Morgunblaðið - 21.09.2002, Side 56

Morgunblaðið - 21.09.2002, Side 56
56 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ  Kvikmyndir.is Roger Ebert  DV  Kvikmyndir.com 1/2 SK.RadioX Sýnd kl. 5.40 og 10.20. B.i. 16. 1/2 HI.Mbl / I l SK.RadioX HK DV Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8. B.i. 16. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. M A T T D A M O N E R J A S O N B O U R N E FRUMSÝNING Andie Macdowell Sýnd kl. 10. B. i. 12. HANN VAR HIÐ FULLKOMNA VOPN ÞAR TIL HANN VARÐ SKOTMARKIÐ  GH Kvikmyndir.com „Þetta er fyrsta flokks hasarmynd.“ Þ.B. Fréttablaðið.  SV Mbl SG. DV ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.is Tilboð 200 kr Sýnd kl. 1.45 og 3.45 Ísl tal.Sýnd kl. 2. Ísl tal. Tímamótaverk í íslenskri kvikmyndasögu  HJ Mbl Gunnar og Herdís leiða eftirminnilegan leikarahóp sem á þátt í að gera Hafið að einni bestu íslensku kvikmyndinni 1/2 HK DV 1/2 Kvikmyndir.is Hér er á ferðinni frumlegasti njósnatryllir ársins. Byggð á metsölubók Roberts Ludlum. Sýnd kl. 4, 6 og 8. Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12. frumsýning Hér kemur ein vinsælasta, athyglisverðasta , magnaðasta og umtalaðasta kvikmynd Japana. Gætir þú drepið besta vin þinn? Sýnd kl. 7. Vit 426 Mathew Perry (Friends) og Elizabeth Hurley fara á kostum í þessari sprenghlægilegu gamanmynd sem kemur verulega á óvart. Það eina sem getur leitt þau saman er HEFND Sýnd kl. 1.45 og 4. Ísl tal. Vit 429  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 3.40, 5.45 8, 9.05 og 10.15 . Vit 433  Rás 2  HJ Mbl 1/2 HK DV 1/2 Kvikmyndir.is Rás 2 HJ bl 1/2 HK DV 1/2 Kvik yndir.is 1/2 Kvikmyndir.is  MBL Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 435  Kvikmyn NÚ STENDUR yfir í Regnboganum spænsk kvikmyndahátíð og verða aukasýningar á laugardag- inn og sunnudag kl. 15.40 á spennumyndinni Tesis/ Lokaverkefninu eftir Alej- andro Amenabar, sem gerði garðinn frægan með The Others með Nicole Kidman; svörtu kómedí- unni La Communidad/Húsfélaginu eftir Álex de la Iglesia; sígaunadramanu Lola vende cá/Lolu sem ákveðið hefur verið að nota sem kennsluefni í sögu sígauna í framhaldsskólum, argentínsk/ spænsku myndinni Hijo de la novia/Gifstu mér loksins, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin 2002 og Hable con ella/Ræddu málin eftir Almodóvar. Aukasýningar á spænskum kvikmyndum Íslenskir gagnrýn- endur hafa hlaðið Ræddu málin lofi. Í KVÖLD kl. 21.00 á Rás 2 fer dans- tónlistarþátturinn Party Zone í loftið en hann hóf þrettánda starfsvetur sinn um síðustu helgi. Sem fyrr eru umsjónarmenn þeir Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason. Þeir gerast vart langlífari út- varpsþættirnir og lék Morgun- blaðinu forvitni á að vita hvað ylli þessu. Sérstaklega í ljósi þess að um er að ræða dans-/raftónlistarþátt en í þeim geira gerast hlutirnir afar hratt. „Við höfum einfaldlega gætt þess að þróast með tónlistinni,“ segir Kristján Helgi. „Þegar við byrjuðum í október 1990, á gömlu góðu Útrás, þá var það „hardcore“ af gamla skól- anum sem var málið. Svo höfum við spilað teknó, trans og fleira. Það er helst „húsið“ sem hefur fylgt okkur alla tíð.“ Party Zone hefur flækst á milli út- varpsstöðva í gegnum tíðina, en er nú á Rás 2. „Við grínuðumst með það þegar við byrjuðum að við ættum eftir að enda sem gamlir kallar á Rás 2,“ segir Kristján hlæjandi. „Og þar erum við víst nú!“ Að lokum segir hann að það sem hafi haldið þeim gangandi í gegnum tíðina sé fyrst og síðast ástin á tón- listinni. „Þetta hefur alltaf verið rekið sem áhugamál. Það mætti kalla þetta ákveðna trúboðsstarfssemi.“ Á ferm- ingaraldri Morgunblaðið/Golli Teitistrúboðarnir Kristján og Helgi. Þátturinn Party Zone kominn í loftið Sambíóin Álfabakka Pétur Pan 2 kl. 14. Fríða og Dýrið kl. 14. Sambíóin Kringlunni Jimmy Neutron kl. 13.30. Villti folinn kl. 14. Scooby Doo kl. 15. Háskólabíó Villti folinn kl.13.45 og 15.45. Hjálp ég er fiskur kl. 13.45 Fríða og Dýrið kl. 14. Sambíóin Akureyri Pétur Pan kl. 14. Jimmy Neutron kl. 14 og 16. Sambíóin Keflavík Hjálp ég er fiskur kl.14 og 16. Fjölskyldudagar í Sambíóunum og Háskólabíói SAMBÍÓIN og Háskóla- bíó hafa tekið upp á þeirri nýbreytni að efna til sér- stakra fjölskyldudaga nú um helgina. Alla helgina verður þá hægt að sjá valdar fjöl- skyldumyndir fyrir að- eins 200 kr. í Sambíóun- um um land allt og Háskólabíói. Myndirnar sem um eru að ræða eru Disney-teiknimyndirnar Fríða og Dýrið og Pétur Pan: Aftur til Hvergilands, Villti Folinn, sem kemur frá framleiðendum Shrek, myndin um vísindastrákin Jimmy Neutron, danska neðansjávarævin- týrið Hjálp ég er fiskur og leikin endurgerð á gömlu góðu Scooby Doo-teiknimyndaþáttunum. Allar eru myndirnar sýndar með íslenskri talsetningu að undanskildri Scooby Doo og miðaverð að þeim öllum er kr. 200. Tilboðsdagskráin er eftirfarandi bæði laugardag og sunnudag: Fjölskyldumyndir á 200 kr. EINS og kunnugt er lögðu Sambíóin niður kvikmyndahúsrekstur í Austurbæjarbíói við Snorrabraut í júlí síðastliðnum. Mörgum var þetta harmur enda er menningar- sögulegt gildi hússins ótvírætt en þegar það var opnað árið 1947, sem Austurbæj- arbíó, var það stærsta samkomuhús lands- ins. Nú hefur Óttar Felix Hauksson, athafna- maður með meiru, tekið húsið á leigu og hyggst hann beita sér fyrir fjölþættri menningarstarfsemi þar innanhúss. Um tímabundinn leigusamning er að ræða sem verður endurskoðaður að leigutíma liðnum, en honum lýkur 1. júní á næsta ári. „Bygg- ingarverktakarnir sem ég leigi af hafa áform um að rífa húsið og byggja þjónustu- íbúðir,“ segir Óttar. „En ef þeir sjá að þeir geta haft tekjur af menningarstarfsemi þá opnast auðvitað ýmsar leiðir. Með því að taka húsið á leigu er ég að reyna að sporna við þessum niðurrifsáformum. Ég ætla s.s. að láta reyna á það hvort ekki sé hægt að halda við einhverri menningarstarfsemi í þessu sögufræga og góða húsi.“ Óttar dregur ekki dul á það að hann beri tilfinningar til hússins. „Eins og ábyggilega fleiri Reykvíkingar,“ segir hann. „Þarna sá ég t.d. Kinks á sínum tíma og sjálfur hef ég skipulagt ýmsa við- burði í þessu húsi.“ Óttar segir að hann hafi hugsað sér að þarna væri hægt að standa fyrir tónlistar- og leikhúsuppákomum; einnig gætu verið þarna stjórnmálafundir, nemendasýningar og jafnvel að þarna skapaðist vettvangur fyrir unglinga og þá helst í samstarfi við borgaryfirvöld. „Það hefur vantað húsnæði af þessari stærðargráðu,“ segir Óttar. „Framkvæmdir eru þegar hafnar og við erum byrjaðir að bóka. Það verða uppákomur strax á haust- dögum sem verða auglýstar nánar síðar.“ Austurbæjarbíó lifnar við að nýju Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.