Morgunblaðið - 15.09.2002, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.09.2002, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ var á evrópskri kvikmyndahátíðárið 1986 sem ég sá í fyrsta skiptimynd eftir Pedro Almodóvar. Mynd-in var ótextuð og ég skildi fátt af þvísem sagt var og gerðist. En ég skildi þó að eitthvað alveg nýtt og öðruvísi væri á seyði í spænskri kvikmyndagerð. Myndin var Matador, fimmta verk Almodóvars í fullri lengd, myrk og ögrandi athugun á öfgum mannlegs atferlis og lýsti fólki sem nær kyn- ferðislegri fullnægingu um leið og það slekkur líf þess sem það á mök við, fólki sem dansar kynferðislegan dauðadans hvert við annað eins og nautabaninn sem myndin dregur nafn sitt af. Eins og stundum, bæði fyrr og síðar í myndum hans, lá ekki ljóst fyrir hvort Alomodóvar væri fúlasta alvara með þeirri sögu sem hann var að segja eða hvort hún var í og með eins konar kvikmyndalegt glott. Hinn stílfærði veruleiki Þegar maður rifjar upp í huganum höfund- arverk Almodóvars standa sögurnar sjálfar ekki endilega skýrar og aðgreindar í endur- minningunni. Það sem stendur þar sterkast fót- um er tvíræður tónninn í frásögninni, efnisval, sem gjarnan virðist tilvalið sem hneykslunar- hella fyrir smáborgara, samúð með kúguðum manneskjum, ekki síst konum sem beygja sig undir kúgun og stundum virðast jafnvel njóta hennar, vegsömun einstaklingsfrelsis í öllum og oft afkáralegustu myndum andspænis bælingu, tvískinnungi og formfestu gamallar hefðar og falsi kaþólskunnar, dýrkun ástríðna og kynlífs- losta hvert sem hann beinist, enda heitir fram- leiðslufyrirtæki hans El Deseo eða Girndin. Myndirnar lifa í hugskotinu eins og glaðvært jólatré, fagurlega og fjörlega litaðar perur, eins og „kitschað“ popplistaverk, fullar af stílfærðu umhverfi, kostulegum týpum, stórskornum og stærri en allt sem hversdagslegt er en samt augljóslega sprottnum úr jarðvegi þess nýja spænska samfélags sem vaxið hefur og dafnað eftir fall Franco-stjórnarinnar. Almodóvar er óhreint og óþekkt en skilgetið afkvæmi þessa samfélags, hvort sem því líkar betur eða verr, og því líkaði það lengst af illa eða þangað til upphefð leikstjórans kom að utan; þar marka alþjóðlegar vinsældir Kvenna á barmi tauga- áfalls (1988) og Óskarsverðlaun til handa Alls um móður mína (1999) þáttaskilin. Almodóvar teflir saman gamla Spáni og nýja Spáni eins og nautabani etur kappi við naut með sögur sínar að vopni og verju. Og hann er, hvort sem honum sjálfum líkar betur eða verr, öfgafyllsti og þar með skýrasti talsmaður hinna nýju viðhorfa og lífshátta. Hann er mesti kvikmyndahöfundur Spánar síðan Luis Bunuel lést og efalaust í hópi áhrifamestu kvikmyndaleikstjóra samtímans. Þegar guð yfirgaf lítinn dreng Sjálfsagt er það tilviljun en í það minnsta táknræn tilviljun, að fyrsta mynd Almodóvars, Pepi, Luci, Bom, var frumsýnd árið 1980, um svipað leyti og spænskt lýðræðisþjóðfélag sá dagsins ljós. Í frumsýningarvikunni lést faðir hans, einlægur fulltrúi gamla Spánar. Almodóvar hafði þá búið í Madrid í rúman áratug, orðinn rúmlega þrítugur og hafði eink- um unnið fyrir sér sem starfsmaður símafyr- irtækis. Á kvöldin fékk hann útrás fyrir sköp- unina í gerð smásagna og skopstælinga á fréttamyndum og auglýsingum og stuttmynda á Super 8-vél. Að baki var róstursöm og erfið æska í fátækum smábæ, La Mancha, þar sem hann fékk hefðbundið, al- kaþólskt uppeldi hjá foreldrum