Morgunblaðið - 11.09.2002, Qupperneq 48
FRANSKA kvik-
myndaleikkonan
Brigitte Bardot,
sem er mikill dýra-
vinur og harður
baráttumaður fyrir
réttindum dýra,
hefur sent Mette-
Marit, krónprins-
essu Noregs, opið
bréf og biður hana
um að aðstoða við
að bjarga háhyrn-
ingnum Keikó svo
hann verði ekki
drepinn.
Er bréfið skrifað
vegna ummæla nokkurra vís-
indamanna um að sennilega
væri best að lóga Keikó þar
sem hann muni varla þrífast í
Skálavíkurfirði í Noregi þar
sem hann er nú.
Í bréfinu gefur Bardot glögg-
lega í skyn að hún vænti engrar
aðstoðar frá norskum stjórn-
völdum enda stundi Norðmenn
hvalveiðar. Bardot segist hins
vegar telja að Mette-Marit sé
tákn fyrir framtíð Noregs og
biður hana því um hjálp.
Dýravinurinn Brigitte Bardot
Biður Mette-Marit
að bjarga Keikó
Keikó í Noregi. Strákurinn er að gera allt
vitlaust um þessar mundir!
Reuters
48 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Líf þitt mun
aldrei
verða
eins!
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
M E L G I B S O N
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. B. i. 12.
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
SG. DV
SV Mbl
1/2
HI.Mbl i i
ÓHT Rás2
SK Radíó X
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 8 . Enskt tal.
Sjáið myndina í frábæru
nýju hljóðkerfi Háskólabíós
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12 ára.
Rómantísk gamanmynd úr raunveru-
leikanum sem fjallar um íslenskan
mann, Jón Gnarr, sem verður ást-
fangin af Kínverskri stúlku.
Ben affleck Morgan Freeman
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 426
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6.45 og 9. B.i. 12. Vit 427
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
DV
Kvikmyndir.com
1/2
SK.RadioX
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 423
M E L G I B S O N
Hetja framtíðarinnar
er mætt í frábærri
grínmynd!
EddieMurphyog RandyQuaidí sprenghlægilegri
gamanmynd sem kemur verulega á óvart.
Sýnd kl. 4 og 5.Íslenskt tal. Vit 429
“Litla bláa geimveran Stitcher
skemmtilegasta persónan sem
komið hefur úr smiðju Disney.”
“Frábær skemmtun fyrir börn og
fullorðna.” “Stitcher ekkert
venjulegt Disneykrútt!”
ÞÞ Fréttablaðið
1/2
Kvikmyndir.is
Það er einn í hverri
fjölskyldu!
KÓNGSRÍKI fjallanna er fyrsta
sólóplata Ingólfs Steinssonar en
hann var áður í þjóðlagasveitinni
Þokkabót. Lögin eru flest í þægileg-
um og þjóðlegum dægurlagastíl og
textarnir skipa há-
an sess.
Þeir eru lipur-
lega samdir og falla
yfirleitt áreynslu-
laust að laglínun-
um, og má geta
þess að Ingólfur hefur samið fjölda
texta fyrir aðra lagasmiði. Fortíðin
er Ingólfi hugleikin, bæði fjarlægð
sögunnar og persónuleg fortíð og
hann lítur m.a. um öxl til uppvaxt-
aráranna, nokkuð nostalgískur, og
bregður upp myndum sem lýsa
stemmningu bítlaára og síldar-
sumra. Nokkur laganna eru samin
við kvæði þjóðkunnra skálda og til
dæmis er hér að finna lag við kvæði
Jóns Helgasonar, „Áfanga“ en það
gengur ekki vel upp því rödd Ingólfs
liggur fremur hátt og á illa við þung-
ann og vigtina í kvæði Jóns. Ef til vill
hefði farið betur að fá annan til að
syngja lagið og þetta á reyndar við
fleiri lög því mér finnst Ingólfur ekki
hafa mikla söngrödd, hún er fremur
veik og býr ekki yfir miklum blæ-
brigðum. Þetta verður að teljast stór
galli þegar um svona „söngva-
skálda“-tónlist er að ræða. Forn-
eskjuleg raddbeitingin í „Nútíma-
rímu“ er t.d. alveg misheppnuð –
þótt hún eigi að kallast á við efni
lagsins þá virkar þetta meira eins og
grín og hið sama má segja um jóðl-
kenndan sönginn í „Leikur í lyndi“.
Einhæfur áhersluþungi í lok hverrar
hendingar í laginu „Á sjoppunni“
(„stelpu-num/kvöldu-num“) verður
þreytandi og eyðileggur fyrir annars
frísklegu lagi.
Lögin sjálf eru nefnilega ágætlega
melódísk og þægileg áheyrnar, þar
sem gítarinn er meginstoðin og línan
brotin upp með t.d. flautu, munn-
hörpu eða saxófónsprettum. Smekk-
leg þverflauta og gítarleikur sem
minnir á mandólín í laginu „Þjóðlag“
sem samið er við kvæði Snorra
Hjartarsonar, skapar hljóðheim sem
nær vel þjóðsagnaanda kvæðisins og
hér hæfir rödd Ingólfs vel laginu,
verður beinlínis viðkvæmnisleg.
„Ísaland“ er líka áheyrilegt þar sem
skeiðað er yfir Íslandssöguna í létt-
um takti með innslagi frá Dan Cass-
idy á fiðluna.
Einna best finnst mér þó takast í
titillagi plötunnar, „Kóngsríki
fjallanna“ þar sem sungið er um
heimabæ Ingólfs, Seyðisfjörð, og
uppvaxtarárin þar: „Við uxum þarna
krakkar úr Kaldastríðsgrasi/í kóngs-
ríki fjallanna/í þjóðsagnaheimi og
furðuleik fimmbíóa.“ Þetta er ljúft
lag þar sem angurværðin næst vel,
bæði í texta og lagi, með fallegu
saxófónsólói Kristins Svavarssonar
og röddun sem gerir sönglínuna blæ-
brigðaríkari. Dæmi sem þessi gera
plötuna að eigulegum grip, þótt
heildin hefði þolað meiri grisjun og
hvassari útsetningar.
Tónlist
Fjarðar-
minni
Ingólfur Steinsson
Kóngsríki fjallanna
Útgefandi Tunga
Lög eftir Ingólf Steinsson sem syngur og
leikur á gítar og munnhörpu. Textar einn-
ig eftir Ingólf fyrir utan þrjú kvæði og eina
þjóðvísu. Með Ingólfi spila Ásgeir Ósk-
arsson og Steingrímur Guðmundsson á
trommur, Haraldur Þorsteinsson og Rich-
ard Corn á bassa, Lárus H. Grímsson á
hljómborð og flautu og Þórir Úlfarsson á
hljómborð, o.fl. Flestar upptökurnar eru
frá síðustu fjórum árum en þrjár frá árinu
1987.
Steinunn Haraldsdóttir
Það er Ingólfur Steinsson
sem á veg og vanda af
kóngsríki fjallanna.
HEATHER Mills, eiginkona Pauls
McCartneys, hefur fallist á dómsátt
í meiðyrðamáli sem hún höfðaði
gegn breska blaðinu Sunday Mirror
en blaðið hélt því fram að verið
væri að rannsaka meint fjármála-
misferli Mills í tengslum við söfnun
sem hún stóð fyrir til hjálpar fórn-
arlömbum jarðskjálftans í Gujarat á
Indlandi á síðasta ári. Mun blaðið
greiða Mills jafnvirði um 6,6 millj-
óna króna í miskabætur en Mills
ætlar að láta féð renna í styrkt-
arsjóð fyrir fórnarlömb jarð-
sprengja.
Sunday Mirror sagði í maí að eft-
irlitsnefnd með góðgerðarstarfsemi
væri að rannsaka fjármál Mills, sem
höfðaði meiðyrðamál þegar í stað.
Stephen Taylor, lögmaður Mills,
sagði að greinin hefði verið óábyrg
og blaðið hefði ekki reynt að verja
hana fyrir rétti heldur boðist til
þess að greiða miskabætur fyrir að
skaða orðstír Mills.
Chris Wade, talsmaður Sunday
Mirror, sagði að fréttin hefði verið
birt í góðri trú. Hins vegar við-
urkenndi blaðið nú að ýmis atriði
hefðu ekki verið sannleikanum sam-
kvæm og væri ánægt með að mál-
inu væri lokið.
Mills er fyrrverandi fyrirsæta.
Hún missti annan fótinn í mótor-
hjólaslysi árið 1993 og stofnaði
nokkru síðar Heather Mills-sjóðinn
til að safna fé fyrir ung fórnarlömb
stríðsátaka. Mills og McCartney
giftu sig í sumar.
Réttað í máli Heather Mills
Féllst á
dómsátt
Reuters
Mills ásamt bónda sínum.
TÖLVUGERÐA teiknimynd-
in Litla lirfan ljóta hefur ver-
ið valin til sýningar á Al-
þjóðlegu barnakvikmynda-
hátíðinni í Chicago sem
stendur frá 24. október til 3.
nóvember. Yfir 4.500 manns
hafa séð myndina hér á landi
og segja framleiðendur að
það sé mesta aðsókn á ís-
lenska stuttmynd til þessa en
myndin er hálftíma löng.
Kvikmyndin verður sýnd í
Facets-kvikmyndahúsinu í
Chicago laugardaginn 2.
nóvember kl. 15. Hátíðin í
Chigago er hin stærsta sinnar
tegundar í Bandaríkjunum.
Hún er haldin í samstarfi við
Kvikmyndaakademíuna sem
stendur að Óskarsverðlaununum
og er þetta eina slíka hátíðin sem
akademían kemur að. Verðlauna-
stuttmynd hátíðarinnar kemur
sjálfkrafa til greina sem tilnefning
til Óskarsverðlauna í flokki stutt-
mynda. Um 200 myndir verða
sýndar á hátíðinni og er áætlað að
yfir 30.000 gestir sæki hana.
Litla lirfan ljóta er fyrsta ís-
lenska tölvugerða teiknimyndin.
Hún er sýnd í Smárabíói og Borg-
arbíói á Akureyri um þessar
mundir og verður tekin til sýninga
í Keflavík og á Egilsstöðum um
helgina. Myndin er framleidd af
CAOZ hf.
Lirfan ljóta á
alþjóðlega
barnamyndahátíð
Skyldi Óskar frændi falla
fyrir Lirfunni ljótu?