Morgunblaðið - 15.09.2002, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 15.09.2002, Qupperneq 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 31 Þá ég hníg í djúpið dimma, Drottinn, ráð þú hvernig fer. Þótt mér hverfi heimsins gæði, – hverfi allt, sem kærast mér er: Æðri heimur, himnafaðir, hinumegin fagnar mér. (M. Joch.) Með þessum sálmi langar okkur til að kveðja Brynhildi sem lést 5. sept- ember eftir stutta baráttu við krabbamein. Við urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera í félagsskap Brynhildar og Kristjáns sambýlismanns hennar, snemma á þessu ári þegar við fórum til Flórída ásamt Guðmundi syni Brynhildar og konu hans. Þangað fórum við til þess að halda uppá 70 ára afmæli tengdamóður Guðmund- ar, en Brynhildur og Kristján voru búin að vera okkur innan handar við að skipuleggja þessa ferð. Á Flórída voru þau öllum hnútum kunnug þar sem þau höfðu dvalið stóran hluta BRYNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Brynhildur Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 15. mars 1930. Hún lést á líknardeild Landspítalans á Landakoti fimmtu- daginn 5. september síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Langholtskirkju 13. september. ársins í nokkur ár. Ekki var að spyrja að því að þau gerðu allt til þess að gera ferðina sem ánægjulegasta og tóku virkan þátt í lífinu okkar þar ytra. Á heimili þeirra mátti sjá að þrátt fyrir fjarlægðina frá fjöl- skyldunni fann Bryn- hildur leið til þess að vera nálægt ástvinum sínum. Víða mátti sjá myndir af fjölskyldu- meðlimum, en auk þess var hún búin að tileinka sér nýjustu tæknina og var í góðu tölvupóstsambandi við fólkið sitt heima. Þessar minningar um Brynhildi og margar aðrar geymum við í hjarta okkur og þökkum fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast henni. Því þrátt fyrir margar þungar raunir á lífsleiðinni, var hún allaf svo hress og kát, og það geislaði af henni lífsgleðin í hvert skipti sem við hitt- um hana. Elsku Guðmundur, Elvira, Elín Ósk, Brynhildur, Kristján Á., Krist- ján S., Guðrún, Sigmundur, Ólöf og fjölskyldur ykkar. Við hugsum hlýtt til ykkar á þessum erfiðum tímum. Megi Guð gefa ykkur styrk í sorg- inni. Viktor, Elín, Kristín, Sveinbjörn, Lýður, Sigríður, Berglind og Unnar. Mig langar til að deila með ykkur nokkrum minninga- brotum um Sólveigu, konu sem í burtu var kölluð of fljótt. Í nóvember árið 1973 fluttu tvær fjölskyldur inn í ný- byggt hús við Efstahjallann í Kópa- vogi. Þetta er tveggja hæða hús með litlum grasbletti fyrir framan. Á efri hæðina flutti Sólveig og hennar fjöl- skylda, en við á þá neðri. Kvöld eitt er bankað hjá mér og inn kemur Sól- veig, hávaxin og glæsileg kona, vel klædd með flott hár. Hún gefur af sér við fyrstu kynni. Þegar við höf- um heilsast, þá segir Sólveig: „Ég get kannski hjálpað þér eitthvað með þessar og vísar orðum sínum til dætra minna á fyrsta og öðru ári. Sólveig átti svo sannarlega eftir að standa við orð sín. Þau eru ótalin skiptin sem dæturnar á neðri hæð- inni fengu pössun uppi. Ég var kannski stundum sein fyrir og því þegar ég kom að sækja þær mátti sjá Sólveigu sitjandi með stelpurnar í fanginu inni í stofu, styttandi þeim stundirnar með upplestri. Við drukkum oft saman morgun- kaffi. Á meðan á því stóð deildi Sól- veig með mér svona eins og gengur og gerist, sínum hugðarefnum. Hún sagði mér frá ljósmæðrastarfinu, vinnunni sinni sem hún var ákaflega stolt af. Hún sagði áhugasöm frá vinnustaðnum sem á þessum árum var Fæðingarheimili Reykjavíkur og því starfi og hugmyndum sem Hulda Jensdóttir leiddi þar. Sólveig sagði mér líka frá fyrri tíð. Þegar þau Bragi voru í tilhuga- lífinu og þegar börnin þeirra komu í heiminn. Þá var blik gleðinnar í aug- unum. Seinna þegar við hittumst á förnum vegi fyrir nokkrum árum og Bragi var í harðri baráttu við krabbamein, lýstu augun hennar SÓLVEIG MATTHÍASDÓTTIR ✝ Sólveig Matt-híasdóttir fædd- ist í Reykjavík 20. maí 1937. Hún lést í bílslysi 21. ágúst síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Hjallakirkju í Kópa- vogi 2. september. von. Eftir lát hans var þar söknuður sem hún bar lítt á borð. Jafn- framt gladdist Sólveig yfir smáum fjölskyldu- meðlimum sínum. Sólveig var kona ljóss og friðar, hún kveikti gjarnan á kerti á kaffiborðinu. Hún var lagin að ná fram þeirri stemningu sem hún vildi. Þegar jólin fóru að nálgast þá var allt í einu kominn lítill jóladúkur á borðið. Á vorin var hún oft og iðulega að nostra við garðinn, litla blettinn í norðri, fyrir framan húsið. Henni tókst að fá túlipana, páskalilj- ur og fleiri blóm til að minna á vorið. Þegar tók að hausta var það gjarnan lampi í stofuglugganum sem lýsti og skapaði hlýju og frið. Vetur, sumar, vor og haust mátti sjá Sólveigu á ferðinni með stórar listilega skreytt- ar marsipantertur eða margra hæða kransakökur. Þær hafði hún bakað og skreytt til að aðstoða og gleðja þá sem áttu afmæli eða héldu veislu. Hún vann á einhvern hátt þannig að hlutirnir virtust gerast af sjálfu sér, róleg, yfirveguð og alltaf í jafn- vægi. Hún hafði gaman af handa- vinnu og var listræn. Hafði skipu- lagshæfileika og var úrræðagóð. Til hennar mátti ég ávallt leita og hún var mér sem móðir. Sólveig var sér sérlega meðvitandi um hvað heilsa og heilbrigt líferni eru mikils virði. Synti mikið og naut íslenskrar nátt- úrufegurðar. Hafði ógurlega gaman af matreiðslu og bakstri. Fletti gjarnan upp í bókum þess efnis og reyndi uppskriftir óspart. Þegar ég flutti úr Efstahjallanum fór ég strax að sakna Sólveigar, nú sakna ég hennar enn meira. Kærar þakkir fyrir yndisleg, ógleymanleg ár. Ég sendi dætrum hennar þeim Berglindi sem á frumbýlisárunum mínum var eins og fiðrildi, þjótandi upp og niður, út og inn og Sirrý sem þá heillaðist af handavinnu og hafði gaman af lestri léttra bókmennta, fjölskyldum þeirra, Skúla bróður hennar, Þorbjörgu, bræðrabörnum og vinum, mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Þar sem kærleikurinn hefur fast- ar rætur, lætur guð rósirnar spretta. Lifðu sæl í alheimi. Jófríður Benediktsdóttir og fjölskylda. Nú eru margir dagar liðnir og ég vakna ekki upp frá þessum vonda draumi. Sólveig mín hefur kvatt þennan heim. Ég hef margsinnis reynt að hripa þessar kveðjulínur á blað en þau orð sem ég hef valið hafa engan veginn verið nógu máttug til að lýsa þér og öllum þeim kærleika sem þú hafðir að gefa. Orðin megna heldur ekki að lýsa þeim söknuði og tómarúmi sem nú ríkir í huga mín- um. Við Sólveig kynntumst á Fæðing- arheimilinu fyrir rúmum tuttugu ár- um. Ég var nýkomin heim frá námi erlendis, 21 árs gömul; óttalegur krakki eins og gefur að skilja. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að leiðir okkar Sólveigar lágu saman á þessum sérstaka vinnustað. Að bindast vináttuböndum við aðstæð- ur sem þessar, að hjálpa nýju lífi í heimin, gerir mann lotningarfullan og gæðir vináttuna vissri dýpt. Að standa frammi fyrir lífsundrinu sjálfu kennir manni hve stór gjöf líf- ið sjálft er. Við þessar aðstæður þróaðist vin- átta okkar Sólveigar sem varð mátt- ug og djúp, sérstaklega þó eftir að hún varð svo „ljósan mín“. Hún hug- hreysti mig og hvatti á erfiðustu en jafnframt undursamlegustu augna- blikum lífs míns. Ætíð eftir að börn- in mín fæddust gaf hún mér það að finnast þau jafn stórkostleg og mér fannst þau vera. Elsku Sólveig, ég veit að hið eilífa ljós umvefur þig þar sem þú dvelur núna og ég bið að geislar þess ljóss teygi sig niður til jarðar og lýsi dætrum þínum og fjölskyldum þeirra, einnig eftirlifandi bróður, Skúla. Megi það ljós verða þeim til huggunnar í sorg þeirra nú. Þig kveð ég með trega og tileinka þér Sólsetursljóð Jónasar Hall- grímssonar: Hóglega, hæglega, á hafsæng þýða, sólin sæla! síg þú til viðar. Nú er um heiðar himinbrautir för þín farin yfir frjóvga jörð. Vonin vorblíða, vonin ylfrjóvga drjúpi, sem dögg, af dýrðarhönd þinni, döpur mannahjörtu í dimmu sofandi veki, sem vallblómin vekur þú á morgni. Ása Hlín Svavarsdóttir. Við viljum minnast vinar okkar, Aðalsteins á Höfða, með nokkrum orðum. Við áttum því láni að fagna að fá að búa í sveit hluta af æskuárum okkar, hjá Aðalsteini á Höfða. Þessi tími lifir sterkt í minn- ingu okkar systkinanna. Aðalsteinn vildi hafa hlutina eftir sínu lagi og fengum við að kynnast því þegar við tókum þátt í búskapn- um með honum. Við roguðumst með stórar járnskjólur með vatni úr lækn- um til þess að brynna ám og hestum. Við reyndum eftir mætti við baggana í heyskapnum og hvíldum lúin bein á heyvagninum þegar Aðalsteinn lötr- AÐALSTEINN BJARNASON ✝ AðalsteinnBjarnason fædd- ist í Tunguhaga á Völlum 9. apríl 1914. Hann lést 31. ágúst síðastliðinn á Sjúkra- húsinu á Egilsstöð- um og var útför hans gerð frá Vallanes- kirkju 7. september. aði heim á gamla trak- tornum með vel hlaðinn heyvagninn. Svo leyfði hann eldri systkinunum að keyra traktorinn, sem var ekki auðvelt þar sem þurfti sérstaka lagni á skrjóðinn. Við fórum stundum með þegar farið var með rollur til dýralækn- isins og sátum þá með rollunum aftur í gamla Land Rovernum. Ævintýrin í sveitinni voru óþrjótandi og vild- um við óska þess að öll börn fengju að njóta slíks í einhvern tíma. Fengum við fjölskyldan svo að eiga með honum góðar stundir eftir að við fluttum úr sveitinni, þá sérstaklega á hátíðisdögum og í heyskapnum. Minnumst við Aðalsteins með hlý- hug og helst með pípuna sína við eld- húsborðið með bros í augunum og kankvís á svip. Finnur, Katrín, Jóhanna Bjarnveig og Aðalsteinn Ingi. Guðrún var af skag- firsku bændafólki komin, elst níu barna hjónanna Kristjáns Árnasonar og Ingi- bjargar Jóhannsdóttur, er bjuggu á Kríthóli, Stapa og víðar í Lýt- ingsstaðahreppi. Af þeim eru nú þrjár systur á lífi, allar búsettar á Sauðárkróki. Um fermingaraldur var Guðrún tekin í fóstur af hjón- unum Sigurði Þórðarsyni, síðar kaupfélagsstjóra og alþm. á Nauta- búi, og konu hans, Ingibjörgu Sig- fúsdóttur, frændkonu sinni, og hjá þeim dvaldi hún til fullorðinsára. Árið 1937 gekk Guðrún að eiga Pál Gísla Ólafsson frá Starrastöðum, og hófu þau búskap á föðurleifð hans hið sama ár og bjuggu þar farsælu búi allt til ársins 1982, eða í hálfan fimmta tug ára, er þau fluttust til Sauðárkróks. Þau eign- uðust synina: Ólaf, Sigurð, Reyni, Ingimar og Eyjólf. Eyjólfur lést 25. jan. 2000 eftir þungbær veik- indi, drengur góður og syrgður af öllum, er honum kynntust. Eftirlif- andi eiginkona hans er María Reykdal og eignuðust þau fjögur börn. Við fráfall Guðrúnar frá