Morgunblaðið - 29.09.2002, Side 12

Morgunblaðið - 29.09.2002, Side 12
FRÉTTIR 12 SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ bankastarfið ekki undir væntingum af einhverj- um ástæðum eða leiddist þér í starfi? Nei, ekkert af þessu sem þú telur upp varð þess valdandi að ég ákvað að breyta til. Í raun og veru bærist í mér svipuð hugsun núna og þegar ég hætti sem ráðherra, þótt um gjör- ólíkar aðstæður sé að ræða. Tíminn hér í Seðla- bankanum hefur verið mjög skemmtilegur. Ég þekkti nokkuð til bankans þegar ég kom hér inn á sínum tíma, hafði verið yfirmaður bankans sem viðskiptaráðherra. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkur tími og ég tel mig koma hér út úr þessu starfi sem sterkari og betri einstaklingur. Hér hef ég verið í samskiptum við afbragðsgott starfsfólk og einstaklega ljúfa og þægilega sam- starfsmenn. Ég held að það sé leitun að jafn sterku og öflugu liði starfsmanna og hér er. Aft- ur á móti er Seðlabankinn í eðli sínu mjög íhaldssöm stofnun. Það er ekki sagt í niðrandi merkingu heldur fyrst og fremst vegna þess að hann á að vera það. Seðlabanka ber að vera stofnun þar sem menn geta treyst því að verk séu unnin af fagmennsku, nákvæmni og af mik- illi yfirvegun, þannig að það sé ekki verið að taka skyndiákvarðanir sem breytast með fyr- irvaralausum hætti eða líta út fyrir að vera ekki gerðar að yfirlögðu ráði. Þegar ég segi að ég hverfi með svipaða hugs- un héðan og þegar ég lét af störfum sem ráð- herra á ég við að ég kveð skemmtilegt starf og er ekki enn orðinn það gamall og lúinn að ég hafi ekki starfsþrek til að takast á við ný verk- efni. Ég taldi mig vera á góðum aldri til að breyta til fyrir tæpum þremur árum, fara úr pólitíkinni og hingað inn, og tel mig nú vera einnig í stakk búinn til að breyta til. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á viðskiptalífinu sem slíku. Byrjaði starfsferil minn í viðskiptalífinu og fannst það vera afskaplega skemmtilegt. Þegar mér bauðst starf sem forstjóri VÍS leit ég á það sem áskorun. VÍS er mjög traust, öflugt, sterkt og vel rekið tryggingafélag og ég hlakka til að takast þar á við krefjandi verkefni. Ég er þeirrar skoðunar að menn eigi að breyta tiltölulega oft um starfsvettvang á starfsævinni. Menn geta líka króast inni í til- teknum störfum og ekki komist út. Það vakti ekki síst fyrir mér að komast hjá því. Ég vildi ekki lokast inni í pólitíkinni og eiga enga út- gönguleið. Ég vildi heldur ekki lokast inni hér í Seðlabankanum. Það gafst færi og ég ákvað að nýta mér það. Þegar þú lést af ráðherraembætti fyrir tæp- um þremur árum ræddirðu um hvað stjórn- málin hefðu breyst. Væru orðin óvægnari og árásir beindust meira að einstaklingum sem persónum. Nú hefur þú verið áhorfandi að póli- tíkinni síðastliðin ár. Finnst þér það sama eiga við? Já, mér finnst það sama eiga við. Þetta var ekki skyndiákvörðun hjá mér á sínum tíma að yfirgefa stjórnmálin. Ég horfði á þetta og spurði mig hvort ég væri tilbúinn til þess að vera allt mitt líf í þessari orrahríð sem stjórnmálin eru og gerði upp við mig að svo væri ekki. Nú geta menn spurt hvort ég sé ekki að gera það sama, fara inn í orrahríð viðskiptalífsins. Jú, en það er bara ekki það sama. Þú ert með þátttöku í stjórnmálum opinber persóna. Þú ert ekki sjálfs þín herra. Það er mikill misskilningur að halda að þeir sem taka þátt í stjórnmálum séu sjálfs sín herra og geti ráðið öllu sem þeir vilja ráða. Þú ert þjónn og þræll kjósandans hverju sinni. Í engu starfi hef ég haft jafnlítið með sjálfan mig að gera og á meðan ég var ráðherra. En þetta var skemmtilegur tími og ég sé ekki eftir honum. Þrátt fyrir að þú hafir horfið af sviði stjórn- málanna hefurðu ekki horfið úr umræðunni þegar rætt er um skipan forystusveitar Fram- sóknarflokksins í framtíðinni. Nú nefndir þú sjálfur hér áðan að menn ættu að skipta