Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EINFALDLEIKI og kraftur eru
það sem gera Solas, fyrstu mynd Ben-
ito Zambranos, að leikstjórnarlegum
sigri fyrir hann. Þetta er ótrúlega
sterk og áhrifarík mynd.
Hún fjallar um óhamingjusamar
mæðgur. Þær hafa báðar verið kúg-
aðar andlega og líkamlega af fjöl-
skylduföðurnum sem núna er veikur.
Á meðan karlinn liggur á sjúkrahús-
inu dvelur móðirin hjá dótturinni.
Samskipti þeirra eru heft og tilfinn-
ingalaus, þar til gamall nágranni
kemur inn í líf þeirra og sýnir þeim að
góðir karlmenn eru til, og að það sé
engin ástæða til að vera einmana.
Það er farið alveg ótrúlega fínlega í
sálarlíf þessara kvenna og sérstak-
lega þá dótturinnar, þar sem ljótleiki
og sjálfseyðingarhvöt ráða ferð í
hennar einmanalega lífi. „Enginn hef-
ur gott hjarta,“ fullyrðir hún og lifir í
vonleysi samkvæmt því.
Svo er það móðirin sem er yfirmáta
gefandi og hlý, sem með einhverjum
innri styrk hefur tekist á við lífið og
eiginmanninn og tekur öllu með jafn-
aðargeði. Dóttirin hefur greinilega
vanmetið móður sína hingað til, en
sambúðin fær hana til að opna augun.
Leikur kvennanna er svo dempað-
ur og fínn, að það er með eindæmum.
Örsmá svipbrigði og augnagotur
segja okkur meira en mörg orð og
gjörðir.
Þessi mynd sem fjallar um konur
sem allir í rauninni þekkja, er mjög
sorgleg og þrúgandi á köflum, hrein-
lega ljót. En á það til að vera ótrúlega
falleg og hreinlega fyndin. Mjög
áhrifarík reynsla sem skilur mikið eft-
ir.
Leikstjóri sem hefur jafn fínan og
djúpan skilning á mannlegu eðli og
Benito Zambranos virðist hafa, á
áreiðanlega, og vonandi, eftir að búa
til fleiri góðar myndir.
Svo ljót og
svo falleg
SPÆNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Regnboginn
Leikstjórn og handrit: Benito Zambr-
anos. Aðalhlutverk: María Galiana, Ana
Fernández og Carlos Álvarez-Novoa.
Spænsk. 101 mín. Filmax 1999.
SOLAS/EINAR Solas á það bæði til að vera „sorgleg og þrúgandi“ og „ótrúlega falleg
og hreinlega fyndin“, segir Hildur Loftsdóttir í umsögn sinni.
Hildur Loftsdóttir
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 alla virka
daga, miðapantanir í s. 562 9700
frá kl. 10 og á femin.is
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar
Fös 27/9 kl. 21 Uppselt
Fös 27/9 kl. 23 Aukasýning
Lau 28/9 kl. 21 Uppselt
Lau 28/9 kl. 23 Aukasýning
Fös 4/10 kl. 21 Uppselt
Fös 4/10 kl. 23 Aukasýning
Lau 5/10 kl. 21 Uppselt
Lau 5/10 kl. 23 Aukasýning
Fös 11/10 kl. 21 Uppselt
Fös 11/10 kl. 23 Aukasýning
Lau 12/10 kl. 21 Uppselt
Lau 12/10 kl. 23 Aukasýning
Lau 19/10 kl. 21 Uppselt
Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR
7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin.
10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun
Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000
Stóra svið
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Frumsýning í dag kl 14
Su 29.sept kl 14 UPPSELT
Su 29. sept kl 18
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Lau 28.sept kl 20
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fi 24. okt kl 20 - Næst síðasta sýning
Fi 31. okt kl 20 - Síðasta sýning
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fi 26. sept kl 20
Lau 28. sept kl 20
Fö 4. okt kl 20
Lau 5. okt kl 20
Fö 11. okt kl 20
Lau 12. okt kl 20
Síðustu sýnngar
FOLKWANG TANZSTUDIO
OG HENRIETTA HORN
Sun. 22. sept. kl. 20.30
Áskriftargestir munið afsláttinn.
MERCE CUNNINGHAM DANCE COMPANY
Þri. 24. sept kl. 20. UPPSELT
VIDEODANS
Sýning og fyrirlestur Rita Kramp
Fö 27. sept kl 20
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Frumsýning fö 4. okt UPPSELT
2. sýn lau 5. okt
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Lau 28. sept kl 20
Fáar sýningar eftir
Nýja sviðið
Litla svið
Hausthátíð Borgarleikhússins
Miðasala: 568 8000
Í Loftkastalanum kl. 20
Miðasala:
552 3000
„Sprenghlægileg“
„drepfyndin“
„frábær skemmtun“
fim. 19
lau. 21/9 örfá sæti laus
fim. 26/9 örfá sæti laus
fös. 4/10
+% % +#% &% % #9
:% % $% % % +,
$% % ;% % % #9
;% % #+% % % #9
3 +9% :,% )% <
/ !/ = )& > & % #;#9
% . % #,#9
Sniglabandið
og Berglind Björk
Vesturgötu 2 sími 551 8900
Pálmi Sigurhjartar - Björgvin Plooder - Einar Rúnarsson
Friðþjófur Sigurðsson - Þorgils Björgvinsson
Hádegisverðartilboð
Kvöldverðarhlaðborð
kr. 990
kr. 1.990
frá kl. 11.30-14.30
frá kl. 18-22