Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 29
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 29
Til sölu
Strætisvagn Bens O 305 árg. 1983.
Vagninn er í ágætu lagi og
óryðgaður.
Nánari upplýsingar gefur Stefán á
skrifstofu SVA sími 462 4929.
Jörðin Hrísar í Eyjafjarðarsveit er til sölu. Á jörðinni er m.a. gott
íbúðarhús, nokkur sumarhús og skógrækt, ræktað land er um 30
ha og nær m.a. að Eyjafjarðará. Jörðin er staðsett um 30 km sunn-
an Akureyrar. Mögulegt er að selja jörðina í minni einingum.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á Fasteignasölunni
BYGGÐ. Um helgina eru veittar upplýsingar í
símum 897 7832 (Björn), s. 462 1744 og 462 1820.
Fax 462 7746. Opið virka daga milli kl. 9 og 12 og kl. 13 - 17.
Fasteignasalan BYGGÐ
Strandgötu 29
s. 462 1744 og 462 1820 - fax 462 7746
Hrísar í Eyjafjarðarsveit
til sölu
Önnur umferð í fyrsta hluta
spurningakeppni Kvenfélagsins
Baldursbrár verður í safn-
aðarheimili Glerárkirkju annað
kvöld, sunnudagskvöldið 3. nóv-
ember, kl. 20.30. Alls taka sex lið
þátt í keppninni og koma þau frá
Akureyrarbæ – Geislagötu, Morg-
unblaðinu, símamönnum, eldri
borgurum, Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa og Heilsugæslunni á
Akureyri.
Ágóði rennur í söfnun til kaupa á
steindum glugga í Glerárkirkju.
Kvenfélagskonur vonast til þess
að sem flestir sjái sér fært að
mæta og styðja gott málefni.
Á MORGUN
Kvenfélagið Baldursbrá heldur
bingó í dag, laugardaginn 2. nóv-
ember, í safnaðarsal Glerárkirkju og
hefst það kl. 15. Margt góðra vinn-
inga er í boði, s.s. rafmagnstæki,
matvörur og margt fleira. Ágóði
rennur í söfnun til kaupa á steindum
glugga í Glerárkirkju.
Í DAG
Skólaþróunarsvið kennaradeildar
Háskólans á Akureyri stendur fyrir
fræðslufundum og fyrirlestrum í
vetur um ýmsa þætti er varða skóla-
starf. Fyrsti fundurinn verður á
þriðjudag, 5. nóvember, í stofu 25 í
Þingvallastræti og hefst kl. 16.15.
Þar fjalla Elín Magnúsdóttir og Hel-
ena Ármannsdóttir kennarar um
lestrarkennslu 5–6 ára barna og þá
færni sem börn á þessum aldri búa
yfir og skiptir máli varðandi læs-
isþróun þeirra. Einnig verður fjallað
um hvað skiptir máli við skipulagn-
ingu lestrarkennslu fyrir ung börn
og samstarf leik- og grunnskóla við
skipulagningu lestrarnáms.
Á NÆSTUNNI
KAUPFÉLAG Eyfirðinga – sam-
vinnufélag hefur ákveðið að
styrkja starfsemi Háskólans á Ak-
ureyri, en í yfirlýsingu sem Bene-
dikt Sigurðarson, formaður KEA,
og Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, undirrit-
uðu kemur fram að félagið muni
kosta skilgreind styrktarverkefni
innan háskólans.
Um getur verið að ræða tíma-
bundna fjármögnun á stöðugild-
um prófessora, dósenta, lektora
eða rannsóknarmanna við háskól-
ann.
Einnig getur verið um að ræða
verkefni er varða rekstur þróun-
arseturs eða annarra afmarkaðra
eininga innan háskólans eða þá
beinan stuðning við rannsóknir
starfsmanna eða framhaldsnáms-
nemenda. Næstu fimm ár mun
KEA verja fjármagni til þessara
styrktarverkefna sem svarar
launakostnaði við eina prófess-
orsstöðu á ári.
„Þetta er einn mesti stuðningur
sem fyrirtæki á Akureyri hefur
veitt háskólanum og er til mik-
illar fyrirmyndar,“ sagði Þor-
steinn. Hann fagnaði því einnig að
styrkurinn væri ekki fyrirfram
skilyrtur ákveðnu verkefni, en
það gæfi möguleika á að vinna að
verkefnum „beint frá grasrót-
inni“, eins og hann orðaði það.