oft um starfsvettvang. Gætirðu hugsað þér að snúa aft- ur inn í stjórnmálin og gæti þessi nýi vett- vangur hugsanlega auðveldað slíka innkomu? Þegar ég fór út úr pólitíkinni hætti ég af- skiptum af pólitík og helgaði mig mínu starfi. Auðvitað voru nokkur verk sem ég var beðinn að fara í, svo sem að leiða þessar álviðræður, sem er auðvitað pólitískt starf. Ég hef tekið að mér þau verk sem ég hef verið beðinn um svo fremi sem þau hafa ekki rekist á það sem ég er að gera í bankanum. Þegar ég kom hér í bank- ann var ég ekki að hugsa um að fara í eitthvert annað starf heldur fyrst og fremst einbeita mér að verkum mínum hér. Svo hafa hlutirnir æxlast og þróast með þeim hætti að ég er að yfirgefa Seðlabankann og taka að mér nýtt starf. Þegar ég stend á þessum tímamótum er ég ekki að hugsa um að fara í annað starf heldur einbeita mér af krafti og dugnaði í að sinna nýju starfi. Það þýðir þó ekki að þetta þurfi að vera einhver endastöð hjá mér. Ég gæti viljað breyta aftur til eða það gæti gerst að þeir sem eiga fyrirtækið telja mig ekki vera rétta manninn til að leiða fyrirtækið um ókomna framtíð. En þegar ég segi þetta er ég ekki að segja það að ég ætli að fara aftur í pólitík. Lífið er bara þannig að það ræður enginn sínum næturstað. sts@mbl.is VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson var kjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga á 17. landsþingi sambandsins sem lauk á Ak- ureyri á föstudag. Smári Geirsson formaður kjörnefndar gerði á fundinum grein fyrir tillögu nefndarinnar varðandi kjör stjórnar, fulltrúaráðs, launa- nefndar sveitarfélaga og skoðunarmanna og gat þess að annar háttur hefði verið hafður á miðað við fyrri kjör. Undirbúningur hefði ver- ið vandaður og tillit tekið til fjölmarga þátt, s.s. úrslita sveitarstjórnakosninga, kyns og svæða innan kjördæma svo dæmi séu tekin. Í stjórninni eiga sæti 5 sjálfstæðismenn, 3 framsóknarmenn, 2 úr Samfylkingu og einn frá vinstrigrænum, en fulltrúarnir eru, auk Vilhjálms, Árni Þór Sigurðsson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Reykjavík, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Sigrún Jónsdóttir, Suðvest- urkjördæmi, Óli Jón Gunnarsson, Lárus G.Valdimarsson, Kristján Þór Júlíusson og Björn Hafþór Guðmundsson, Norðausturkjör- dæmi, Björk Guðjónsdóttir og Árni Magnús- son, Suðurkjördæmi. Endurspeglar ekki hið pólitíska landslag Einar Sveinbjörnsson, Framsóknarflokki, Garðabæ, sagði að niðurstaða kjörnefndar væri því miður ekki öllum að skapi og vildi að skýrt kæmist til skila að framsóknarmenn væru ekki alls kostar ánægðir með tillögu nefndarinnar. Hann sagði tillöguna ekki spegla hið pólitíska landslag á Íslandi og óeðli- legt væri að Sjálfstæðisflokkur fengi 5 fulltrúa auk formanns í stjórn sambandsins. Þá ættu fámenn sveitarfélög engan fulltrúa í stjórn- inni. Smári sagði að þótt fulltrúar í stjórn kæmu frá stórum sveitarfélögum yrðu þeir engu að síður að gæta hagsmuna minni sveitarfélag- anna og til þeirra væru gerðar þær kröfur. Hef notið hvers dags í starfi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem endurkjör- inn var formaður Sambands íslenskra sveitar- félaga þakkaði traustið og sagði starfið hafa fært sér ánægju, „ég hef notið hvers dags í starfi fyrir sambandið,“ sagði hann. Kvaðst hann ávallt hafa lagt á það áherslu að hlutverk þess væri að gæta hagsmuna allra sveitarfé- laga í landinu. „Þannig hefur stjórnin starfað og mun gera áfram, því megið þið treysta,“ sagði Vilhjálmur. Hörð pólitík réði ekki ferð- inni í stjórn sambandsins, heldur hefðu menn hagsmuni sveitarfélaganna í landinu að leið- arljósi. Hann sagði nýafstaðið landsþing marka tímamót að vissu leyti, en á því hefðu verið sett fram og samþykkt meginmarkmið þess til næstu ára ásamt þeim leiðum sem best þykja færar til að ná þeim markmiðum. „Ég er bjart- sýnn á að okkur takist að hrinda þessum áætl- unum okkar í framkvæmd,“ sagði Vilhjálmur og bætti við að hann væri einkar ánægður með hversu störf þingsins hefðu gengið vel. Góður undirbúningur skilaði góðu þingi Þær Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, og Svanhildur Árnadóttir, bæjarfulltrúi í Dalvíkurbyggð, kváðust ánægðar með landsþingið. „Fundarstörfin gengu mjög vel, það var mjög vel unnið í nefndum og það skilaði árangri,“ sagði Guðný. „Þetta var nýtt vinnulag og það hafði verið vandað mjög til undirbúnings,“ sagði Svan- hildur. Á þinginu var samþykkt að leggja niður full- trúaráð sambandsins og efna þess í stað til þings árlega. Þær Guðný og Svanhildur voru sammála um að sú breyting yrði til góða. „Menn eru að vinna hér með hagsæld sveit- arfélaganna í huga, ekki á pólitískum nótum,“ sagði Svanhildur. Guðný sagði dálítið slæmt að nú væri enginn fulltrúi í stjórn sambandsins frá fámennum sveitarfélögum. „Það skiptir miklu máli að þessar raddir heyrist.“ Mikil eining ánægjuefni „Þetta var mjög gott þing, vel skipulagt og umræður í nefndum voru mjög markvissar og góðar,“ sagði Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð. „Það sem mér finnst ánægjuleg- ast er hversu mikil eining hefur verið hér á þinginu,“ sagði hann og vísaði m.a. til at- kvæðagreiðslna í því sambandi sem og kjörs í stjórn og fulltrúaráð. „Ég held að þetta þing hafi styrkt sambandið og menn fara tiltölulega sáttir heim. Það er mjög mikilvægt,“ sagði Smári. Sveitarstjórnarstigið að eflast og menn vilja styrkja sambandið Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði þingið hafa verið starfsamt og gott enda hefði mjög verið vandað til undirbúnings þess. „Það var farið yfir mál sem lúta að sam- skiptum ríkis og sveitarfélaga og eins framtíð- arsýn sambandsins. Ég held að það sé ljóst að menn vilja efla það og byggja upp og setja undir það styrkari stoðir. Enda er sveitar- stjórnarstigið að eflast og styrkjast og fjöl- mörg verkefni sem bíða. Menn eru að gera sig klára í þá baráttu,“ sagði Lúðvík. Hann sagði þó ljóst að undir niðri hefði kraumað togstreita varðandi á hvern hátt valdahlutföll ættu að vera á þinginu. Ekki hefði fullur einhugur verið um afgreiðslu í stjórn þótt hún hefði verið samþykkt. Sjálfur hefði hann viljað sjá aðra niðurstöðu en varð. Lúðvík sagði umræður um verkefni sem bíða úrlausnar hafa verið góðar og skýrt hefði komið fram að sveitarfélögin kalli eftir skarp- ari skilum milli sveitarfélaganna og ríkisins hvað þessi verkefni varðar. Fullur vilji væri meðal sveitarstjórnar- manna að fá heilsugæsluna yfir til sveitarfé- laganna sem og þjónustu við aldraða og fatlaða og gengið yrði frá samningum við ríkið vegna þeirra. Víða væri líka vilji til þess að sveit- arfélögin tækju að sér löggæsluna, en aðstæð- ur þeirra til þess væru mismunandi. Stærri sveitarfélögin ættu auðveldara með að taka við löggæslunni en þau minni, en hægt væri að hugsa sér að þau stóru gerðu svo aftur þjón- ustusamninga við minni sveitarfélögin. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson endurkjörinn formaður Sambands sveitarfélaga Sveitarstjórnarstigið hefur verið að eflast Einar Sveinbjörns- son Garðabæ. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði t.h., ræðir við tvo sveitunga sína úr Hafnarfirði, sem báðir starfa að sveitarstjórnarmálum annars staðar á landinu, Sveinbjörn Eyjólfsson, oddvita í Borgarfjarðarsveit t.v., og Tryggva Harðarson, bæjarstjóra á Seyðisfirði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ræðir við Jakob Björnsson og Kristján Þór Júlíusson, bæjarfulltrúa á Akureyri. Morgunblaðið/Kristján Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, og Svanhildur Árnadóttir, bæjarfulltrúi í Dalvíkurbyggð, voru meðal fulltrúa. Smári Geirsson Fjarðabyggð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.