Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ottó,
Koei Maru no 18, Ryoan
Maru no 8 og Guð-
mundur Ólafur koma í
dag. Hanseduo og Mána-
foss fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. „Heilsum
vetri“ kl. 14 hátíð-
arbingó, einsöngur Geir
Jón Þórisson. Harm-
onikkuleikarar leika fyr-
ir dansi, góðar kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofan, kl. 10–16
púttvöllurinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, á Kjalarnesi og í
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtud.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos. Laug-
ard.: kl. 10–12 bókband,
línudans kl. 11. Nám-
skeið í postulínsmálun
byrjar 18. nóv. Skrán-
ingar í s. 586 8014 e.h.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Námskeið í
skyndihjálp fyrir eldri
borgara í 2 daga 18. og
21. okt. og seinna nám-
skeiðið 25. og 28. okt.
Skráning í s. 820 8571 kl.
14–15 virka daga.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið Furugerði
1. Kl. 9 smíðar, út-
skurður og aðstoð við
böðun, kl. 10 leikfimi, kl.
14 messa, prestur sr.
Ólafur Jóhannsson,
Furugerðiskórinn syng-
ur undir stjórn Ingunnar
Guðmundsdóttur. Kaffi-
veitingar eftir messu.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist, kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi eftir gönguna,
allir velkomnir, kl. 14
brids og önnur spila-
mennska, hárgreiðslu-
stofan opin kl. 9–14. Af-
mælisfagnaður í tilefni af
10 ára opnunarafmæli
félagsmiðstöðvarinnar,
kvöldverður, skemmti-
atriði og fluttur annáll
stöðvarinnar í léttum
dúr, dansað, Hljómsveit
Hjördísar Geirs, allir
velkomnir. Mál-
verkasýningu Gerðar
Sigfúsdóttur lýkur í
næstu viku.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13. „Opið
hús“ spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Námskeið í
skyndihjálp fyrir eldri
borgara í 2 daga, 18. og
21. október, og seinna
námskeiðið 25. og 28.
október. Skráning í s.
820 8571 kl. 14–15 virka
daga.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30. Fé-
lagar úr Akranesfélag-
inu koma í heimsókn í
Lionshúsið, Auðbrekku
25–27 laugard. 26. okt.
Kvöldverður og
skemmtiatriði. Veislu-
stjóri sr. Gunnar Sig-
urjónsson, Ásgeir Jó-
hannesson segir frá,
Vinabandið, Happ-
drætti, dans o.fl. Húsið
opnað kl. 19.
Þátttakendur skrái sig
sem fyrst á þátttökulista
sem eru í félagsheimil-
unum.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 13, brids kl.
13.30 og púttað á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Dans-
leikur í kvöld, föstud. 18.
okt., kl. 20.30 Caprí tríó
leikur fyrir dansi. Á
morgun morgungangan
kl. 10 frá Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Glæsibæ. Kaffistofan er
lokuð vegna breytinga í
Glæsibæ. Föstud.: Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Skemmtun í Ásgarði,
Glæsibæ, föstud. 18. okt.
kl. 20. Söngfélag FEB
syngur nokkur lög og
hljómsveitin Skjern
Salonorkester leikur
fyrir dansi. Heilsa og
hamingja í Ásgarði laug-
ard. 26. okt. kl. 13. Er-
indi flytja: Tómas
Helgason, skýrir frá
rannsókn sinni um sam-
band heilsu og lífsgæða
á efri árum og Júlíus
Björnsson sálfræðingur
um svefnþörf og svefn-
truflanir aldraðs fólks.
Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikud. kl.
10–12. Skrifstofa félags-
ins er flutt að Faxafeni
12 s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9–16.30 vinnust opn-
ar m.a. kortagerð, serví-
ettumyndir o.fl. kl. 9.30
sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug, kl. 10
boccia, frá hádegi spila-
salur opinn kl. 13 bók-
band, kl. 14 kóræfing.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9. 15 ramma-
vefnaður, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlistahópur,
kl. 14–15 Gleðigjafarnir
syngja.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 14 spilað
bingó, Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 mæðra-
morgunn. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og fös-
tud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17, hár-
greiðsla kl. 10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
14.30 handavinna, kl. 10–
11 kántrídans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14.30–16
dansað, kl. 14–15 fé-
lagsráðgjafi á staðnum,
Nýtt jóganámskeið byrj-
ar mánud. 21. okt. kl.
10.30–11.30, einnig er
kennt á miðvikud. á
sama tíma. Opið hús
föstud. 25. okt. Dag-
skráin kynnt kl. 14.30,
frá kl. 13 verður hand-
verkssala. Þriðjud. 19.
nóv. kemur hjúkr-
unarfræðingur og mælir
beinþéttni. Lyfjafræð-
ingur fer yfir lyfjanotk-
un. Fræðsla um lyf, vít-
amín, steinefni og fleira.
Panta þarf tíma.
Kennsla í þrívídd-
armyndum á miðvikud.
kl. 9.15–12 skráning haf-
in. Kennsla í postulíns-
málun byrjar þriðjud. 22.
október.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugard.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105,
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
og fimmtud.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud.
kl.13–15 á Loftinu í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5.
Hússtjórnarkenn-
arafélag Íslands. Aðal-
fundurinn verður hald-
inn í Hússtjórnarskóla
Reykjavíkur laugard. 19.
okt. kl. 10.
Í dag er föstudagur 18. október,
291. dagur ársins 2002. Lúkasmessa.
Orð dagsins: Þú hefur frá blautu
barnsbeini þekkt heilagar ritningar.
Þær geta veitt þér speki til sálu-
hjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.
(2. Tím. 3, 15.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI fékk bréf frá íbúa íÞingholtunum, þar sem segir
m.a.: „Ég nýt þeirrar gæfu að búa í
miðbæ Reykjavíkur á svæði 101 og
hef gert það síðastliðinn áratug. Ólíkt
mörgum öðrum á ég hins vegar bíl og
þarf því að þola endalaust eftirlit
Bílastæðasjóðs Reykjavíkur með því
hvort bíl mínum sé lagt rétt. Vegna
þess að gatan mín hefur fá bílastæði
hef ég þurft að greiða óheyrilegar
fjárhæðir í sektir fyrir það eitt að búa
á Bergstaðastræti, þar sem eftirlit
Bílastæðasjóðs er einstakt. Það sem
er sérstakt er að í næsta nágrenni við
mig er leikskóli og foreldrar barna
sem þar dvelja hafa frjálst leyfi til að
leggja hvar sem þeir vilja! Ítrekaðar
áskoranir mínar um að hafa sama eft-
irlit á öllum tímum hafa engan árang-
ur borið.“ Þetta þykir bréfritara súrt í
broti og spyr af hverju ekki sé eitt lát-
ið yfir alla ganga.
x x x
ÞAÐ vill svo til að Víkverji dagsinsbjó einu sinni á sömu slóðum og
bréfritari og kannast við vandamálið.
Eftirlit Bílastæðasjóðs með þeim,
sem eiga erindi í Þingholtin, íbúum
jafnt sem gestum, er yfirleitt eins og
þéttriðið síldarnet sem enginn slepp-
ur í gegnum. Víkverji þurfti stundum
að skjótast heim á miðjum degi, en þá
eru öll lögleg bílastæði í Þingholtun-
um alla jafna upptekin af bifreiðum
nemenda í Menntaskólanum og
Kvennaskólanum, starfsfólks fyrir-
tækja og stofnana í Miðbænum og
fólks, sem er í bænum að verzla. Þá
varð oft þrautalendingin að leggja
bílnum uppi á gangstétt fyrir framan
húsdyrnar á meðan hlaupið var inn til
að sækja barnið, ná í bók sem hafði
gleymzt um morguninn, bera inn inn-
kaupapoka o.s.frv. Yfirleitt tók þetta
ekki nema fimm mínútur, en oftar en
ekki var kominn sektarmiði á rúðuna
þegar Víkverji kom út aftur.
Víkverji reyndi ýmislegt, eins og að
skilja bílinn eftir í gangi, hafa bíldyrn-
ar opnar, skrifa miða til stöðuvarða –
en allt kom fyrir ekki. Beiðnum til
Bílastæðasjóðs um niðurfellingu
sekta með vísan til þessara aðstæðna
var yfirleitt svarað með skætingi.
Skiljanlega varð Víkverji þá líka hissa
þegar hann sá að bílaþvagan við leik-
skólana í hverfinu kvölds og morgna
var látin fullkomlega óáreitt, sem er
einkennilegt stílbrot í árásar- og óbil-
gjarnri stefnu Bílastæðasjóðs.
x x x
EINU sinni kom Víkverji heim áÞorláksmessukvöldi og þá var
búið að leggja bílum í öll lögleg bíla-
stæði í hverfinu – og líka nokkurn
veginn öll ólögleg stæði uppi á gang-
stéttinni framan við hús Víkverja.
Ekki fengu eigendur þeirra bifreiða
sektarmiða, enda er óneitanlega dá-
lítið óvenjulegt ástand í bænum þetta
kvöld og líklegt að efnt yrði til fjölda-
mótmæla ef Bílastæðasjóður sektaði
alla, sem ekki legðu nákvæmlega eftir
bókinni á þessu mesta verzlunar-
kvöldi ársins. Víkverji fann sér þó dá-
litla smugu til að leggja á gang-
stéttinni framan við hús sitt og þegar
hann kom út morguninn eftir – að-
fangadagsmorgun – var stöðuvörður í
jólaskapi nýbúinn að skella sektar-
miða á bílinn.
Það virðist stundum einhver tví-
skinnungur í þeim málflutningi borg-
aryfirvalda að þau vilji hvetja fólk til
að búa í Miðbænum, því að ofsóknir
Bílastæðasjóðs gagnvart íbúum þar
virðast engan enda ætla að taka.
Til Flugleiða hf.
ÉG VIL kvarta formlega
yfir því að það sé ekki
hægt að kaupa flugmiða
aðra leiðina frá Íslandi
nema greiða fyrir það ok-
urverð í formi Saga
Class-miða.
Þær útskýringar, sem
ég fékk á söluskrifstofu
Flugleiða í Kringlunni,
voru þær að þetta væru
alþjóðlegar reglur. Þegar
ég minntist svo á, að ég
hefði einu sinni keypt
miða aðra leiðina með Go
reyndi þess góða kona á
söluskrifstofunni að út-
skýra fyrir mér að Go
væri ekki alþjóðlegt flug-
félag, heldur lágfargjalda-
flugfélag. Annað eins bull
og þvílíka vitleysu hef ég
sjaldan á ævinni heyrt.
Þetta eru engar alþjóð-
legar reglur, heldur léleg
afsökun Flugleiða.
Það er greinilegt að
Flugleiðir í þessu tilviki,
sem og svo mörgum öðr-
um, er að nýta sér einok-
unaraðstöðu sína til að
halda uppi okurverði á
flugmiðum á Íslandi.
Arnar Dagsson,
Keilusíðu 8b,
603 Akureyri.
Hærri laun til
reyklausra
ÞAÐ er fyllilega rétt að
borga þeim sem ekki
reykja hærri laun, því það
er auðvelt að reikna sam-
an þann tíma sem fer í
reykingar, fyrir utan
áhættu þeim tengda. Það
er vandfundið heimsku-
legra athæfi en að byrja
að reykja, því þar er allt í
mínus, enginn plús.
