Morgunblaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                 BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. HELGINA 28. og 29. september verður haldin fræðsluhelgi að Reykjalundi, á vegum Parkinson- samtakanna á Ís- landi. Af þessu tilefni koma hing- að til lands Svend Andersen, sál- fræðingur, og Inger-Marie Örer, hjúkrun- arfræðingur. Þau hafa bæði starfað með dönsku Parkin- sonsamtökunum og eru auk þess bæði með parkinson- sjúkdóminn. Þess má geta að Svend Andersen hefur nýlega skrifað bók um parkinson sem heitir á frummál- inu ,,Sundhed sidder mellem örerne“. Þema þessarar helgar er: Hvernig á að lifa með ólæknandi sjúkdóm eins og parkinson og vera áfram þátttakandi í hinu daglega lífi. Parkinsonsveikin, sem einnig er kölluð ,,lamariða“, er miðtaugakerf- issjúkdómur, oft er talað um hrörn- un í ákveðnum heilastöðvum sem stjórna hálfsjálfvirkum hreyfingum eins og t.d. líkamsstöðu, hreyfingum í andliti, jafnvægisstjórnun við gang og sveiflun handleggja við gang svo eitthvað sé nefnt. Einkenni sjúkdómsins eru ekki alltaf alveg eins hjá fólki en yfirleitt er um einhvers konar skjálfta að ræða, hand eða höfuðskjálfta og/eða vöðvastirðleika, þar sem vöðvarnir gegna ekki þeim boðum sem þeir fá um ákveðnar hreyfingar. Oft byrja einkennin á því að fólk fer að nudda stöðugt saman vísifingri og þumal- fingri. Eins og að framan greinir er park- inson aðallega hreyfihömlunarsjúk- dómur, á seinni stigum sjúkdómsins getur þó komið í ljós minnkandi hæfni til að tala skýrt og skrifa læsi- lega. Það virðist hins vegar vera ein- staklingsbundið hversu snemma fólk fer að finna fyrir vandamálum í sam- bandi við að skrifa. Því miður gætir ennþá nokkurra fordóma hjá okkur í sambandi við parkinsonsjúkdóminn og virðast sumir jafnvel halda að parkinson- sjúklingar séu undir áhrifum áfeng- is, en átta sig ekki á því að einkenni- legar hreyfingar þeirra eru bara hluti af þeirra sjúkdómseinkennum. Fræðsla og þekking eyða fordóm- um og það er alveg nóg að burðast með sjúkdóma, þótt fólk þurfi ekki líka að berjast við fordóma. Því er fræðsluhelgi eins og Parkinsonsam- tökin bjóða nú uppá af hinu góða, fyrir parkinsonsjúklinga, fjölskyldur þeirra og alla þá sem vilja fræðast meira um þennan sjúkdóm. ÍRIS L. BLANDON, sjúkraliðanemi. Hugleiðing um parkinsonveiki Frá Írisi L. Blandon: Íris L. Blandon Á ÖLDUM áður þótti það eftirsókn- arvert og verðugt verkefni yfirstétt- arkvenna að læra tungumál. Konur sem kunnu er- lend mál voru hvarvetna vel- komnar. Þær komu vel fyrir, gátu tekið þátt í umræðum við flest tækifæri og voru verðugir fulltrúar hvers sem var, hvar sem var. Svo er enn þann dag í dag! Konur hér á landi fylla enn sem komið er flestar máladeildir, og eru í miklum meirihluta á námskeiðum á framhalds-, háskóla- og endur- menntunarstigi. Þær virðast frekar þora og vilja takast á við það erfiða verkefni sem í því felst að læra er- lent tungumál um leið og því fylgir þjálfun í menningarlæsi og tilfinning fyrir því hvað á við á hverjum stað og hverjum tíma. Það er hins vegar umhugsunar- efni að á meðan konur eru í minni- hluta í flestum stjórnunar- og áhrifa- stöðum samfélagsins, s.s. í pen- ingaheiminum, sjávarútvegsgeir- anum, stjórnmálunum, útflutningi og víðar þá nýtur þessarar þekking- ar ekki við sem skyldi. Aftur og aftur eru sendar frá landinu sendinefndir til nálægra og fjarlægra landa þar sem langflestir þátttakendur eru karlar og enginn þeirra hefur sér- staklega lagt stund á tungumálanám eða menningarlæsi. Á sama tíma sitja hér heima margir – oftar en ekki hámenntaðar konur – sem gætu svo auðveldlega orðið viðkomandi sendinefnd, hóp, stjórn eða hverjum öðrum að liði. Nei, okkur hættir á undanförnum árum enn frekar til að trúa því að með almennri og sæmi- lega góðri grunnþekkingu á ensku getum við farið hvert sem er og gert hvað sem er. Ég vil hins vegar vara við þessari ofurtrú á enskunni. Jú, hún kemur alls staðar að góðum notum, en hún kemur sjaldan í staðinn fyrir sér- fræðiþekkingu á móðurmáli þess sem verið er að sækja heim. … og hún kemur aldrei í staðinn fyrir at- hyglina og virðinguna sem það vek- ur þegar komið er á staðinn með túlk eða þýðenda sem gerir samningsað- ilum kleift að athafna sig hver á sínu eigin móðurmáli. HÓLMFRÍÐUR GARÐARSDÓTTIR, aðjunkt í spænsku við HÍ og starfandi formaður STÍL. Konur og tungumála- kunnátta Frá Hólmfríði Garðarsdóttur: Hólmfríður Garðarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.