Morgunblaðið - 11.09.2002, Side 52

Morgunblaðið - 11.09.2002, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Þú hringir JEPPI, sem hefur setið fastur í far- vegi Krossár frá verslunarmanna- helgi, kom í ljós þegar áin færði sig um set í miklum rigningum fyrir rúmri viku. Jeppinn hafði þá grafist djúpt niður í farveg árinnar og er fullur af sandi og grjóti. Sigurður Ólafur Sigurðsson, skálavörður í Langadal, segir að of mikið hafi verið í ánni til að ná jeppanum upp úr um versl- unarmannahelgi þegar hann festist en síðan hafi verið reynt í tvígang að ná honum upp, án árangurs. Síð- ast hafi verið reynt með traktor og þá hafi allir spottar slitnað. Telur Sigurður að öll olía hafi þegar lekið frá bílnum, sem er um tíu ára gam- all, óbreyttur Cherokee-jeppi. Fyrir rúmri viku breytti Krossá um árfarveg í kjölfar mikilla rign- inga þannig að bíllinn, sem hafði verið í mjög djúpu vatni, kom aftur í ljós. Finnbogi Ómarsson, skála- vörður í Húsadal, segir að þá hafi hann án árangurs reynt að moka í kringum jeppann til að losa hann. Fólkinu bjargað fyrir Guðs náð Bíllinn er á ábyrgð eigandans og segir Finnbogi að Austurleið, sem rekur ferðaþjónustuna í Húsadal, muni skoða hvort þess verði krafist að eigandinn láti fjarlægja bílinn. Segir Finnbogi að eigandinn hafi haft samband á mánudagskvöld, en þá hafði ekkert í honum heyrst í margar vikur. Ætlar eigandinn að fara í Þórsmörk um næstu helgi. Þrír voru í bílnum þegar hann festist í ánni. „Fólkinu var bjargað fyrir Guðs náð, það var ægilegt vatn í ánni þennan dag,“ segir Finn- bogi. Hann segir að fólkið hafi kom- ist upp á þak bílsins þaðan sem því var bjargað í rútu sem flutti það aftur á þurrt land. Niðurgraf- inn í farveg Krossár Ljósmynd/Sigurður Ó. Sigurðsson STEINGRÍMUR Ari Arason, fram- kvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna og fyrrum aðstoðarmað- ur fjármálaráðherra, hefur sagt sig úr framkvæmdanefnd um einkavæð- ingu. Tilkynnti hann þetta í bréfi í gær til forsætisráðherra. Geir H. Haarde fjármálaráðherra, sem einnig gegnir störfum forsætisráðherra í fjarveru Davíðs Oddssonar, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi um leið og hann sagðist ætla að tilnefna Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytis- ins, fyrst um sinn í nefndina í stað Steingríms Ara. Steingrímur Ari vildi ekki tjá sig um málið er Morgunblaðið náði tali af honum í gær en hann hefur setið í einkavæðingarnefnd frá því að hún var sett fomlega á laggirnar í ársbyrj- un 1992. Hann var tilnefndur í nefnd- ina af þáverandi fjármálaráðherra, Friðriki Sophussyni. Aðspurður hvaða ástæður lægju að baki ákvörðun Steingríms Ara sagði Geir H. Haarde þær vera ákveðinn skoðanamun vegna einkavæðingar Landsbankans. Geir sagði að sér fyndist leitt að Steingrímur Ari skyldi hafa ákveðið að segja sig úr nefndinni eftir langt og gott starf. Fjármálaráðherra sagði að í sínum huga væri aðalatriðið hvernig mark- aðurinn og fréttaskýrendur á fjár- málamarkaði hefðu brugðist við já- kvæðum tíðindum um sölu ríkisbankanna. „Það er alveg ljóst að hagsmunir ríkisins í málinu eru margþættir. Eitt atriðið eru hin almennu efnahagsáhrif eins og innflæði gjaldeyris, áhrif á gengi krónunnar og hlutabréfamark- að. Til margra átta er að líta þegar hin pólitíska ákvörðun er tekin hjá ráð- herranefnd um einkavæðingu. Það var gert á grundvelli álits alþjóðlega bankans HSBC. Ágreiningurinn er um atriði í því máli. Við sem berum hina pólitísku ábyrgð höfum tekið þessa ákvörðun og ef menn, sem vinna að þessu máli, eru ekki sáttir þá segir það sig sjálft að þeir hverfa af vettvangi,“ sagði Geir ennfremur. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem breytingar verða á skipan einka- væðingarnefndar. Sem kunnugt er sagði Hreinn Loftsson lögmaður sig úr nefndinni sem formaður hennar í febrúar sl. og Ólafur Davíðsson, ráðu- neytisstjóri forsætisráðuneytisins, var skipaður í hans stað. Aðrir í nefndinni eru Jón Sveinsson lögmað- ur, tilnefndur af utanríkisráðherra, og Sævar Þ. Sigurgeirsson endur- skoðandi, tilnefndur af viðskiptaráð- herrra. Samson eignarhaldsfélag ehf. er reiðubúið að kaupa allt að 45% hlut í Landsbanka Íslands og getur verð- mæti þess hlutar numið allt að 12 milljörðum íslenskra króna. Félagið hefur ennfremur lýst yfir áhuga á að kaupa kjölfestuhlut í Búnaðarbanka Íslands. Samson eignarhaldsfélag, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, Magnúar Þorsteinssonar og Björg- ólfs Guðmundssonar, fékk í gær af- hent bréf frá framkvæmdanefnd um einkavæðingu þar sem fram kemur að ákveðið hafi verið að ganga til við- ræðna við félagið um kaup á umtals- verðum hlut í Landsbanka Íslands hf. Steingrímur Ari Arason segir sig úr einkavæðingarnefnd Skoðanamunur vegna sölu LÍ  Samson vill /16  Dreifð eignaraðild /12 STARFSMENN efnahagsbrota- deildar ríkislögreglustjóra gerðu hús- leit í gær í höfuðstöðvum verslunar- keðjunnar SMS í Færeyjum, sem Baugur Group er helmingshluthafi í. Frá þessu var greint í fréttum rík- isútvarpsins klukkan 22 í gærkvöld og einnig að lögregla hefði yfirheyrt menn sem tengjast SMS. Rannsóknin er gerð í kjölfar kæru Jóns Geralds Sullenbergers, eiganda Nordica-heildsölunnar í Bandaríkj- unum, á hendur forsvarsmönnum Baugs. Húsleitin fór fram með aðstoð stað- arlögreglu að fengnum dómsúrskurði í Færeyjum. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri staðfesti fréttina við Morgunblaðið í gærkvöld og sagði saksóknara embættisins hafa verið að störfum í Færeyjum undanfarna daga ásamt endurskoðanda og rann- sóknarlögreglumönnum. Fjórir starfsmenn á vegum ríkislögreglu- stjórans eru því að störfum í Fær- eyjum. Haraldur vildi ekki tjá sig nánar um efnisatriði málsins. Á heimasíðu Baugs kemur fram að Baugur – ID, eitt þriggja fyrirtækja Baugur Group sé helmingshluthafi í p/f SMS verslunarfélagi í Færeyjum. Segir þar að verslanir SMS séu 8 tals- ins, 6 Bónusverslanir og 2 stórmark- aðir undir nafninu Miklagarður. Þá undirbúi SMS sókn á sérvörumarkaði í Færeyjum. Húsleit gerð hjá hlutdeildarfélagi Baugs í Færeyjum JÓN Ásgeirsson tónskáld hefur sagt sig úr STEFi, Samtökum tónskálda og eigenda flutningsréttar. Ástæð- una segir Jón vera þá að STEF hafi ekki verið reiðubúið að aðstoða hann við að ná fram rétti sínum, þegar höfundarréttur hans hefur verið vanvirtur. Um er að ræða nokkur mál. Flest snúast þau um lagið Vísur Vatns- enda-Rósu, þjóðlag sem Jón útsetti og bætti við kafla frá eigin brjósti. Matsnefnd á vegum STEFs hefur eignað Jóni tónsmíðina, að tíu tólftu hlutum og gefið honum leyfi til að kalla sig höfund hennar. Ítrekað hef- ur þó útsetning Jóns verið notuð nánast óbreytt eða umrituð fyrir hljóðfæri og eignuð öðrum. „Ég sagði upphaflega að þetta væri þjóðlag í minni útsetningu, en útsetningin nýtur auðvitað höfund- arréttar líka. Menn hafa gengið í þetta og notað lagið í minni útsetn- ingu og sagt hana sína eigin ef þeir hafa notað hljóðfæri. Þetta hefur skapað mikil leiðindi,“ segir Jón í samtali við Morgunblaðið í dag. Jón Ásgeirsson tónskáld segir sig úr STEFi Vísur Vatnsenda- Rósu valda deilum  Telur STEF/ 23 NÓTASKIPIÐ Steinunn SF kom með fyrstu síldina á vertíðinni til Hornafjarðar í gærmorgun. Sama skip kom með fyrstu síldina á síð- ustu vertíð; þá nefndist skipið Arney KE. Þetta var þremur dög- um fyrr en nú en síldin veiddist á sömu slóðum í Berufjarðarálnum. Jóna Eðvalds SF kom einnig í gærmorgun með 60 tonn af síld af sömu slóðum. Hermann Stef- ánsson, vinnslustjóri hjá Skinney- Þinganesi, sem gerir út Steinunni og Jónu Eðvalds, og Sigurður Ægir Birgisson, skipstjóri á Steinunni SF, eru hér með sýn- ishorn af fyrstu síldinni sem þeir segja að sé nokkuð blönduð en líti vel út. Morgunblaðið/Sigurður Mar Fyrsta síld- in á land á Hornafirði Höfn. Morgunblaðið. TVEIR Búlgarar, kona um fimmtugt og þrítugur sonur hennar, gáfu sig fram við starfsfólk Rauða krossins í Reykjavík í gær og sögðust óska eftir hæli sem pólitískir flóttamenn á Íslandi. Þar með hafa 87 manns óskað eftir hæli á landinu það sem af er þessu ári, 35 fleiri en óskuðu hér hæl- is allt árið 2001. Að sögn Kristínar Völundar- dóttur, lögfræðings Útlend- ingaeftirlitsins, eru almennt litlar líkur á því að Búlgarar fái hæli á Íslandi eða í nokkru öðru Evrópuríki. Mál mæðginanna verði þó að sjálfsögðu tekið til skoðunar hjá stofnuninni. Eng- inn ríkisborgari frá Búlgaríu hefur farið í hælismeðferð á Ís- landi frá 1997. Þegar mæðginin gáfu sig fram sögðust þau ekki hafa vegabréf meðferðis en lögregl- an í Reykjavík fann þau við leit á konunni í gær. Í vegabréfun- um kemur fram að þau komu inn á Schengen-svæðið í Finn- landi fyrir um mánuði. Tveir Búlg- arar óska eftir hæli Á þessu ári hafa 87 manns óskað eftir hæli hér

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.