Morgunblaðið - 21.09.2002, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 55
SÖNGVARINN Peter Gabriel segir
allar líkur á því að hann geti fylgt
nýju plötunni sinni, Up, eftir með
annarri innan 18 mánaða. Nægt
efni hafi orðið afgangs frá vinnu
við Up, efni sem nánast sé full-
klárað. Óvíst er þó hvort aðdáendur
Gabriels taka orð hans trúanleg,
enda hafa þeir lengi mátt bíða nýrr-
ar plötu frá kappanum.
Up kemur í verslanir á mánudag
en tíu ár eru nú liðin síðan Gabriel
sendi frá sér breiðskífuna Us. Biðin
hefur því verið löng og ströng og
hafa aðdáendur þurft að hugga sig
við ýmis hliðarverkefni popparans;
s.s. plötuna Ovo frá árinu 2000, en
hún hafði að geyma tónlist sem
hann samdi fyrir þúsaldarhvelf-
inguna í London, sem nú hefur ver-
ið lokað. Þá sendi Gabriel frá sér
plötu fyrr í sumar með tónlist sem
hann samdi fyrir áströlsku kvik-
myndina Rabbit Proof Fence.
Titillinn á Up þýðir ekki endilega
að tónlistin á nýju plötunni sé upp-
lífgandi, segir Gabriel. Raunar er
Gabriel á býsna alvarlegum nótum í
sumum laganna á Up. Sjálfur er
hann hins vegar hamingjusamari
en nokkru sinni fyrr, nýgiftur hinni
írsku Meabh, og orðinn pabbi á nýj-
an leik, 52 ára gamall.
Gabriel segir að dætur sínar frá
fyrra hjónabandi, Anna og Melanie,
hafi í fyrstu átt erfitt með að sætta
sig við ráðahaginn enda er Meabh á
svipuðum aldri og þær. Nú sé hins
vegar allt í lukkunnar velstandi og
báðar ætli þær að hjálpa honum að
kynna Up en tónleikaferð um
Bandaríkin hefst strax í október.
Mun Melanie syngja bakraddir,
eins og hún gerir reyndar í nokkr-
um laganna á Up, og Anna hyggst
gera heimildarmynd um tónleika-
ferðalagið.
Fyrsta lagið af Up er þegar farið
að heyrast í viðtækjum landans en
það ber nafnið „The Barry Williams
Show“. Um er að ræða ádeilu á við-
talsþáttamenningu samtímans og
líklega líkist Barry Williams, sem
um er fjallað, einna helst hinum
umdeilda sjónvarpsþáttastjórnanda
Jerry Springer. Leikarinn Sean
Penn leikstýrði myndbandinu við
lagið og er það býsna sjónrænt eins
og Gabriels er von og vísa en mynd-
band við lagið „Sledgehammer“
(1986) þótti marka tímamót á sínum
tíma. Gabriel kom fram í viðtals-
þætti Larrys Kings á CNN í liðinni
viku og söng þar lag af nýju plöt-
unni sem fjallar um söknuð, „I
Grieve“, í tilefni þess að þá var eitt
ár liðið frá árásunum á Bandaríkin.
Hann kom einnig nýverið fram á
tónleikum í Þýskalandi og flutti þar
gamalt lag, „Here Comes the
Flood“, svona til að votta þeim virð-
ingu sína sem farist höfðu í miklum
flóðum er léku Mið- og Austur-
Evrópu grátt um miðjan ágúst.
Biðin eftir næstu
breiðskífu styttri
Það sætir ávallt tíðindum þegar
Peter Gabriel gefur út plötu.
Ný plata Peters Gabriels kemur út á mánudag
www.regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000
Ný Tegund Töffara
Yfir 14.000 MANNS
La Communidad / Húsfélagið sýnd kl. 3.40
Lola Vende Cá / Lola sýnd kl. 3.40
El Hijo De La Nova / Gifstu Mér Loksins sýnd kl. 6
Último Viaje De Robert Rylands / Síðasta Ferð
Roberts Rylands sýnd kl. 6
Solas / Einar sýnd kl. 8
En Construcción / Byggt Upp Á Nýtt sýnd kl. 8
Los Amantes Del Circulo Polar / Elskhugar við
Heimskautsbaug sýnd kl. 10
Juana La Loca / Jóhanna Brjálaða sýnd kl. 10
„Besta mynd ársins til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa árs.
Fullkomlega ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
Radíó X
„meistaraverk sem
lengi mun lifa“
ÓHT Rás 2
i
l i li
Sýnd kl. 7 og 10. B. i. 14.
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10. B.i. 14. Sýnd kl. 3.40.
Nýjasta meistaraverk
Pedro Almodovars
ÓHT Rás2
SG DV 1/2
HL MBL
Síðasta sýningarhelgi!
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Aukasýningar vegna fjölda áskorana
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6. með íslensku tali. Sýnd kl. 2 og 4. með íslensku tali.
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 14.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Radíó X
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
M A T T D A M O N E R J A S O N B O U R N E
FRUMSÝNING
Heimurinn hefur eignast nýja hetju sem
heitir Jason Bourne. Hér er á ferðinni
frumlegasti njósnatryllir ársins.
Matt Damon sýnir snilldartakta.Byggð á
metsölubók Roberts Ludlum.
HANN VAR HIÐ
FULLKOMNA VOPN
ÞAR TIL HANN VARÐ
SKOTMARKIÐ