Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 23
HÆTTA er á, að næstum helm-
ingur allra plöntutegunda verði
aldauða en hingað til hefur ver-
ið talið, að það ætti aðeins við
um áttundu hverja tegund.
Kemur þetta fram í nýrri rann-
sókn bandarískra grasafræð-
inga en niðurstöður hennar
voru kynntar í vísindatímarit-
inu Science. Segja þeir, að við
fyrra mat hafi ekki verið tekið
tillit til margra tegunda í hita-
beltinu en þar er tegundafjöld-
inn mestur. Mesta hættan
steðjar að plöntum, sem búa við
sérstök skilyrði á tiltölulega af-
mörkuðum landsvæðum.
Leyniskyttur
tengdar
fleiri morðum
ÞEIR John Allen Muhammad
og John Lee Malvo, leyniskytt-
urnar svokölluðu, eru nú grun-
aðir um að hafa myrt konu,
Hong Ballenger, í Louisiana 23.
september sl., það er að segja
viku áður en morðin hófust á
Washington-svæðinu. Var Ball-
enger skotin til bana er hún lok-
aði snyrtivöruverslun, sem hún
rak, og um 1.000 dollurum rænt
af henni. Rannsóknir sýna, að
notaður var sami riffillinn og
fannst í bifreið morðingjanna.
Þegar eiginmaður Ballenger sá
mynd af Malvo fannst honum
hann vera líkur morðingjanum
og hafði samband við lögregl-
una. Var honum þá sagt, að
þetta gæti ekki verið vegna
þess, að ránið passaði ekki við
atferli morðingjanna. Þó var
hugað betur að og þá kom í ljós,
að sama vopnið hafði verið not-
að. Er nú verið að kanna hvort
þeir Muhammad og Malvo hafi
enn fleiri morð á samviskunni.
Bryti Díönu
laus allra
mála
ÁKÆRUR á Paul Burrell,
bryta Díönu heitinnar prins-
essu, hafa verið felldar niður en
hann hafði verið sakaður um að
stela hundruðum persónulegra
muna í hennar eigu. Elísabet
drottning hefur skýrt frá því, að
Burrell hafi sagt sér, að hann
hefði mikið af munum frá Díönu
í sinni vörslu. Hefði hann þá
undir höndum í því skyni að
varðveita minningu hennar. Var
Burrell að sjálfsögðu létt þegar
málinu var vísað frá og kvaðst
innilega þakklátur drottningu.
STUTT
Margar
plöntu-
tegundir
í hættu
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir