Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 22
BJÖRGUNARMENN héldu í gær
áfram að grafa í rústum barnaskóla
er hrundi í jarðskjálfta á Suður-Ítal-
íu, en haft var eftir þeim að þeir
teldu enga von um að finna fleiri á
lífi í rústunum í bænum San Giuliano
di Puglia. Síðdegis í gær hafði verið
staðfest að a.m.k. 26 börn, þ.á m.
heill bekkur sex ára barna, og tvær
konur hefðu farist í skjálftanum.
Margir þeirra er bjargað var úr
rústunum eru alvarlega slasaðir á
sjúkrahúsi.
Mikil sorg ríkir í bænum, en
spurningar hafa vaknað um hvers
vegna kennsla hafi ekki verið felld
niður í þessum skóla, líkt og öðrum
barnaskólum í nágrenninu, þar sem
óttast var að stór jarðskjálfti væri
yfirvofandi vegna þess að fjölda
smáskjálfta hafði orðið vart. Enn-
fremur hefur verið spurt, hvers
vegna skólahúsið, sem nýlega hafði
verið gert við, hrundi, en önnur hús í
nágrenninu ekki.
Fréttaritari breska ríkisútvarps-
ins, BBC, kvaðst hafa séð 26 litlar,
hvítar kistur í íþróttahúsi bæjarins,
sem breytt hefur verið í líkhús til
bráðabirgða. Fjölskyldur barnanna
sem fórust sátu hjá kistunum og
héldu á leikföngum sem börnin
höfðu átt, fötum af þeim og mynd-
um.
Í dögun í gær var átta ára gömlum
dreng, Angelo, bjargað úr rústum
skólans, 16 klukkustundum eftir að
skjálftinn reið yfir. „Hann hrópaði í
sífellu: Hjálpaðu mér, hjálpaðu mér.
Það var hræðilegt,“ sagði björgunar-
maðurinn Arturo Pierro. „En smám
saman tókst okkur að losa hann. Að
lokum glöddumst við mikið.“
Jarðskjálftinn mældist um 5,4 stig
á Richter og fannst víða á svæðinu
norðaustur af Napólí, en San Giu-
liano di Puglia, þar sem um 2.000
manns búa, varð harðast úti. Skóla-
húsið skemmdist mest. Það var
byggt fyrir um 50 árum, og fyrir
skömmu hafði steinsteyptri hæð ver-
ið bætt ofan á það. Fjöldi bygginga í
bænum er mörg hundruð ára gamall
og þau hús stóðu skjálftann af sér.
Reuters
Skólahúsið sem hrundi í San Giuliano di Puglia var byggt 1953, en nýlega hafði verið bætt einni hæð ofan á það. Ný viðbygging stóð skjálftann af sér.
Litlar vonir um
að fleiri séu á lífi
Nýlega hafði verið byggt ofan á skólann sem hrundi í jarðskjálftanum á Ítalíu
Slökkviliðsmenn við björgunarstörf í rústunum í fyrrinótt. Slökkviliðsmenn hvíla sig við rústir skólans.
!
"
# $ %
%
&
'
(
%
)
*
+ !
,
*
+ !
,
- $!) !
.!
!
-
- !!
/$$ 0
Ættingjar bíða við rústirnar.
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