Morgunblaðið - 11.09.2002, Page 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALVEG frá því að ég byrjaði að spila
á hljóðfæri og fylgjast með tónlist,
hefur mig alltaf langað að upplifa að
fara í alvöru tónleikaferð um heim-
inn. Það var því kærkomið tækifæri
að vera beðinn um að vera hjálp-
arhækja Quarashi á ferðalagi þeirra
um Ameríku, Kanada, Japan og Ástr-
alíu í sumar. Ferðin var lengi í fæð-
ingu, enda í mörg horn að líta, og
mannskapurinn réð sér vart fyrir
spennu þegar líða tók að ferðinni.
Það var svo um miðjan maí sem við
lögðum loks af stað í ferðalagið sem
átti eftir að verða algjört ævintýri
þegar upp var staðið.
Þvers og kruss um Ameríku
Förinni var fyrst heitið til New
York en þar átti að slá upp bæki-
stöðvum fyrir fyrstu tónleikarispuna.
Á flugvellinum tók á móti okkur Sven
nokkur Adams, hálfur Svíi og hálfur
Ameríkani, og reyndist hann vera
framkvæmdastjóri tónleikaferðalags-
ins. Næsta mánuðinn var planið að
halda fyrir í New York á virkum dög-
um en spila á útvarpshátíðum hingað
og þangað um Ameríku um helgar.
Það var ekki laust við það að maður
fengi í magann þegar okkur barst
listi yfir hljómsveitirnar sem við átt-
um að spila með: Incubus, System Of
A Down, Green Day, Blink 182, Em-
inem og ég veit ekki hvað og hvað!
Fyrstu helgina héldum við til Pitts-
burgh, þaðan til Chicago og loks til
St. Louis áður en við héldum aftur til
New York. Við vissum ekkert við
hverju við ættum að búast en þegar á
hólminn var komið var dágóður slatti
af fólki (sjálfsagt í kringum 5 þúsund
manns) sem kom að kíkja á íslensku
guttana. Á virku dögunum í New
York var síðan hitt og þetta á dag-
skránni. Viðtöl fyrir suma, NBA-
leikir fyrir aðra; sem sagt ýmislegt
gert til að drepa tímann. Við tókum
upp eitt stykki sjónvarpsþátt (Carson
Daily) á sjónvarpsstöðinni NBC og
var rapparinn Mos Def gestur þátt-
arins ásamt okkur.
Önnur helgin var ekki síður spenn-
andi en sú fyrri. Til stóð að spila í
Minneapolis á föstudegi, og fljúga
þaðan til Washington og spila á 60
þúsund manna hátíð þar ásamt Em-
inem. Það er, held ég, mesta upplifun
sem ég hef orðið fyrir, að spila fyrir
framan hátt í 40 þúsund manns. Því
miður fór allt úr böndunum þegar
Eminem spilaði og þurfti að flytja
eitthvað í kringum 20 manns á spít-
ala. Eftir að útvarpstónleikatörninni
lauk fengum við svo u.þ.b. vikufrí í
Los Angeles. Þaðan flugum við til
Boise í Idaho fylki þar sem Warped-
hátíðin átti að byrja daginn eftir.
Warped-hátíðin er þekkt fyrir að
vera eitthvert erfiðasta tónleika-
ferðalag sem hægt er að leggja upp í.
Það er ekki bara það að dagskráin sé
þétt (41 tónleikar á 50 dögum) heldur
er hitinn yfirleitt milli 30 og 40 gráð-
ur á þessum tíma.
Allt að gerast
Á Warped mátti finna skemmti-
legan þverskurð tónlistarstefna.
Uppistaðan var pönkbönd (N.O.F.X.,
Bad Religion, The Casualties), harð-
kjarnasveitir prýddu líka dagskrána
(Death By Stereo, Thursday, Boy
Sets Fire), þungarokkið var þá á sín-
um stað (Everytime I Die, Switched,
Throwdown) og blessað reggíið var
meira að segja mætt (Morgan Her-
itage). Þá mátti sjá þarna furðu-
fuglapopp (Andrew WK) og rapp-
rokk (Quarashi, 3rd Strike) svo
eitthvað sé nefnt. Einnig voru lista-
menn á mótorhjólum, hjólabrettum
og BMX-hjólum að sýna listir sínar.
Á flugvellinum tók bílstjóri sumars-
ins á móti okkur með rútuna sem við
áttum að búa í næstu tvo mánuði. Í
rútunni voru 12 kojur, setustofa með
gervihnattasjónvarpi, DVD-spilara
og leikjatölvum, og lítið eldhús með
setustofu. Við vorum búnir að skratt-
ast á milli hótela og flugvalla í mánuð
og þess vegna vel spenntir yfir því að
eiga loksins einhvers konar heimili.
Bílstjórinn okkar reyndist gamall í
hettunni, búinn að keyra fyrir New
Kids On The Block og var áður plötu-
snúður hjá Vanilla Ice! Ekki sem
verst og alls ekki sem best heldur!
Dagarnir hjá okkur tóku fljótlega á
sig netta rútínu. Maður vaknaði upp
úr níuleytinu, tók rölt og skoðaði
svæðið, fékk sér morgunmat og upp
úr hálfellefu fengum við að vita hve-
nær við ættum að spila. Það gat verið
allt frá hádegi til níu að kvöldi.
Hvernig svo sem það nú var, naut
maður dagsins til hins ýtrasta. Kíkti
á bönd, spjallaði við tónleikagesti,
fylgdist með hjólabrettagaurum eða
fór að veiða! Nóg um að vera. Það var
svo um miðjan ágúst sem Warped-
hátíðin tók enda. Þá var búið að fara
þvert og endilangt um Ameríku og
spila í helstu borgum hvers fylkis.
Við enduðum á Randall’s Island í
New Jersey, hentumst upp í flugvél
og flugum til Tókýó en þar áttum við
að spila á árlegri hátíð sem kallast
Summer Sonic. Þetta er tveggja daga
pakki með um 40 hljómsveitir á boð-
stólum. Þar á meðal voru
Guns’n’Roses (sem voru aðalnúmer
hátíðarinnar), Suede, Andrew W.K.,
The Offspring, Weezer, Hoobastank
og síðast en ekki síst finnsku ell-
ismellirnir í Hanoi Rocks. Til marks
um aldur þeirra má geta þess að gít-
arleikarinn studdist við hækju meðan
hann spilaði!
Slakað á í Japan
Við áttum svo nokkurra daga frí í
Tókýó þannig að við höfðum smátíma
til að skoða okkur um og kynnast
fólkinu. Við vorum sammála um að
þetta væri skemmtilegasti staðurinn
hingað til og fólkið algjörir höfðingjar
heim að sækja. Tónleikarnir voru á
stórum hafnaboltavelli rétt fyrir utan
borgina og þegar við komum á svæð-
ið var fólkið byrjað að streyma inn.
Við spiluðum nánast sömu lagaskrá á
hátíðinni með nokkrum smávægileg-
um breytingum. Það var mögnuð til-
finning að sjá 25 þúsund manns
hoppa í takt við tónlistina allan tím-
ann og var þetta tvímælalaust mesta
stemmning sem ég hef upplifað. Eftir
tónleikana flugum við til Osaka en
þar áttum við að spila á síðasta degi
hátíðarinnar. Okkur til mikillar gleði
uppgötvuðum við að múm var að
spila á þessari sömu hátíð en hljóm-
sveitirnar voru á hvor á sínum staðn-
um báða daganna sem gerði það að
verkum að því miður gátum við ekki
hist.
Eftir að Summer Sonic-hátíðinni
lauk flugum við til Brisbane í Ástralíu
en þar áttum við að spila í beinni út-
sendingu í tónlistarsjónvarpi sem
kallast Channel V og er sent út um
alla Ástralíu. Hér vorum við í góðum
höndum fyrirtækis sem heitir Sub-
urban Force og sá það um allar okkar
þarfir. Útsendingin gekk ekki klakk-
laust fyrir sig, tölvan dó, þráðlausu
hljóðnemarnir stóðu á sér og við vor-
QUARASHI Á FERÐALAGI UM HEIMINN
Ómar og Hössi, Quarashi-liðar, á sviðinu í Tókýó.
New York –
Tókýó – Reykjavík
Quarashi halda heim-
komutónleika í Höllinni
á morgun. Gítarleikari
sveitarinnar, Smári
„Tarfur“ Jósepsson,
segir hér frá heimsreisu
sveitarinnar ásamt eigin
tónleikahátíðarflandri.
alltaf á föstudögum
Frums. lau. 7/9 uppselt
þri. 10/9 örfá sæti laus
mið. 11/9 örfá sæti laus
fim. 12/9 örfá sæti laus
fös. 13/9 örfá sæti laus
fim. 19/9 laus sæti
Í Loftkastalanum kl. 20
Miðasala:
552 3000
Leikfélag
framhalds-
skólanna
kynnir:
Mið. 11. sept. - 3. sýn. - UPPSELT
Fim. 12. sept. - 4. sýn. - ÖRFÁ SÆTI
Fös. 13. sept. - 5. sýn. - ÖRFÁ SÆTI
Fim. 19. sept. - 6. sýn. - ÖRFÁ SÆTI
Fös. 20. sept. - 7. sýn. - ÖRFÁ SÆTI
Fös. 27. sept. - 8. sýn. - ÖRFÁ SÆTI
Lau. 28. sept. - 9. sýn. - ÖRFÁ SÆTI
Lau. 28. sept. - kl. 23. aukasýn.
Lau. 5. okt - kl. 23. aukasýn.
Sýningar hefjast kl. 21
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opinn frá
kl. 10-16 alla virka daga
miðapantanir í s. 562 9700
frá kl 10 og á femin.is
Miðasala opnar 2 klst fyrir sýningar
Uppselt!
Oftar en ekki er uppselt þegar kemur að tónleikadögum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Fáðu þér áskrift í vetur og tryggðu
þér öruggt sæti á einstaka skemmtun.
Áskrift að grænu röðinni kostar frá 9.265 krónum sem er ekki
mikið verð fyrir fimm framúrskarandi tónleika.
Með Regnbogaskírteini getur þú valið ferna, sex eða átta
tónleika sem falla best að þínum smekk. Verð frá 8.950 krónum.
Hringdu núna í 545 2500 eða
skoðaðu sinfonia.is og tryggðu
þér sæti í vetur.
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
/
8
6$ 6$
68
6! !-
"8
# 6$
#8
!-
8
6-"$
&9
2
+
:
+ ;
5
! !-
8
8
(
!$ !-&
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Vrede
La Paqe
Salam
Bake
Mír
La Pau
Pingan
Fred
Muka-muka
Peace
Paco
Rahu
Kapayapaan Tagalog
Rauha
La Paix
A Paz
Frieden
Friður
Iri'ni
Lapé
Shalom
Béke
Síocháin
La Pace
Solh
Pokój
A Paz
Kiba-kiba
Kagiso
Amaní
Santipap
Barish
Miers
Taika
Uxolo
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
Tónleikar í grænu röðinni í Háskólabíói
Fimmtudaginn 12. september kl. 19:30
Föstudaginn 13. september kl. 19:30
Söngleikjatónlist eftir
George Gershwin og Cole Porter
Hljómsveitarstjóri: David Charles Abell
Einsöngvarar: Kim Criswell og George Dvorsky
Tryggðu þér öruggt sæti með áskrift.