð að nútíð okkar og framtíð hinn 11. septem- ber í fyrra. Þegar stórar farþegaþotur fullar af fólki og eldsneyti voru notaðar sem eldflaugar í þeim tilgangi einum að meiða, myrða og eyða jarðneskri tilveru okkar. Heimsbyggðin er í sár- um og ráðamenn jafnt sem almenningur vita vart ennþá sitt rjúkandi ráð, slíkur var og er óhugurinn og hræðslan sem greip um sig og heldur okkur jafnvel enn í helj- argreipum. Ódæðismönnunum tókst að skekkja heimsmyndina. Það verður að viðurkennast. Heimsmyndin og til- vera okkar skekktist svo að hún hefur tekið á sig nýja mynd. Lífi okkar var ógnað á nýjan og framandi hátt og það í beinni útsendingu sjónvarps- stöðvanna. Mikið kapp var eðlilega lagt á að hafa hendur í hári þeirra sem að gjörningunum stóðu. En hvað hefur gerst? Forsprakkinn hefur enn ekki náðst. Nú þegar eitt ár er frá atburðunum í New York og Washington verður okkur enn ljósara en áður að baráttan sem við eigum við er ekki fyrst og fremst við menn af holdi og blóði. Heldur við einhver óræð ill öfl. Við andaverur vonskunnar í himingeimn- um. Andaverunum þeim er sérlega lag- ið að skapa flokkadrætti og glund- roða, fordóma og hatur. Sannarlega hlýtur það að vera áhyggjuefni að fólk skuli alið upp í hatri á öðru fólki. Að það séu búnir til óvinir og markmiðið sé að eyða þeim. Við er- um að tala um veru- leikann, ekki tölvuspil eða bíómyndir. Hið sorglega er að hinar óræðu andaverur vonskunnar í himin- geimnum taka sér ból- festu, jafnvel í hinum ólíklegustu mönnum af holdi og blóði, á ófyrir- séðum og óþægilegum tímum og birtast þegar síst skyldi. Líf byggt á bjargi Þegar tilveran riðlast eins og hún gerði sann- arlega hinn 11. september 2001 varð fólk öryggislaust, haldið ótta og kvíða af skiljanlegum ástæðum. Það er ekki síst við slíkar aðstæður sem það er svo gott að eiga von í hjarta. Von sem ekki bregst. Líf sem byggt er á bjarg- inu eina sem ekki bifast, á frelsara heimsins, Jesú Kristi. Honum sem hefur heitið því að vera með sínu fólki alla daga allt til enda veraldar. Hon- um sem menntar í réttlæti og hvetur okkur til að elska náungann eins og okkur sjálf. Honum sem hvetur okkur til að virða hvert annað og dæma ekki náungann. Honum sem er fær um að gefa okkur frið sem er æðri okkar skilningi. Honum sem megnar að við- halda lífinu okkar jafnvel þrátt fyrir sjálfan dauðann. Það hlýtur því að skipta máli Hugarfar og lífsafstaða manna hlýtur því að skipta máli. Hvaða lífs- sýn menn velja að fylgja og hvaða hugarfar menn temja sér. Sannarlega þurfum við að standa vörð um friðinn, réttlætið og frelsið. En til að þær fögru hugsjónir fái að njóta sín og nái fram að ganga hljót- um við að verða að hleypa frelsinu, Naprir vindar Sigurbjörn Þorkelsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.