Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Blakvertíðin hefst í kvöld í
Kópavogi og á Akranesi/C3
Haukur Ingi Guðnason fer
til Kärnten í Austurríki/C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
8 SÍÐUR
Áberandi appelsínugult/B1
Þegar mamma fékk brjóstakrabbamein/B2
Nói trúður/B3
Sérstakt fólk/B4
Nýtt bros?/B6
Eldað með Nigellu/B6
Auðlesið efni/B8
Sérblöð í dag
LEIGUVERÐ íbúða í eigu Fé-
lagsbústaða hf. verður jafnað 1. des-
ember næstkomandi, sem felur í sér
að sumar íbúðir munu lækka og aðr-
ar hækka umtalsvert. Fyrir mars á
næsta ári mun leiguverð allra íbúð-
anna síðan hækka um 12% vegna
vaxtahækkana. Tillaga um þessar
breytingar var samþykkt í félags-
málaráði Reykjavíkurborgar á
fimmtudag. Samhliða breytingunum
veitir félagsmálaráð Félagsþjónust-
unni heimild til að skoða aðstæður
þeirra sem breytingarnar bitna
verst á og mæta þörfum þeirra
tímabundið.
„Breytingin á leiguverðinu verður
vegna þess að nú er verið að tengja
það fasteignamati í stað kaupverðs
áður og leiga um 500 íbúða af 1.400 í
eigu Félagsbústaða lækkar,“ segir
Björk Vilhelmsdóttir, formaður fé-
lagsmálaráðs Reykjavíkurborgar.
„Þetta eru þær íbúðir sem við höf-
um verið að kaupa á síðustu árum
eftir að fasteignaverð hækkaði mjög
mikið, oft stórar íbúðir sem nýtast
barnmörgum fjölskyldum.“
Björk segir að þar sem leiguverð
hafi hingað til verið tengt kaupverði
hafi leiguverð íbúða sem keyptar
hafa verið undanfarin ár verið
óvenjulega hátt miðað við þeirra
sem Félagsbústaðir áttu fyrir. „Við
höfum dæmi um alveg samskonar
íbúðir, jafnvel í sama stigagangi, á
mjög mismunandi verði. Það hefur
verið jafnvel 20 þúsund króna mun-
ur á leiguverðinu vegna þess að önn-
ur íbúðin var keypt áður en fast-
eignaverð tók að hækka verulega.
Núna verður þetta verð jafnað.“
Leiga hækkar hjá
þeim verst settu
Í desember leggst auk þess 12%
hækkun vegna vaxtahækkana Íbúð-
arlánasjóðs á þær íbúðir sem lækka
við jöfnunina en á þær sem hækka í
mars á næsta ári. „Þrátt fyrir að
12% hækkun verði lögð á íbúðirnar
eru margar sem verða fyrir raun-
lækkun þegar þessar breytingar eru
allar um garð gengnar,“ segir
Björk.
Leiguverð um 900 íbúða mun
hækka við jöfnunina og auk þess um
12% vegna vaxtahækkana í mars nk.
eins og fyrr segir. „Við gerum okkur
grein fyrir því að við erum að hækka
leigu á þeim hópum sem hafa verið
verst settir í samfélaginu,“ segir
Björk. „Reyndar hefur leigan verið
óeðlilega lág, hún hefur verið allt
niður í 7.500 á tveggja herbergja
íbúð, vegna þess að þetta eru gaml-
ar íbúðir sem hafa ekki hækkað í
neinu samræmi við fasteignaverð.“
Leiguverð á 3ja herbergja íbúð
hjá Félagsbústöðum er í dag allt frá
9.874 krónum og upp í 59.825 krón-
ur. Lægsta verð á tveggja herbergja
íbúðum er 7.266 og það hæsta 60.899
krónur. Með jöfnun leigu verða
leigutekjur Félagsbústaða hf. þær
sömu, en leiguverð tekur alfarið mið
af kostnaði við rekstur íbúðanna að
teknu tilliti til niðurgreiðslu borg-
arinnar, segir í fréttatilkynningu frá
félagsmálaráði.
Samþykkt í félagsmálaráði að jafna leiguverð íbúða Félagsbústaða
Leiga um 900 íbúða hækkar
Árs fangelsi
fyrir að
beita konu
sína ofbeldi
RÚMLEGA fertugur karlmaður
var í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær dæmdur í eins árs fangelsi, þar
af níu mánuði skilorðsbundið, fyrir
alvarlega líkamsárás gegn þáver-
andi eiginkonu sinni á heimili
þeirra. Ákærði var jafnframt
dæmdur til að greiða henni 433 þús-
und krónur í skaðabætur.
Dómurinn taldi að ákærði ætti
sér ekki neinar málsbætur. Hefði
hann verið ósamvinnuþýður við
meðferð málsins fyrir dómi og ekki
reynt að skýra hegðun sína. Var
hann sakfelldur fyrir alvarlega lík-
amsárás, með því að berja ítrekað í
höfuð konu sinnar og með því að
taka ítrekað um háls hennar. Taldi
dómurinn að hann hefði með því
vakið með henni ótta um líf sitt og
heilsu.
Dómurinn var fjölskipaður og
dæmdu málið Hjördís Hákonardótt-
ir dómsformaður og héraðsdómar-
arnir Eggert Óskarsson og Helgi I.
Jónsson. Verjandi ákærða var
Brynjar Níelsson hrl. Málið sótti
Elín Vigdís Hallvarðsdóttir fyrir
lögreglustjórann í Reykjavík.
