Morgunblaðið - 02.11.2002, Síða 47
HESTAR
48 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EIN mikilvægasta undirstaða allrar
ræktunar er frjósemi. Með fallandi
frjósemi dregur allan kraft úr rækt-
unarstarfi og því með réttu hægt að
segja að frjósemin sé einn af horn-
steinum ræktunarstarfs hverju
nafni sem það nefnist. Allnokkuð er
síðan hrossaræktarmenn fóru að
minnast á mikilvægi þessa þáttar og
hversu áríðandi væri að viðhalda
góðri frjósemi innan íslenska
hrossastofnsins. Víða um lönd mætti
sjá hnignandi hrossastofna þar sem
ein meginástæðan væri stöðugt
minnkandi frjósemi.
Margir þættir ráða frjóseminni
Það eru margir þættir sem koma
við sögu þegar frjósemi hrossa er
metin. Eðli málsins samkvæmt bein-
ast augu manna fyrst og fremst að
stóðhestunum en að mati sérfræð-
inga þarf vissulega að huga að
hryssunum einnig.
Hvað stóðhestana varðar eru það
að sjalfsögðu sæðisgæðin þar sem
litið er á sæðismagnið, fjölda sæð-
isfrumna og hreyfigetu þeirra. Þá
skiptir eistnastærð máli, lögun
þeirra og lega.
Stýrimaður í hverri girðingu
Atferlisþátturinn er einnig mik-
ilvægur og þar er það áhugi stóð-
hestanna og hversu kröftugir þeir
eru við að sinna hryssum. Þá getur
verið mjög mismunandi hversu vel
þeim gengur að finna réttu leiðina
fyrir skaufann í leggöng hryssunnar.
Dæmi er um það hérlendis að hátt
dæmdur hestur hafi ekki fyljað lung-
an af þeim hryssum sem voru með
honum í girðingu af því hann „hitti“
svo sjaldan. Þetta segja sérfræð-
ingar að sé vel þekkt úr heimi frjó-
semisfræðinnar og þessi „klaufa-
skapur hestsins“ geti vel erfst til
afkomenda hans. Það gæti orðið at-
hyglivert ef galli sem þessi breiddist
út ef hafa þyrfti „stýrimann“ í hverri
girðingu til að tryggja að allt fari
rétta leið.
Stærð eistna mæld
En hvað hefur verið gert hér á
landi til að sporna við ófrjósemi?
Sæði hefur verið skoðað í nokkr-
um fjölda hrossa í tengslum við
starfsemi Sæðingastöðvarinnar í
Gunnarsholti og vissulega hafa feng-
ist ýmsar gagnlegar upplýsingar við
ómskoðun hryssna víða um land þar
sem fyrst og fremst er verið að at-
huga hvort þær séu fyljaðar.
Í landsmótinu á Vindheimamelum
var í fyrsta sinn gerð markviss skoð-
un á eistum þeirra stóðhesta er þar
komu fram. Þau mæld og lega þeirra
metin. Þá var í tengslum við til-
raunir með frystingu á sæði gerð at-
hugun á áhrifum aukinnar lýsingar
sæðisframleiðslu stóðhesta. Einnig
var tekin með í þessa rannsókn fóðr-
un stóðhestanna.
Tímgunin færð frá náttúrunni
Sérfróðir vilja meina að stöðugt sé
verið að færa tímgunina í hrossa-
ræktinni meir og meir frá sínu nátt-
úrulega umhverfi. Með því sé verið
að breiða yfir hið raunverulega
ástand í frjósemismálum. Dæmi eru
um að stóðhestar sem skilað hafa lé-
legri frjósemi séu því sem næst í
gjörgæslu og þeir fylji „handvirkt“
eins og einn viðmælenda orðaði það.
Fjölda hryssna sem hafa einhver
vandamál með fyljun er hjálpað
meðal annars með sæðingum.
Versti skaðinn gerist þegar hæfi-
leikamikil og vel gerð hross reynast
ófrjósöm. Einn sérfræðingurinn sem
rætt var við sagði að eitt stærsta
meinið væri að reiðhestshæfileikar
hrossa og atgervi þeirra væri mun
framar á forgangslistanum en frjó-
semin. Það virðist því sem áhyggjur
manna af ófrjósemi risti ekki mjög
djúpt því þegar kemur að pen-
ingahliðinni er þeim áhyggjum oftar
en ekki ýtt til hliðar fyrir skjótfeng-
inn gróða.
