Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 41

Morgunblaðið - 11.09.2002, Síða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 41 HEIMASÍÐU, átak Norðurlanda og Eystrasaltsríkja gegn verslun með konur, hefur verið hleypt af stokkun- um. Á heimasíðunni má finna allar upplýsingar um sameiginlega mis- munandi tengiliði. Slóðin er: http:// www.nordicbalticcampaign.org. „Verslun með konur er ört vaxandi vandamál. Í júnímánuði 2001 ákváðu hin átta ríki Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna að sameina krafta sína og berjast gegn verslun með konur. Ríkin eru ásátt um að ein- ungis með samvinnu geti þau barist gegn verslun með konur. Ríkin eru ásátt um að einungis með samvinnu geti þau barist gegn þessu alþjóðlega vandamáli. Hið sameiginlega átak miðar að því að vekja athygli á vanda- málinu og upplýsa almenning, ríkis- stjórnir, stjórnvöld og frjáls félaga- samtök um verslun með konur bæði almennt og hvernig valdamálið horfir við í einstökum ríkjum. Átakið hófst með sameiginlegri ráðstefnu sem haldin var í Tallin í maí 2002, þar sem fjallað var um hlutverk kvenna í Eystrasaltsríkjunum, hlutverk fjöl- miðla í samfélaginu og löggjöf um verslun með fólk. Næsta ráðstefna, sem haldin verður í október nk. í Viln- ius í Litháen, mun fjalla um stuðning og vernd fórnarlamba. Þriðja og síð- asta ráðstefnan, sem haldin verður 27.–29. nóvember nk. í Riga í Lett- landi, mun fjalla um þá hlið vanda- málsins sem snýr að eftirspurn. Þá verður einnig rætt hvernig samvinnu ríkjanna í baráttunni gegn verslun með konur verður háttað í framtíð- inni,“ segir í fréttatilkynningu. Til viðbótar hinum sameiginlegu verkefnum skipuleggur hvert ríki einnig átak í sínu landi sniðið eftir þörfum þess lands. Sameiginlega átakið er styrkt og fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni. Sameiginleg heimasíða gegn verslun með konur INGVAR Karlberg prófessor hjá Norræna heilbrigðisháskólanum í Gautaborg heldur námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk og embættis- menn hjá Endurmenntun HÍ föstudaginn 13. sept. kl. 14-18. Hann fjallar um stjórnun og for- gangsröðun í heilbrigðisþjónustu með svokallaðri samningastjórnun. „Hefð er fyrir því á Norðurlönd- unum og í Bretlandi að helsta stjórntækið í heilbrigðisþjónustu felist í föstum fjárframlögum sem byggjast á samkomulagi milli þeirra sem reka og „kaupa“ þjón- ustuna. Aðferðin hefur marga galla; illa gengur að halda sér inn- an fjárlaga og viðurlög eru engin eða mjög væg við yfirdrætti. Í öðrum löndum hefur á hinn bóginn verið farin samningaleið þar sem sjúkrasamlagið kaupir til- tekna þjónustu á umsömdu verði af seljanda. Það er því áhugavert að kanna hvernig hægt er að nýta reynslu af samningastjórnun milli hins opinbera og einkaaðila í kerfi sem er fjármagnað með sköttum. Kennt verður um forsendur samningastjórnunar og rakin mörg dæmi frá Norðurlöndunum, bæði úr heilsugæslu og rekstri sjúkra- húsa. Kennt er á ensku,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. Frekari upplýsingar um nám- skeiðið eru á Netinu www.endur- menntun.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig. Samninga- stjórnun í heilbrigðis- þjónustu LANGHOLTSSKÓLI í Reykjavík fagnar 50 ára afmæli á þessu hausti. Laugardaginn 28. september verður haldin afmælishátíð í skólanum með tilheyrandi sýningu á verkefnavinnu nemenda í gegnum árin. Einnig verð- ur gefið út 50 ára afmælisblað Lang- holtsskóla. Fyrrverandi nemendur og starfs- menn Langholtsskóla sem eiga í fór- um sínum muni frá veru sinni í skól- anum: myndverk, vinnubækur, handavinnu, smíðisgripi eða ljós- myndir úr skólalífinu eru hvattir til að hafa samband við undirrituð, segir í fréttatilkynningu. Einnig er óskað eftir sögum og minningabrotum, sem hægt væri að birta í afmælisritinu. Eldri og yngri árgangar eru hvattir til að heimsækja skólann á þessum tímamótum. Nú gefst gullið tækifæri til að kalla saman skólasystkini og rifja upp atvik frá skólaárum til að birta í afmælisblaðinu. Einnig óskar afmælisnefndin eftir að komast í sam- band við einhverja af þeim fjölmörgu listamönnum sem gengu í Langholts- skóla á sínum tíma