Morgunblaðið - 21.09.2002, Síða 34
LISTIR
34 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
á kom loks að því að
Flugleiðir þurftu að
súpa seyðið af mark-
aðsherferðinni sinni
sem fyrirtækið hefur
keppst við að réttlæta. Heiti
staðurinn Reykjavík og lauslát-
ar íslenskar stelpur birtast í
nýjasta Sopranos þættinum.
Þetta er það sem kynning á Ís-
landi hefur gengið út á og það
er kaldhæðnislegt að íslenska
flugfélagið sem reynt hefur að
laða ferðamenn hingað til lands
með tilboðum um „dirty week-
end“ og „one night stand“ í
Reykjavík verði fyrir barðinu á
afleiðingunum, þegar flug-
freyjur félagsins eru í hlutverki
lauslátu
kvennanna.
Flugleiðir
hafa fordæmt
hvernig ís-
lensku flug-
freyjunum er
lýst í Sopr-
anos þætt-
inum, þ.e. í vafasömum gleð-
skap, og sent bandarískum
fjölmiðlum tilkynningu þess efn-
is. 13,5 milljónir áhorfenda
fylgdust víst með þættinum en
Sopranos er einn vinsælasti
sjónvarpsþátturinn þessi miss-
erin. Við verðum að bíða til
næsta árs eftir að fá að sjá þátt-
inn og þangað til láta okkur
nægja frásagnir Ameríkubúa af
honum.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, hefur
sagt þetta fyrst og fremst held-
ur leiðinlegt fyrir flugfreyjur fé-
lagsins. Æ greyin, samstarfs-
menn þeirra í markaðsdeildinni
hafa heldur betur gert þeim
grikk. Markaðssetning gengur
út á að auka sölu á einhverri
vöru, í þessu tilviki flugferðum
til Íslands, og þar var miklu
kostað til. Hvað sem það kostar,
það skal takast að fjölga ferða-
mönnum til Íslands, þótt það
séu karlmenn með stjörnur í
augunum og buxurnar á hæl-
unum, hvað sem það kostar.
Guðjón hefur líka sagt að
ekki hafi verið tekin afstaða til
tilboða bandarískra lögfræðinga
sem bjóða fram aðstoð við að
stefna HBO sjónvarpsstöðinni,
en atriðið í Sopranos þættinum
muni tæplega skaða hagsmuni
félagsins. Það má líka ímynda
sér að við hugsanleg málaferli
myndi líklega koma í ljós að
Flugleiðir hafa hjálpað til við að
skapa það orðspor íslenskra
kvenna og Reykjavíkur erlendis
sem einmitt endurspeglast í
þættinum. En ekki er ég að
mælast til þess að íslensk fyr-
irtæki grípi tækifærið og leiki
hlutverk í réttardrama vest-
anhafs.
Maður getur ekki varist
þeirri hugsun að þeir sem
ábyrgir eru fyrir markaðs-
herferðinni um „dirty weekend“
og „one night stand“ í Reykja-
vík skammist sín a.m.k. örlítið
núna. Það hlýtur að örla á eft-
irsjá, þó ekki væri nema vegna
afleiðinganna fyrir fyrirtækið
þeirra. Við að laða ferðamenn til
Íslands hafa þeir komið óorði á
flugfélagið sjálft. Ætli flugfreyj-
ustarfið verði samt ekki enn
jafneftirsótt og áður. Við Ís-
lendingar erum vanir að gleyma
fljótt, hvort sem það er á sviði
viðskipta eða stjórnmála, og
höldum líklega áfram í þann sið.
Flugleiðir hafa hingað til aug-
lýst „dirty weekend“ fyrir
Breta, „enjoy a one night
stand“ fyrir Ameríkana og „get
lucky in the Blue Lagoon“ fyrir
Dani. Og kannski eitthvað fleira
sem aldrei nær augum eða eyr-
um landans. Það er löngu kom-
inn tími til að Flugleiðir hætti
þessum tvíræða tóni í auglýs-
ingum og markaðssetningu og
hætti að gefa í skyn að íslensk-
ar konur séu hálfgerðar gleði-
konur.
Talsmenn fyrirtækisins hafa
reynt að klóra í bakkann og
segja orðasamböndin alls ekki
svo tvíræð og þau merki allt
annað á enskumælandi svæðum
en gagnrýnendur haldi. Tölvu-
leikurinn um Halldór brjósta-
haldarasafnara í Bláa lóninu var
líka afsakaður með því að annar
eins leikur um kvenkyns sund-
skýlusafnara hefði farið aðeins
of seint í loftið. En nú á Hildur
sem sagt líka kost á því að
verða heppin í Bláa lóninu.
Þetta er sem sagt allt hálf-
óheppilegt fyrir Flugleiðir.
Reykjavík hefur undanfarin ár
verið mjög í tísku sem áfanga-
staður ungs fólks hvaðanæva.
