Morgunblaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 20
ERLENT 20 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MARKAÐSVIRÐI fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni í Stokkhólmi hefur minnkað um 67% á síðustu 30 mánuðum eða frá því það náði hámarki 7. mars árið 2000. Þetta er meira verðhrun en varð á tíma krepp- unnar miklu árin 1929 til 1932 þegar markaðsvirði fyrirtækja í Svíþjóð dróst saman um 66%. Sænskir fjármálasérfræðingar segjast ekki enn sjá fyrir end- ann á samdráttarskeiði. Hluta- bréf í fjarskiptafyrirtækinu L.M. Ericsson hafa lækkað gríðarlega og er andvirði hluta- bréfanna nú aðeins rúmlega 1% af því sem það var mest snemma á árinu 2000. Lagt hald á tonn af hassi LÖGREGLAN í Kaupmanna- höfn lagði í gærkvöldi hald á hátt í tonn af hassi í hol- lenskum flutningabíl, og er þetta stærsti hassfundur í Danmörku í mörg ár. Fjórir voru handteknir, tveir Danir, einn Pólverji og hollenski bíl- stjórinn. Sloppinn úr gíslingu SERGEI Kukura, aðstoðar- framkvæmdastjóri stærsta olíufélags Rússlands, LUKoil, er laus úr haldi mannræningja er námu hann á brott 12. sept- ember sl. Að sögn saksóknara í Moskvu kom Kukura heim til sín af sjálfsdáðum og mun ekki hafa verið greitt lausnargjald fyrir hann. Vilja taka við gæsluliðinu ÞJÓÐVERJAR og Hollend- ingar vilja taka í sameiningu við stjórn alþjóðlega friðar- gæsluliðsins í Afganistan þeg- ar Tyrkir láta af henni. Varn- armálaráðherra Þýskalands lagði þetta til á fundi varnar- málaráðherra NATO í Varsjá. Berjast gegn fölsunum TUTTUGU og fjögur fyrirtæki sem starfa í Rússlandi til- kynntu í gær stofnun fyrstu þarlendu samtakanna um verndun vörumerkja, Rus- Brand, í því augnamiði að draga úr fölsunum. Nokkur al- þjóðafyrirtæki eru aðilar að RusBrand, þ.á m. Adidas, Coca-Cola, L’Oreal o.fl. Norskar þotur til Afganistans FYRSTU þrjár F-16-þotur norska flughersins héldu í gær af stað til Afganistans þar sem þær munu taka þátt í aðgerð- um fjölþjóðaliðsins, undir for- ystu Bandaríkjamanna. Alls er ætlunin að 18 flugvélar frá Noregi, Danmörku og Hollandi taki við af bandarískum og frönskum vélum í alþjóðaliðinu um næstu mánaðamót. STUTT Mikil lækkun í Svíþjóð UM 3.000 indverskir hermenn voru í gær sendir til Gujarat-ríkis í vest- urhluta Indlands en þar ríkir nú mikil spenna eftir að tveir vopnaðir menn réðust inn í musteri hindúa í borginni Gandhinagar í fyrradag og myrtu þar 29 manns. Atal Behari Vajpayee, forsætisráðherra Ind- lands, sagði árásina hafa verið hluta af „vel skipulögðu samsæri“ og L.K. Advani aðstoðarforsætisráðherra sakaði stjórnvöld í Pakistan um að bera ábyrgð á atburðunum. Árásarmennirnir myrtu 29 tilbiðj- endur í musterinu í fyrradag áður en indverskir sérsveitarmenn réðust til atlögu gegn þeim í skjóli nætur og felldu þá. Tveir sérsveitarmenn féllu einnig í aðgerðunum. „Hryðjuverkamenn hafa enn á ný látið til skarar skríða,“ sagði Vajpa- yee í gær um árásina, en hann heim- sótti þá vettvang hennar. „Þetta virðist hafa verið vel skipulagt sam- særi og rannsókn hefur verið fyrir- skipuð á málinu öllu.“ Hefur öryggi nú verið hert mjög í Gujarat en árásin er talin tengjast kosningum sem hófust á þriðjudag í indverska hluta Kasmír þar sem meirihluti íbúa er íslamstrúar. Per- vez Musharraf, forseti Pakistans, hefur kallað kosningarnar „blekk- ingarleik“ og fullyrðir að niðurstaða þeirra sé fyrirfram ákveðin. Nisar Memon, upplýsingamála- ráðherra Pakistans, sagði hins vegar í gær að fráleitt væri að kenna stjórnvöldum í Islamabad um árás- ina í Gujarat. „Það er augljóst að þeir [Indverjar] eru ekki í fullkomnu jafnvægi.