Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 27
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 27
www.sagamedica.com
eykur orku, þrek og
vellíðan
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
7
3
4
6
/s
ia
.i
s
Angelica
Angelica fæst í apótekum,
heilsuvörubúðum
og heilsuhornum matvöruverslana.
Jakobína Björnsdóttir, Hafnarfirði:
„Ég fór að taka Angelicu vegna þess
að ég hafði lengi verið slæm í maga.
Magaóþægindin minnkuðu og því til
viðbótar varð ég bæði kraftmeiri og
mér líður mun betur.“
Viðhald í lágmarki. Húsin eru einangruð að utan og
klædd með áli og harðvið. Gluggar eru álklæddir.
Innréttingar, skápar og hurðir eru vandaðar og
hægt er að velja milli þriggja viðartegunda.
Lögð er sérstök áhersla á góða hljóðeinangrun.
Gólfplötur annarar hæðar og ofar verða
einangraðar undir gólfílögn.
Í öllum íbúðum er þvottahús auk sér geymslu í
kjallara.
Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna að
undanskyldum baðherbergisgólfum sem eru
flísalögð.
Í öllum íbúðum er dyrasími tengdur myndavél í
anddyri. Settur verður upp tengikassi í hverja íbúð
fyrir síma, loftnet og ljósleiðara og verða sjónvarps-,
síma- og nettengingar mögulegar í öllum
herbergjum.
Sér bílastæði í bílageymsluhúsi fylgir öllum íbúðum.
Sameign og lóð verða fullfrágengin með
snjóbræðslu í stétt fyrir framan húsið.
ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is
Ítarlegar upplýsingar á www.iav.is
Sér inngangur er í allar íbúðir af glerklæddum svalagangi.
Á morgun, sunnudaginn 22. september, halda
Íslenskir aðalverktakar kynningu á íbúðum í
smíðum við Laugarnesveg milli kl. 13 og 15.
Allar upplýsingar og gögn á staðnum.
Heitt á könnunni og allir velkomnir.
HÖFUÐLÚSIN lifir enn góðu lífi
alls staðar í heiminum og skiptir
ekki máli hversu siðmenntaðar og
þrifnar þjóðirnar eru. Lúsin er
ekki hættuleg heilsunni en hún
hefur í för með sér amstur og
óþægindi. Hún fer ekki í mann-
greinarálit og ber ekki vott um
sóðaskap. Lús smitast við snert-
ingu og reglulega kemur upp far-
aldur, einkum þar sem börn eru
saman.
Lúsin er um 2–3 mm fullvaxin
en erfitt getur reynst að finna
hana í hárinu. Egg lúsarinnar
kallast nit og klekst hún út á sex
til tíu dögum. Nitin sést sem örlít-
ill hnúður á hárinu nálægt hárs-
verðinum. Lúsin nærist eingöngu
á blóði og veldur kláða þegar hún sýgur. Ekki er hægt að eyða lús með venju-
legum hárþvotti.
Hvað er til ráða?
Það er á ábyrgð foreldra og forráðamanna barna að hefta útbreiðslu lús-
arinnar. Starfsfólk heilsugæslunnar ráðleggur og leiðbeinir og hefur samráð
við skólana um að koma upplýsingum til foreldra ef lús kemur upp. Til að upp-
ræta lús er mælt með eftirfarandi meðferð:
Leita lúsa með því að kemba hárið með lúsakambi. Góð birta er nauðsynleg
og ljóst undirlag svo að lúsin sjáist ef hún losnar úr hárinu.
Finnist lús þarf að bera í hárið lúsalyf, en þau fást án lyfseðils í lyfjabúðum.
Aðeins á að meðhöndla þann sem lús greinist hjá. Ef allir í fjölskyldunni
eða bekknum fá meðferð gæti það valdið ónæmi lúsarinnar gegn efninu.
Eftir meðferð þarf að kemba hárið reglulega til að vera viss um að árangur
hafi náðst. Ráðlagt er að endurtaka meðferðina eftir eina til tvær vikur þar
sem nitin getur lifað meðferðina af.
Þrífa þarf fatnað og rúmföt einstaklings sem lús eða nit hefur greinst hjá.
Lúsin drepst á 30 mínútum við 50 gráða hita, en nitin á einni klukkustund.
Jafnframt drepst lúsin á 30 mínútum við 50 gráða frost, en nitin á fjórum
klukkustundum. Lúsin getur lifað í yfir 50 klst án næringar.
Meðferð með ólífuolíu eða hárnæringu ásamt kembingu með sérhönnuðum
lúsakambi hefur verið reynd erlendis og eru vísbendingar um að þær aðferðir
beri einnig árangur.
Mikilvægast er að vanda til verka því skeytingarleysi gefur lúsinnni færi á
að dafna og breiðast út. Einnig er nauðsynlegt að láta skóla eða dagvistun
vita ef lúsar verður vart hjá barni.
Á heimasíðu Landlæknisembættisins (www.landlaeknir.is) er að finna
frekari leiðbeiningar og einnig hefur Miðstöð heilsuverndar barna gefið út
bæklinginn Að fanga HÖFUÐLÚSINA.
Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur
Frá landlæknisembættinu
Heilsan í brennidepli
Lúsin er lífseig!
Höfuðlús er ekki hættuleg
heilsunni en hún hefur í för með
sér amstur og óþægindi.
Ég er eins og hinn venjulegi Íslend-
ingur sem finnst gaman að ferðast.
Ferðalögin mín hafa breyst í gegnum
árin og nú finnst mér mun skemmti-
legra að fara á fjarlægar slóðir líkt og
Asíu og Afríku. Nú í haust ætla ég
reyndar að fara í tveggja vikna ferð
um Tyrkland. Ég er venjulega 1–3 vik-
ur í ferðunum mínum. Er þörf á ferða-
mannabólusetningum fyrir svona
stuttar ferðir?
SVAR Fréttir af fátækt, nátt-úruhamförum, vatns-
skorti og sjúkdómum ættu að færa
manni heim sanninn um, að sé skipt
um umhverfi geti því fylgt áhætta
fyrir heilsuna. Hættan er minni eftir
því sem dvölin er styttri, minni í
borgum en sveitum, minni á góðum
hótelum og veitingahúsum en léleg-
um o.s.frv. Auðvelt er nú að komast á
dagparti beina leið til fjarlægra
staða í þróunarlöndum. Það að geta
staðið nánast fyrirvaralaust hinum
megin á jarðarkringlunni virðist villa
fólki sýn varðandi smithættu og aðr-
ar hættur í umhverfinu. Sömuleiðis
virðist iðandi mannlíf og brosandi
andlit fólksins vekja þá ímynd að
sjúkdómar séu fjarlægur möguleiki.
Vissulega er hraustu fólki með góð
lífsskilyrði, sem gistir og borðar á
góðum stöðum og stoppar tiltölulega
stutt, ekki eins hætt við sýkingum og
innfæddum. Frá hagrænu sjón-
armiði er misjafnt hvað borgar sig að
gera af ónæmisaðgerðum. Við
heilsuvernd vegna ferðalaga verður
hver og einn að ákveða, í samráði við
lækni, hve mikið á að gera vegna
hverrar ferðar, enda er verið að
stofna til kostnaðar, sem sjúkra-
tryggingar greiða ekki. Á seinni ár-
um hafa komið ný og betri bóluefni
og gefa þau oft margra ára eða ára-
tuga vörn gegn helstu smit-
sjúkdómum. Þeir sem hafa gaman af
að ferðast og láta bólusetja sig vel
þurfa því ekki að fá nema einn og
einn skammt af bóluefni, á nokkurra
ára fresti.
Ástæða getur verið til að láta bólu-
setja sig eða a.m.k. endurnýja gaml-
ar bólusetningar. Þetta á jafnvel við
fyrir ferðir til nálægra landa, einkum
ef ferðast er um sveitir eða dvalið úti
í náttúrunni. Algengast er að end-
urnýja barnaveiki, stífkrampa og
mænusótt og bólusetja við smitgulu
(lifrarbólgu A). Mæli ég til dæmis
með þessum bólusetningum til Tyrk-
lands. Smitgula berst með mat og
drykk og er útbreiddur sjúkdómur í
heiminum. Oft er bólusett við tauga-
veiki, sem er sérstök salmon-
ellubakteríusýking, þegar um er að
ræða sumarleyfisdvöl í einhverju
þróunarlandi og ýmsar aðrar bólu-
setningar eru mögulegar og stöku
sinnum nauðsynlegar (lifrarbólga B,
mýgulusótt, japönsk heilabólga,
heilahimnubólga A, C, W135 og Y,
hundaæði, kólera, blóðmaura-
heilabólga, hettusótt, mislingar,
rauðir hundar, hlaupabóla, lungna-
bólga og inflúensa).