STÓRVIRKAR vinnuvélar unnu í
gær við að rífa gamla Stjörnubíó
við Laugaveg. Í lok febrúar á þessu
ári lögðust kvikmyndasýningar af í
bíóinu en þá hafði kvikmynda-
rekstur verið þar í rúma hálfa öld.
Að sögn Stefáns Haraldssonar,
framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs,
er ráðgert að rífa fasteignirnar nr.
86b, 92 og 94 við Laugaveg og
stefnt að því að ljúka við bráða-
birgðabílastæði á lóðinni fyrir 1.
desember nk. eða áður en jóla-
verslun hefst. Til stendur að færa
húseignina nr. 86.
Borgarráð samþykkti í júlí kaup-
tilboð sem nær til umræddra fast-
eigna og var kaupverðið 140 millj-
ónir. Að sögn Stefáns eru hug-
myndir uppi um að gera bíla-
kjallara og hugsanlega að tengja
hann við þjónustu- og verslunar-
húsnæði á lóðinni. Morgunblaðið/Þorkell
Stjörnu-
bíó rifið
PERSÓNUVERND hefur svarað
bréfi sem stofnuninni barst frá Ís-
lenskri erfðagreiningu 14. október
sl. þar sem ÍE gagnrýnir hvernig
staðið sé að öryggisúttekt á miðlæg-
um gagnagrunni á heilbrigðissviði.
Í bréfi Persónuverndar segir m.a.
að úttekt á öryggi gagnagrunns á
heilbrigðissviði sé ólokið þrátt fyrir
að afhendingaráætlun á hlutum kerf-
isins hafi verið útbúin þrisvar og
ítrekað hafi verið reynt að hefja
formlega úttekt. Meginástæðan sé
sú að ÍE hafi ávallt óskað eftir að
breyta hönnun gagnagrunnsins þeg-
ar úttekt hafi verið hafin. Það hafi
haft í för með sér að breyta hafi þurft
öryggisskilmálum gagnagrunnsins
og ekki þurfi að koma á óvart að það
taki nokkurn tíma þegar um jafn-
flókið kerfi sé að ræða.
Rakin eru samskipti ÍE og Per-
sónuverndar í bréfinu og að ÍE hafi
fyrst í nóvember 2000 óskað eftir að
gerðar yrðu breytingar á öryggis-
skilmálum gagnagrunnsins en síðast
í lok febrúar á þessu ári.
Í bréfinu segir að Persónuvernd
muni eftir sem áður vinna faglega og
ötullega að því að ljúka úttektinni.
Til að svo megi verða þurfi ÍE að
taka ákvörðun um endanlega hönn-
un gagnagrunnsins þannig að hægt
sé að ganga frá öryggisskilmálum og
ráðast af krafti í úttektina sjálfa. Í
bréfinu segir að hingað til hafi engar
tafir orðið á úttektinni vegna þess að
beðið hafi verið eftir umsögn Per-
sónuverndar og ráðgjafa hennar á
einstökum hlutum af úttektargögn-
um ÍE og að engar slíkar tafir séu
fyrirsjáanlegar.
Þá segir jafnframt að í bréfi ÍE til
Persónuverndar sé óskað eftir því að
stofnunin svari því hvort úrvinnslu-
kerfi, þ.e. kerfi sem tengir saman
upplýsingar úr gagnagrunni ÍE og
notendaviðmót, og kynnt var í febr-
úar á þessu ári, fullnægi kröfum
stofnunarinnar. Leggur Persónu-
vernd til að haldinn verði fundur
með sérfræðingum ÍE nk. mánudag
þar sem farið verði yfir hvaða viðbót-
arupplýsingar stofnunina vanti og
með hvaða hætti hluti upplýsinganna
þurfi að berast.
Persónuvernd svarar ásökunum ÍE vegna öryggisúttektar gagnagrunnsins
ÍE óskaði ítrekað eftir
að breyta hönnuninni
OCEAN Future-samtökin og
norsk stjórnvöld ákváðu í vik-
unni að háhyrningurinn Keikó
fengi vetrardvalarstað í Taknes-
bugta í Skálavíkurfirði í vetur,
skammt frá þeim stað þar sem
hann hefur haldið sig undan-
farnar vikur. Skálavíkurfjörð
leggur á vetrum og því þurfti að
flytja Keikó á hlýrri stað.
Í Taknesbugta er ákjósanleg
aðstaða til þjálfunar Keikós og
fóðrunar, en fljótlega á næsta
ári verður haldið áfram mark-
visst með að beina honum inn á
braut sjálfstæðis í villtri nátt-
úru. Keikó er við góða heilsu eft-
ir kvef sem hann fékk fljótlega
eftir sundið frá Íslandi til Nor-
egs fyrir nokkrum vikum.
Keikó með
fastan
samastað
♦ ♦ ♦
Norskur sjó-
maður fluttur
á sjúkrahús
DÖNSK varðskipsþyrla flutti
norskan sjómann, sem slasast hafði
á togara á veiðum í grænlensku lög-
sögunni, til Reykjavíkur í gærmorg-
un. Þyrlan lenti með sjúklinginn við
flugskýli Landhelgisgæslunnar en
þaðan var hann fluttur með sjúkra-
bifreið á Landspítalann. Sjómaður-
inn mun hafa slasast á hálsi og öxl,
en var með meðvitund og í stöðugu
ástandi þegar þyrlan kom með
hann.