Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 28
ÚTFLUTNINGUR
28 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEIRIHLUTI viðskipta-vina Whole Foods-verslunarinnar við P-stræti í Washington
D.C. eru einhleypir eða nýbyrjaðir í
sambúð. Þeir eru yfirleitt vel mennt-
aðir og hafa ágætar tekjur þó þeir séu
ekki verulega efnaðir. Þeir hafa engu
að síður ráð á hrygg af íslensku lambi
en kílóið af hryggnum kostar hvorki
meira né minna en 2.900 krónur í
kjötborðinu í versluninni við P-stræti.
Til samanburðar kostar hryggur af
nýslátruðu lambi 1.148 krónur kílóið í
kjötborðinu í Hagkaupum í Kringl-
unni. Hryggurinn sem seldur er í
Bandaríkjunum er á hinn bóginn
næstum alveg fitusnauður og skýrir
það verðmuninn að hluta.
Ekkert verksmiðju-
framleitt kjöt
Íslenski lambahryggurinn í kjöt-
borðinu í versluninni á P-stræti er
dýrasta kjötið sem þar er á boð-
stólum. Annað íslenskt kjöt er ódýr-
ara, kílóið af lambalæri kostar t.d. um
1.500 krónur og skankar um 850 kr/
kg. Íslenska kjötið er samt sem áður
dýrara en svipaðir bitar af lambakjöti
frá Bandaríkjunum og Nýja-Sjálandi.
Bill Lorraine, deildarstjóri kjötdeild-
arinnar, segir að verslunin bjóði að-
eins upp á kjöt af dýrum sem hafa
verið alin utandyra að mestu, ekkert
„verksmiðjuframleitt“ kjöt sé þar til
sölu. Á þetta jafnt við um kjúklinga,
lömb, svín og naut. Bandaríska
lambakjötið er keypt af bændum í
Nebraska og Iowa sem Bill segir að
reki bú af svipaðri stærð og starfs-
bræður þeirra hér á landi og nýsjá-
lenskt lambakjöt keppir einnig við hið
íslenska. „Við höfum boðið upp á ís-
lenskt lambakjöt í nokkur ár og að-
eins í um tvo og hálfan mánuð á
haustin. Samt sem áður er talsverð
eftirspurn eftir því og áður en lamba-
kjötið kom í búðina í haust voru
nokkrir viðskiptavinir búnir að spyrj-
ast fyrir um það,“ segir hann. Að-
spurður segist hann vera viss um að
vaxandi markaður sé fyrir kjötið á
Bandaríkjamarkaði enda séu gæðin
mikil. Bandaríkjamenn borða til-
tölulega lítið af lambakjöti en Bill
segir að þeir fáu sem það geri séu yf-
irleitt miklir aðdáendur lambakjöts-
ins og kunni því að meta gott lamba-
kjöt.
Íslenskt lambakjöt frá Norðlenska
er nú selt í 54 verslunum Whole Fo-
ods-keðjunnar víða um Bandaríkin.
Þar er nánast eingöngu hægt að
kaupa náttúruvænar og lífrænt rækt-
aðar vörur. Fyrsta Whole Foods-
verslunin var opnuð í Texas árið 1980
en nú eru búðirnar 133 og á næstu
átta árum er gert ráð fyrir að þeim
fjölgi í 400.
Sláturfélag Suðurlands reyndi í
fyrsta skipti í fyrra að selja lambakjöt
til Lund- og Byerlys-verslananna í
Minneapolis og nágrenni. Sú tilraun
fór hálfpartinn í hundana vegna
vandræða sem sköpuðust í tengslum
við óvissuástand á flugvöllum eftir
hryðjuverkaárásirnar 11. september
og skaðaði vörusendingar. Nú eru á
hinn bóginn horfur á betri tíð.
Tonn er ekki það
sama og ígildistonn
Samkvæmt nýjustu áætlunum er
nú gert ráð fyrir að útflutningur
lambakjöts til Bandaríkjanna verði
um 105–110 tonn sem er ríflega tvö-
földun frá því í fyrra. Þetta er um
8–9% af heildarútflutningi á lamba-
kjöti sem var í fyrra 1.398 tonn en
stefnir í að verði 1.400–1.500 tonn í ár.
Hér er miðað við svokölluð ígildistonn
sem byggjast á grundvallarverði fyrir
lambaskrokkinn. Þetta þarfnast út-
skýringar. Þar sem hryggur og læri
eru dýrustu hlutar lambaskrokks
vega þeir meira í útflutningi en aðrir
hlutar hans. Ef fyrirtæki flytti ein-
göngu út hrygg og læri léti nærri að
eitt tonn af slíku kjöti jafngilti rúm-
lega tveimur ígildistonnum.
55 krónur eftir fyrir slátrun,
vinnslu og markaðssetningu
Á þessu ári stefnir í að Norðlenska
flytji út um 40 tonn af lambakjöti til
Bandaríkjanna (70 ígildistonn). Í
haust hefur hluti af kjötinu komið frá
Sláturfélagi Suðurlands þar sem ekki
hefur tekist að anna eftirspurn. Að
sögn Sigmundar Ófeigssonar, fram-
kvæmdastjóra Norðlenska, fær fyr-
irtækið að meðaltali um 650 kr/kg
fyrir hvert kíló. Flutningskostnaður
er að meðaltali 120 kr/kg en kjötið er
allt flutt með flugi. Umsýslukostn-
aður, tollur, umboðslaun, skoð-
unargjald og fleira er um 80 kr/kg.
Lauslega reiknað fær Norðlenska því
um 18 milljónir fyrir allt lambakjötið
sem er flutt til Bandaríkjanna, sé
kostnaður dreginn frá. Þá á eftir að
greiða fyrir vinnslu á kjötinu og
bændunum sjálfum. Norðlenska
greiðir bændum að meðaltali 175 kr/
kg fyrir kjöt sem fer til útflutnings en
285 kr/kg fyrir kjöt sem fer á innan-
landsmarkað. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Bændasamtökum Íslands
námu heildarbeingreiðslur til sauð-
fjárbænda árið 2001 tæplega 1,9
milljörðum króna en þeir framleiddu
rúmlega 8.600 tonn af kindakjöti.
Miðað við þetta voru beingreiðslur á
hvert kíló tæplega 220 krónur. Bein-
greiðslur, greiðslur Norðlenska,
flutningskostnaður og annar kostn-
aður sem fellur til í Bandaríkjunum
er samtals 595 krónur. Bandaríkja-
menn greiða eins og fyrr segir 650
krónur fyrir kílóið. Þá eru eftir 55
krónur til að standa undir kostnaði
vegna vinnslu, slátrunar og markaðs-
setningar. Norðlenska hefur engu að
síður hagnast á útflutningi lamba-
kjöts til Bandaríkjanna og segir Sig-
Bandaríkja-
menn borða um
70 tonn af ís-
lensku lamba-
kjöti í haust
Rándýr lúxusvara í kjöt-
borðum Bandaríkjamanna
Í Bandaríkjunum er
íslenskt lambakjöt
selt sem lúxusvara í
dýrustu búðunum.
En þó hvergi sé greitt
betra verð fyrir kjötið
komst Rúnar Pálma-
son að því að mark-
aðurinn er erfiður auk
þess sem ýmis gjöld
og flutningskostnaður
nema háum
fjárhæðum.
Morgunblaðið/RP
Bill Lorraine vill ekki sjá verksmiðjuframleitt kjöt í kjötborðinu sínu. Íslenskt lambakjöt er því velkomið.
Baldvin
Jónsson
Sigmundur
Ófeigsson
Steinþór
Skúlason
UM síðustu helgi voru þrír vel
metnir og vinsælir veitingastaðir í
Washington DC með íslenskt hrá-
efni, lambalæri, bleikju frá
Bleikjubæ við Laugarvatn, skyr
og osta á matseðlinum. Baldvin
Jónsson, verkefnisstjóri Áforms, á
heiðurinn af því að koma íslenska
hráefninu á matseðla veitinga-
staðanna. Yfirkokkarnir á þessum
stöðum voru allir hæstánægðir
með hráefnið og Roberto Donna
ekki síst.
Roberto er stjörnukokkur.
Hann hefur hlotið fjölmargar við-
urkenningar fyrir framúrskar-
andi matargerðarlist og tímaritið
Wine Spectator Magazine út-
nefndi veitingastað hans, Galileo,
sem einn af tíu bestu ítölsku veit-
ingastöðunum í Bandaríkjunum.
Roberto flutti frá Torino í Ítalíu
til Bandaríkjanna fyrir 22 árum
en uppruninn leynir sér ekki í
hreimnum og látbragðinu. Eld-
húsið á Galileo er nánast inni í
borðsalnum og þegar blaðamaður
leit þar í heimsókn var hópur
ungra kvenna að spjalla við Ro-
berto sem ljómaði allur af gleði og
reytti af sér brandara.
Á Galileo var boðið upp á tortel-
ini með íslenskri bleikju í forrétt,
steikt lambalæri í brennivínssósu
í aðalrétt og hinn frægi ítalski eft-
irréttur, tiramisu, var gerður úr
skyri. Auk þess var boðið upp á ís-
lenska osta. Hann sagðist vera bú-
inn að ræða við kjötsala um að út-
vega sér íslenskt lambakjöt til að
hafa á matseðlinum til frambúðar
enda væri yndislegt að elda úr ís-
lensku lambakjöti.„Ég verð mjög
tillfinningaríkur þegar talið berst
að matseld, alveg eins og ég verð
þegar ég umgengst konur. Ég er
nú líka ítalskur,“ segir hann og
hlær.
Íslenskar landbúnaðarafurðir á matseðlum þriggja veiting
Tilfinningaríkur þegar
kemur að matseld
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Stretchbuxur kr. 2.90
Konubux r frá kr. 1.790
ragtir, kjólar,
blús ur og pils.
Ódýr nát fatna
Nýr lífsstíll
Skráðu þig í Broste klúbbinn - bergis.is