Morgunblaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STARFSEMI Íslandsfugls í Dalvík-
urbyggð er nú komin í fullan gang,
eftir frekar rólega síðustu mánuði.
Þar er nú verið að slátra 10–12 þús-
und fuglum á viku, sem þýðir fram-
leiðslu á 15–16 tonnum af kjúklinga-
kjöti. Hjá fyrirtækinu starfa nú
45–50 manns en margir eru þó í
hlutastarfi. Um síðustu mánaðamót
tók Norðlenska yfir öll sölumál Ís-
landsfugls.
Fyrirtækið átti í miklum erfið-
leikum í byrjun árs og reksturinn
nánast kominn í þrot þegar nýir eig-
endur tóku yfir reksturinn í apríl sl.
Stærstu eigendur Íslandsfugls eru
Norðlenska, Kaldbakur, Sparisjóð-
ur Norðlendinga, Sparisjóður
Svarfdæla, Dalvíkurbyggð, Byggða-
stofnun, Tréverk og Samherji.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson,
fjármálastjóri Íslandsfugls, sagði að
nú væri komin full nýting á eldishús
og útungunarstöð og að afkastaget-
an væri því komin á fullt. „Við von-
umst til að vera kominn yfir erfið-
asta hjallann í þessari endur-
skipulagningu og teljum okkur vera
að framleiða gæðavöru.“
Framleiðsla fyrirtækisins hefur
verið í lágmarki undanfarna mán-
uði vegna skorts á varpfugli en nú
eru bjartari tímar framundan.
Rögnvaldur Skíði sagði að talsvert
meira framboð væri nú á kjúklinga-
kjöti á markaði en á síðasta ári en
að menn horfðu til þess að neyslan
myndi jafnframt aukast. „Það er
eins og allir vita offramboð á kjöti á
markaðnum, svínakjöti, lambakjöti
og kjúklingakjöti, og því ætti þessi
tími að vera hagstæður neytendum.
En við erum bjartsýnir og höfum
fulla trú á að dæmið gangið upp,“
sagði Rögnvaldur Skíði.
Íslandsfugl er með starfsemi á
nokkrum stöðum í Dalvíkurbyggð,
varphænurnar eru á Árskógssandi,
útungunaraðstaðan, vinnslan og
skrifstofuhaldið er á Dalvík og eld-
ishús á Ytra-Holti.
10-12 þúsund fuglum slátrað á viku hjá Íslandsfugli
Morgunblaðið/Kristján
Starfsemi Íslandsfugls er komin í fullan gang á ný og þar er nú verið að slátra 10-12 þúsund fuglum á viku.
Starfsemin komin
í fullan gang á ný
STARFSFÓLK í Íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal og fyrrum sam-
starfsfólk Kristins Svanbergsson-
ar, nýráðins deildarstjóra íþrótta-
og tómstundadeildar Akureyrar-
bæjar, hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu vegna þeirrar umfjöllunar
sem verið hefur í fjölmiðlum vegna
ráðningar Kristins í stöðuna. „Við
hörmum þann málatilbúnað sem
orðið hefur í kjölfar stöðuveiting-
arinnar og lýsum yfir fullum stuðn-
ingi við Kristin Svanbergsson í
nýju og spennandi starfi á Akurr-
eyri,“ segir m.a. í yfirlýsingunni.
Ennfremur kemur fram að þegar
unnið hafði verið úr umsóknum um
starf íþrótta- og tómstundafulltrúa,
hafi þrír aðilar komið til greina í
stöðuna, þau Kristinn Svanbergs-
son, Soffía Gísladóttir og Viðar
Sigurjónsson. Lokaniðurstaðan
hafi verið sú að Kristinn Svan-
bergsson hlaut þessa eftirsóttu
stöðu.
„Við undirrituð starfsfólk í
Íþróttamiðstöðini í Laugardal vor-
um samstarfsfólk Kristins Svan-
bergssonar þegar hann starfaði
sem framkvæmdastjóri SKÍ árið
1996–1999 með mjög góðum ár-
angri. Árið 1999 hætti hann störf-
um hjá SKÍ vegna tilboðs um gott
starf á öðrum vettvangi. Á þessum
vinnustað koma upp margvísleg
mál og oft reynir á þolrifin þegar
álag er mikið. Við áttum mjög gott
samstarf við Kristin, hann var góð-
ur félagi og mjög kraftmikill og
áhugasamur í starfi.“
Undir þessa yfirlýsingu skrifa
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir og
Ólafur S. Magnússon frá ÍF, Anna
Ragnheiður Möller, FSÍ, Birgir Ari
Hilmarsson, UMSK, og Pétur
Hrafn Sigurðsson, KKÍ.
Lýsir yfir stuðn-
ingi við Kristin
Svanbergsson
Starfsfólk í Íþróttamiðstöðinni
í Laugardal í Reykjavík
SOFFÍA Gísladóttir, fyrsti vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra og
félagsmálastjóri á Húsavík, hefur
ákveðið að taka ekki sæti á fram-
boðslista flokksins fyrir komandi
alþingiskosningar næsta vor.
Soffía sagðist ekki hætt í stjórn-
málum, þótt hún yrði ekki með
að vori. Hún sagðist ekki sátt við
nýju kjördæmaskiptinguna og að
það væri helsta ástæðan fyrir því
að hún ætlar ekki í framboð.
Einnig lægi ljóst fyrir að þeir
fjórir þingmenn flokksins í hinu
nýja Norðausturkjördæmi ætl-
uðu allir bjóða sig fram á ný.
„Ég er ekki samþykk því að
lítill hluti þingmanna skuli þurfa
að leggja svona mikla vinnu á sig
við að halda saman risastórum
kjördæmum á meðan verið er að
skipta Reykjavík upp í tvö kjör-
dæmi og fjölga þingmönnum þar.
Mín reynsla á þingi er sú að það
er mun meira álag á landsbyggð-
arþingmönnum tengt þeirra
kjördæmum. Kannski væri far-
sælast að hafa landið sem eitt
kjördæmi, þar sem við fengjum
þá líka að nýta krafta Reykjavík-
urþingmanna úti á landsbyggð-
inni.“
Soffía hefur þrisvar sest inn á
Alþingi á yfirstandandi kjörtíma-
bili og hún sagðist hafa notið
þess. „Ég vildi gjarnan leggja
þetta starf fyrir mig og það vant-
ar fólk með mína menntun inn á
Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
En það er meira en að segja það
að vera varaþingmaður á lands-
byggðinni, með fjögur börn og í
fullu starfi.“
Soffía Gísladóttir varaþingmaður
ekki í framboði í vor
Er ósátt við
nýju kjördæma-
skiptinguna
SKÁKFÉLAG Akureyrar heldur
eitt af sínum vinsælu atkvöldum
annað kvöld, föstudagskvöld, kl.
19.30. Tefldar verða fjórar atskákir
auk nokkurra hraðskáka. Allir fé-
lagsmenn eru hvattir til að mæta
enda aðeins ein vika í Íslandsmót
skákfélaga og því um góðan und-
irbúning að ræða, segir í frétt frá
Skákfélaginu.
Meistaramót félagsins hófst sl.
sunnudag og eru 13 keppendur
skráðir til leiks. Í fyrstu umferð
gerðust þau tíðindi m.a. að Siguróli
Magni Sigurðsson, 13 ára strákur,
gerði sér lítið fyrir og lagði Tómas
Veigar Sigurðarson í hörkuskák. Af
öðrum úrslitum má nefna að stiga-
hæsti keppandi mótsins, Þór Val-
týsson, lagði Ágúst Braga Björns-
son eftir að hafa staðið höllum fæti
um tíma og Björn Ívar Karlsson
vann Sigurð Eiríksson í gífurlega
flókinni og skemmtilegri skák.
Góður liðsstyrkur
Skákfélagið hefur fengið veru-
legan liðsstyrk fyrir komandi átök
íÍslandsmóti skákfélaga sem hefst
um aðra helgi. Þeir Guðmundur
Gíslason, Davíð Kjartansson og Jón
Árni Halldórsson hafa allir gengið
til liðs við félagið. Guðmundur
kemur frá Tafldeild Bolungarvíkur
og hefur lengi verið í hópi sterk-
ustu skákmanna landsins. Davíð
kemur frá Taflfélaginu Helli og er
tvöfaldur Norðurlandameistari á
þessu ári, bæði í einstaklings-
keppni sem og með sveit Mennta-
skólans við Hamrahlíð í framhalds-
skólakeppninni. Jón Árni hefur
bætt sig töluvert undanfarin ár og
er einn allra virkasti skákmaður
landsins. Hann kemur úr Taflfélagi
Kópavogs.
Skákfélag Akureyrar
Atskák
og meist-
aramót
STJÓRN kjördæmisráðs Samfylk-
ingarinnar í Norðausturkjördæmi
hefur ákveðið að framboðsfresti
vegna framboðs í tvö efstu sæti á
lista Samfylkingarinnar í kjördæm-
inu fyrir alþingiskosningarnar vorið
2002 skuli ljúka 4. október nk. Einn-
ig hefur verið ákveðið að póstkosn-
ingu í tvö efstu sæti listans ljúki 4.
nóvember nk.
Stjórn kjördæmisráðs mun á
næstu dögum skipa kjörstjórn sem í
sitja fulltrúar allra samfylkingar-
félaganna í kjördæminu, en þau eru
nú níu talsins og það tíunda á leið-
inni. Kjörstjórn mun hafa með hönd-
um röðun í önnur sæti listans. Höfð
verða að leiðarljósi kynja- og
byggðasjónarmið við röðun á listann,
segir í fréttatilkynningu frá stjórn
kjördæmisráðs.
Framboðs-
frestur til
4. október
Kosið í tvö efstu sæti
Samfylkingarinnar
VETRARSTARF Samhygðar, sam-
taka um sorg og sorgarviðbrögð,
hefst í dag, fimmtudag, með fyrir-
lestri og bókarkynningu.
Það er sr. Bragi Skúlason, sjúkra-
húsprestur í Reykjavík, sem ræðir
um sorg og sorgarferli og kynnir ný-
lega útkomna bók sína „Sorg í ljósi
lífs og dauða“.
Þó að mörgum takist að vinna vel
með tilfinningar sínar við missi þá
eru ætíð margir sem finnst gott að
láta vísa sér til vegar á vegi sorg-
arinnar, segir í tilkynningu frá sam-
tökunum. Getur það átt við þá sem
missa ástvini eða eitthvað það annað
sem þeim þótti vænt um.
Fyrirlestrar Samhygðar eru einn-
ig ætlaðir starfsstéttum sem vinna
náið með fólk. Á það við t.d. um leik-
skólakennara, kennara, verkstjóra
og starfsmannastjóra, sjúkraliða,
hjúkrunarfræðinga og fólk í umönn-
unarstörfum.
Fyrirlestrar Samhygðar verða
væntanlega þriðja fimmtudag hvers
mánaðar og eru haldnir í safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju og hefjast
kl. 20.00.
Að loknum hverjum fyrirlestri eru
léttar veitingar, samtal og fyrir-
spurnir.
Vetrarstarf
Samhygðar
Sr. Bragi
kynnir
bók sína
BLÓMASÝNING verður í
Blómabúð Akureyrar á Glerár-
torgi um helgina. Hún er haldin
í samvinnu við Íslenska blóma-
bændur. Þar gefur að líta úrval
íslenskra blóma og verður
fjöldi tegunda íslenskra afskor-
inna blóma á sýningunni, s.s.
rósir, gerberur, liljur og crysar,
svo dæmi séu nefnd, auk fylgi-
hluta.
Sýningin hefst á morgun,
föstudag, og er opin frá kl.
11.30 til 18.30 en á laugardag er
opið frá kl. 11.30 til 17 og á
sunnudag frá kl. 13 til 17.
Glerdagar standa svo yfir í
Blómabúð Akureyrar við Hafn-
arstræti þar sem í boði er mikið
úrval af glervörum og fjöl-
breytilegir möguleikar glers
eru til sýnis.
Blóma-
sýning
♦ ♦ ♦