Borgin hefur fengið það orð á
sig að vera lifandi allan sólar-
hringinn og ekkert nema gott
um það að segja. Af einhverjum
orsökum er ímyndin þó sú að
næturlífið sé mjög villt og auð-
velt að stofna til einnar nætur
kynna. Ekki er óvarlegt að ætla
að markaðssetning á borð við þá
sem Flugleiðir hafa stundað,
eigi nokkurn þátt í að skapa
þessa ímynd af Reykjavík er-
lendis.
Svo gæti farið að „íslensku
flugfreyjurnar í Sopranos þætt-
inum auki verulega ferða-
mannastraum hingað til lands,
en það hljóta þá að verða fleiri
með buxurnar á hælunum. Og
kannski líka fjölmiðlafólk sem
forvitni hefur verið vakin hjá.
Er Ísland virkilega eyja hins
villta næturlífs þar sem auðvelt
er að „get lucky“?
Oft er sagt frá því í íslenskum
fjölmiðlum, já hamrað á því, ef
Ísland er lofsungið í erlendum
fjölmiðlum. Hér er svo fallegt,
hreint og tært. En blaðamenn
hafa líka tekið púlsinn á nætur-
lífinu og sagt frá taumlausum
unglingum á útihátíðum.
Öllum varð mikið um þegar
breskt blað birti fyrir mistök
mynd af Bláa lóninu með grein
um mengun. Íslendingar mót-
mæltu og blaðið brást hratt og
vel við athugasemdunum, sendi
hingað blaðamann og birti af-
sökunarbeiðni.
En það verður að teljast
harla ólíklegt að á sama hátt
verði birt afsökunarbeiðni í
Sopranos þætti, fyrir að birta
mynd af íslenskum flugfreyjum
í atriði um lauslæti og vafasam-
an gleðskap.
Seyðið
sopið
En það verður að teljast harla ólíklegt
að á sama hátt verði birt afsökunar-
beiðni í Sopranos þætti, fyrir að birta
mynd af íslenskum flugfreyjum í atriði
um lauslæti og vafasaman gleðskap.
VIÐHORF
Eftir
Steingerði
Ólafsdóttur
steingerdur-
@mbl.is
Í MENNINGARMIÐSTÖÐINNI
Skaftfelli á Seyðisfirði hefur að
undanförnu staðið yfir farandsýn-
ingin Ferðafuða og er þetta þriðji
viðkomustaður sýningarinnar á för
sinni um landið. Sýningunni lýkur á
sunnudag og verður næst opnuð um
páskana í Vestmannaeyjum. Áður
var sýningin í Ketilhúsi á Akureyri
og í Slunkaríki á Ísafirði.
Um er að ræða sýningu á smá-
myndum, en Ferðafuða þýðir
hringja eða sylgja eða það sem lok-
ar hringnum.
Á hverjum stað er listamönnum
úr byggðarlaginu boðið að taka þátt
í sýningunni þannig að um 80 lista-
menn eiga nú þegar verk á sýning-
unni. Hugmyndin er að mynda
tengsl milli landshluta og skapa
samræður og samskipti þeirra á
milli.
„Við höfum verið í samstarfi við
menningarstofnanir úti á landi og
fengið styrk frá menntamálaráðu-
neytinu og Menningarborg, segja
þær Harpa Björnsdóttir og Ólöf
Nordal sýningarstjórar. „Áhugi
kollega okkar fram að þessu, og á
næstu sýningarstöðum, sýnir okkur
að hugmyndir okkar um að mynda
tengsl milli landshluta og milli lista-
mannanna á þennan hátt falla í góð-
an jarðveg. Við sem höfum farið á
hvern sýningarstað teljum okkur
hafa fengið ótrúlega góða innsýn í
myndlistarlíf um landið, og við höf-
um kynnst myndlistarfólki sem við
hefðum annars trúlega aldrei hitt
eða talað við. Enginn er eyland, þó
allir séu eyland, og jákvæð sam-
skipti við kollega, samræður og
skoðun hvers á annarra verkum
ætti að vera eftirsóknarvert fyrir
hina annars frekar einangruðu
myndlistarmenn. Þessi tilraun er
jákvætt innlegg í þá veru og hefur
orðið einhver ánægjulegasta upp-
lifun sem maður hefði getað óskað
sér,“ segja þær.
Síðasti spretturinn verður tekinn
í Reykjavík að ári. Þá verður gefin
út sýningarskrá en þá má gera ráð
fyrir að sýningarhópinn skipi allt að
160 listamenn.
Sýningin í Skaftfelli er opin dag-
lega frá kl. 14–18.
Farandsýningin Ferða-
fuða vindur uppá sig
Gjörningur Önnu Richardsdóttur á Seyðisfirði.
MARIELIS Seyler opnar ljós-
myndasýninguna Stillness í
Listasalnum Man, Skólavörðu-
stíg 14, í dag, laugardag, kl. 15.
Myndirnar tók Marielis er hún
dvaldist hér á landi sumarið
2001.
Gefin hefur verið út bók með
myndunum og verður hún
kynnt á sýningunni.