Björn Indriðason.
Tapað/fundið
Hlaupahjól og
hjálmur töpuðust
5 ÁRA dóttir mín tapaði
hlaupahjólinu sínu og
hjálmi í Lindahverfinu í
Kópavogi fyrir u.þ.b.
tveimur vikum og er mjög
leið yfir missinum.
Hlaupahjólið er af
gerðinni JD BUG með
grænum dekkjum og
grænum handföngum.
Hjálmurinn er rauður
að lit með gulum ólum og
gulu innra byrði. Ef ein-
hver hefur orðið þessara
hluta var vinsamlega haf-
ið samband við Áshildi í s.
568 7859 eða 862 9680.
Leðurtaska tapaðist
LJÓSBRÚN leðurtaska
tapaðist í miðbæ Reykja-
víkur aðfaranótt sunnu-
dagsins 13. október sl.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi í síma 898-
9694.
Sérsmíðað gull-
hálsmen tapaðist
SÉRSMÍÐAÐ gullháls-
men, sem er svipað og
lauf í laginu með litlum
demanti greyptum neðst í
menið, tapaðist fyrir um
það bil hálfum mánuði.
Hálsmenið er eigandanum
afar kært. Vinsamlegast
hafið samband í síma 564-
2149.
Dýrahald
Kisur vantar heimili
ÖNNUR er afskaplega
góð, gráleit og græneygð
fjögurra ára læða og hin
er grábröndóttur þriggja
mánaða högni. Þau þurfa
gott heimili sökum flutn-
ings. Vinsamlega hafið
samband í síma 567-2694.
Hefur einhver séð
Matthildi?
LÆÐAN Matthildur
hvarf frá heimili sínu á
Langholtsvegi 40 mið-
vikudagsmorguninn 16.
október sl. og er hennar
sárt saknað. Hún er hvít
með gráa flekki á baki og
með dökkt, þverröndótt
skott. Ef þið verðið vör
við kisu vinsamlega látið
vita í Kattholti eða í síma
864-1391.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Á DÖGUNUM var fyr-
irspurn í Velvakanda
um hvernig stæði á
mismun á verði far-
miða í strætó fyrir
aldraða og öryrkja.
Því er til að svara að
gjaldskrá Strætó bs. er
ákvörðuð af stjórn
byggðasamlagsins,
sem á sínum tíma
ákvað að hafa meiri
niðurgreiðslu til ör-
yrkja en aldraðra. Að
öðru leyti kom ekki
fram frekari rökstuðn-
ingur fyrir þeirri
ákvörðun.
Bestu kveðjur frá
Strætó bs,
Ásgeir Eiríksson
framkvæmdastjóri.
Svar Strætó bs.
vegna fyrirspurnar
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
: 1 halda í skefjum, 4 full-
tingi, 7 girnd, 8 kvæði, 9
hef gagn af, 11 einkenni,
13 hlífa, 14 gestagangur,
15 lof, 17 dreitill, 20
stefna, 22 mergð, 23 gjaf-
mild, 24 veiða, 25 tígris-
dýr.
LÓÐRÉTT:
1 vígja, 2 guðshús, 3
lengdareining, 4 til sölu,
5 birtu, 6 líkamshlutann,
10 jöfnum höndum, 12
tíni, 13 bókstafur, 15
kona, 16 hamslaus, 18
sterk, 19 hljóðfæri, 20
huldumanna, 21 gangur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 kotroskin, 8 fólks, 9 ylinn, 10 ker, 11 tafla, 13
asnar, 15 summu, 18 úlpan, 21 nær, 22 kýrin, 23 askan,
24 griðastað.
Lóðrétt: 2 orlof, 3 röska, 4 seyra, 5 iðinn, 6 eflt, 7 gnýr,
12 lóm, 14 sæl, 15 sókn, 16 mærir, 17 unnið, 18 úrans, 19
pakka, 20 nánd.