Morgunblaðið - 18.10.2002, Page 39
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 39
Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862
10 ÁR Á ÍSLANDI
WISH
Litir: Svart og brúnt - St. 40-47
Verð 8.990
CAESAR
Litir: Svart, brúnt og drapplitað
St. 40-47
Verð 10.990
EVELYN
Litir: Svart, rautt og hvítt
St. 36-41
Verð 8.990
WHAM
Litir: Hvítt/rautt, blátt/grátt og
svart/hvítt - St. 36-41
Verð 7.990
DOLL
Litir: Svart, drapplitað og grátt
- St. 36-41
Verð 8.990
SOLDIER
Litir: Svart, blátt, rautt og hvítt
- St. 36-41
Verð 8.990
SOOZIE
Litur: Svart - St. 36-41
Verð 11.990
Kringlunni - Laugavegi
568 9017 511 1717
533 1727
S K Ó R N I R
K O M N I R
F O O T W E A R
NÝTT KORTATÍMABIL
að þeir aðlagist betur samfélaginu,
einmana fólki eða eldri borgurum,“
segir hún og að í slíku starfi séu gild-
in sem teljast til bræðralagsins í
fullu gildi: virðing fyrir öðrum og
umhyggja, samábyrgð og samkennd.
Afleiðingar afskiptaleysis
„Þátttaka barna og unglinga í
ákvörðunum sem snerta nærsam-
félag þeirra, eins og í skólanum,
reyna ekki síst á gildin sjálfstæði,
frumkvæði og ábyrgðarkennd,“ seg-
ir hún og að hún vilji efla nemenda-
lýðræði til að nemendur hafi meiri
áhrif innan skólans og sveitarfé-
lagins. Það þarf ekki að vera stórmál
að fá nemendum raunveruleg verk-
efni og virkja þá til að taka þátt í
samfélagslegri umræðu, hafa áhrif,
taka ákvarðanir og bera ábyrgð.
„Með því að finna að þeir hafa
rödd og tilheyra samfélaginu finna
þeir til meiri hollustu, samkenndar
og samábyrgðar,“ segir hún og að
sýnt hafi verið fram á að börn sem
alast upp við pólitískan andblæ og
eru virk í pólitík á unglingsárum, láti
fremur að sér kveða í þjóðfélagsum-
ræðunni síðar. „Við þurfum að vekja
áhuga ungmenna á borgaralegum
skyldum sínum,“ segir hún. „Á þann
hátt ræktum við með þeim pólitískt
læsi og umburðarlyndi sem gjarnan
er nefnt prófsteinn lýðræðisins.
Þannig varðveittum við lýðræðið.“
Þörfin á þessu er vissulega fyrir
hendi, en nefna má að um miðjan síð-
asta áratug sögðu aðeins tæp 5% 18–
25 ára íslenskra ungmenna stjórn-
mál vera mjög mikilvæg (Friðrik H.
Jónsson. 1996. Lífsskoðun á Íslandi).
Einnig hefur því verið slegið fram að
lýðræðinu sé ógnað vegna slakrar
þátttöku fólks í pólitískri umræðu og
kosningum; lýðræðinu muni hnigna
vegna „afskiptaleysis“ og „næring-
arskorts“. Vert er að minna á skjálft-
ann sem gengi Le Pen í frönsku for-
setakosningunum olli í vor; það var
m.a. skrifað á sofandahátt hins al-
menna kjósanda þar. Le Pen varð
annar í fyrri umferð frönsku forseta-
kosninganna, á eftir Jacques Chirac.
Víða má því sjá áhyggjur af lýðræð-
ishugsjóninni og lífsgildum fólks.
Hvert er hlutverk kennara í því að
varðveita lýðræðið?
Verkefnið að varðveita lýðræðið
er því ósegjanlega mikilvægt. Ljóst
er að gerðar eru miklar kröfur til
skólans um að vinna með gildi og
hvað það þýði að vera borgari í lýð-
ræðislegu þjóðfélagi. „Þessi krafa er
mikil áskorun fyrir kennara,“ segir
Sigrún, „kennarar gegna lykilhlut-
verki í skólanum við að efla siðferð-
iskennd nemenda og samskipta-
hæfni og örva þannig borgaravitund
þeirra.“ Kennarar þurfa því mikinn
stuðning í slíku starfi.
Hlutur kennara stór
Hún segir að ekki sé nóg að nefna
þetta í námskrám heldur þurfi póli-
tískur vilji einnig að vera fyrir hendi
til að styðja við og styrkja daglegt
skólastarf í þessu efni til að tekist
verði á við það af alvöru og svo ár-
angur náist. „Ég fullyrði að uppal-
endum, kennurum jafnt sem öðrum,
þyki mikilvægt að vinna markvisst
að því að efla vitund barna og ung-
linga um gildi í lýðræðislegu sam-
félagi,“ segir hún en mörgum kenn-
urum finnist þeir þó vanmegnugir
við að taka slík viðfangsefni fyrir.
„Það er hreint ekki létt verk að stýra
opnum umræðum um viðkvæm efni í
bekkjarstarfinu, um fordóma, erfið-
leika í samskiptum, einelti, sam-
skipti kynjanna, fjölmenningu, sið-
ferðileg mál, og um lýðræði.“
Hún segir að það stuðningskerfi
sem kennarar þurfi til þessa t.d. í
formi símenntunar, krefjist tíma,
orku og peninga. „Brennandi spurn-
ing er hvort nægur pólitískur áhugi,
skilningur og vilji sé fyrir hendi til að
styðja við svo krefjandi samstarf
kennara, skólastjórnenda og ráð-
gjafa. Það er sannfæring mín að
markviss kennsla um gildi í lýðræð-
islegu samfélagi sé undir því komin.“
Sigrún segir að lokum að miklu
skipti að allir leggist á árarnar hver
með öðrum í þeim róðri að rækta
með börnum og unglingum mann-
gildi lýðræðislegs þjóðfélags. Þannig
ætti lýðræðinu að vera borgið. Verk-
efnið sé í eðli sínu eilíft og þurfi að
vera það; með orðum þýska guð-
fræðingsins Niebuhr: „Það sem er
þess virði að vinna að verður ekki
framkvæmt á æviskeiði einnar
manneskju.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðstefnuna um lýðræði í skólum sótti margt skólafólk af öllum skólastigum. Einnig kynntu nokkrir skólar nýleg verkefni sín sem tengjast þessu efni.
SIGRÚN Aðalbjarnardóttir varð doktor í þroskasálfræði
frá Harvard University árið 1988. Hún fékk masters-
gráðu í þroskasálfræði frá sama skóla árið 1984. BA-
gráðu hlaut hún í uppeldisfræði frá félagsvísindadeild
Háskóla Íslands árið 1983. Stúdentspróf frá Kenn-
araskóla Íslands 1970 og kennarapróf frá sama skóla ár-
ið 1969.
Sigrún var kennari á grunnskólastigi við Breiðholts-
skóla í Reykjavík árin 1970–1976 og við Hamarsskóla í
Vestmannaeyjum 1976–1977. Hún hefur verið prófessor
í uppeldis- og menntunarfræði við félagsvísindadeild
Háskóla Íslands frá árinu 1994.
Rannsóknir hennar beinast að þroska barna og unglinga eða þroskasál-
fræði, áhættuhegðun ungs fólks, fagvitund kennara og kennsluaðferðum
og námsefnisgerð. Hún hefur haldið fjöldamörg námskeið fyrir kennara og
ritað margar greinar í innlend og erlend fagtímarit. Sjá nánar: http://
www.hi.is/~sa/
Nám og störf Sigrúnar
Sigrún
Aðalbjarnardóttir
NÆSTI umsóknarfrestur í Leon-
ardó, bæði vegna tilraunaverk-
efna og mannaskipta, er til 4.
nóvember
2002.
Nú eru eru
í gildi ný for-
gangsatriði
varðandi tilraunaverkefni,
tungumálaverkefni og gagna-
söfn. Þau eru 1. Að meta nám að
verðleikum. 2. Nýjar aðferðir við
nám og kennslu 3. Náms- og
starfsráðgjöf.
Nánari útskýringar á for-
gangsatriðum og umsóknargögn
er að finna á heimasíðu Leon-
ardó; http://www.rthj.hi.is/
page/leonardo. MENNT, sam-
starfsvettvangur atvinnulífs og
skóla, aðstoðar umsækjendur í
umsóknarferlinu. Sími 5112660,
tölvupóstur: alla@mennt.is.
Heimasíða: http://
www.mennt.net. Upplýsingar
veita einnig Hildur Svavarsdóttir
og Þórdís Eiríksdóttir hjá Lands-
skrifstofu Leonardó í síma
5254900.
Menntaáætlun ESB
SÓKRATES/Grundtvig – Endur-
menntun og fullorðinsfræðsla.
Samstarfsverkefni a.m.k.
þriggja stofnana frá ESB/EES-
löndum þar sem unnið er að þró-
un námsgagna eða námskeiða í
fullorð-
insfræðslu
og endur-
menntun.
SÓKRAT-
ES/Mínerva – Ný tækni í þágu
menntunar. Samstarfsverkefni
a.m.k. þriggja stofnana frá ESB/
EES-löndum í þróunarverk-
efnum fyrir nýja tækni. Þátttak-
endur geta verið menntastofn-
anir, tölvufyrirtæki og þeir sem
sinna tækni á sviði menntunar.
SÓKRATES/Lingua – tungu-
málanám og -kennsla.
Samstarfsverkefni a.m.k.
þriggja stofnana frá ESB/EES-
löndum til eflingar tungumála-
náms og -kennslu. Verkefni geta
t.d. snúið að þróun námsefnis.
Þátttakendur geta verið mennta-
stofnanir, tungumálakennarar,
námsgagnastofnun, fjölmiðlar,
útgefendur o.fl. Umsóknar-
frestur rennur út 1. nóvember
2002. Nánari upplýsingar veita
Óskar E. Óskarsson, oeo@hi.is,
og Ragnhildur Zoëga, rz@hi.is,
hjá Landsskrifstofu Sókratesar/
Alþjóðaskrifstofu háskólastigs-
ins.
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál