Morgunblaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 17
NÚ á haustdögum var endanlega
lokið við að gera mjög sérstæða og
fagra girðingu umhverfis kirkju-
garðinn við Hrepphólakirkju.
Kirkjugestir fögnuðu þessu góða
framtaki við messu síðastliðinn
sunnudag.
Í aprílmánuði árið 2000 ákvað
Guðrún Guðjónsdóttir frá Unn-
arholti að færa Hrepphólakirkju
að gjöf eina milljón króna sem
skyldi varið til prýði og viðhalds
Hrepphólakirkju og kirkjugarði.
Sóknarnefnd ákvað að verja þess-
um fjármunum til nýrrar girð-
ingar umhverfis kirkjugarðinn.
Kallaði sóknarnefndin til fundar
við sig Guðmund Rafn Sigurðsson
umsjónarmann kirkjugarða og
Hjörleif Stefánsson arkitekt til
ráðagerða. Var ákveðið að nota
stuðlaberg úr Hólahnjúkum til að
prýða girðinguna en þar er opin
stuðlabergsnáma. Afkomendur El-
ísabetar Kristjánsdóttur og Jóns
Sigurðssonar í Hrepphólum gáfu
stuðlaberg til þessara fram-
kvæmda. Er gjöfin til minningar
um Jón bónda en hann var með-
hjálpari og kirkjubóndi í Hrepp-
hólum um margra áratuga skeið.
Mikil vinna
Framkvæmdir við verkið fóru
að mestu fram á síðastliðnu ári af
vinnuflokki undir stjórn Ara O. Jó-
hannessonar sem naut aðstoðar
heimamanna. Mikil vinna var þó
eftir við frágang verksins sem
lauk nú á haustdögum sem fyrr
segir. Séra Eiríkur Jóhannsson í
Hruna þakkaði við guðsþjónustuna
öllum þeim sem komu að þessu
verki en þó sérstaklega sóknar-
nefndarformanninum, Ágústi Sig-
urðssyni í Birtingaholti. Hann var
frá upphafi vakinn og sofinn yfir
þessu verki, að ýta því áfram á öll-
um vígstöðvum auk þess að vinna
ómælt verk við það með eigin
höndum. Að lokinni messu bauð
sóknarnefnd öllum viðstöddum til
kaffidrykkju í safnaðarheimilinu.
Fögur en
óvenjuleg
kirkjugarðs-
girðing í
Hrepphólum
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sóknarnefnd og sóknarprestur að lokinni guðsþjónustu við Hrepphóla-
kirkju, f.v.: Séra Eiríkur Jóhannsson, Arnfríður Jóhannsdóttir, Katrín
Ólafsdóttir og Ágúst Sigurðsson sóknarnefndarformaður.
Hrunamannahreppur
Peningamarkaðsvíxlar
Kaupþings banka hf.,
árið 2003
í Kauphöll Íslands hf.
Kauphöll Íslands hf. hefur samþykkt að taka
Peningamarkaðsvíxla Kaupþings banka hf., fyrir árið
2003, á skrá Kauphallarinnar. Víxlarnir verða skráðir
þriðjudaginn 1. október nk. og miðvikudaginn
15. janúar 2003.
Víxlarnir eru vaxtalausir og óverðtryggðir.
Skráningarlýsingu og þau gögn sem vitnað er til í henni
er hægt að nálgast hjá Kaupþingi banka hf.
Ármúla 13, 108 Reykjavík
Sími 515-1500, fax 515-1509
Auðkenni Skráningardagur Gjalddagi
KAUP 03 0115 2. október 2002 15. janúar 2003
KAUP 03 0214 2. október 2002 14. febrúar 2003
KAUP 03 0314 2. október 2002 14. mars 2003
KAUP 03 0415 2. október 2002 15. apríl 2003
KAUP 03 0515 2. október 2002 15. maí 2003
KAUP 03 0616 2. október 2002 16. júní 2003
KAUP 03 0715 15. janúar 2002 15. júní 2003
KAUP 03 0815 15. janúar 2003 15. ágúst 2003
KAUP 03 0915 15. janúar 2003 15. september 2003
KAUP 03 1015 15. janúar 203 15. október 2003
KAUP 03 1114 15. janúar 2003 14. nóvember 2003
KAUP 03 1215 15. janúar 2003 15. desember 2003
- Örfá sæti laus -