Sjálfsagt er að vera varkár í mat
og drykk. Byggja þarf á skilningi og
reynslu (rannsóknum) en ekki órök-
studdum hugmyndum. Mestu máli
skiptir að forðast hrámeti og krana-
vatn, þegar ekki er vissa fyrir heil-
næmi þessara hluta. Skyndifæði,
sérstaklega „götumatur“ er algeng
ástæða iðrasýkinga og einnig hrátt
grænmeti vegna krossmengunar. Ég
vil leyfa mér að segja að einna
öruggast sé að borða innlendan mat,
sem er soðinn eða steiktur og drekka
drykki sem keyptir eru í lokuðum
ílátum og drukknir án ísmola. Oftast
er óhætt að borða ávexti, sem maður
tekur sjálfur hýðið af eða skolar á
viðeigandi hátt.
Verjast þarf stungum skordýra og
annarra liðdýra, sem bæði geta borið
marga sjúkdóma og valdið ofnæm-
isviðbrögðum. Þótt hættan sé lítil er
rétt að gera sér grein fyrir að bitmý
(mosquitoflugur) og blóðmaurar
(ticks) eiga það til að bera alvarlega
sjúkdóma í nálægum háþróuðum
löndum eins og Bandaríkjunum,
Þýskalandi, Ítalíu og Svíþjóð. Í fjar-
lægum þróunarlöndum eru ýmsir
hættulegir sjúkdómar sem smádýr
bera mun algengari og þar er enn
þýðingarmeira að huga að vörnum
gegn stungum. Helstu ráðin eru: (a)
Að vera ekki mikið úti við á mesta
áhættutímanum, en hann getur verið
mismunandi eftir stað og tegundum
flugna. (b) Að vera í meiri og þykkari
fötum til að fækka þeim stungum
sem maður fær. (c) Að bera á sig
efni, sem fælir skordýrin frá, einkum
á ristar og fótleggi auk nakinna
staða. (d) Að sofa undir neti ef hús-
næðið er ekki flugnahelt og malaría
er á svæðinu. (e) Að eyða þeim skor-
kvikindum sem komist hafa inn með
tiltækum ráðum. Vert er að geta
þess í þessu sambandi að mörg ráð,
tæki og efni sem eru í boði til að
hindra stungur eru gagnslaus, en
alltaf eru til viðhlítandi úrræði ef að
er gáð.
Fólk þarf að hafa með nóg af þeim
lyfjum, sem notuð eru að staðaldri
eða grípa þarf til auk annarra lyfja
og hluta sem ferðin útheimtir. Þar á
meðal gæti verið sólvörn, verkjatöfl-
ur, 4–6 cm breiður plástur sem hægt
er að klippa niður, flísatöng,
flugnafæluáburður, hýdrókortisón-
áburður, ofnæmistöflur, malaríulyf
og e.t.v. fleira eftir þörfum hvers og
eins. Vaxandi athygli hefur það feng-
ið að hindra hættu á blóðtappa í flugi
eða eftir flug með viðeigandi sokk-
um, notkun á aspiríni (barnamag-
nýli) til blóðþynningar, fótaæfingum
eða hreyfingu í flugi. Ef barnamag-
nýl er notað er rétt að taka það í
a.m.k. 3 daga fyrir og eftir flug.
Loks þarf að huga að sérþörfum
barna, aldraðra, sjúklinga, vanfærra
kvenna, fólks sem er að fara í skóla
eða vinnu í útlöndum, fólks sem ætl-
ar á há fjöll, fólks sem er að fara á
sérstök hættusvæði o.s.frv.
Ferðamannabólusetningar
eftir Helga Guðbergsson
Sjálfsagt er að vera
varkár í mat og drykk
Lesendur
Morgun-
blaðsins geta
komið spurn-
ingum varð-
andi sálfræði-, félagsleg
og vinnutengd málefni til
sérfræðinga á vegum per-
sona.is. Senda skal tölvu-
póst á persona@persona.-
is og verður svarið jafn-
framt birt á persona.is.
Höfundur er yfirlæknir á
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík