Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 24
ERLENT
24 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÉRFRÆÐINGAR í málefnum
Norður-Kóreu voru mjög undrandi
á þeim tíðindum að þarlend stjórn-
völd hefðu viðurkennt að hafa reynt
að þróa kjarnavopn eftir að hafa
harðneitað því í áratugi. Nokkrir
þeirra litu á játninguna sem glappa-
skot en aðrir töldu hana brellu til að
bæta stöðu Norður-Kóreu í samn-
ingaviðræðum við Bandaríkjamenn
og Suður-Kóreumenn.
Norður-Kóreumenn hafa reynt
að bæta samskiptin við Bandaríkin
á síðustu árum í von um að þeim
verði umbunað efnahagslega, enda
hafa þeir mikla þörf fyrir aðstoð
vegna örbirgðar og hungursneyðar
í landinu.
„Það er erfitt að átta sig á því
hvers vegna Norður-Kóreumenn
skyldu hafa sagt þetta þar sem þeir
hafa reynt að koma tengslunum við
Bandaríkjastjórn í eðlilegt horf,“
sagði Lee Jong-Seok, sérfræðingur
í málefnum Norður-Kóreu við
óháða rannsóknarstofnun í Seoul,
Sejong-stofnunina. „Þetta er ekki í
samræmi við þær aðferðir sem þeir
hafa beitt. Þetta er klunnaleg að-
ferð, sem leiðir til sjálfseyðilegging-
ar.“
Allt lagt undir til að ná
athygli Bandaríkjastjórnar?
Aðrir sögðu að játningin væri
eina leið Norður-Kóreumanna til að
ná athygli Bandaríkjastjórnar sem
hefur einbeitt sér að stríðinu gegn
hryðjuverkastarfsemi í heiminum
og hugsanlegum hernaði í Írak.
Hugsanlegt er að með játning-
unni hafi Norður-Kóreustjórn lagt
allt undir í von um að fá sem allra
mesta umbun fyrir að fullnægja
skilyrðum Bandaríkjamanna fyrir
bættum tengslum. „Norður-Kóreu-
menn hafa tekið upp nýja aðferð til
að knýja Bandaríkin til að fallast á
heildarsamning,“ sagði Park Hong-
Kyu, sérfræðingur í samskiptum
Kóreuríkjanna við Utanríkis- og
þjóðaröryggisstofnun Suður-Kór-
eu. „Norður-Kóreumenn vildu auð-
sæilega fá eins mikið og mögulegt
er frá Bandaríkjunum fyrir að af-
sala sér kjarnkleyfu efnunum og
eldflaugunum.“
Ágreiningur um
sáttaumleitanir?
Lee sagði að stjórnvöld í Suður-
Kóreu væru í mjög erfiðri stöðu
vegna játningarinnar og hörð af-
staða Bandaríkjastjórnar gæti orð-
ið til þess að tilraunir Suður-Kór-
eustjórnar til að laða Norður-
Kóreumenn að samningaborðinu
færu út um þúfur. Talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins
sagði að ekki væri hægt að hefja
samningaviðræður við Norður-Kór-
eustjórn að svo stöddu í ljósi játn-
ingarinnar. Embættismenn í Suð-
ur-Kóreu voru tregir til að
viðurkenna að komið hefði upp
ágreiningur við Bandaríkjastjórn
um stefnuna í málefnum Norður-
Kóreu. Þeir sögðu að Bandaríkja-
stjórn hefði stutt þá stefnu Kims
Dae-Jungs, forseta Suður-Kóreu,
að leita eftir sáttum við Norður-
Kóreumenn.
„Yfirlýsing Bandaríkjastjórnar
kyndir undir áhyggjum okkar af því
að hún ætli að hýða Norður-Kóreu-
menn,“ sagði Lee. Hann kvaðst hafa
grun um að Bandaríkjastjórn hefði
ýkt það sem Norður-Kóreumenn
sögðu í viðræðunum við bandarísku
sendinefndina í Pyongyang.
Embættismenn í Suður-Kóreu
hafa átt nokkra fundi með fulltrúum
norður-kóresku kommúnistastjórn-
arinnar frá því að ríkin samþykktu í
ágúst að koma aftur skriði á sátta-
umleitanirnar. Suður-Kóreustjórn
studdi þá kröfu Bandaríkjastjórnar
að Norður-Kóreumenn svöruðu því
afdráttarlaust hvort þeir hefðu
reynt að þróa kjarnavopn. Stjórnin í
Seoul hvatti þó einnig Bandaríkja-
stjórn til að taka á málinu á frið-
samlegan hátt með samningavið-
ræðum.
Yim Sung-Joon, háttsettur ráðu-
nautur forseta Suður-Kóreu í utan-
ríkis- og öryggismálum, sagði að
hreinskilnisleg játning Norður-
Kóreumanna væri til marks um að
þeir vildu leysa málið með samn-
ingaviðræðum. Því ætti að halda
sáttaumleitunum áfram.
Deilt um eftirlit
Óttast var að stríð myndi skella á
milli Kóreuríkjanna árið 1994 þegar
Bandaríkjamenn sögðust hafa rök-
studdan grun um að Norður-Kór-
eumenn réðu yfir plútoni, sem hægt
væri að nota í kjarnavopn. Stríði var
afstýrt þegar undirritaður var
samningur 21. október 1994 þar
sem Norður-Kóreumenn lofuðu að
hætta við kjarnorkuáætlun sína
gegn því meðal annars að Bandarík-
in og fleiri ríki sæju þeim fyrir
tveimur kjarnakljúfum, sem myndu
ekki nýtast við framleiðslu kjarna-
vopna.
Samningurinn hefur oft verið
gagnrýndur, meðal annars vegna
þess að hann kveður ekki á um að
Norður-Kóreumenn heimili strax
alþjóðlegum eftirlitsmönnum að
rannsaka alla þá staði sem kunna að
tengjast kjarnorkuáætluninni. Því
hefur ekki verið hægt að ganga úr
skugga um hvort Norður-Kóreu-
menn ráði yfir kjarnorkusprengju
eða að minnsta kosti efnum til að
framleiða kjarnavopn.
Norður-Kóreumenn hafa hafnað
kröfum Bandaríkjamanna um að
heimila alþjóðlegt eftirlit og sagt að
fyrst verði að flytja ýmsan búnað,
sem nauðsynlegur er til að smíða
kjarnakljúfana, til Norður-Kóreu.
Ljúka átti við smíði kjarnakljúf-
anna á næsta ári en verkefnið er
mörgum árum á eftir áætlun.
Stjórnin í Norður-Kóreu hefur
stundum hótað að rifta samningn-
um og krafist skaðabóta vegna taf-
arinnar á smíði kjarnakljúfanna.
Bandaríkjastjórn hefur hafnað
þessu og staðið fast á þeirri kröfu að
eftirlitsmenn fái fullan aðgang að
öllum þeim stöðum sem deilt er um.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin,
IAEA, hefur ekki getað haft eftirlit
með kjarnorkuáætlun Norður-Kór-
eumanna frá árinu 1993 þar sem
þeir hafa ekki viljað hafa samstarf
við stofnunina. Verði eftirlitsmönn-
um hennar leyft að fara til Norður-
Kóreu er áætlað að það taki þá þrjú
til fjögur ár að ljúka rannsókninni.
Efnahagslega
óskynsamleg framkvæmd
Daniel Pinkston, bandarískur
sérfræðingur í málefnum Kóreu-
ríkjanna, sagði að væru Norður-
Kóreumenn að þróa kjarnavopn
gæti Bandaríkjastjórn ekki staðið
við samninginn frá 1994 „af lagaleg-
um ástæðum“. Hætti Bandaríkja-
menn við smíði kjarnakljúfanna
gæti það orðið til þess að spennan á
Kóreuskaga magnaðist og yrði jafn-
vel enn meiri en mánuðina áður en
samningurinn var undirritaður.
Bradley Babson, ráðgjafi Al-
þjóðabankans og Sameinuðu þjóð-
anna í málefnum Asíu, sagði að báð-
ir aðilar gætu rift samningnum
hvenær sem þeir vildu. Hann bætti
við að áformin um kjarnakljúfana,
sem áætlað er að kosti andvirði 430
milljarða króna, væru svo efnahags-
lega óskynsamleg að Bandaríkja-
stjórn hefði ef til vill aldrei ætlað að
smíða þá og gert ráð fyrir því að
kommúnistastjórnin félli áður en
framkvæmdunum lyki.
Sérfræðingar eru á einu máli um
að rafveitukerfið í Norður-Kóreu sé
of lítið og ótraust til að hægt verði
að nýta kjarnakljúfana. Nokkrir
þeirra telja að tengja þurfi kjarn-
orkuverið við rafveitukerfi Suður-
Kóreu.
Glappaskot
eða brella til að
kría út peninga?
Sérfræðingar
mjög undrandi á
játningu Norður-
Kóreumanna
’ Norður-Kór-eumenn vildu auð-
sæilega fá eins
mikið og mögulegt
er frá Bandaríkj-
unum. ‘
AP
Grunnur að kjarnorkuveri í Kumho í Norður-Kóreu. Bandaríkin og fleiri
ríki reisa kjarnorkuverið samkvæmt samningi frá 1994 sem kveður einn-
ig á um að Norður-Kóreumenn hætti að þróa kjarnavopn.
BANDARÍKJASTJÓRN sagði í gær
að Norður-Kóreumenn hefðu viður-
kennt að þeir væru að þróa kjarna-
vopn á laun og brotið þannig samning
sem ríkin undirrituðu árið 1994. Þessi
óvænta játning varð til þess að stjórn
George W. Bush Bandaríkjaforseta
komst að þeirri niðurstöðu að ekki
væri hægt að hefja samningaviðræð-
ur við stjórnina í Pyongyang að svo
stöddu, að sögn Richards Bouchers,
talsmanns bandaríska utanríkisráðu-
neytisins.
Grannríki Norður-Kóreu hvöttu
hins vegar til þess að deilan yrði leyst
með samningaviðræðum. Suður-Kór-
eumenn og Japanir sögðust ætla að
halda áfram tilraunum sínum til að ná
sáttum við Norður-Kóreumenn og fá
þá til að rjúfa sjálfskapaða einangrun
kommúnistaríkisins.
Bush forseti stendur nú frammi
fyrir möguleikanum á ógnvekjandi
uppgjöri við ríki sem hann hefur sagt
að sé eitt af þeim ríkjum sem myndi
„öxul hins illa“ í heiminum. Játning
Norður-Kóreumanna kann einnig að
verða til þess að svokölluð „sólskins-
stefna“ stjórnvalda í Suður-Kóreu,
sem miðast að því að leita eftir sáttum
við kommúnistastjórnina í Norður-
Kóreu, bíði skipbrot.
Segja samninginn ekki
lengur í gildi
Norður-kóreskir embættismenn
viðurkenndu að Norður-Kóreumenn
væru að þróa kjarnavopn á fundi fyrr
í mánuðinum með bandarískri sendi-
nefnd undir forystu James Kelly, að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna. Kelly hafði þá lagt fram gögn
sem bentu til þess að Norður-Kóreu-
menn hefðu ekki staðið við loforðið
um að hætta að þróa kjarnavopn.
Kelly sagði norður-kóresku emb-
ættismönnunum að „Bandaríkja-
menn hefðu nýlega fengið upplýsing-
ar um að Norður-Kóreumenn hefðu
áform um að auðga úran í kjarnavopn
í trássi við samninginn frá 1994 og
fleiri samninga“, sagði Boucher.
„Norður-kóreskir embættismenn við-
urkenndu að þeir hefðu slík áform.“
Talsmaðurinn bætti við að embætt-
ismennirnir hefðu reynt að koma sök-
inni á Bandaríkin og sagt að þeir litu
svo á að samningurinn frá 1994 væri
ekki lengur í gildi.
„Leitum eftir
friðsamlegri lausn“
„Bandaríkjastjórn og bandamenn
hennar hvetja Norður-Kóreumenn til
að virða skuldbindingar sínar sam-
kvæmt samningnum og hætta við
kjarnavopnaáætlunina með sannan-
legum hætti,“ sagði Boucher. „Við
leitum eftir friðsamlegri lausn á
ástandinu. Öll ríkin í þessum heims-
hluta eiga hagsmuna að gæta í þessu
máli og engin friðsöm þjóð vill að
Norður-Kóreumenn viðurkenna að þeir séu að þróa kjarnavopn á laun í trássi við samning frá 1994
Grannríki ætla að halda
áfram sáttaumleitunum
Bandaríkjastjórn
telur viðræður
ekki mögulegar
að svo stöddu
Washington. AFP, AP.
AP
James Kelly, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, stígur út úr bíl við
hótel í Peking. Hann kom til borgarinnar í gær til að ræða leynilega
kjarnavopnaáætlun Norður-Kóreumanna við kínverska ráðamenn.