Morgunblaðið - 18.10.2002, Side 4

Morgunblaðið - 18.10.2002, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BORGARFULLTRÚAR R-lista og Sjálfstæðisflokks veltu vöngum yfir því í borgarstjórn í gær hvers vegna gengið hafi verið út frá því í áraraðir að ríkið eigi einungis að borga 40% af byggingu hjúkrunarheimila þegar lögum samkvæmt beri því að greiða 85% af byggingarkostnaði á móti 15% frá viðkomandi sveitarfélagi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagðist telja þetta sérstakt rannsóknarefni og sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri það með ólíkindum að áratugum saman hafi verið fjallað um þessi mál eins og ríkið ætti einungis að borga 40% af byggingarkostnaði hjúkrunarheimila. Skýrt sé kveðið á um það í lögum að ríkið skuli greiða 85% af uppbyggingu sjúkrastofnana og hjúkrunarheimili falli undir þá skilgreiningu. „Það er umhugsunarefni að við skulum hafa árum og áratugum sam- an horft fram hjá þessari skyldu og menn hafi verið hér út um allar jarðir að reyna að finna peninga í þessar byggingar fyrir aldraða sem við töl- um í orði kveðnu öll um, m.a. hér í borgarstjórn, að eigi annað skilið af samfélaginu en þetta,“ sagði Ingi- björg. Ekki væri hægt að bjóða öldr- uðum upp á að það sé háð velvild verkalýðsfélaga, félagasamtaka og góðgerðarstofnana að það takist að fjármagna heimilin til móts við fram- lag sveitarstjórna og 40% framlag ríkisins. 250 einstaklingar í brýnni þörf Borgarráð hefur samþykkt þátt- töku borgarinnar í uppbyggingu 64 hjúkrunarrýma á vegum sjálfseignar- stofnunarinnar Markarholts og gefið fyrirheit um úthlutun lóðar fyrir heimilið í Sogamýri. Borgarstjóri og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra undirrituðu viljayfirlýsingu um bygg- ingu þessa heimilis í vor, borgin mun leggja fram 30% og ríkið 70%. Vilhjálmur fagnaði því að til stæði að byggja hjúkrunarheimili í Soga- mýri, um 250 einstaklingar væru í mjög brýnni þörf fyrir að fá pláss á hjúkrunarheimili og hópurinn sem þyrfti að fá inni á dvalarheimili væri álíka stór. R-listinn hefði ekki staðið sig sem skyldi í málefnum aldraðra þar til birti til fyrir kosningarnar í vor. Vilhjálmur sagðist ekki vita hversu langt heilbrigðisráðherra væri kominn á veg með sinn þátt yfirlýs- ingarinnar. Vonandi muni hann hafa árangur sem erfiði, málsins vegna. Sú hefð hafi skapast að Reykjavík- urborg hafi haft frumkvæði að bygg- ingu hjúkrunarheimila sem og vist- og dvalarheimila sem hafa risið í borginni. Það frumkvæði hafi vantað til þessa af hálfu R-listans. Hann sagðist líta svo á að samningurinn sem ríkið gerði við Sóltún hafi breytt ýmsu, en Sóltún fái hærri daggjöld en aðrar sjálfseignarstofnanir. Þessar stofnanir miði sig í dag við Sóltún. Þá hafi viljayfirlýsing heilbrigðisráð- herra og borgarstjóra einnig gefið tóninn þannig að ríkið muni í framtíð- inni taka á sig aukinn kostnað í þess- um málaflokki. Ríkið á samkvæmt lögum að greiða 85% af byggingar- kostnaði hjúkrunarheimila en ekki 40% af kostnaði Horft framhjá skyldu ríkisins ingafélögum dreifibréf. Þar segir m.a.: „Að gefnu tilefni hefur Fjár- málaeftirlitið ástæðu til að taka fram að aðilum á markaði er óheimilt að notfæra sér innlögn starfsleyfis vátryggingamiðlunar og e.t.v. þekkingarleysi viðskipta- vina á vátryggingum og réttar- áhrifum innlagnar starfsleyfis vá- tryggingamiðlunar, til þess að fá aðila til að segja upp vátrygging- arsamningum sínum og gera nýja samninga hjá öðrum vátryggjanda. Slík aðgerð getur leitt til fjárhags- legs taps fyrir viðskiptavini að óþörfu svo sem í tilviki söfnunar- trygginga.