Morgunblaðið - 15.09.2002, Qupperneq 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 37
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali,
Nýtt - TRÖNUHJALLI - KÓP.
Mjög falleg 2ja herb. íbúð, neðri hæð, í einbýli með sérinngang. Falleg gólf-
efni, góð innrétting í eldhúsi, rúmgott baðherbergi með tengi f. þvottavél,
ágætt hjónaherbergi. Stofan er góð með útgang í garðinn. Gólf eru með
parketi og flísum. Verð 10,5 millj. Nr. 2300
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
HÁALEITISBRAUT 119 - RVÍK
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18
BÁSENDI 8 - RVÍK
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
HÁALEITISBRAUT 113 - RVÍK
Í dag ertu velkomin að kíkja til okkar og skoða
sérlega rúmgóða og skemmtilega íbúð sem
hefur upp á margt að bjóða, s.s. gott útsýni,
opin rými, tvennar svalir, rólegt hverfi, hús í
góðu ástandi og góða sameign. Íbúðin er 5
herbergja endaíbúð með parket á flestum
gólfum, 3 svefnherbergi, 2 stofur, rúmgott
eldhús og baðherbergi með bæði baði og
sturtu. Gluggar á þrjá vegu sem gefa góða
birtu. Skápar í öllum herbergjum. Verð 13,9
millj. Áhv. byggingasj. 4,0 millj. 1957
Við Ragnheiður og Páll bjóðum ykkur velkomin milli kl. 14 og 16 í dag.
Nýtt - GAUKSHÓLAR
3ja herb. góð íbúð, rúmgóð, á 3ju hæð með s-svalir. Þvottah. á hæðinni,
verið að taka húsið í gegn. Stærð 74 fm. Verð 9,9 millj. Nr. 2301
Nýtt - HRAUNBÆR
2ja herb. mjög falleg íb. á 2. hæð, parket á góflum, flísar á baði, s-svalir, hús
klætt að utan. Stærð 51 fm. Verð 8,3 millj. Nr. 2304
Nýtt - BJARTAHLÍÐ - MOSB.
Glæsilega innréttuð og rúmgóð 3ja til 4ra herb. íbúð um 104 fm á jarðh.
með stórri timburverönd í suður. Sérþvottahús í íbúð. Sérsmíðaðar innrétt-
ingar, falleg gólfefni. Áhv. húsbréf 3,2 millj. Verð 13,9 millj. Nr. 2211
Nýtt - HRÍSRIMI - M. bílskýli
Falleg og rúmgóð 95,0 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð efstu, ásamt stæði í bíl-
geymslu. Sérþvottahús. Suðursvalir. Laus 01/12. ´02 Áhv. húsbr. 6,9 millj.
Verð 12,9 millj.
Nýtt - BARMAHLÍÐ - Tvöf. bílsk.
Góð efri sérhæð í þríbýli, um 106,0 fm, ásamt tveimur bílskúrum. Stórt
geymsluris yfir íbúð. Suðursvalir. Hús nýl. tekið að utan. Laus fljótl. Áhv. 5,3
millj. Verð 15,6 millj. Nr. 2291
Nýtt - EFSTALAND - M. útsýni
Mjög góð 4ra herb. íbúð á 2. hæð, efstu, í litlu fjölbýli. Fallegt útsýni yfir
Fossvogsdalinn. Suðursvalir. Endurnýjað eldhús og baðherbergi. Verð 12,4
millj. Nr. 2216
Góð neðri sérhæð ásamt tveim herbergjum í
kjallara (búið að opna á milli, en auðvelt að
breyta aftur). Tvíbýlishús, um 123 fm, frábær
staðsetning. Gott hús. Ýmsir möguleikar. Nýr
eignaskiptasamningur. Gæti verið til afhend-
ingar fljótlega. Hagstæð lán áhvílandi. Verð
15,5 millj. Áhv. 7,2 millj. húsbr. Nr. 9078
Sigurður og Sigríður bjóða ykkur velkomin
milli kl. 16 og 18 í dag.
Rúmgóð 4ra til 5 herb. íbúð á 1. hæð til hægri
í fjölbýli. Eigninni fylgir bílskúrsréttur. Eignin
skiptist: Í gott anddyri, stofu, borðstofu, eld-
hús, þvottahús og búr, baðherbergi og þrjú
góð svefnherbergi. Góðar innréttingar, falleg
gólf og hús að utan í góðu ástandi. Eigninni
fylgir merkt bílastæði við húsið og einnig eru
góð bílastæði við húsið. Verð 13,5 millj. Áhv. 8,1 millj. húsbréf.
Súsanna býður ykkur velkomin í dag milli kl. 15 og 18.
Verið velkomin - Það er heitt á könnunni
SUNNUDAGUR
Skrifstofan opin í dag frá kl. 12-14
Penthouse - Með eða án bílskúrs. Til sölu 149 fm Penthouse íbúð á tveimur hæð-
um í rólegu og snyrtilegu fjölbýli. Hægt er að kaupa íbúðina með eða án 27 fm bíl-
skúrs. Þrjú svefnherbergi á neðri hæðinni ásamt baðherbergi sem er flísalagt í hólf
og gólf. Á efri hæð er stór og björt stofa með peruvið í lofti, eldhús með snyrtilegri
innréttingu og borðkrók. Möguleiki á tveimur svefnherbergjum á efri hæðinni. Hús-
vörður í húsinu. Frábært útsýni yfir alla Reykjavík. Verð 15,9 millj. með bílskúr. Verð
14,7 millj. án bílskúrs. Nánari uppl. gefur Gunnar á Holti í síma 690 9988.
www.holtfasteign.is
GAUKSHÓLAR 2 - PENTHOUSE - ÍBÚÐ 7-F
FRÁBÆRT ÚTSÝNI
Opið hús í dag milli kl. 14.00 og 15.30
MARÍUBAUGUR TIL SÝNIS Í DAG
Í dag milli kl: 14:00 og 16:00 kynnum við þessi glæsilegu raðhús við
Maríubaug 43-49. Einstaklega vönduð hús sem þegar eru fullbúin að
utan og tilbúin til afhendingar. Húsin eru 121 fm ásamt 28 fm bílskúr.
Hægt er að velja milli þess að fá húsin fokheld að innan eða tilbúin til
innréttinga. Húsin eru einangruð að utan og múruð með marmarasalla.
Álgluggar eru í húsunum og viðhald því í lágmarki. Mjög vandaður
lóðafrágangur. Skjólsæll suðurgarður. Í lengjunni eru 6 hús og eru 4
þegar seld. Vönduð hús fyrir kröfuharða kaupendur, sem byggð eru af
metnaðarfullum byggingaraðila. Hægt er að skoða fullbúin hús.
Verð frá 13,9 milljónum.
Sunnudagaskóli verður í
Grafarvogskirkju í dag
Í YFIRLITI yfir kirkjustarf í
Grafarvogskirkju í dag, sem birtist í
blaðinu í gær, féll niður að sunnu-
dagaskóli verður í kirkjunni klukkan
11 í dag og klukkan 13 í Engjaskóla.
Þeir sem leiða sunnudagaskólann
að þessu sinni eru Signý Guðbjarts-
dóttir, Bryndís Erla Ásgeirsdóttir
ásamt séra Bjarna Þór Bjarnasyni
og Guðlaugi Viktorssyni sem er við
píanóið.
LEIÐRÉTT
KVIKMYNDATÖKULIÐ frá Rúss-
landi kom hingað til lands á dögun-
um til að skoða Orkuveitu Húsavíkur
en hópurinn vinnur að heimildar-
mynd um uppfinningamanninn dr.
Alexander Kalina, sem fann upp Kal-
ina-orkuvinnslurásina sem er notuð
til raforkuframleiðslu. Orkuveitan á
Húsavík er eini staðurinn í heimin-
um þar sem jarðhitavatn er notað til
raforkuframleiðslu með tækninni.
Runólfur Maack, framkvæmda-
stjóri verkfræðistofunnar VGK, sem
lagði til við Húsvíkinga að nota þessa
tækni, segir að Kalina-tæknin geri
mönnum kleift að nota jarðhitasvæði
með lægra hitastigi til jarðhitafram-
leiðslu. Gott sé að hitastig vatnsins
sem er notað sé yfir 100° C en það sé
ekki nauðsynlegt. Á Húsavík sé
vatnið rúmlega 120° C heitt.
Útflutningsvara frá Íslandi?
Runólfur segir að raforkufram-
leiðslan eigi sér stað í lokaðri hring-
rás þar sem vatn og ammoníak
myndar ammoníakgufu sem fer í
gegnum hverfil og framleiðir raf-
orku. Áður hafi hreint ammoníak
verið notað en Kalina hafi fundið út
að með því að blanda vatni við amm-
oníakið væri hægt að auka nýtnina í
hringrásinni verulega.
Hafa Húsvíkingar og VGK stofnað
sérstakt hlutafélag, X-Orku, sem
mun leitast við að koma þessari
tækni í gagnið á fleiri stöðum, bæði
hér á landi og á meginlandi Evrópu.
Segir Runólfur að félagið hafi unnið
nokkuð að markaðsstarfi í öðrum
Evrópulöndum en það hefur leyfi frá
einkaleyfishöfum tækninnar til að
selja aðferðina til Evrópu. „Það er
því aldrei að vita nema þetta verði
útflutningsvara frá Íslandi,“ segir
Runólfur.
Kvikmyndaliðið sem kom hingað
til að kynna sér notkun tækninnar
hér á landi var frá fyrirtækinu Gran-
at Film Studio í Moskvu. Dr. Alex-
ander Kalina var einnig með í hópn-
um. Stendur til að heimildar-
myndinni verði dreift til sýningar
víða um heim.
Rússneskt kvikmyndatökulið á Húsavík
Kynntu sér notkun Kal-
ina-tækni í orkuvinnslu
KOMIÐ er út nýtt tölublað tímarits
Stjórnendaskóla Háskólans í Reykja-
vík, Árangur. Er þar að finna greinar
um málefni stjórnenda og sérfræð-
inga ásamt upplýsingum um nám-
skeið.
„Í boði eru styttri námskeið sem og
lengra nám þar sem þátttakendum
gefst kostur á að efla stjórnenda-
hæfni sína,“ segir í frétt frá Stjórn-
endaskóla HR. „Tækniakademía
Stjórnendaskóla HR býður að auki
sérstök námskeið á sviði upplýsinga-
tækni og rafrænna viðskipta.
Stjórnendaskóli HR er einn þeirra
alþjóðlegu skóla sem hefur í vaxandi
mæli lagt áherslu á sérsniðið nám,
enda erum við sannfærð um að nám
sem er sniðið að þörfum og einkenn-
um hvers fyrirtækis skili hámarksár-
angri.“ Þá segir að stjórnendamennt-
un sé annað og meira en flutningur á
þekkingu frá kennurum til nemenda,
hún feli í sér áskorun um að efla
stjórnunar- og leiðtogahæfileika
stjórnenda, meðal annars með því að
virkja hæfni til að innleiða nýjar hug-
myndir á árangursríkan hátt. Nálgast
má tímaritið Árangur með því að hafa
samband við Háskólann í Reykjavík.
Ný námskeið
hjá Stjórnenda-
skóla HR
SIGURÐUR Jónsson á Mælivöllum
á Jökuldal stöðvaði bíl sinn til að
kasta mæðinni á leið um Mývatns-
sveit. Hann var að koma með 300
lömb austan af Fljótsdal til slátr-
unar hjá Norðlenska á Húsavík.
Sagðist nýbyrjaður með þennan
stóra bíl og þyrfti að flytja um
8.000 dilka af Austurlandi til Húsa-
víkur nú í sláturtíðinni. Austfirð-
ingar hafa samið við Norðlenska
um slátrun þessa fjár. Það er
vegna skilyrða um slátrunar-
aðstæður sem féð er flutt til Húsa-
víkur.
Ætlar að
flytja um
8.000 dilka
Húsavík. Morgunblaðið
Morgunblaðið/BFH