Þá hefur opinber umræða um
ófrjósemi verið hálfgert tabú og
stóðhestseigendur gjarnan viljað fá
að vera í friði með sín ófrjósemi-
vandmál.
Mörg kunn nöfn
tengd ófrjósemi
Margir kunnir stóðhestar hafa
verið þekktir að ófrjósemi um lengri
og skemmri tíma og er þar líklega
frægastur Ófeigur frá Flugumýri
sem er skyldleikaræktaður hestur,
undan alsystkinum án þess að hér sé
verið að fullyrða að það sé ástæðan.
Þá hafa nokkrir synir hans einnig
fengið þennan stimpil á sig og má
þar nefna Reyk frá Hoftúni og Geysi
frá Gerðum. Nýjasta dæmið er svo
Hegri frá Glæsibæ sem brást alger-
lega nýjum eigendum sínum en hann
fyljaði enga hryssu eftir því sem
næst verður komist á þessu ári. Af-
komandi Ófeigs, Töfri frá Kjart-
ansstöðum, hefur einnig átt erfitt
uppdráttar með afköst í fyljun. Einn
sérfræðinganna sem rætt var við
sagði alltaf erfitt að sanna til fulln-
ustu ófrjósemi í hestum en þó væri
ekki um að villast að eitthvað væri
að þegar hestar væru að skila léleg-
um afköstum árum saman.
Baldur frá Bakka var að heita má
ófrjór síðustu árin sem hann var hér
á landi og erfiðlega gekk oft með
Höfða-Gust frá Sauðárkróki. Einnig
hafa ýmsir viljað bendla Hrafn frá
Holtsmúla við ófrjósemi og sömu-
leiðis einhverja af hans afkom-
endum. Fjöldi stóðhesta hefur einn-
ig lent í tímabundum hremmingum
þar sem frjósemi þeirra hefur dottið
niður en þeir síðan náð sér aftur. Að-
alvandamálið hér á landi er fyrst og
fremst þekkingarleysi á orsökum
ófrjósemi. Eins og að ofan getur
geta ástæður verið margvíslegar og
því erfitt að finna út hvað hamlar í
hverju tilviki. Þetta hefur meðal
annars leitt það af sér að ekki er hátt
talað um hvaða hesta um ræðir
hverju sinni.
Að byrgja
brunninn áður en…
Ágúst Sigurðsson hrossarækt-
arráðunautur telur að frjósemi ís-
lenska hrossastofnsins sé góð eins
og er en hann tekur hiklaust undir
að betra sé að huga alvarlega að
þessum málum áður en í vandræði
er komið. Hann er sammála þeim
sérfræðingum sem hér er vitnað í
um að þörf sé á margskonar rann-
sóknum og upplýsingaöflun.
Að síðustu er vert að vitna í um-
mæli prófessors Hans Merkt frá
Þýskalandi sem flutti fyrirlestur hér
á landi fyrir nokkrum árum um frjó-
semi hrossa þar sem hann hvatti ís-
lenska hrossaræktarmenn til að
taka á frjósemismálunum áður en
það yrði vandamál því þá væri erf-
iðara um vik að laga það sem aflaga
hefur farið.
Frjósemin einn
af hornsteinum
íslenskrar
hrossaræktar
Það var mikið reiðarslag þegar í ljós kom að Hegri frá Glæsibæ hafði ekki fyljað neina af
þeim hryssum sem hjá honum voru í sumar og sannast þar að sitthvað er gæfa og gjörvuleiki.
Knapi er Ragnar Tómasson.
Morgunblaðið/Vakri
Gott þykir þegar saman fara góðir erfðaeiginleikar og góð frjósemi og er Þorri frá Þúfu gott dæmi um farsælan
hest þar sem þetta tvennt fer saman. Það eru Guðni Guðmundsson og Indriði Ólafsson sem standa við hestinn.
Geysir frá Gerðum er einn þeirra hesta sem ekki hafa skilað góðri frjósemi og nú er ljóst að ekki
fyljar hann fleiri hryssur því nýlega var komið að honum fótbrotnum í haga og þurfti að fella
hann. Knapi er Björg Ólafsdóttir.
Frjósemi íslenskra hrossa virðist í góðu lagi þegar á heildina er litið en sérfróðir menn telja
sig þó sjá ýmsar blikur á lofti. Valdimar Kristinsson kynnti sér skoðanir nokkurra sérfræðinga.
alltaf á sunnudögumBÍLAR