“ Páll Gunnar segir að þetta bréf hafi verið sent til áréttingar á þessari reglu, sem ætti þó að liggja í augum uppi. „Það er mikil samkeppni á þessum markaði og hann er tiltölulega ungur. Þess vegna sáum við ástæðu til að senda þetta bréf,“ segir hann. Páll Gunnar segir að Fjármála- eftirlitið taki við kvörtunum af þessu tagi. „Við getum þá beitt þeim upplýsingum í eftirliti með eftirlitsskyldum aðilum og reynt að tryggja að þetta endurtaki sig ekki,“ segir hann, „auk þess er möguleiki fyrir fólk, ef það telur sig hafa orðið fyrir tjóni, að leita réttar síns fyrir dómstólum eftir almennum lögum.“ KOMIÐ hefur fyrir að vátrygg- ingamiðlarar, eða líftrygginga- félög, hafi nýtt sér erfiðleika Ísvár hf. til að fá viðskiptavini fyrirtæk- isins til að segja upp vátrygging- arsamningum og gera nýja hjá öðrum vátryggjanda. Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Eins og kom- ið hefur fram skilaði Ísvá inn starfsleyfi sínu til viðskiptaráðu- neytisins vegna rekstrarerfiðleika. Það leiddi hins vegar ekki til þess að vátryggingasamningar við- skiptavina fyrirtækisins yrðu ógildir. Fjármálaeftirlitið hefur sent vá- tryggingamiðlurum og líftrygg- Reyna að ná við- skiptum frá Ísvá Borgarstjóri og ráðherra funda um löggæslu INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mun í næstu viku funda með Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráðherra um löggæslu í Reykjavík. Borgarstjóri sagði á fundi borgarstjórnar í gær að framlög til löggæslu í Reykjavík hefðu nánast staðið í stað síðustu ár, þrátt fyrir að íbúum hefði fjölg- að sem og bílum og veitingastöð- um, auk þess sem tíðni afbrota og fíkniefnanotkun hefði aukist. Árið 1999 hefðu 146 almennir lögreglu- menn starfað á götum borgarinnar en í fyrra hefðu þeir verið 101. Árið 1995 hefðu 27–28 lögreglumenn staðið almennu vaktina í borginni hverju sinni en árið 2001 hefðu þeir verið 18. Mikil þörf væri fyrir að efla hverfalöggæslu í borginni, en lögregla hefði haft lítið svigrúm til að sinna henni. Bæjarstjórn Garðabæjar Vill upp- lýsingar frá OR BÆJARSTJÓRN Garðabæjar sam- þykkti á fundi sínum í gærkvöldi að fela bæjarstjóra að óska eftir upp- lýsingum frá Orkuveitu Reykjavík- ur, OR, um fjárhagslegar skuld- bindingar fyrirtækisins á árinu. Í tilkynningu frá Garðabæ segir að samkvæmt sameignarsamningi sveitarfélaganna sem hlut eiga í OR beri fyrirtækinu að leita fyrirfram samþykkis eigendanna áður en teknar eru ákvarðanir um skuld- bindingar sem fara yfir 5% af eigin fé. Í tillögu bæjarstjóra, sem sam- þykkt var samhljóða á fundi bæj- arstjórnar, kemur fram að OR hafi ekki haft samráð við bæjaryfirvöld í Garðabæ um neinar skuldbindingar á vegum fyrirtækisins. BARÁTTA Stefáns Karls Stef- ánssonar leikara gegn einelti hefur fengið byr undir báða vængi og hafa bæði einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir lýst vilja sínum til þess að leggja honum lið í þeirri baráttu og móta starfsemi samtaka gegn ein- elti, Regnbogabarna. Hafa Bún- aðarbankinn og Vífilfell ákveðið að gerast bakhjarlar samtakanna. Stefnt er að því að stofna þau 9. nóv- ember og hafa samtökin þegar feng- ið sérstaka kennitölu. Gríðarlega sterk viðbrögð „Það er auðvitað út af fyrir sig stór viðskiptafrétt hversu mörg fyr- irtæki, auk Búnaðarbankans og Víf- ilfells, hafa tekið við sér og lofað okkur fjárhagslegum stuðningi,“ segir Stefán, „og það sýnir okkur hversu brýnt er að taka á þessu máli. Ég hef fengið þúsundir bréfa og það hefur verið metaðsókn á fyr- irlestra sem ég hef haldið og það vilja allir leggja sitt af mörkum til þess að stöðva einelti í landinu. Það hefur loksins orðið vitundarvakning og það var það sem ég var í raun að bíða eftir. Ég hef ekki viljað leggjast á hnéskeljarnar fyrir framan ráðu- neytin að biðja um fé því ég vildi að fleiri vöknuðu til lífsins um þetta mál og til að starf sem þetta deyi ekki út þarf einstaklinga sem hafa bæði áhuga og frumkvæði til liðs við samtökin. Í leiðara Morgunblaðsins á dögunum var minnst á baráttu mína og bent á hvað einn ein- staklingur getur gert. Hvað skyld- um við þá ekki geta sem samfélag og ein heild? Ég er búinn að vinna fyrstu orrustuna í þessu stríði og nú ætla ég að safna allri þjóðinni sam- an í eitt herlið,“ sagði Stefán Karl. Búnaðarbankinn hefur lagt fram fé til stofnunar samtakanna og mun koma á laggirnar vef þeirra og standa straum af ferða- og síma- kostnaði Stefáns. Vífilfell hefur lagt til hús í Hafnarfirði undir starfsemi samtaka gegn einelti og verður það rekið af Hafnarfjarðarbæ. Áformað er að í húsinu verði félagsmiðstöð þar sem þolendum eineltis verður veitt fyrsta hjálp auk þess sem fag- aðilar munu hafa þar aðstöðu. Auk bakhjarlanna tveggja hafa bæði Hagkaup og Opin kerfi ákveðið að styrkja Regnbogabörn. Prent- smiðjan Prisma-Prentco hefur boð- ist til að prenta allt efni ókeypis fyr- ir samtökin og Hans Petersen ætlar að ánafna þeim hluta af hagnaði af jólakortasölu ársins. Þegar hafa um 1.000 manns sent Stefáni tölvupóst og lýst vilja sínum til að ganga í samtökin en frá og með gærdeg- inum geta menn skráð sig í þau með því að hringja í síma 575-1550. Grunnur lagður að stofnun Regn- bogabarna, samtaka gegn einelti „Loksins vit- undarvakning“ Morgunblaðið/Kristinn Stefán Karl Stefánsson leikari hefur barist gegn einelti. ♦ ♦ ♦ Sóknarprest- urinn í Ár- nesi hættir GENGIÐ hefur verið frá starfs- lokasamningi við Jón Ísleifsson, sóknarprest í Árnesprestakalli á Ströndum, en samkvæmt skilmál- um samningsins segir Jón starfi sínu lausu frá og með 15. júlí á næsta ári. Talsmenn Biskupsstofu segja að áður hafi verið búið að samþykkja á kirkjuþingi að þegar annar hvor prestanna í Árnes- eða Hólmavík- urprestakalli léti af störfum yrðu þessi tvö brauð sameinuð. Sókn- arprestur á Hólmavík er Sigríður Óladóttir og mun hún því vænt- anlega þjóna sameinuðu prestkalli þegar Jón hættir. Íbúar í Hólma- víkurprestkalli eru 648 talsins en í Árnesprestakalli 59, þannig að í hinu sameinaða prestakalli verða liðlega 700 sóknarbörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.