Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 28
ÚR VESTURHEIMI 28 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Brunaslöngur Eigum á lager 25 og 30 m á hjóli og í skáp Ármúla 21, sími 533 2020 HEILSALA - SMÁSALA HECLAEYJA í Manitoba er einn af sumaráfangastöðum flestra ferða- manna í fylkinu og Brynjólfur Helgi Sigurgeirson, eða Binni eins og hann er kallaður, hefur tekið á móti mörgu fólki þar undanfarin ár. „Ég hef stundað þetta í um 10 ár og sérstaklega eftir að ég hætti sem fiskimaður 1996,“ segir hann. Binni er sérfræðingur í sögu Heclueyju í Manitoba enda fæddur þar og íbúi lengst af nema hvað hann bjó í Gimli í nokkur ár eftir að íbúum var gert að flytja burtu um 1974. Foreldrar hans voru Helgi Sigurgeirson, sem fæddist í Heclu 1895, og Ingibjörg Brynjolfs- son, sem var alltaf kölluð Emma, en Vilhjálmur Sigurgeirsson, afi hans, fór frá Íslandi til Gimli 1888 og tveimur árum síðar til Heclu. Kona hans var Kristín Tómasson frá Reynistað, en Reynivellir heitir hús Binna og þar fæddist hann 1929. Hann hefur dundað sér við að koma upp söfnum og sýnir ferðamönnum þau og aðra mark- verða staði á svæðinu, en David Gunnar Kristinn Tomasson, fiski- maður, aðstoðar hann þegar hann getur. Þegar mest var bjuggu um 500 manns af íslenskum ættum í þorp- inu en nú eru þar sjö fjölskyldur, um 20 manns. „Þetta er ekkert orðið,“ segir Binni en bætir við að þeim mun fleiri komi í heimsókn til að fræðast um svæðið, skoða nátt- úruna, fara í golf eða njóta lífsins á hótelinu Gull Harbour. Binni segir að Neil Bardal, að- alræðismaður Íslands í Gimli, hafi fyrst fengið sig til að leiðbeina ferðamönnum og hann hafi strax fundið sig í starfinu. „Umfangið fer eftir því hvað fólkið hefur mikinn tíma,“ segir hann en gamla þorpið hefur að geyma mikla og merki- lega sögu. Niður við höfnina er safn um fiskveiðarnar og skammt frá hefur Binni útbúið verkfæra- og tækjasafn. „Þegar ég hætti að fiska vegna aðgerðar á mjöðm fór ég að leika mér við þetta og það kom sér vel því ég var mjög eirð- arlaus enda verið fiskimaður alla tíð frá því ég kom úr skóla 1945. Ég tíndi hlutina saman, málaði og gerði það sem til þurfti.“ Ekki hefur verið kennt í gamla barnaskólanum síðan 1970, en hann er opinn ferðamönnum sem og menningarsafn við hliðina, en þar má sjá hvernig fólk bjó á árum áður. Þá er bjálkahús Vilhjálms Sigurgeirssonar merkileg heimild og verslunin er á sínum stað. Ís- lendingar þurfa yfirleitt ekki að borga aðgangseyri nema þeir vilji það, en Binni segir að það taki því ekki að rukka um aðgangseyri. „Við höfum bara gaman af því að fá ferðamenn í heimsókn, sér- staklega frá Íslandi, og það er gaman að taka á móti þeim. Í gula húsinu, þar sem safnið er, er box fyrir peninga, en fólkið er upptekið við að skoða og það er allt í lagi. Við hugsum ekki um peningana en setji fólk peninga í boxið fara þeir í það að halda þessu áfram.“ Íslendingar sérstaklega velkomnir á Heclueyju „Gaman að taka á móti þeim“ Morgunblaðið/Steinþór Íslenska tengingin leynist engum í Manitoba. Þegar ferðamenn aka frá Heclu blasir þetta skilti við þeim með vinalegri kveðju á íslensku. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Binni og David Gunnar Kristinn Tomasson tóku meðal annars á móti félögum úr Harmonikufélagi Reykjavíkur og fólki í bændaferð í nýliðnum mánuði. Binni er þriðji til vinstri og David í stutterma skyrtu við hliðina á hon- um en lengst til vinstri er Cara Andruschak, starfsmaður Heclu/Grindstone-fylkisgarðsins. ANDRI Snær Magnason, Hallgrím- ur Helgason og Hávar Sigurjónsson verða fulltrúar Íslands og sitja fyrir svörum um verk sín á al- þjóðahátíð höfunda í Ottawa í Kanada, sem var sett í vik- unni og er nú haldin í sjötta sinn. Leikritið Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson verður flutt í enskri þýðingu hans í dag. Kvikmyndin 101 Reykjavík verður sýnd á mánudag, en Hallgrímur Helgason er sem kunnugt er höfundur samnefndrar bókar, sem handrit myndar- innar er byggt á. Á miðviku- dag les Andri Snær Magna- son síðan úr verkum sínum. Hátíðin stendur yfir frá 18. til 28. september og er um að ræða yfirgripsmestu hátíð höfunda sem um get- ur, að sögn Neils Wilsons, framkvæmdastjóra hennar, en hann kom henni á lagg- irnar 1997 og hefur haldið hana árlega síðan. Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Ot- tawa, hefur aðstoðað Neil Wilson varðandi íslensku tenginguna og fyrir hans til- stuðlan kom Neil til Íslands fyrir tæplega ári til að kynna hátíðina fyrir for- ystumönnum í íslenskum listaheimi. Hann hafði hug á að bjóða allt að 12 íslenskum höfundum en úr varð að þrír urðu fyrir valinu. Hátíðin hefur aldrei verið viða- meiri en nú en 87 höfundar frá Egyptalandi, Englandi, Grikklandi, Íslandi, Ísrael, Kanada, Kína, Nor- egi, Skotlandi og Wales taka þátt í henni að þessu sinni. Menningin brúar bilið Fjölmenni var við setningarhátíð- ina og við það tækifæri fluttu feðg- arnir Neil og Sean Wilson ávörp. Einnig sendiherrar þeirra ríkja sem eiga rithöfunda á hátíðinni, en mót- taka í tengslum við setninguna var á þeirra vegum í samstarfi við að- standendur hátíðarinnar. Í erindi sínu vakti Hjálmar m.a. athygli á mikilvægi Íslend- ingasagnanna og vitnaði í tékkneska rithöfundinn Mil- an Kundera í því sambandi. Hann greindi frá Halldóri Laxness og verkum hans og þeim áhrifum sem Íslend- ingasögurnar höfðu á hann, en þó langur tími hefði liðið á milli verka hans og Íslend- ingasagna, hefðu öll þessi verk haft áhrif á nútímahöf- unda eins og fulltrúa Ís- lands á hátíðinni. Hjálmar sagði frá miklum lestrar- áhuga íslenskra barna og mikilvægi rithöfunda. Ís- lendingarnir sem hefðu flutt til Kanada seint á 19. öld og í byrjun 20. aldar hefðu nán- ast ekkert haft með sér nema bækur, en útbreiðsla bóka og annara lista væri besta leiðin til að brúa bilið milli ólíkra menningar- heima og hefða. Með slíkum brúm styrktust tengslin milli ólíkra þjóða og þær tryggðu öryggi þeirra í al- þjóða samfélaginu. Ritfrelsi væri því mikilvægur þáttur í að tryggja heimsfrið. Eftir þátttöku sína í Ott- awa fara Andri Snær Magnason og Hallgrímur Helgason til Winnipeg til að taka þátt í árlegri rithöf- undahátíð þar í borg, en þar hitta þeir m.a. nemendur í íslenskum nú- tímabókmenntum við íslenskudeild Manitoba-háskóla. Norræna kvikmynda- hátíðin í Ottawa Tvær íslenskar kvikmyndir verða sýndar á Norrænu kvikmyndahátíð- inni í Ottawa 11. til 20. október. Kvikmyndin Íslenski draumurinn, sem Róbert I. Douglas leikstýrir, verður sýnd þriðjudaginn 15. októ- ber og myndin Englar alheimsins í leikstjórn Friðriks Þórs Friðriks- sonar verður sýnd sunnudaginn 20. október. Alþjóðahátíð höfunda í höfuðborg Kanada Andri Snær Magnason Hallgrímur Helgason Hávar Sigurjónsson Þrír íslenskir rithöfundar til Ottawa INGVELDUR Ýr Jónsdóttir, mezzósópran, og Guðríður St. Sig- urðardóttir, píanóleikari, eru á leið í tónleikaför um Bandaríkin og Kan- ada og koma víða fram vestra fyrstu þrjár vikurnar í október. Þjóðræknisfélag Íslendinga og sérstök verkefnisnefnd á vegum Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vest- urheimi, International Visits Pro- gram, vinna saman með stuðningi Flugleiða að því að stuðla að heim- sóknum listafólks og fyrirlesara frá Íslandi til Norður-Ameríku annað hvert ár og listafólks að vestan til Ís- lands hitt árið. Verkefnið byrjaði 1997, þegar Aðalsteinn Ingólfsson flutti fyrirlestra víða í Kanada. 1998 hélt Patricia (Guttormson) Peacock málverkasýningu í Vesturfarasetr- inu á Hofsósi, Einar Vigfússon sýndi útskurð sinn á Íslandi 1999 og Páll Stefánsson hélt myndasýningu víða í Kanada og Bandaríkjunum sama ár. Fríður Ólafsdóttir sýndi íslenska þjóðbúninginn og gerð hans í Norð- ur-Ameríku í fyrra og þá komu Car- ole (Thorsteinsson) Davis, söngkona, og Harold Brow, undirleikari henn- ar, í hljómleikaför til Íslands. Aug- lýst er eftir þátttakendum og voru Ingveldur Ýr og Guðríður valdar til vesturfarar að þessu sinni og sjá við- komandi Íslendingafélög um kostn- aðinn á hverjum stað. Gail Einarson- McCleery í Toronto er formaður nefndarinnar og hefur staðið á bak við viðamiklar kynningar vestra. Hún segir að þetta sé viðamesta heimsóknin til þessa og margir hafi komið að undirbúningnum. Fyrstu hljómleikar Ingveldar og Guðríðar í ferðinni verða í Minnea- polis 2. október. Þær koma fram í Winnipeg 4. október, Gimli 5. októ- ber, Vatnabyggð 8. október, Edmon- ton 10. október, Calgary 11. október, Vancouver 16. október, Ottawa 18. október, Toronto 20. október og Guelph 21. október. Guðríður og Ingveldur Ýr í tónleikaferð í Norður-Ameríku Koma víða fram vestra Morgunblaðið/Golli Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran, og Guðríður St. Sigurðardóttir, píanóleikari, komu fram í Salnum í Kópavogi í fyrrakvöld. UM ÞESSAR mundir eru liðin 125 ár síðan lúterski söfnuðurinn í Gimli var stofnaður og var þess minnst í fjölmennri messu í kirkju safnaðar- ins fyrir skömmu. Séra Georg Johnson, prestur safn- aðarins, þjónaði fyrir altari, en Rich- ard Smith, biskupinn í Manitoba og Suðvestur-Ontario, prédikaði. Að loknum sameiginlegum hádegisverði kirkjugesta var fjölbreytt dagskrá með ræðuhöldum, kórsöng og al- mennum söng, en séra Ingþór Ísfeld, sem var prestur safnaðarins frá 1970 til 1975, flutti ræðu þar sem hann rakti sögu safnaðarins. Fyrsti prestur lúterska safnaðar- ins í Gimli var séra Jón Bjarnason, en meðal annarra presta sem þar hafa þjónað eru Halldór Briem, Magnus Skaptason, Oddur Gíslason, Runolfur Marteinson, Sigurður Olaf- son, Johann Bjarnason, Skuli Sigur- geirsson, Harald Sigmar og sr. Bragi Friðriksson. Fram til ársins 1935 var einvörðungu messað á ís- lensku, um skeið var bæði messað á íslensku og ensku en nú fara allar guðsþjónustur fram á ensku. Tímamót hjá lúterska söfnuðinum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.