sínum, móðirin dyggur bakhjarl og áhrifa- valdur upp á gamla móðinn, faðirinn eindreginn en afskiptalítill fulltrúi gamalla gilda; í myndum Almodóvars er fátt um sterka feður. Afgerandi kaflaskil æskunnar voru þegar hann var settur í skóla hjá munkum þar sem hann varð vitni að kynferðislegri mis- notkun á drengjunum, 80% þeirra að eigin sögn, og var sennilega fórnar- lamb misnotkunar sjálfur. Þessi reynsla setti varanlegt mark á dreng- inn. Vistin hjá munkunum svipti hann trúnni á guð og hún hefur ekki snúið aftur, þótt í verkum hans megi skynja trúarþörf. Kvikmyndin tók sæti guðs í lífi Pe- dros Almodóvar. Tólf ára gamall sá hann Cat On a Hot Tin Roof, sem Richard Brooks gerði eftir leikriti Tennessees Williams og ákvað að bjóða umhverfinu byrginn og helga líf sitt „syndum og úrkynjun“, eins og hann hefur sjálfur orðað það. Rétt eins og ein söguhetjan í myndinni var hinn ungi Almodóvar altekinn efasemdum um kynhneigð sína og smátt og smátt rann upp fyrir honum að hann er sam- kynhneigður. Það var ekki fyrr en hann hafði 18 ára gamall sest að í stór- borginni Madrid sem hann gat lifað því lífi sem tilfinningar hans stóðu til. Myndir Almodóvars eru alsettar merkjum um þessa æskureynslu. Áhrifin og hugðarefnin Sem unglingur varð Almodóvar fyr- ir mestum áhrifum af nokkrum leik- stjórum og einkenni þeirra má sjá með ólíkum hætti í hans eigin verkum: Hann hefur tileinkað sér skopgrein- ingu Billys Wilder, melódrama Dou- glas Sirk, hnitmiðað myndmál Hitchcocks, súr- realískar aðferðir Bunuels við túlkun pólitísks og félagslegs veruleika, trúðleikinn hjá Blake Edwards og ögrandi efnisval Marcos Ferreri, ekki síst í grófum kynlífslýsingum. Frumraun- in, Pepi, Luci, Bom, var hrár hrærigrautur þessara áhrifa og þeirra viðfangsefna sem hann hefur síðan fengist við. Samskipti kynjanna, flókin, spennt, óút- reiknanleg og á stundum undirfurðuleg, eru meðal helstu hugðarefna Almodóvars. Lengst af hafa myndir hans verið taldar „kvennamynd- ir“, í þeim skilningi að hugur hans er hjá kven- persónum frekar en karlpersónum og konum þykir hann næmari á kveneðli en flestir, ef ekki allir, karlkyns kvikmyndaleikstjórar; því fer þó fjarri að konur fái alltaf glæsilega meðferð í myndum hans. Þótt hann hafi sannarlega látið karlaheiminn líka til sín taka, einkum þó hinn samkynhneigða, eins og í þeirri mynda hans sem trúlega er sú sjálfsævisögulegasta til þessa, Lögmál girndarinnar (1987), eru kven- lýsingar hans almennt minnisstæðari en karl- lýsingar; Almodóvar telur, eins og fleiri karl- leikstjórar, þ. á m. íslenskir, að konur séu mun sterkari persónuleikar en karlmenn. Gamanleikir og harmleikir Í svokölluðu „sjálfsviðtali“ sem hann skrifaði í tilefni af nýju myndinni, Ræddu málin, segir hann orðrétt: „Ég held að konur fái mig til að semja gamanleiki en karlmenn harmleiki.“ Mig hefði langað til að spyrja hann hvernig á þessu stendur. En úr því það er ekki hægt verður myndin að tala sínu máli. Og reyndar má einnig taka mið af því sem Almodóvar skrifar um hvaðan hann fékk innblásturinn fyrir handritið. Hann byggir þar á nokkrum sannsögulegum at- burðum frá síðustu tíu árum: Bandarísk kona vaknar úr dásvefni eftir hvorki meira né minna en 16 ár og lærir að ganga upp á nýtt. Næturvörður í líkhúsi í Rúmeníu verður ást- fanginn af „líki“ ungrar stúlku og í einsemd sinni hefur hann mök við hana. Við það vaknar stúlkan til lífsins, enda hafði hún aðeins fengið flogaveikiskast. Stúlkan lifir enn en lífgjafi hennar situr í fang- elsi fyrir nauðgun. Í New York verður stúlka, sem hafði verið í dásvefni í 9 ár, barnshafandi án þess að vakna og er starfsmaður spít- alans gripinn fyrir verknaðinn. Að lokum nefnir leikstjórinn per- sónulega minningu um ástarsamband sem rofnaði áður en því var lokið. Ræddu málin segir samhliða sögur tveggja karlmanna sem eru gagnteknir af tveimur konum sem báðar eru með- vitundarlausar. Í sjálfu sér er það harmleikur kvennanna, en engu að síð- ur og í réttu samhengi við ofangreind ummæli leikstjórans er Ræddu málin umfram allt harmleikur, auðvitað með drjúgu ívafi lífsgáska, um karla, sem eru innlyksa, einmana, í hlutskipti sínu, ástinni og einsemdinni. Þessi fjórtánda bíómynd Pedros Almodóvar í fullri lengd slær á gömul ummæli hans sem í gegnum tíðina hef- ur mátt nota sem gagnrýni á a.m.k. sumar myndanna: „Mér þykir ekkert sérstaklega vænt um persónur mínar, um veröldina og jafnvel sjálfan mig.“ Hafi þetta verið rétt varðandi, segjum, fyrstu fimm-sex myndirnar hefur mátt merkja hægfara breytingar í þeim að þessu leyti seinustu árin; eftir að Almo- dóvar varð fertugur er eins og hlýjan hafi aukist, þroskaðri persónusköpun tekið við af einföldunum og ýkjum og í Ræddu málin hvílir meiri kyrrð yfir vötnum, hugmyndaauðgin yfirvegaðri, sagan einlægari, tregafyllri, tilfinninga- næmari en oft áður. Aldrei hefur Almo- dóvar verið nærfærnari og hlýlegri; aldrei hefur hann náð betur því list- ræna markmiði að gera tilfinningar, sem utanfrá gætu talist óeðlilegar, eðli- legar á tjaldinu, í þeim söguheimi sem þar lifnar af hans völdum - þar sem hann er guð; þar eru allar mannlegar tilfinningar jafnréttháar, vegna þess að þær eru mannlegar. Ræddu mál- in er í fremstu röð verka hans, jafnvel fremst. Pedro Almodóvar var listamaður í þjóðfélagi þar sem næstum ekkert var leyfilegt og því gerði hann einmitt það sem ekki var leyfilegt. Hann er núna listamaður í þjóðfélagi þar sem nánast allt er leyfilegt og því þarf hann ekki lengur að gera annað en það sem saga hans krefst. Þannig hefur Pedro Almodóvar þrosk- ast með spænsku þjóðfélagi. Hann hefur sjálfur lýst nýju myndinni sem löngun til að faðma áhorfendur að sér. Senn kemur vonandi að því að hann tekur sjálfan sig í sátt líka, að hann faðmi sjálfan sig að sér. Líkur benda til að næsta verkefni Almodóvars verði fyrsta, klára endurminningamynd hans. La Mala Educatión á að fjalla um þá sáru æsku- reynslu sem svipti ungan dreng guði og gaf honum kvikmyndirnar í staðinn. Faðmlag Almodóvars „Allar persónur myndarinnar eiga eitt sameiginlegt – einmana- leikann,“ segir spænski kvikmyndahöfundurinn Pedro Almodóvar um nýju myndina Ræddu málin – Hable con ella, sem var opnunarmynd spænsku kvikmyndahátíðarinnar sem nú stendur yfir í Reykjavík. Í raun lítur þessi fremsti og frægasti leikstjóri Spánar á kvikmynda- gerð sem útrás úr einsemd, skrifar Árni Þórarinsson, eins og samtal við þá sem vilja sjá og heyra. Í Ræddu málin eiga karl- persónur einkum samskipti við tvær konur sem svo vill til að geta ekki svarað fyrir sig. Kynjahlutverkum snúið við: Almodóvar leikstýrir Rosario Flores í hlutverki kvennautabanans Lydia í Ræddu málin. Karlmenn og konur á barmi dauðadás: Javier Camára, Leonor Wat- ling, Dario Grandinetti og Rosario Flores í Ræddu málin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.