„Þessi stuðningur er mikil við-
urkenning á störfum þess fólks
sem starfar hjá Háskólanum á
Akureyri,“ sagði Þorsteinn.
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Benedikt Sigurð-
arson, stjórnarformaður Kaupfélags Eyfirðinga, undirrituðu yfirlýsinguna
og færði stjórnarformaður KEA rektor HA pennasett að gjöf.
KEA styrkir
háskólann
FRAMKVÆMDASTJÓRN flokks-
vals Samfylkingarinnar í Norðaustur-
kjördæmi hefur ákveðið að fram-
lengja frest til að skila póstatkvæðum
í kjöri félagsmanna í tvö efstu sætin á
lista flokksins í kjördæminu fyrir al-
þingiskosningarnar næsta vor um tvo
daga. Öll atkvæði teljast gild sem
póststimpluð eru í síðasta lagi hinn 6.
nóvember nk.
Ástæðan fyrir framlengingunni er
sú að prenta varð fleiri kjörgögn
en upphaflega var áætlað, m.a.
vegna þess að mikill áhugi er fyrir
inngöngu í Samfylkingarfélög í kjör-
dæminu.
Eins og fram hefur komið gáfu sjö
frambjóðendur kost á sér í tvö efstu
sætin á lista flokksins í kjördæminu.
Niðurstaðan í póstkosningunni um
tvö efstu sætin er bindandi en kjör-
nefnd raðar í önnur sæti listans.
Þau sem gefa kost á sér eru: Cecil
Haraldsson, sóknarprestur á Seyðis-
firði, Einar Már Sigurðsson, alþing-
ismaður Neskaupstað. Kristján L.
Möller, alþingismaður Siglufirði,
Lára Stefánsdóttir, kennari Akur-
eyri, Þorgerður Þorgilsdóttir, sjúkra-
liði Akureyri, Þorlákur Axel Jónsson,
kennari Akureyri, og Örlygur Hnefill
Jónsson, lögmaður og varaþingmað-
ur, Laugum í Reykjadal.
Póstkosning Samfylkingarinnar
Frestur til að skila at-
kvæðum framlengdur
KOMIÐ hefur upp tilfelli heila-
himnubólgu hjá einum nemanda í
Brekkuskóla á Akureyri. „Þetta er
heilahimnubólga af völdum men-
ingokokka, týpu C, en það er sú
týpa sem byrjað er að bólusetja
fyrir,“ sagði Magnús Stefánsson
yfirlæknir barnadeildar FSA í
samtali við Morgunblaðið.
Magnús sagði að þessi týpa hefði
verið ráðandi í þeim heilahimnu-
bólgutilfellum sem eru að koma
upp hér á landi annað slagið. Hann
sagði að drengurinn úr Brekku-
skóla, sem er 9 ára, væri á bata-
vegi og að búið væri að gera ráð-
stafanir til að þetta tilfelli smitaði
ekki út frá sér. Hann sagði að
komið hefði upp annað tilfelli á
svæðinu fyrir um mánuði og að þar
væri mjög líklega um sömu týpu að
ræða.
„Þetta er ekkert óvenjulegt, það
eru um tvö ár síðan við sáum þetta
síðast og er hvorki meira eða
minna nú en venjulega. Fólk þarf
samt að vera vakandi eins og allt-
af,“ sagði Magnús.
Katrín Friðriksdóttir hjúkrunar-
fræðingur í Brekkuskóla sagði að
Heilsugæslustöðin hefði ákveðið að
flýta fyrirhugaðri bólusetningu í
skólanum, við heilahimubólgu C,
sem hefði annars orðið eftir hálfan
mánuð og var hluti nemenda bólu-
settur í gær.
Tilfelli heila-
himnubólgu
á Akureyri
JÓN Birgir Guðmundsson hefur
verið ráðinn verkefnastjóri hjá Ak-
ureyrarbæ og mun hann hefja störf
í desember næstkomandi.
Á fundi bæjarráðs í vikunni var
samþykkt tillaga frá Kristjáni Þór
Júlíussyni bæjarstjóra um tíma-
bundna ráðningu verkefnastjóra,
frá 1. desember 2002 til 1. desem-
ber árið 2003. Verkefnastjóri mun
vinna að og hafa umsjón með fram-
kvæmd verkáætlunar samkvæmt
áherslum í málefnasamningi meiri-
hlutaflokkanna í bæjarstjórn. Áætl-
unin verður tímasett, verkefnum
forgangsraðað, þau kostnaðarmetin
og þeim settir ábyrgðarmenn sam-
kvæmt því er fram kemur í tillögu
bæjarstjóra. Verkefnastjórinn mun
jafnframt vinna að öðrum verkefn-
um sem bæjarstjóri felur honum.
Jón Birgir er B.Sc.-rekstrarfræð-
ingur að mennt og hefur gegnt
ýmsum ráðgjafar- og stjórnunar-
störfum fyrir IMG og dótturfyrir-
tæki þess.
Jón Birgir
verkefna-
stjóri
OPNUÐ hefur verið í Minjasafninu
á Akureyri sýning á ljósmyndum
sænska ljósmyndarans Hans
Malmberg sem hann tók um mið-
bik síðustu aldar. Á sýningunni eru
myndir frá Íslandi, flestar af al-
þýðufólki við leik og dagleg störf í
sveitum og bæjum landsins. Malm-
berg gat sér ungur gott orð sem
ljósmyndari í heimalandi sínu og
starfaði síðar víða um heim, m.a.
sem fréttaljósmyndari, en eftir-
stríðsárin voru gullöld þeirra.
Ljósmyndir hans hafa verið á sýn-
ingum í ýmsum löndum, m.a. á
frægri sýningu í Museum of Mod-
ern Art í New York sem fékk heitið
Family of Man.
Hans Malmberg kvæntist árið
1950 íslenskri konu, Margréti
Guðmundsdóttur, og gaf ári síð-
ar út í Svíþjóð bókina Island með
135 ljósmyndum og formála eftir
Helga P. Briem sendiherra. Bókin
fékk góðar viðtökur erlendis og hér
heima. Á Íslandsferðum sínum tók
Malmberg m.a. margar myndir af
Halldóri Laxness og dvaldi hér við
myndatökur þegar bókin Salka
Valka var kvikmynduð í Grindavík
árið 1954. Að auki tók hann fjöl-
margar myndir á síldarárunum á
Siglufirði og fylgdi konungi sínum,
Gustaf Adolf, í opinberri heimsókn
til Íslands árið 1957.
Sýningin kemur frá Þjóðminja-
safni Íslands og verður opin til
nóvemberloka.
Minjasafnið á Akureyri
Ljósmyndir
Hans Malmbergs
ÓLAFUR Halldórsson fiskifræðing-
ur hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri norska þorskeldisfyrirtækis-
ins Troms Marin
Yngel. Hann
heldur utan eftir
helgi til að taka
við starfinu.
Seiðaeldisstöð
fyrirtækisins er í
byggingu og gert
ráð fyrir að hún
taki til starfa í
mars á næsta ári
og muni árlega
framleiða um 10 milljónir þorsk-
seiða. Kostnaður við uppbyggingu
stöðvarinnar er um 750 milljónir
króna.
Ólafur var fiskifræðingur á Haf-
rannsóknastofnun að loknu námi, en
hann stofnaði Fiskeldi Eyjafjarðar
ásamt fleirum árið 1987 og var fram-
kvæmdastjóri félagsins allt til loka
síðasta árs. Fiskeldi Eyjafjarðar
náði fljótlega forystu í framleiðslu á
lúðuseiðum og er langstærsti fram-
leiðandi slíkra seiða í heiminum með
40 til 50% hlutdeild.
En var ekki erfið ákvörðun að yf-
irgefa Fiskey?
„Nei, í raun og veru ekki. Málin
þróuðust einfaldlega þannig að ég
ákvað að hætta. Nú horfi ég bara
fram á veginn og hlakka til að takast
á við nýtt og áhugavert verkefni. Það
er mikill áhugi á þorskeldi í Noregi
og það er gaman að fá að taka þátt í
því að byggja það upp. Það var vissu-
lega ekki á dagskránni að flytjast til
Noregs, en mér bauðst þetta starf og
ég ákvað að taka því,“ segir Ólafur
Halldórsson.
Elur
þorskseiði
fyrir
Norðmenn
Ólafur
Halldórsson
♦ ♦ ♦