Morgunblaðið - 18.10.2002, Page 33
AÐALSKRIFSTOFUR Orku-
stofnunar ríkisins í Stuttgart, skóli
og íþróttahús í Ostfildern, gestahús
kaþólsku kirkjunnar í Hohenheim
og heimavist Salem International
College skólans í Überlingen eru að-
eins brot af þeim fjölda bygginga
sem þýsku arkitektarnir Arno
Lederer og Marc Oei hafa hannað
ásamt hinni íslensku Jórunni Ragn-
arsdóttur. En þessar fjórar bygg-
ingar hafa arktitektarnir þrír, sem
rekið hafa saman stofu í Stuttgart í
Þýskalandi frá 1992 og Jórunn og
Lederer mun lengur eða frá 1985,
valið að beina athyglinni að á sýn-
ingu sinni Úti er ekki inni, inni er
ekki úti sem nú stendur yfir í mið-
rými Kjarvalsstaða.
Á sýningunni bregður byggingun-
um og nánasta umhverfi þeirra fyrir
á ljósmyndum og teikningum, sem
og í formi trélíkana sem m.a. er
komið fyrir í millivegg rýmisins.
Ljósmyndirnar, sem eru á þriðja
hundrað talsins, hanga flestar í þar
til gerðum skyggnukössum merktar
byggingu, stað og hvort um er að
ræða útimynd, innimynd eða teikn-
ingu. Byggingunum fjórum eru
þannig gerð ítarleg skil, þótt öðrum
verkum arkitektanna bregði einnig
fyrir, og geta sýningargestir þannig
virt fyrir sér hönnun þremenning-
anna úti sem inni, í tengslum við
umhverfið, sem og í smæstu smáat-
riðum. Stílhreinum og sterklegum
gluggum skólabyggingarinnar í
Ostfildern, skólastofunum einni af
annarri, útveggjum, dyrum og
heildarmynd bregður þannig fyrir á
skyggnu eftir skyggnu, líkt og göng-
um, múrklæðningu og birtuskilyrð-
um í húsi Orkustofnunarinnar.
Útskýringar á hönnun bygging-
anna í textaformi, sem og skýringar
á byggingarstíl þremenninganna
prýða einnig millivegg rýmisins og
eru þau orð kærkomin viðbót við
myndefnið.
Jórunn, Lederer og Oei hafa
óneitanlega náð að móta sér sinn
eigin stíl sem er einfaldur, stíl-
hreinn og nútímalegur án þess að
þar séu afmáð skil innra og ytra
rýmis líkt og gjarnan vill verða í leit
nútímaarkitektúrs að léttleika og
gagnsæi. Þess í stað eru gegnheilir
múrsteinsveggir, sívalningar, kröft-
ugar súlur og keilulaga loftræsting-
arrör höfð í fyrirrúmi og endur-
speglar efniviðurinn, ásamt
vinnuaðferðum, viðhorf arkitekt-
anna til byggingarlistarinnar. Líkt
og þau sjálf kjósa að lýsa hönnun
sinni þá eru þetta „þungar“ bygg-
ingar og aðskilnaðinum, og jafn-
framt heiti sýningarinnar, þar með
viðhaldið.
Það er óneitanlega glæsileg hönn-
un sem býður sýningargesta Kjar-
valsstaða og ljóst að arkitektarnir
eru vel komnir að þeim fjölda við-
urkenninga og verðlauna sem þeim
hefur hlotnast á síðustu tveimur
áratugum, en þau voru m.a. tilnefnd
til Mies Van Der Rohe verð-
launanna í fyrra fyrir hönnun sína á
skólanum í Ostfildern. Sú uppsetn-
ing sem hér hefur verið valin, en
sýningin hefur áður verið sett upp í
Galerie Aedes í Berlín og Architekt-
urgalerie í München, er þó ekki til
þess gerð að gera byggingarnar að-
gengilegar fyrir sýningargesti. Það
er óneitanlega áhugaverð hugmynd
að taka form sem að öllu jöfnu eru
svo áberandi hluti umhverfis okkar
að ekki verður framhjá þeim horft
og láta gesti þess í stað verða að
bera sig eftir skoðun þeirra –
skyggnu fyrir skyggnu, röð eftir röð
– þótt sú aðferð sé kannski ekki að
sama skapi hentugasta leiðin til að
viðhalda skammvinnri athygli
áhorfandans.
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstaðir
Sýningin er opin daglega frá kl.10-17,
nema miðvikudaga frá kl. 10-19. Henni
lýkur 27. október.
ÚTI ER EKKI INNI, INNI ER EKKI ÚTI
ARNO LEDERER, JÓRUNN RAGN-
ARSDÓTTIR OG MARC OEI
Morgunblaðið/Sverrir
Yfirlitsmynd frá sýningunni Úti er ekki inni, inni er ekki úti á Kjarvalsstöðum.
Anna Sigríður Einarsdóttir
Inni og úti
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 33