og vildu leggja skólanum lið á einhvern hátt á afmæl- isárinu. Nánari upplýsingar veita: Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri, netfang: hreidar@ismennt.is Guðrún Cortes, netfang: gudrun52@yahoo.com Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir, netfang: sjogu@ismennt.is Langholtsskóli heldur upp á 50 ára afmæli HÓPÞJÁLFUN Gigtarfélags Ís- lands er byrjuð aftur eftir sumarfrí og er mismunandi þjálfun í boði. Má þar nefna létta leikfimi, vefjagigtar- hópa, bakleikfimi fyrir karlmenn og vatnsleikfimi. Auk þess er boðið uppá jóganámskeið, sem aðlagað er einstaklingum með gigt. Markmiðið er að bjóða upp á leik- fimi fyrir alla, bæði fólk með gigt og aðra fullorðna sem vilja góða leikfimi án hamagangs. Þjálfunin fer fram á mismunandi tímum dags og ættu all- ir að geta fundið hóp og tíma sem hentar. Þjálfunin fer fram í húsi GÍ að Ár- múla 5 og vatnsþjálfunin í Sjálfs- bjargarlaug í Hátúni 12. Skráning og nánari upplýsingar eru á skrifstofu GÍ, Ármúla 5 í Reykjavík. Hópþjálfun Gigtarfélagsins Í HEILSUSTOFNUN NLFÍ, Hveragerði, er til boða vikudvöl með námskeiði gegn reykingum. „Mörg námskeið hafa verið haldin á liðnum árum með góðum árangri. Sýnt hefur verið fram á, að hreyfing, fræðsla, umræður, slökun og útivist, hjálpa mörgum til að hætta að reykja. Mörgum reynist auðveldara að glíma við tóbaksfíknina fjarri erli hvers- dagsins í hópi þeirra sem eiga við sama vanda að stríða og er því dvöl í friðsældinni í Heilsustofnun góður valkostur,“ segir í fréttatilkynningu. Innritun stendur nú yfir á næsta námskeið sem verður haldið dagana 13. til 20. október 2002. Upplýsingar og innritun í síma 483 0300, beidni- @hnlfi.is, heilsu@hnlfi.is; www.- hnlfi.is Námskeið gegn reykingum SÖNGSETUR Estherar Helgu fagnar fjórtánda starfsári sínu og opnar veturinn í nýju húsnæði að Auðbrekku 2, Kópavogi. Starfsemi skólans verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Byrjendanámskeiðin fyrir unga sem aldna, laglausa og lagvísa verða sem fyrr þungamiðja starfseminnar. Þessi námskeið hafa verið sívinsæl og gefið fólki kost á að læra að beita röddinni sinni og njóta þess að syngja, hjá sumum í fyrsta sinn á ævinni, segir í fréttatilkynningu. Námskeiðin eru 12 vikna og engin inntökupróf eru fyrir þau. Regnbogakórinn er kórnámskeið fyrir þá sem hafa verið á byrjend- anámskeiði eða öðru sambærilegu námskeiði og langar til að læra meira og njóta þess að syngja með öðru fólki. Nýtt námskeið í vetur er Dægur- kórinn sem er kórnámskeið þar sem áhersla verður lögð á dægurperlur frá ýmsum tímaskeiðum, gospel og söngleikjatónlist. Inntökupróf eru vikuna 9.–14. september. Kennari og stjórnandi er Esther Helga Guðmundsdóttir. Innritun er hafin og kennsla hefst 16. september n.k. Fjórtánda starfsár Söngseturs Esterar Helgu LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að umferðaróhappi sem varð á bílastæði við Gerðuberg 6. ágúst sl., einhvern tíma á milli klukk- an 12:50 og 16:00. Ekið var á vinstra framhorn blárr- ar Volkswagen Golf-bifreiðar. Tjónið er tilfinnanlegt en sá sem því olli ók af vettvangi án þess að tilkynna um áreksturinn. Þeir sem hafa einhverj- ar upplýsingar um málið eru vinsam- legast beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Lýst eftir vitnum NÚ stendur yfir undirbúningur fyrir Þjóðahátíð Austfirðinga sem fram fer á Seyðisfirði 28. sept- ember nk. Þar munu Austfirðingar af erlendu bergi brotnir koma að með menningarviðburðum af ýmsu tagi. Um þessar mundir býr fólk frá um 40 löndum, alls um 300 manns, á Austfjörðum. Tilgangur þjóðahátíðarinnar er að auka sam- gang Austfirðinga allra og draga fram í dagsljósið hvað aðkomufólk hefur fram að færa til samfélags- ins annað en þau störf sem það sinnir. Lokaundirbúningur stendur nú sem hæst, fjölbreytt skemmtidag- skrá verður á sviði þar sem m.a. verður boðið uppá dans, söng, hljóðfæraleik og fleira. Þá verða kynningar á þjóðlöndunum með fjölbreyttum hætti m.a. þjóðlegum réttum Á sérstökum bás verður íslensk menning. Gerð verður sjónvarps- mynd um hátíðina og undirbúning hennar. Efnt verður til mynda- samkeppni meðal grunnskólabarna á Austurlandi, einnig verður sam- sýning listamanna á Austurlandi með alþjóðlegum blæ. Með þjóðahátíð skapast tæki- færi til að kynnast aðfluttum Aust- firðingum, menningu þeirra og þeim mannauði sem þeir færa okk- ur, segir í fréttatilkynningu. Heið- ursgestur Þjóðahátíðar Austfirð- inga verður frú Vigdís Finnboga- dóttir, fv. forseti Íslands. Í október á síðasta ári stóð Rauði krossinn á Austurlandi fyrir þjóðahátíð hinni fyrstu á Austur- landi. Auk rauðakrosssjálfboðaliða var leitað til fjölda fyrirtækja, stofnana og einstaklinga til að koma að þessu verkefni á einn eða annan hátt. Vel á annað þúsund manns komu á hátíðina. Stór hluti þeirra, sem eru af erlendu bergi brotnir, kom að hátíðinni með ein- um eða öðrum hætti, kynnti sitt land og sína menningu. Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni: http://thjodaust.redcross.is Þjóðahátíð Austfirðinga undirbúin PÁLL Kr. Pálsson kennir hvernig gera á góða viðskiptaáætlun á nám- skeiði hjá Endurmenntun HÍ sem hefst þriðjudaginn 24. sept. kl. 16:00. Þetta er ítarlegt námskeið sem lýkur í nóvember og verður fjallað er um öll atriði við gerð viðskipta- áætlana s.s. skilgreiningu á við- skiptahugmynd, greiningu á mark- aði og markaðssetningu, sölu og samkeppni. Einnig verður farið í vernd hugverka og einkaleyfi. Á námskeiðinu vinna þátttakendur verkefni sem eru sprottin úr við- skiptahugmyndum þeirra eða tengj- ast þeirra vinnustað. Í lokin hafa þeir í höndum full- mótaða viðskiptaáætlun með arð- semismati og tillögum um hvernig verkefninu skuli hrint í framkvæmd. Frekari upplýsingar um nám- skeiðið eru á vefslóðinni www.end- urmenntun.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig, segir í fréttatil- kynningu. Námskeið í gerð viðskipta- áætlana HELGINA 20.–22. september hefst jógakennaraþjálfun á vegum Yoga Studio. Þjálfun hefur verið haldin síð- an 1997 og er orðinn fastur liður í starfsemi jógastöðvarinnar. Kennari er sem fyrr Ásmundur Gunnlaugs- son. Þjálfunin hentar ekki aðeins þeim sem vilja gerast jógakennarar heldur er öflugt sjálfsþekkingar- og þroska- námskeið. Hún hentar t.d. þeim sem vinna með einstaklinga eða hópa og/ eða þeim sem vilja dýpka jógaástund- un sína, segir í fréttatilkynningu. Ás- mundur heldur kynningarfund laug- ardaginn 14. september kl. 17, í Yoga Studio, Auðbrekku 14 í Kópavogi. Nánari upplýsingar er að finna á www.yogastudio.is. Kynningar- fundur um jógakennslu HALDINN var félagsfundur í kjör- dæmisráði Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi í Vogum í Vatnsleysustrandarhreppi 7. september 2002. Steingrímur J. Sigfússon formað- ur flokksins fjallaði um stjórnmál líðandi stundar. Rætt var um sam- eiginlegar áherslur í nýju kjördæmi í komandi kosningum og hvernig best verður að undirbúa koninga- baráttuna. Valin var uppstillinga- nefnd og henni falið að hefja störf sem fyrst. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt á fundinum. „Fundur í kjördæmisráði Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi haldinn í Vogum 7. september 2002 mótmælir öllum áformum um frekari virkjanir og vatnsmiðlun í efsta hluta Þjórsár og Þjórsárverum. Óumdeilt er að Norðlingaöldu- veita mundi valda verulegum óaft- urkræfum spjöllum í Þjórsárverum. Fundurinn lýsir undrun á úrskurði Skipulagsstofnunar og skorar á um- hverfisráðherra og Alþingi að hafna öllum áformum um frekari fram- kvæmdir á svæðinu.“ Frekari virkjanafram- kvæmdum verði hafnað MAGNÚS Stefánsson alþingismað- ur hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti fyrir Framsóknarflokk- inn í Norðvesturkjördæmi. Magnús hefur setið tæp tvö kjör- tímabil á Alþingi sem þingmaður í Vesturlandskjördæmi. Í yfirlýsingu sem Magnús sendi frá sér um helgina segir m.a: „Á kjördæmisþingi Framsóknar- manna í Norðvesturkjördæmi, þann 16. nóvember nk., verður ákveðið með kosningu hverjir muni skipa efstu sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í fyrsta sæti á framboðslista Fram- sóknarflokksins í þessari kosningu og mun á næstu dögum skila inn formlegu erindi þar að lútandi til kjörnefndar.“ Gefur kost á sér í Norðvest- urkjördæmi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.