Morgunblaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 27
HAMLET Danaprins, Leyndarmál
rósanna, Venjulegt kraftaverk og
Uppistand um jafnréttismál eru á
meðal þess sem Leikfélag Akureyr-
ar mun bjóða gestum sínum upp á í
vetrardagskrá sinni en Þorsteinn
Bachmann, sem nýlega tók við stöðu
leikhússtjóra, kynnti verkefnin í
Samkomuhúsinu á dögunum.
Þorsteinn sagði stefnu leikfélags-
ins að setja upp a.m.k. fjögur verk á
hverju leikári, gamanleik, klassískt
verk, barnaleikrit og samtímaverk
eða nýsköpun. Hann sagði að eitt
þessara verka í það minnsta yrði ís-
lenskt. Hann nefndi að félagið hefði
getu til að setja upp fleiri verk en
fjármagn væri hins vegar ekki fyrir
hendi.
Endurbætur gerðar
Komandi leikári mun ljúka óvenju
snemma eða 1. apríl, en þá verður
hafist handa við framkvæmdir við
Samkomuhúsið. Búningsaðstaða
leikara verður endurbætt til muna
og kvað Þorsteinn ekki af veita, hún
væri algjörlega óviðunandi. Þá verð-
ur aðgengi fatlaðra bætt með því að
lyfta verður sett í húsið og eins
munu áhorfendur njóta góða af fyr-
irhuguðum breytingum. Fram-
kvæmdir munu standa til áramóta
2003-’04, þannig að á haustmánuðum
næsta ár verður leikið í öðrum hús-
um. Tilraunir þar að lútandi hefjast
raunar í vetur, en þá hyggst félagið
sýna í Ketilhúsinu og eða Deiglunni.
Hamlet í huganum í 20 ár
Ekki er ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstu hvað fyrsta verkefni
leikársins varðar, en 27. september
næstkomandi frumsýnir Leikfélag
Akureyrar Hamlet danaprins eftir
William Shakespeare. Sveinn Ein-
arsson er leikstjóri, en hann hefur í
20 ára verið að sviðsetja Hamlet í
huganum og nú er loks komið að því
að áhorfendur fá að sjá afraksturinn.
Um verður að ræða heilmikla af-
mælissýningu. haldið er upp á 85 ára
afmæli Leikfélags Akureyrar og þá
á félagið 30 ára afmæli sem atvinnu-
leikhús næsta vor, Akureyrarbær er
nýlega orðin 140 ára og þá eru 400
ára frá því leikritið var skrifað.
Að sögn Þorsteins verður sérstak-
lega reynt að höfða til ungs fólks,
enda fjalli verkið um kornungt fólk.
Með því að varpa fram spurningum
eins og: Hvað myndir þú gera ef föð-
urbróðir þinn myndi drepa pabba
þinn og giftast mömmu þinni? er
ætlunin að vekja áhuga leikhúsgesta
í hópi þeirra yngri. „Þetta er mjög
metnaðarfull sýning og alls ekki
þung,“ sagði Þorsteinn og tók því
fjarri að menn stæðu og ræddu við
hauskúpur í þrjá tíma en á þann hátt
sæu margir Hamlet fyrir sér.
Leyndarmál og kraftaverk
Næsta verkefni, Leyndarmál rós-
anna verður frumsýnt í Ketilhúsinu í
október en með þá sýningu mun LA
leggjast í ferðalög. Leikritið er eftir
Manuel Puig og gerist á sjúkrahúsi í
Suður Ameríku og greinir frá sam-
skiptum tveggja kvenna, hjúkrunar-
konu af lágstétt og sjúklingi hennar,
yfirstéttarkonu og tilfinninga-
þrungnum átökum þeirra. Halldór
E. Laxness leikstýrir. Rússneski
leikstjórinn Vladimir Bouchler kem-
ur til liðs við LA og setur upp barna-
og fjölskylduleikrit eftir landa sinn,
Évgení Schwarts en það heitir
Venjulegt kraftaverk. Að sögn Þor-
steins hefur hann verið að hasla sér
völl sem leikstjóri í Evrópu síðustu
misseri, „og ég held við höfum dottið
í lukkupottinn með því að fá hann
hingað,“ sagði Þorsteinn. Sýningin
er bæði fjölmenn og litrík en í verk-
inu greinir frá töframanni sem hefur
breytt birni í ungan mann með þeim
álögum að verði hann kysstur af
prinsessu breytist hann aftur í
björn. Eins og gera má ráð fyrir
hittir hann prinsessu og þá vandast
málið.
Jafnréttismálin brotin til
mergjar
Leikfélagið hefur auglýst eftir
stuttum leikþáttum um jafnréttis-
mál og hefur auglýsingin vakið at-
hygli að sögn leikhússtjóra. Áætlað
er að frumsýna um miðjan janúar í
Ketilhúsinu en sýndir verða þrír
stuttir leikþættir fyrir uppistand-
andi leikara. Sýningargestum verð-
ur boðið upp á þríréttaðan kvöldverð
í tengslum við sýninguna í samstarfi
við Karólínu.
Um páskana er ætlun Leikfélags
Akureyrar að bjóða upp á „Bland í
poka“, eins konar festivalstemmn-
ingu á víð og dreif um bæinn.
Þá má geta þess að í næsta mán-
uði hefjast leiklistarnámskeið fyrir
börn á aldrinum 3ja til 14 ára en
þeim lýkur með sýningu í Samkomu-
húsinu. Mikill áhugi var fyrir nám-
skeiðunum á liðnu hausti. Um aðra
helgi, 14. september verður opið hús
hjá LA þar sem gestum gefst kostur
á að kynna sér starfsemi félagsins
og vetrardagskránna, skoða Sam-
komuhúsið, fylgjast með óvæntum
uppákomum og þiggja veitingar.
Leikfélag Akureyrar hefur opnað
nýja heimasíðu, leikfelag.is þar sem
er að finna upplýsingar um félagið.
Leikfélag Akureyrar kynnir vetrardagskrá sína
Ríða á vaðið með
sýningu á Hamlet
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn Backmann leikhús-
stjóri Leikfélags Akureyrar
kynnti vetrarstarf félagsins.
NÚ stendur yfir myndlistarsýning
Guðrúnar Jóhannesdóttur í félags-
heimilinu Gullsmára, Gullsmára 13.
Sýninguna heldur Guðrún í tilefni
af 80 ára afmæli sínu.
Félagsheimilið er opið virka
daga kl. 9-17.
Guðrún Jóhannesdóttir meðal verka sinna í Gullsmára.
Afmælis-
sýning í
Gullsmára
KÁRI Þormar, organisti við
Áskirkju í Reykjavík, leikur á
orgel Hjallakirkju í dag, sunnu-
dag, kl. 17. Þegar orgel Hjalla-
kirkju var vígt
árið 2001 var
tekinn upp sá
siður að hafa
orgelandakt
þriðja sunnu-
dag í hverjum
mánuði og
hefur sú hefð
haldist að und-
anteknum
nokkrum
mánuðum
þegar kirkjan var lokuð vegna
framkvæmda. Hér er um að
ræða um 40 mínútna tónlistar-
flutning og lestur úr Ritning-
unni. Tónleikarnir nú eru þeir
14. í röðinni. Kári leikur verk
eftir Johann Sebastian Bach,
Siegfried Karg-Elert, Johann-
es Brahms, Felix Mendels-
sohn-Bartholdy og Louis
Vierne.
Séra Íris Kristjánsdóttir
annast talað mál.
Kári Þormar
leikur á
orgel Hjalla-
kirkju
Kári
Þormar