Starra- stöðum koma upp í hugann margar góðar minningar frá viðkynningu um nærri tveggja áratuga skeið. Er ég og fjölskylda mín komum í Mælifell haustið 1983, höfðu þau Guðrún og Páll nýlega flust niður á Sauðárkrók í litla íbúð á Freyju- götu 26, en látið búið í hendur Eyj- ólfi syni sínum og fjölskyldu hans. Hugurinn var þó áfram á Starra- stöðum og þangað komu þau hve- nær sem tækifæri gáfust. Þar áttu þau sterkar rætur, sem aldrei slitnuðu. Heilsu Páls var tekið að hraka nokkuð um þetta leyti. Síð- ustu árin dvaldi hann á Dvalar- heimili aldraðra á Sauðárkróki. Hann lést 12. jan. 1990. Páll var heilsteyptur drengskaparmaður, sem gott er að minnast. Margar minningar mínar um Guðrúnu á Starrastöðum eru tengdar kirkju og safnaðarstarfi á Mælifelli. Hún og hennar fólk voru tíðir gestir í Mælifellskirkju. Guð- GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR ✝ Guðrún Krist-jánsdóttir fædd- ist á Krithóli í Lýt- ingsstaðahreppi 11. júlí 1913. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar hinn 17. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Mælifells- kirkju 27. júlí. rún var virk í safnað- arstarfinu, söng lengi í kirkjukór presta- kallsins og sýndi kirkjunni sinni á Mælifelli mikla rækt- arsemi í hvívetna. Hún færði kirkjunni stórgjafir, saumaði ásamt fleiri sóknar- konum klæði það, sem er á altari, gaf messu- klæði og nú síðast fyr- ir ári gaf hún ný ljós í kirkjuhúsið í minn- ingu eiginmanns og sonar. Guðrún var gjafmild kona, en hún vildi ekki gefa, svo á því bæri, en hún vildi koma því í verk, sem hún hafði ætl- að sér. Það var hennar lífsmáti. Hún var trúuð manneskja og hug- leiddi mikið andlegu málin og sótti þangað styrk í mótlæti og sorg. Hún var sannfærð um, að lífið héldi áfram handan grafar og dauða og að þar myndi hún hitta ástvini sína á ný. Fráfall Eyjólfs varð henni þungbær sorg, en trúarvissan og vissa um líf og endurfundi gaf henni mikinn styrk í þeirri raun. Það varð henni líka gleðiefni, að María og börnin skyldu halda áfram búskap á Starrastöðum. Guðrún var mikil fjölskyldumann- eskja og ættmóðir, hún átti stóra fjölskyldu, sem var henni allt, ekki síst voru það litlu ömmubörnin, sem áttu hug hennar og hjarta, þau elskuðu hana öll. Hún unni sveit- inni sinni og héraði og var áhuga- söm um hvaðeina, er til heilla horfði í samfélaginu. Guðrún var ein af stofnendum Kvenfélags Lýt- ingsstaðahrepps og virk fé- lagsmanneskja þar allt til dauða- dags. Það munaði um hana, hvar sem hún tók til hendi. Guðrún á Starrastöðum verður okkur minn- isstæð fyrir margra hluta sakir. Hún var góður nágranni og traust- ur vinur. Ætíð fylgdi henni glað- værð og góð nærvera, því hún var glaðlynd að eðlisfari. Hún var greind kona og hafði af miklu að miðla, var sterkur persónuleiki og ákveðin, ef því var að skipta, sagði meiningu sína hispurslaust, hver sem í hlut átti. Það fylgdi henni ætíð hressilegur blær og ákveðin reisn, hvar sem hún fór. Við á Mælifelli þökkum langa samfylgd og biðjum henni blessunar og far- arheilla. Minningin lifir um ein- staka heiðurskonu, sem gott og gefandi var að kynnast. Ég trúi því, að þau þrjú, sem dauðinn hafði aðskilið, séu nú aftur sameinuð í ríki Guðs, þar sem allt er orðið nýtt. Öllum aðstandendum skal blessunar beðið um ókomin ár. Í helgri bók segir: Sælir eru þeir, sem í Drottni deyja, þeir hvílast frá erfiði sínu, því að verk þeirra fylgja þeim. (Op.14.) Ólafur Þ. Hallgrímsson. Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.