Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 17
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
0
1
0/
20
02
20 -30% afsláttur
Hreinlætistækjadagar
Gustavsberg salerni með innbyggðum stút.
19.990 kr.
Verð áður: 24.776 kr.
Gustavsberg handlaug 56x42 sm.
4.770 kr.
Verð áður: 5.964 kr.
Merkur baðtæki.
22.390 kr.
Verð áður: 27.971 kr.
Merkur handlaugartæki.
19.790 kr.
Verð áður: 24.658 kr.
Tradition handlaugartæki.
14.200 kr.
Verð áður: 20.245 kr.
Jupiter baðtæki.
16.530 kr.
Verð áður: 20.663 kr.
Gustavsberg salerni, upphengt.
24.890 kr.
Verð áður: 34.736 kr.
Gustavsberg handlaug í borð 56x40 sm.
11.920 kr.
Verð áður: 14.908 kr.
sérsniðin innheimtulausn
HINN frjálsi markaður er ekki
siðlaus, að mati Guðmundar Heið-
ars Frímannssonar, siðfræðings
og forseta kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri, sem flutti er-
indi um þessa stofnun þjóðfélags-
ins á fjölmennri málstofu um
viðskiptasiðferði í HA nýlega.
Málstofan var samvinnuverkefni
nemendafélaga rekstrar- og við-
skiptadeildar, auðlindadeildar há-
skólans og Landsbankans á Ak-
ureyri í tilefni 100 ára afmælis
bankans.
Guðmundur benti á að ekki
væri óeðlilegt að menn spyrðu
spurninga um siðferði hins frjálsa
markaðar, þar sem eðli hans væri
að þeir sem á honum störfuðu
gættu einkum eigin hagsmuna.
Hann benti jafnframt á að
frumforsenda hins frjálsa mark-
aðar væri sú að þar væru aðilar á
ferð sem í grunninn yrðu að
viðurkenna landamæri hver
annars og sérhver þátttakandi
hefði sitt neitunarvald til
þátttöku í við-skiptum sem allir
yrðu að virða. Heildarniður-
staðan væri góð, þrátt fyrir að
markaðurinn gæti oft verið harð-
ur húsbóndi, hin oftast ósýnilega
hönd, segir í frétt frá Háskól-
anum á Akureyri.
Fram kom í framsögu Jóns
Gunnars Bergs rekstrarráðgjafa
að fyrirtæki bæði hér heima og
erlendis setja sér ákveðnar siða-
reglur eða háttvísisreglur, en
nokkuð misjafnt væri hvort eða
hvernig menn framfylgdu þeim.
Jón Gunnar taldi að mestu skipti
varðandi trúverðugleika slíkra
reglna að æðstu stjórnendur færu
eftir þessum reglum og gæfu
þannig starfsmönnum sínum kost
á og tilefni til að taka þá ákvörð-
un sem þeir telja rétta, ef upp
kemur sú staða að velja milli þess
sem þeir telja rétt að gera og
þess að hámarka hagsmuni fyr-
irtækisins. Fjölmenni var á málstofu um viðskiptasiðferði í Háskólanum á Akureyri.
Málstofa við Háskólann á Akureyri
Frjáls markaður
ekki siðlaus
ATVINNA mbl.is
Akureyri og
atvinnulífið
AKUREYRI og atvinnulífið – öfl-
ug byggð – sameiginlegir hags-
munir er yfirskrift ráðstefnu sem
haldin verður á Hótel KEA á Ak-
ureyri í dag, föstudaginn 18. októ-
ber.
Á ráðstefnunni verður farið yfir
stefnu og aðgerðir ríkisstjórnar-
innar til eflingar byggðar á Ak-
ureyri, kynnt stefna og aðgerðir
Akureyrarbæjar til að ná settu
marki í byggðaþróun, varpað ljósi
á samspil menntunar og atvinnu-
lífs, gerð grein fyrir sjónarmiðum
hagsmunaaðila í atvinnulífi og rætt
um nauðsyn samræmdra aðgerða.
Framsögumenn á ráðstefnunni
verða Valgerður Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, Krist-
ján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á
Akureyri, Sveinn Hannesson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðnað-
arins, Þorsteinn Gunnarsson, rekt-
or Háskólans á Akureyri, Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, og Ásgeir Magnússon,
forstöðumaður Skrifstofu atvinnu-
lífsins á Norðurlandi.
Að ráðstefnunni standa Skrif-
stofa atvinnulífsins á Norðurlandi,
atvinnumálanefnd Akureyrar og
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar.