Morgunblaðið - 21.09.2002, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 29
Málverkasýning
SMIÐJAN
Innrömmun - Listhús
Ármúla 36, sími 568 3890.
Opið í dag og á morgun frá kl. 14-18,
Einnig verk eftir
Svavar Guðnason
Þorvald Skúlason
Valtýr Pétursson
Sigurbjörn Jónsson
Júlíönu Sveinsdóttur
Jón Engilberts
Valgarð Gunnarsson
Jón Axel
Jón Reykdal
Hlíf Ásgrímsdóttur
Hörpu Björnsdóttur
Björn Birnir
Björgu Þorsteinsdóttur
Steinþór Sigurðsson
Kristínu Geirsdóttur
Kristján Davíðsson
Jóhannes Geir
Leitum eftir verkum gömlu meistaranna
fyrir næstu sýningu okkar
Gæði og góð þjónusta
20% afsláttur
af allri innrömmun út september
Kjarval
Hafsteinn Austmann
Ásgrímur Jónsson
Sverrir Haraldsson
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands
Verð aðgöngumiða kr. 2.000.
Aðgangur ókeypis fyrir 20 ára og yngri
Fyrstu tónleikar vetrarins
í Glerárkirkju á Akureyri
sunnudaginn 22. september kl. 16.00
Einsöngvari:
Jóhann Friðgeir Valdimarsson.
Stjórnandi:
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Á efnisskrá er m.a.
nýtt verk eftir grænlenska tónskáldið
Per Rosing,
íslensk sönglög og ítalskar óperuaríur.
SÝNINGUM bæjarlistamanna Seltjarnarness árin
2000 og 2001 í Húsi málaranna er að ljúka nú um
helgina. Þar sýna þær Messíana Tómasdóttir og
Rúna Gísladóttir en sýningin er haldin að frumkvæði
menningarnefndar Seltjarnarness.
Í fremra rými sýnir Messíana Tómasdóttir verk
sem fjalla um táknmerkingu rauða litarins. Um þrjú
verk er að ræða, sem nefnast Dyggðirnar, Dauða-
syndirnar sjö og Vatn lífsins en í þeim notar Mess-
íana mismunandi efni, s.s. plexígler og litaduft, lita-
duft í glersalla og sandi, og fljótandi lit í
plexíglerstömpum. Þar eru merking og litbrigði
rauða litarins þanin til hins ýtrasta, svo hann spann-
ar breitt merkingarlitróf. „Rauði liturinn birtist okk-
ur sem litur dyggðanna, syndanna, og litur lífsins.
Litróf hans frá rauðu niður í hvítt spannar á vissan
hátt hringrás lífsins,“ segir Messíana um verk sín.
Rúna Gísladóttir sýnir um 30 málverk í tvískiptum
hliðarsal gallerísins. Í öðrum salnum eru olíumálverk
sem Rúna lýsir sem landslagstilvitnunum. Þar er
leikið með birtu, fjarlægðir og þau sterku landslags-
form sem viðtekin eru í íslensku landslagi. Auk þess
sýnir Rúna myndir sem byggðar eru á barnateikn-
ingum og collage-myndir. „Ég lagði verkefni fyrir
sex ára börn, þar sem þau vinna myndir eftir upp-
stillingu. Síðan mála ég myndir út frá formunum
þeirra,“ segir Rúna sem endurspeglar í verkunum þá
sýn sem börn hafa á form og sjónræn viðfangsefni.
Hús málaranna við Eiðistorg er opið milli kl. 14 og
16 frá fimmtudegi til sunnudags.
Bæjarlistamenn í
Húsi málaranna
Rauður litur nefnist sýning Messíönu Tómasdóttur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rúna Gísladóttir sýnir olíuverk.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á UPPHAFSTÓNLEIKUM 46.
starfsárs Kammermúsíkklúbbsins í
Bústaðakirkju annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 20 verða flutt verk
þriggja tónskálda sem uppi eru á
þremur ólíkum tímaskeiðum: L.v.
Bethoven (1770-1827), Jan Sibelius
(1865-1957) og Þórður Magnússon
(f. 1973). Flytjendurnir, Sigrún Eð-
valdsdóttir (fiðla), Zbigniew Dubik
(fiðla), Helga Þórarinsdóttir (lág-
fiðla) og Bryndís Halla Gylfadóttir
(knéfiðla), bjóða gestum til áheyrnar
Strengjakvartett í d-moll, op. 56
(Voces intimae) eftir Sibelius frá
árinu 1909 og Guðrúnarkviðu ina
fyrstu eftir Þórð, en verkið er kvart-
ett í fimm köflum saminn árið 2001.
Eftir hlé verður fluttur Strengja-
kvartett nr. 7 í F-dúr op. 59.1 eftir
Beethoven sem hann samdi árið
1806.
Sibelius, mesta tónskáld Finna, er
fyrst og fremst kunnur fyrir hljóm-
sveitarverk sín og um 90 ljóðsöngva.
Færri vita að á yngri árum fékkst
hann einnig nokkuð við kammertón-
list, tríó, kvartett og kvintetta, en
hætti þeirri iðju vegna hins mikla
árangurs, sem hann náði með hljóm-
sveitarverkum sínum. En árið 1908
staldraði hann við, þá 43 ára gamall,
og samdi strengjakvartett þann sem
nú verður fluttur í Bústaðakirkju.
Eftir Þórð liggur nú rúm tylft tón-
verka, sem frumflutt hafa verið hér
heima eða erlendis. Þau eru saman
fyrir margs konar hljóðfærahópa, en
í sumum kemur mannsröddin einnig
við sögu. Verkið sem nú er flutt var
samið að ósk Trondheims sommer-
festivals og frumflutt þar árið 1998.
Upphaflega gerðin var fyrir messo-
sópranrödd og strengjakvartett.
Guðrúnarkviða in fyrsta er eitt af
Eddukvæðum og greinir frá harmi
Guðrúnar Gjúkadóttur, er hún situr
yfir líki bónda síns, Sigurðar Fáfn-
isbana. Höfundur endurskrifaði síð-
an tónverkið fyrir strengjakvartett,
og var það frumflutt í þeirri gerð á
Myrkum músíkdögum í Reykjavík á
þessu ári.
Beethoven var kominn á hátind
sköpunargáfu sinnar, þegar hann
samdi strengjakvartettana þrjá, op.
59. Hann hafði lokið við að semja
Eroica-sinfóníuna og fiðlukonsert-
inn. Þessir kvartettar eru einnig
tímamótaverk á sínu sviði í tónlist-
inni.
Kvartettinn er nú fluttur í áttunda
sinn, og hafa önnur tónverk ekki
verið flutt oftar í klúbbnum. Næstu
tónleikar Kammermúsíkklúbbsins
verða 20. október en þá fltytur Cam-
erarctica verk eftir Shostakovich og
Brahms.
Lag við
eitt Eddu-
kvæða
Morgunblaðið/Golli
Helga Þórarinsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Zbigniew Dubik og Bryn-
dís Halla Gylfadóttir á æfingu fyrir tónleikana annað kvöld.
Gallerí Tukt, Hinu húsinu Samsýn-
ing ungra íslenskra og bandarískra
myndlistarmanna verður opnuð kl.
16. Hópurinn nefnir sig MYX Youth
Artist Exchange og gefur að líta á
sýningunni verk sem þau unnu sam-
an á Íslandi síðastliðið sumar út frá
þemanu „landslag, fólk og menning“.
Sýningin stendur til 6. október og er
opin alla daga nema sunnudaga kl.
14–18.
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Rúss-
neska kvikmyndin Fangi í Kákasus
verður sýnd kl. 15. Myndin var gerð
árið 1996 meðan á fyrstu stríðsátök-
unum stóð í Tsjetsjníu en undirbún-
ingur að töku myndarinnar var þá
þegar hafinn. Frumhugmyndin er
sótt í smásögu eftir Lév Tolstoj.
Leikstjóri er Sergei Bodrov.
Myndin var tilnefnd til bandarísku
Óskarsverðlaunanna árið 1996 og
hlaut á sama ári verðlaun áhorfenda
á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Enskur texti er með myndinni og er
aðgangur ókeypis.
Smiðjan, Listhús Ármúla 36 Sýn-
ing á sjaldséðum myndum eftir
kunna málara verður opnuð í dag kl.
14.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
LISTAKONURNAR Áslaug
Höskuldsdóttir og Inga Elín
Kristinsdóttir verða að störf-
um fyrir framan Gallerí Fold í
Kringlunni í dag kl. 13–15 og
sýna hvernig þær vinna með
leir. Þetta er hluti af þema-
dögum sem standa yfir í
Kringlunni undir heitinu Upp-
lifun.
Verk eftir Áslaugu
Höskuldsdóttur.
Listamenn
að störfum í
Kringlunni