Marielis Seyler er fædd 1.
september 1942 í Wels Austur-
ríki. Hún lauk námi í ljósmynd-
un frá Academy for Grafhic
Arts í Vín árið 1960. Hún hefur
sýnt ljósmyndir víða um heim
utan heimalands sín, svo sem í
Tókíó, Munchen, Köln, Barse-
lóna, París og New York. Héð-
an mun hún fara með sýningu
sína til New York í SOHO20 og
þaðan í Gallery Apicella-B í
Köln.
Sýningin stendur til 14. októ-
ber og er opin daglega á versl-
unartíma, og kl. 14–18 á sunnu-
dögum.
Ljósmyndir
í Man
Listasafn Íslands
Einar Falur Ingólfsson, mynd-
stjóri Morgun-
blaðsins, verður
með 45 mínútna
leiðsögn um sýn-
inguna Þrá aug-
ans á morgun,
sunnudag, kl. 15
sem nú stendur
yfir í Listasafni
Íslands, en safnið
stendur fyrir
fræðsludagskrá í
tengslum við sýninguna sem snýst
um sögu ljósmyndarinnar.
Þá verður á þriðjudag kl. 12-12.51
sýnt myndbandið Annie Leibovitz:
Ljósmyndari fræga fólksins (Annie
Leibovitz: Celebrity Photographer).
Hún var um skeið aðal ljósmyndari
Rolling Stone og víðfræg fyrir kápu-
mynd sína á Vanity Fair með Demi
Moore nakinni og barnshafandi.
Nýlistasafnið
Gunnhildur Hauksdóttir, mynd-
listarmaður, verður með leiðsögn um
sýninguna Grasrót 2002 í dag, laug-
ardag, kl. 15 og aftur 28. september
en þá er síðasta sýningarhelgi.
Aðgangur er ókeypis.
Leiðsögn um sýningar
Einar Falur
Ingólfsson
ÞÓRA Þórisdóttir opnar sýn-
ingu í galleri@hlemmur.is í
dag, laugardag, kl. 16. Sýn-
ingin er innsetning og hefur
titilinn Rauða tímabilið (The
red period).
Innsetningin sam-
anstendur af myndum unn-
um á lín og vatnslitapappír
með tíðablóði, ásamt vín-
gjörningi og áhorfendaleik.
Þóra reynir í list sinni að
tengja saman daglegt líf nú-
tímans og annarsvegar harð-
an feminisma og hinsvegar
táknmyndir biblíunnar séðar
með augum hins trúaða.
Sýningin er á vissan hátt
rökræður á milli feministans Þóru
og bókstafstrúarkonunnar Þóru
um eðli sannleikans.
Verkin á sýningunni eru í beinu
framhaldi af fyrri verkum hennar.
Sterkar tengingar eru við verkið
hennar Þvottur 95°C sem sýnt var
á Klambratúni 1993, einnig við
verkið Blóð lambsins sem sýnt var
um páskana 1994 í Portinu í Hafn-
arfirði, svo og myndbandið Í vín-
garðinum þar sem listakonan bað-
ar sig upp úr víni og sýnt var í
Galleríi Hlemmi árið 2000.
Gallerí Hlemmur er í Þverholti
5 og er opið fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14–18. Sýningin
stendur til 13. október.
Þóra Þórisdóttir
rökræðir á Hlemmi
Þóra Þórisdóttir við verk sitt.
LEIKLISTARNÁMSKEIÐ Ingu
Bjarnason leikstjóra og Margrétar
Ákadóttur leikara hefst á mánudags-
kvöld kl. 20 á Aflagranda 40.
Námskeiðið er til undirbúnings
verðandi leikurum og söngvurum, en
hentar einnig þeim sem vilja bæta
framsögn sína og framkomu og öðl-
ast aukið sjálfsöryggi í því að koma
fram.
Þær Inga og Margrét hafa báðar
áratugalanga reynslu á leiklistar-
sviðinu, bæði sem leikarar, leikstjór-
ar og leiklistarkennarar.
Námskeiðið stendur í tíu vikur og
lýkur með leiksýningu.
Námskeið í leiklist
HIÐ kunna brúðuleikhús Bernd
Ogrodnik sýnir í Kringlubíói, sal 1, í
dag, laugardag, kl. 12.30. Verkið sem
sýnt verður heitir Brúður, tónlist og
hið óvænta, og er ætlað fjölskyldum
með börn. Á morgun kl. 20 verður
leikhúsið í Salnum en þar verður
sýning ætluð fullorðnum. Verkið sem
þar verður sýnt heitir Næturljóð
leikbrúðunnar „Puppet Serenade“.
Bernd kemur með sýninguna í stórri
kistu, en í henni leynast margskonar
brúður skornar út í tré af honum
sjálfum, og persónur sem lifna við
með höndum hans, trjábútum og
silkislæðum. Bernd leikur einnig á
ýmis hljóðfæri. Sýningin er á vegum
þýska sendiráðsins í tengslum við
Þýska daga sem standa nú yfir vegna
hálfrar aldar afmælis stjórnmála-
sambands Íslands og Þýskalands.
Úr sýningu Bernd Ogrodnik.
Bernd Ogrodnik
sýnir brúðuleik