Morgunblaðið - 02.11.2002, Qupperneq 2
Stöðluð Evrópusnudda
Settur hefur verið nýr Evrópu-
staðall fyrir snuð til að tryggja ör-
yggi og gæði, draga úr hættu á köfn-
un og koma í veg fyrir að skaðleg
efni berist í snuddunotendur. [36]
„Festist snuð í munni er fólki
ráðlagt að halda ró sinni og losa
það varlega þar sem ógerningur
sé að gleypa það í heilu lagi.“
Í dag
Sigmund 8 Minningar 42/47
Viðskipti 18/20 Hestar 48
Erlent 22/24 Kirkjustarf 50/52
Höfuðborgin 28 Úr Vesturheimi 60
Akureyri 29 Staksteinar 62
Suðurnes 30 Myndasögur 64
Árborg 32 Bréf 64/65
Landið 33 Dagbók 66/67
Listir 34/35 Leikhús 68
Neytendur 36 Fólk 68/73
Heilsa 37 Bíó 70/73
Forystugrein 38 Ljósvakamiðlar 74
Viðhorf 42 Veður 75
* * *
002 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
TONY PULIS RÁÐINN KNATTSPYRNUSTJÓRI STOKE CITY / B4
GEIR Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knatt-
spyrnusambands Íslands, er bjartsýnn á að KSÍ
sleppi við sektargreiðslu frá aganefnd evr-
ópska knattspyrnusambandsins, UEFA, en
mótareglur voru brotnar á landsleik Íslendinga
og Skota í undankeppni EM sem fram fór á
Laugardalsvelli í síðasta mánuði. Töluverður
hópur stuðningsmanna skoska landsliðsins var
ekki í sætum eins og skylda er heldur stóð
hann í stæðum sitt hvorum megin við stúk-
urnar og þurfti lögreglan að hafa afskipti af
þeim. „Það hefur ekkert mál verið gert út á
KSÍ vegna þessa atviks og ég held að við slepp
um við sekt úr þessu. Ég hef rætt við menn frá
UEFA sem hafa með þessi mál að gera og þeir
skilja aðstöðuleysi okkar og að við munum
gera úrbætur,“ sagði Geir Þorsteinsson.
Líklegt að KSÍ
sleppi við sekt
ÓPUR fjárfesta í Nor-
i bauð í gær eina
rska krónu í öll
utabréf knatt-
yrnuliðsins Brann,
a rúmlega 10 ísk. kr.
Hluthafarnir fengu
boð um að skuldir fé-
gsins yrðu yfirteknar
þær nema rúmlega
0 millj. ísl. kr. Í frétt
ergens Tidende segir
þeir sem standi að
boðinu ætli að skipa
ja stjórn gangi hlut-
afar að kauptilboði
irra. Teitur Þórð-
son er þjálfari liðsins,
m leikur í dag fyrri
kinn gegn Sande-
ord um hvort liðið fær
vera í hópi þeirra
stu.
Brann selt
á tíkall?
Morgunblaðið/Árni Sæbe
Þessar glæsilegu stúlkur úr Björk í Hafnarfirði tryggðu sér í gær rétt til að keppa í 8-liða úrslitum í Evrópukeppni félagsliða í hópfimleikum
sem fara fram í Charlos í Frakklandi í dag. Stjarnan úr Garðabæ komst ekki í úrslit, en 59 lið frá sautján þjóðum hófu keppni. Sjá nánar á B
ÞÓTT Ólafur Stefánsson hafi ekki látið m
ið að sér kveða við markaskorun á heims
armótinu hefur hann átt þátt í mörg
mörkum íslenska liðsins á heimsbi
mótinu. Ólafur er í öðru sæti yfir þá l
menn sem átt hafa flestar stoðsendin
Ólafur er með 12 stoðsendingar sem g
hafa mörk.
Efstur er leikstjórnandi Rússa, Igor L
ov, með 14. Í þriðja og fjórða sæti eru N
eljko Jovanovic, Júgóslavíu, og Da
Stephan, Þýskalandi, með 11 stoðsendin
hvor. Patrekur Jóhannesson er síða
fimmta sæti með 10 stoðsendingar í le
unum þremur. Sigurður Bjarnason ke
næstur á eftir þeim Ólafi og Patreki me
stoðsendingar.
Stoðsend-
ingar Ólafs
sér kveða við markaskorun á heims-
bikarmótinu. Hann hefur aðeins
skorað 8 mörk í 22 skotum. Athygli
vekur að Ólafur hefur aðeins skorað
eitt mark úr vítakasti úr fimm til-
raunum.
Greinilegt er þegar tölfræði
heimsbikarmótsins er skoðuð að
mikið hefur mætt á Patreki Jóhann-
essyni í leikjum íslenska liðsins. Þeg-
ar mörk Patreks og stoðsendingar
hans sem leitt hafa til marka, eru
lagðar saman kemur í ljós að Patrek-
ur hefur átt þátt í 11 mörkum að jafn-
aði í hverri viðureign.
Markahæsti maður mótsins erEgyptinn Zaki Hussein, hann
hefur gert 27 mörk í þremur leikjum.
Næstur er Rússinn Alexander
Tútsjkín með 25 mörk. Næstur á eft-
ir Patreki kemur Daninn Lars
Christiansen með 18 mörk og því
næst er það Þjóðverjinn Christian
Zeitz með 17 mörk. Einar Örn Jóns-
son hefur skorað næstflest mörk ís-
lenska liðsins á mótinu, alls 15. Hann
er áttundi markahæsti maður móts-
ins.
Ólafur Stefánsson, markahæsti
leikmaður Evrópukeppninnar fyrr á
þessu ári, hefur ekki látið mikið að
Patrekur leikur
stórt hlutverk
PATREKUR Jóhannesson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknatt-
leik, leikur stórt hlutverk með liðinu á heimsbikarmótinu í Svíþjóð.
Hann er í fjórða sæti yfir markahæstu menn í heimsbikarkeppninni í
handknattleik – hefur skoraði 21 mark, reyndar eins og Rússinn
Alexei Rastvortsev, en skotnýting Rússans er betri og því er hann í
þriðja sæti.
OSTON Celtic, sem er
gursælasta lið NBA-
ildarinnar, beið sinn
ærsta ósigur frá upp-
afi í fyrrakvöld gegn
ashington Wizards,
r sem liðið tapaði
eð 45 stiga
un,114:69. Celtic á að
ki glæsilegan feril
m spannar alls 56 ár
fram að leiknum
gn Wizards hafði
ænklædda liðið tapað
est með 44 stiga mun
janúar árið 1977,
gn Portland 128:84.
Stærsta
ap Boston
NATTSPYRNULIÐ
á eyríkinu Madagask-
er ekki vel þekkt á
imsvísu en nafn fé-
gsliðsins Stade
ympique l’Emyrne er
ú skráð á spjöld sög-
nnar eftir að leikmenn
sins gerðu sér lítið
rir og skoruðu 149
álfsmörk í einum og
ma leiknum. Þjálfari
sins gaf leikmönnum
num skipun um að
ora í eigið mark eftir
honum hafði mis-
kað ákvörðun dóm-
ans í upphafi leiks.
eikmenn liðsins
ýddu þjálfara sínum í
nu og öllu.
149 sjálfs-
mörk
L a u g a r d a g u r
2.
n ó v e m b e r ˜ 2 0 0 2
12.000 TONNA KVÓTI
Með kaupum ÚA á brezku útgerð-
arfyrirtæki hafa íslenzk fyrirtæki
eignazt um 60% þorskveiðiheimilda
Breta í Barentshafi. Samtals ráða ís-
lenzk fyrirtæki nú um 12.000 tonna
kvóta í Barentshafi og er verðmæti
aflans á þriðja milljarð króna. [1, 12]
29 fórust á Ítalíu
Íbúar San Giuliano de Puglia á
Suður-Ítalíu voru skelfingu lostnir
er nýir jarðskjálftar riðu yfir í gær.
29 manns, flest börn, fórust í skjálft-
anum á fimmtudag. [1, 22]
Delta á Bandaríkjamarkað
Lyfjafyrirtækið Delta hefur gert
samning um þróun samheitalyfja
fyrir Bandaríkjamarkað, stærsta
lyfjamarkað í heimi. Fyrirtækið ger-
ir sér vonir um talsverðar framtíð-
artekjur. [76]
Úttekt vegna svikamálsins
Fasteignasalinn í Kópavogi sem
hefur játað að hafa haft fé af við-
skiptavinum sínum kann að hafa
stundað þá iðju allt fram í síðustu
viku. Íbúðalánasjóður hefur beðið
Ríkisendurskoðun um úttekt vegna
mistaka, sem sjóðurinn virðist hafa
gert við afgreiðslu fasteignaveð-
bréfa til mannsins. [4]
Söluhagnaður vegur þungt
Söluhagnaður vegna Frjálsa fjár-
festingarbankans er stærstur hluti
hagnaðar Kaupþings á árinu. Arð-
semi fyrirtækisins er 33% með sölu-
hagnaðinum en 14% án hans. [18]
LÍÚ skiptir um skoðun
Aðalfundur LÍÚ ályktaði í gær að
fella skyldi niður auðlindagjald á
sjávarútveginn. Í fyrra féllst aðal-
fundur samtakanna á hóflegt auð-
lindagjald að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Útvegsmenn segja nú að
þau skilyrði hafi ekki verið uppfyllt.
[20]
Y f i r l i t
MAGNÚS Þorsteinsson hefur ásamt
hópi fjárfesta keypt um 50% hlut í
Flugfélaginu Atlanta. Hefur hópur-
inn keypt hlut Búnaðarbanka Ís-
lands, sem var 22,73%, auk þess sem
hann leggur viðbótarhlutafé í fyrir-
tækið. Arngrímur Jóhannsson,
stjórnarformaður Atlanta, segir
þetta styrkja félagið og gefa mögu-
leika til frekari stækkunar. Ekki
fengust upplýsingar um hversu stór
hlutur Magnúsar verður en í frétt frá
félaginu segir að hann verði um það
bil helmingur á móti hlut Arngríms
Jóhannssonar og Þóru Guðmunds-
dóttur sem átt hafa meirihlutann.
Magnús tekur sæti Guðmundar
Inga Haukssonar, fulltrúa Búnaðar-
bankans, í stjórn félagsins en Arn-
grímur Jóhannsson og Þóra Guð-
mundsdóttir sitja áfram í stjórninni.
Engin breyting verður á fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins og Haf-
þór Hafsteinsson er áfram forstjóri.
Hópurinn sem Magnús fer fyrir
heitir Pilot Investors Ltd. og er fyr-
irtækið skráð í Lúxemborg. „Ég fer
fyrir hópi fjárfesta sem hefur það
markmið að fjárfesta í góðum fé-
lögum og þetta er með betri kostum í
þeim efnum,“ segir Magnús í samtali
við Morgunblaðið og kveðst ekki
vilja gefa upp nöfn þeirra sem með
honum standa. Þá eru allar tölur
samninganna trúnaðarmál og verður
ekki gefið upp hversu mikil hluta-
fjáraukningin er. „Atlanta er góður
kostur og gott og vel rekið fyrirtæki,
því er vel stjórnað og þar er gott
starfsfólk. Það er í alþjóðlegum
rekstri og fellur að því sem ég hef
hug til að gera,“ segir Magnús en
hann kveðst hafa áhuga á flugi og er
með einkaflugmannspróf. Magnús
hefur starfað að viðskiptum erlendis,
einkum í Rússlandi. Hann segir flug-
áhugann þó ekki vera ástæðu þess-
ara kaupa heldur fjárfestinguna.
Styrkir fyrirtækið
Arngrímur Jóhannsson segir að
leiðir þeirra Magnúsar hafi legið
saman gegnum flugið og kveðst hann
mjög ánægður með hinn nýja með-
eiganda og hafi þeir þekkst lengi.
„Félagið hefur vaxið mjög hratt, um
18% á ári síðustu árin, og við þurft-
um að styrkja innviðina,“ segir Arn-
grímur og að ætlunin sé að nýta nýtt
hlutafé til að losa um skuldbindingar
og skoða möguleika á frekari útrás
og stækkun fyrirtækisins. Þeir fé-
lagar voru þó ófáanlegir til að ræða
það frekar, sögðu það verða að koma
í ljós. Búnaðarbankinn keypti hlut í
fyrirtækinu fyrir um tveimur árum
og í janúar 2001 sagði Arngrímur Jó-
hannsson að unnið væri að því að
skrá Atlanta á markað. Af því varð
ekki og við kaupin í gær sagði Arn-
grímur að enn væri í ráði að skrá fé-
lagið á markað innan 18 mánaða.
Selur í óskráðum fyrirtækjum
Búnaðarbanki Íslands, sem sá um
samningagerðina, eignaðist hlut sinn
í félaginu fyrir um tveimur árum og
segir Árni Tómasson bankastjóri
það hafa verið stefnu bankans und-
anfarið að selja hluti sína í óskráðum
fyrirtækjum. Hann segir bankann
hafa verið langt kominn með að selja
hlutinn í Atlanta fyrir ári og fundur
með erlendum fjárfestum hafi verið
ákveðinn 14. september. Hann hafi
verið blásinn af eftir 11. september.
Magnús Þorsteinsson kaupir helmingshlut í Atlanta og eykur hlutaféð
Gefur möguleika á útrás
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þóra Guðmundsdóttir og Arngrímur Jóhannsson fagna Magnúsi Þorsteins-
syni sem nýjum meðeiganda sínum í Atlanta eftir undirritun samninga.
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Kynningar - Blaðinu í dag fylgir af-
mælisrit skátahreyfingarinnar í tilefni
af 90 ára afmæli. Blaðinu er dreift
um allt land.
ARNGRÍMUR Jóhannsson og
Þóra Guðmundsdóttir stofnuðu
Flugfélagið Atlanta árið 1986.
Aðalstöðvar þess eru í Mos-
fellsbæ. Félagið rekur breiðþotur
til farþega- og fraktflugs sem
leigðar eru öðrum flugfélögum.
Fyrirtækið er nú með 21 þotu í
rekstri, flestar af gerðinni
Boeing 747 en einnig nokkrar
B767 þotur og eru þotur félags-
ins skráðar á Íslandi. Nokkrar
þeirra bera nöfn íslenskra frum-
herja í flugsögu landsins. Þot-
urnar eru m.a. í verkefnum í
Argentínu, Dóminíska lýðveldinu,
Frakklandi, Írlandi, Nígeríu,
Spáni og Englandi.
Starfsmenn fyrirtækisins eru
hátt í 600 í dag. Í aðalstöðvunum
starfa um 130 manns, flugmenn
og flugvélstjórar eru 265 og
tæknimenn um 200. Til viðbótar
eru flugfreyjur og flugþjónar,
stöðvarstjórar á starfsstöðvum fé-
lagsins víða um heim og fleiri.
Þegar mest hefur verið um að
vera hjá félaginu, t.d. kringum
pílagrímaflug, hafa starfsmenn
verið kringum 1.400 og nú eru
starfsmenn þess af um 40 þjóð-
ernum. Félagið er eitt hið stærsta
sinnar tegundar í Evrópu.
Árið 1999 hlaut félagið útflutn-
ingsverðlaun forseta Íslands.
Rekstrinum
stjórnað úr
Mosfellsbæ
Staðnir að
ólöglegum
rjúpnaveiðum
LÖGREGLAN á Egilsstöðum stóð í
gær tvo menn að ólöglegum rjúpna-
veiðum á Jökuldalsheiði.
Höfðu mennirnir notað vélsleða
við veiðarnar auk þess sem hvorugur
mannanna gat framvísað veiðikorti í
gildi. Lögreglan lagði hald á 15 rjúp-
ur sem mennirnir höfðu veitt. Málið
er í rannsókn.
Torkennilegur
kassi reyndist
vera tómur
TORKENNILEGUR kassi fannst á
gólfi flugskýlis á varnarsvæðinu á
Keflavíkurflugvelli um tvöleytið í
gær.
Samkvæmt varúðarreglum var
svæðið rýmt og kallað á sprengju-
sérfræðinga Landhelgisgæslunnar
auk lögreglu og slökkviliðs á Kefla-
víkurflugvelli. Tveir sprengjusér-
fræðingar Landhelgisgæslunnar
komust að raun um að engin hætta
var á ferðum þar sem kassinn reynd-
ist tómur þegar að var gáð.
Hrina
beinbrota
í hálkunni
HRINA beinbrota fylgdi mikilli
hálku sem myndaðist á götum og
gangstéttum í höfuðborginni í gær-
morgun. Á annan tug manna á öllum
aldri leitaði til slysadeildar Land-
spítalans eftir að hafa dottið í hálk-
unni og beinbrotnað. Einkum var um
beinbrot á höndum og fótum að ræða
en ekki alvarleg meiðsl.
„NEI, ég átti nú ekki von á þessu,
þetta kom mér verulega á óvart,“
sagði Manúela Ósk Harðardóttir,
sem náði öðru sæti í keppninni um
Ungfrú Norðurlönd, sem fram fór
rétt fyrir utan Helsinki í Finnlandi í
gær. Sigurvegarinn var stúlka frá
Noregi. Manúela var kjörin Ungfrú
Ísland sl. vor. „Ég kom til Finn-
lands fyrir rúmri viku og við höfum
verið á flakki og haldið tískusýn-
ingar. Þetta hefur verið rosalega
erfitt og alveg nóg að gera,“ segir
Manúela. „Ég er vissulega mjög
stolt af því að hafa náð þessum
áfanga því ég er búin að vinna hart
að þessu.“ Manúela er ekki búin að
gera upp við sig hvort hún reyni
fyrir sér í fyrirsætuheiminum, nám-
ið í MR gangi fyrir. „Það er mjög
gott að fá þessa reynslu og hún á
eftir að nýtast mér mjög vel í
keppninni um Ungfrú alheim í vor.“
Næstfegurst á
Norðurlöndum
Morgunblaðið/Þorkell
Námið í MR
gengur fyrir
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ÞAÐ KEMUR kannski ekki fram á jarðskjálftamælum, en mikið gengur á í
Íþróttahúsi HK í Kópavogi um helgina, þar sem fram fer tölvuleikjakeppn-
in Skjálfti. 550 taka þátt í keppninni og má búast við að sumir keppendur
haldi til í íþróttahúsinu alla helgina því keppnin er tvísýn.
Morgunblaðið/Golli
Skjálftavakt í Kópavogi
Á skjálftavaktinni/72