Morgunblaðið - 15.09.2002, Síða 11

Morgunblaðið - 15.09.2002, Síða 11
í byggð notast í almenningsveitur og fiskeldi. Ef tekið yrði 1% af árlegu vatnsmagni til viðbótar til útflutnings myndi þýða um 100 til 150 milljónir tonna af vatni. Drykkjarvatn selst víða á 25–40 kr. lítrinn og verð á góðu vatni mun án efa fara hækkandi. Til samanburðar má nefna að um 1 millj- ón tonna af eldsneyti er flutt til lands- ins á hverju ári, og fiskútflutningur nemur nokkrum hundruðum þúsunda tonna á ári. Hér er því um gríðarlegt magn af nýtanlegu, góðu neysluvatni að ræða, sem sjálfsagt er að nota til útflutnings. Það hefur vissulega verið reynt, en mistekist fram að þessu til langframa. Tel ég að með skilningi og stuðningi stjórnvalda og skýrara lagaumhverfi um vatnið mætti auð- velda mönnum að koma á fót nýrri starfsgrein og öflugum útflutningi. Vænlegastir eru langtímasamningar um vatnssölu. Við þurfum ekki að keppa við þekkt nöfn í vatnssölunni, heldur ættum við að finna okkur nýj- an vettvang til vatnssölunnar. Svo virðist sem um ýmsar leiðir sé að ræða,“ bætir hún við. Nauðsynlegt að setja vatnsmál undir einn hatt Nauðsynlegt er, að mati Katrínar, að ein stofnun haldi utan um rann- sóknir og þekkingaröflun á gæðum og magni vatns hér á landi. „Eftirlit með neysluvatni er í góðum höndum Holl- ustuverndar, nú Umhverfisstofnunar, og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga og engin ástæða til að breyta því.“ Eðli- legast telur hún að Orkustofnun hafi að öðru leyti með málefni kalda vatns- ins að gera, enda hafi þar farið fram mikil rannsóknarvinna undanfarna áratugi. „Vatnið fellur undir fjölda laga og reglugerða, sem er alveg með ólíkindum. Þar þarf að setja málin undir einn hatt svo að vatnið fái verð- ugan sess sem auðlind. Með þeim hætti má kortleggja möguleikana sem í vatninu liggja og fela svo einka- aðilum að kanna útflutning. Ef rétt er að málum staðið er hér um mikilvæga búgrein að ræða fyrir þjóðarbúið.“ Freysteinn Sigurðsson á Orku- stofnun er sammála Katrínu hvað þetta varðar. „Það þarf að koma betra skipulagi á neysluvatnsbúskapinn, án þess að það þurfi að þýða skerðingu frelsis vatnsútflytjenda eða annarra sem fást við vatnsmál hér á landi. Eðlilegt væri að fela Orkustofnun þessi mál. Starfsmenn hennar hafa unnið mikið að þessum málum og búa yfir mikilli þekkingu.“ bjarniben@mbl.is Morgunblaðið/Rax MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 11 J ÓHANN Guðlaugsson viðskipta-fræðingur skrifaði lokaritgerðsína í Háskólanum í Reykjavík um vatnsútflutning. „Þetta er heillandi viðfangsefni og Íslendingar hafa haft mikla trú á vatninu sem út- flutningsvöru. Við teljum vöruna vera einstaklega góða og auðseljanlega. Hins vegar hefur ekkert fyrirtæki sem reynt hefur vatnsútflutning náð tilætluðum árangri. Í ritgerðinni leit- ast ég við að svara því hvort í raun og veru sé hagkvæmt að flytja út vatn,“ segir hann. Nokkur atriði torvelda útflutning „Spurningin er í raun hvað fór úr- skeiðis. Við því eru nokkur svör. Flest- ir sem hafa reynt útflutning hafa farið sömu leið, en hægt er að selja vöruna á fjöldamarga vegu. Heimildir um ís- lenskt vatn eru oft ekki mjög góðar, ýmsu er slegið fram sem ekki á við rök að styðjast. Þar er bæði alhæft og ýkt. Aðstæður verðandi útflytjenda eru þess vegna ekki mjög hentugar. Vatnið er mjög gott að okkar mati og ekkert til fyrirstöðu hvað það varðar. Það er mjög steinefnasnautt en syðst í Evr- ópu er því haldið fram að steinefnaríkt vatn sé hollara. Þannig verða sérkenni íslenska vatnsins því til trafala á Evr- ópumarkaði en í Bandaríkjunum þykir þetta kostur. Svona atriði verða að vera útflytjanda ljós áður en ráðist er í málið.“ Markaðssetningin mikilvæg „Hins vegar verður að fara varlega í markaðssetninguna. Að mínu mati er nauðsynlegt að koma upp neti sölu- manna og beina sjónum að dreifing- araðilum í stað þess að reyna mark- aðssetningu beint til neytenda. Auglýsingakostnaður verður of mikill og áróðurinn nær ekki eyrum neyt- enda. Hins vegar, ef varan er kynnt vel fyrir heildsölum og verslunum, má ná mun betri árangri. Ég tel vatnsútflutning mjög vel mögulegan. Það þarf töluvert fjár- magn til, sérstaklega til þess að kom- ast yfir fyrsta hjallann. Ekki er væn- legt að sökkva sér í skuldir meðan markaðssetning er í reifum. Ég tel að ef íslenskir útflytjendur myndu skapa sér sérstakan sess og kynna vöruna sem eitthvað nýtt og spennandi, í stað þess að reyna að keppa við stóra selj- endur vatns í heiminum, myndi skap- ast svigrúm til sölu á vörunni. Einnig er magnið mjög mikilvægt ef ekki er um að ræða mikið magn nær salan ekki að verða ábatasöm,“ segir Jó- hann. Davíð Scheving Thorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og vatnsútflytjandi, var leiðbeinandi Jó- hanns við skrif ritgerðinnar. „Mér finnst sannarlega sjálfsagt að skil- greina hið ferska vatn Íslendinga sem auðlind. Þó að útflutningur vatns hafi ekki gengið að óskum hingað til mun eflaust koma sá dagur að útflutning- urinn mun standa undir sér og því er nauðsynlegt að vernda þessa auðlind okkar sem best við getum,“ segir Davíð. Mjög erfitt að selja vatn Orkuveitan, þáverandi Vatnsveita Reykjavíkur, tók þátt í stofnun Þórs- brunns hf. Guðmundur Þóroddsson forstjóri segir Vatnsveituna hafa lagt til þekkinguna á vatninu og vatnið sjálft. „Framan af gekk allt vel, en fyrir um ári var ráðist í mikla mark- aðssókn sem misheppnaðist vegna kreppuástands í Bandaríkjunum. Af þeim sökum lenti fyrirtækið í fjár- hagsvanda sem lauk með að vöru- merki og tæki voru seld Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni,“ segir Guð- mundur. „Það er mjög erfitt að selja vatn, það er fyrst og fremst markaðssetn- ing, en vatnið sjálft skiptir minna máli. Þó að það sé rétt að við eigum mikið af góðu vatni er líka til gott vatn víða annars staðar. Útflutningurinn krefst mikillar þolinmæði og lang- tímafjármagns. Miklu skiptir að ná samningum um að selja vatn í versl- unum, þar sem aðeins fáar tegundir vatns komast í hillurnar. Neytandinn sjálfur er ekki aðalatriði, hann kaupir eðlilega ekki þá vöru sem hann kemst ekki að. Að sama skapi er vatnssölu mjög mikilvægt að hafa gott dreifi- kerfi sem veitir búðum fyrirtaks þjón- ustu og á auðvelt með að afgreiða vatn oft í viku. Ég tel að Íslendingar eigi möguleika í vatnsútflutningi. Ímynd landsins er hrein og hjálpar til við markaðssetningu.“ Guðmundur telur útflutning vatns á tankskipum ekki mjög vænlegan, að minnsta kosti ekki viðskiptalega. „Hins vegar væri mögulegt að bregð- ast við neyðarástandi vegna vatns- skorts í öðrum löndum. Hins vegar eru gróðamöguleikar á sölu vatns til fjarlægra, fátækra landa, litlir að mínu mati.“ Þrjú fyrirtæki um þessar mundir Um þessar mundir eru þrjú vatns- sölufyrirtæki á Íslandi. Þau eru Za- nus Rex, Íslenska vatnsfélagið og Öl- gerðin Egill Skallagrímsson. Jón Diðrik Jónsson, forstjóri Ölgerðarinn- ar Egils Skallagrímssonar, segir að eftir að fyrirtækið hafi keypt tæki og vörumerki Þórsbrunns hf. hafi út- flutningi verið haldið áfram til Banda- ríkjanna og verið sé að athuga mark- aði í Evrópu. „Við eigum vörumerkin Iceland Spring og Thorspring og höf- um haldið sölu vatnsins áfram í Bandaríkjunum eftir að við tókum yf- ir vörumerkin og tækin,“ segir Jón Diðrik. „Fyrirtækið hefur áhuga á að halda áfram útflutningi á vatni til út- landa. Hins vegar teljum við fyrirtæk- ið hvorki hafa fjármagn né þekkingu til að standa í markaðssetningu ytra á eigin vegum. Við erum í samstarfi við aðila á er- lendum mörkuðum um markaðssetn- ingu, áhættufjármögnun og kynningu á vörunni. Ef við finnum fleiri áhuga- sama aðila erum við tilbúnir til sam- starfs,“ útskýrir Jón Diðrik. „Á sama hátt og við teljum okkur hæfari til markaðssetningar vörunnar hér á landi treystum við Bandaríkjamönn- um best til þess á sínum heimamark- aði.“„Við höfum flutt vatnið til Banda- ríkjanna í heilsubúðir og sérbúðir, til dæmis Vitamin Shoppe og Whole Fo- ods. Þar er íslenska vatnið markaðs- sett sem hágæðavatn. Vatn í hæsta gæðaflokki er með um 7% markaðar- ins. Salan á þeim vettvangi gengur ágætlega þar sem við höfum tengst aðilum sem hafa áratugareynslu af markaðnum. Við höfum þrengt mark- aðinn þar ytra og minnkað áherslu á sölu vatnsins til stórmarkaða þar sem við höfum ekki talið okkur eins sam- keppnishæfa. Framtíðaráformin eru að leita frek- ara samstarfs við dreifingaraðila í út- löndum og treysta böndin við þau fyr- irtæki sem við skiptum við nú þegar. Í Evrópu er markaðurinn nokkuð ann- ars eðlis en í Bandaríkjunum. Við vilj- um fara okkur hægt þar og ekki lenda í gryfju tilboða í stórmörkuðum. Mun fremur viljum við leita leiða til að geta fengið viðunandi verð fyrir vöruna.“ Vatnsútflutningur frá Íslandi hefur verið reyndur oftar en einu sinni. Á ýmsu hefur gengið og fæst þau fyrirtæki sem reynt hafa fyrir sér á þeim markaði hafa náð þeirri markaðs- hlutdeild sem ætlað var. Davíð Scheving Thorsteinsson Jóhann Guðlaugsson Jón Diðrik Jónsson                                      ! "    # $        %   &  Jón Diðrik „Við viljum fara okkur hægt þar og ekki lenda í gryfju tilboða í stórmörkuðum. Mun fremur viljum við leita leiða til að geta fengið viðunandi verð fyrir vöruna.“ Jóhann „Ég tel vatnsút flutning mjög vel möguleg- an. Það þarf töluvert fjár- magn til, sérstaklega til þess að komast yfir fyrsta hjallann. Ekki er vænlegt að sökkva sér í skuldir meðan markaðssetning er í reifum.“ Davíð Scheving „Þó að útflutningur vatns hafi ekki gengið að óskum hingað til mun eflaust koma sá dagur að útflutningurinn mun standa undir sér og því er nauðsynlegt að vernda þessa auðlind okkar sem best við getum.“ Þurfum að skapa okkur sérstöðu að koma á samningum um þessar fjölþjóðlegu ár, en með litlum árangri. Ein þeirra er Efrat, sem á upptök sín í Tyrklandi, en liggur svo um Sýrland og Írak í átt til sjávar. Sýrlendingar horfa upp á þurrkatíð en Tyrkir hafa nægt vatn til akuryrkju. Stórfelldar áveituframkvæmdir Tyrkja hafa tekið mikið vatn úr ánni, svo að Sýrlendingar óttast að ekki sé nóg eftir handa þeim. Lítið hugsað um vatnsvernd Hér á landi er lítið hugsað um vatnseyðslu, mæling vatnsnotkunar á hverju heimili er ekki talin svara kostnaði. Að sama skapi er Íslendingum ekki í blóð borið að spara vatn, þeir vilja frekar láta það renna þar til það er orðið almennilega kalt, á með- an þeir bursta í sér tennurnar og vaska upp svo eitthvað sé nefnt. Tölurnar yfir vatnsnotkun Íslendinga eru sláandi, sérstaklega þegar þær eru bornar saman við eyðslu annarra þjóða sem meira þurfa að hafa fyrir að afla vatnsins. Það kann að hljóma ótrúlega, en á veitusvæði Orkuveitu Reykja- víkur notar meðalíbúinn um 150–160 lítra af köldu vatni á dag. Íslendingar búsettir erlendis hafa margir hverjir kynnst öðrum vatns- venjum ytra en viðgangast hér heima. Til dæmis má nefna, að í Bandaríkj- unum hafa Íslendingar fengið heimsókn frá vatnsveitunni þar sem klósett- kassar voru minnkaðir með plasthúðun til þess að minnka vatnsnotkun. Önnur ráð voru uppi í Bretlandi fyrir um áratug, þar sem almenningi var ráðlagt að setja múrsteina í klósettkassann til þess að spara vatnið. Hvers vegna ættu Íslendingar að spara vatn? Við því geta verið mjög ólík svör, en Morgunblaðið ræddi við nokkra Íslendinga um gildi vatnsins, bæði sem náttúruauðlindar og verðmætrar útflutningsvöru.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.