“ Óttast frekara ofbeldi Hindúar í Gujarat hafa boðað alls- herjarverkfall í ríkinu í dag, fimmtu- dag, í því skyni að mótmæla meintri aðild Pakistans að ódæðinu í fyrra- dag. Pramod Kumar, lögreglustjóri í Gujarat, sagðist ekki gera ráð fyrir neinum vandræðum, en bætti því við að alltaf væri betra að hafa varann á þegar verkföll sem þessi væru boð- uð. Óttast menn að árásin í Gandhi- nagar verði undanfari frekara of- beldis. Meira en eitt þúsund manns féllu í átökum múslima og hindúa í Gujarat fyrr á þessu ári. Indverjar auka viðbúnað sinn í Gujarat Óttast átök múslima og hindúa eftir árás á musteri sem kostaði 33 lífið Reuters Víða kom til mótmæla á Indlandi í gær vegna hryðjuverksins í Gujarat þar sem 29 manns voru myrt í hindúahofi. Þessi mynd er frá borginni Bhopal og á brúðan að tákna hryðjuverkamann. Nýju-Delhí, Gandhinagar. AFP. FLUGFÉLÖG í Bandaríkjunum hafa farið fram á opinbera aðstoð vegna mikilla erfiðleika, sem þau rekja að mestu til hryðjuverkanna vestra fyrir ári. Vegna þeirra hafa þau neyðst til að grípa til aukinna ör- yggisráðstafana og hleypur kostnað- urinn við þær á hundruðum milljarða íslenskra króna. Fyrir ári samþykkti Bandaríkja- þing að styðja loftferðaiðnaðinn með rúmlega 1.300 milljarða kr. framlagi en nú fara flugfélögin fram á skatta- lækkun, að kostnaður við auknar ör- yggisráðstafanir verði þeim bættur að einhverju leyti og ríkisstjórnin framlengi ábyrgð sína vegna stórauk- inna tryggingaútgjalda í kjölfar hryðjuverkanna. Leo Mullin, aðal- framkvæmdastjóri Delta Air Lines, sagði nýlega á fundi loftferðanefndar þingsins, að flugfélögin byggjust við að tapa 609 milljörðum ísl. kr. ein- göngu vegna kostnaðar við aukið ör- yggi. Þá væri ekki talið með tap vegna færri flugfarþega. Kostnaður Delta, sem er með sjötta hluta markaðarins í Bandaríkj- unum, vegna trygginga hefur aukist um 13 milljarða kr., vegna nýrra hurða fyrir flugstjórnarklefum um rúmlega 1,7 milljarða, vegna færri sæta, sem fara undir öryggisverði, um rúma þrjá milljarða og vegna strangari reglna um farmflutninga um 7,8 milljarða kr. Fram kom hjá fulltrúum í loftferða- nefndinni, að þeir væru tilbúnir til að hjálpa flugfélögunum tímabundið en sumir sögðu, að flugfélögin yrðu sjálf að leysa þennan vanda. Hann væri að miklu leyti þeirra eigin sök. „Flugfélögin virðast ófær um þann aga, sem þarf til að verðleggja þjón- ustuna með eðlilegum hætti,“ sagði fulltrúadeildarþingmaðurinn James Oberstar. Skattar og gjöld verði lækkuð Flugfélögin vonast til, að hið opin- bera lækki reikningana fyrir aukið ör- yggiseftirlit með farþegum og far- angri en það tók við því af flugfélögunum eftir hryðjuverkaárás- irnar. Halda flugfélögin því fram nú, að öryggiskostnaður þeirra hafi að- eins verið rúmlega 26 milljarðar kr. árið 2000, það er að segja fyrir hryðjuverkin, en samgönguráðuneyt- ið bendir á, að fyrir 1. september í fyrra hafi þau fullyrt, að hann væri um 87 milljarðar kr. árlega. Flugfélögin fara fram á tímabundið afnám skatta og gjalda, til dæmis af eldsneyti, fari svo, að til hernaðará- taka komi í Írak. Þá krefjast þau einn- ig meiri styrks frá hinu opinbera vegna kostnaðar við skotheldar hurð- ir fyrir flugstjórnarklefum. Frá rík- inu koma nú 1,2 millj. kr. en heild- arkostnaður við hverja hurð er um 3,9 millj. kr. Afleiðingar hryðjuverkanna að sliga rekstur bandarískra flugfélaga Biðja um aðstoð ríkisins vegna gífurlegs taps Washington. AP. Krókódílakjöt er víst hið mesta lostæti, að minnsta kosti er ekki fúlsað við því í Suður-Afríku þar sem það var aðalrétturinn í mikilli grillveislu í Pretoríu, höfuðborg landsins. Það voru samtök Búa eða afkomenda hollensku innflytjend- anna, sem stóðu fyrir veislunni, en hún er haldin árlega við mikið minnismerki um fyrstu hvítu land- nemana og ferðir þeirra um landið. Eins og sjá má hefur krókódíllinn verið hamflettur og vafalaust slægður en síðan er hann grillaður í heilu líki. Ekki fylgir sögunni hvort hamurinn eða skinnið er nýtt þegar það leggst til við svona tækifæri.Reuters Krókódíll er kosta- fæða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.