Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 48

Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 48
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 49 RÉTT VIKA er í 53. ársþing Landssambands hestamannafélaga sem haldið verður í húsa- kynnum Fáks á Víðivöllum í Reykjavík. Fyrir þinginu liggja 24 tillögur en ef að líkum lætur má gera ráð fyrir að þeim muni eitthvað fjölga eitthvað fram að þingi en sú hefur verið raun- in undanfarin ár þrátt fyrir að reglur kveði á um að aðeins skuli bera upp tillögur sem hafi borist með lögskipuðum fyrirvara. Eins og ávallt eru tillögur viðvíkjandi keppni nokkuð fyrirferðarmiklar en hæst ber að sjálfsögðu tillögur til breytinga á lögum sambandsins. Er þar annarsvegar um að ræða ný þingsköp og svo breytingu á árlegu þing- haldi en gangi tillagan eftir verða þingin framvegis haldin annað hvert ár. Verða þá haldnir formannafundir árin á milli og sagði Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH að þeir væru einvörðungu til skrafs og ráðagerða en ekki teknar ákvarðanir um breytingar á lögum eða reglum sambandsins. Fet og stökk úr gæðingakeppninni? Róttækasta tillagan kemur að öllum lík- indum frá Hestamannafélaginu Herði þar sem lagt er til að bæði feti og stökki verði sleppt í gæðingakeppni A- og B-flokks. Líklegt þykir að þessi tillaga eigi eftir að hleypa lífi í um- ræðuna að minnsta kosti í nefnd en ekki eru allir jafn vissir um að hún muni eiga sér lengri lífdaga en sem nemur nefndarstörfunum. Í greinargerð með tillögunni segir: „Hreyfingar hestsins eiga að vera léttar, fjaðurmagnaðar, háar, svifmiklar, hreinar, sniðfastar og frjáls- ar“ og er þar vitnað í gamla reglugerð. Segir síðan að flutningsmenn tillögunnar fái með engu móti séð hvar inn í þessa lýsingu fet og stökk geti fallið. Harðarmenn leggja einnig til að hinar al- þjóðlegu FIPO-reglur fyrir íþróttakeppni verði þýddar á íslenska tungu. Vélhjól á reiðvegum vandamál Andvaramenn vekja máls á þörfu máli sem er akstur vélhjólamanna á reiðvegum þar sem þeir leggja til að stjórn LH verði falið að leita eftir viðræðum við yfirvöld og landssamtök aksturs- og eða vélhjólaklúbba í því augnamiði að koma hjólunum af reiðvegunum. Í grein- argerð er bent á þá miklu slysahættu sem fylgir þessu athæfi vélhjólamanna auk þess sem hjólin spilli reiðvegunum verulega þegar þau spæna þá upp og grafa í þá vatnsrásir. Ferða- og samgöngunefnd leggur til að heimild verði veitt til að endurúthluta reiðvegafé sem ekki er notað. Dómaranefnd LH leggur til að breytingar verði gerðar á útreikningi úr tímatöku og ein- kunnum í gæðingaskeiði í samræmi við al- þjóðareglur. Stjórn LH leggur til að tekin verði upp sætaröðun í úrslitum gæðinga- keppni í stað einkunnagjafar eins og tíðkast hefur hin síðari ár. Stígandi í Skagafirði leggur til að heimild verði sett í reglur fyrir aðstoðarmenn til handa fötluðum sem hyggja á þátttöku í keppni á hestum. Minnt er á að á ársþingi 1998 var samþykkt að auðvelda ætti þátttöku fatlaðra í keppni á hestum. Heimild fyrir dómaradúett Þytur í Vestur-Húnavatnssýslu leggur til að heimilað verði að hafa aðeins tvo gæðinga- dómara á félagsmótum og öllum minni mót- um. Er gert ráð fyrir í tillögunni að þeir dæmi saman og gefi eina einkunn. Benda þeir á í greinargerð að þetta hafi verið reynt víða með góðum árangri og flýtt mjög fyrir framkvæmd móta. Íslandsmótsnefnd leggur fram tillögu þess efnis að hægt verði að veita undanþágu frá tvískiptingu Íslandsmóta og halda þau saman eins og gert var síðast liðið sumar. Í þessu sambandi má geta þess að á þinginu verður tekin ákvörðun um hvar Íslandsmót verða haldin árin 2004 og 2005. Ljóst er að Ís- landsmót fullorðinna verður haldið á Selfossi á næsta ári en ekki hefur enn borist boð um að halda Íslandsmót yngri flokka það árið. Gestgjafarnir eru með þrjár tillögur á þinginu. Í einni þeirra er lagt til að afnumið verði það ákvæði úr reglum að einungis dóm- arar með landsdómararéttindi skuli dæma á landsmótum en þess í stað verði heimilt að skipa til starfans reynslumikla dómara. Þá vilja fáksmenn að kröfur um hraða í gæð- ingaskeiði verðar hertar á þá lund að til að fá fullt hús stiga fyrir hraða þurfi að skeiða vegalengdina á 8 sekúndum í stað 9 eins og nú er. Stjórnarmenn vilja „örlitla“ hækkun Þá er þess að geta að stjórn LH leggur til að árgjald til samtakanna verði hækkað um þrjú hundruð krónur og mun það þá verða 1650 krónur á hvern félagsmann verði sátt um tillögu stjórnar. Bent er á að samtökin hafi á undanförnum árum stigið krappan dans í fjár- málum en með miklu harðfylgi hafi tekist að rétta af og hækkun sé nauðsynleg til að ekki fari aftur í sama horfið. Þingið hefst klukkan 13:00 föstudaginn 8. nóvember og verður dagskrá með hefðbundnu sniði. Kosið verður væntanlega um allar stöð- ur í stjórn vegna þinghalds annað hvert ár ef lagabreytingar þess efnis verða samþykktar á þinginu nú. 53. ársþing Landssambands hestamannafélaga Afdrifaríkar lagabreytingar á dagskrá R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf. er með eftirtalin húsnæði til leigu: Hlíðasmári 11 Til leigu í nýju og fallegu húsnæði. Hentar vel fyrir skrifstofur, verslun eða þjónustu. Stærðir frá 150—600 fm. Síðumúli 24—26 Nýtt skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Stærðir frá 150—300 fm með stórum gluggum, inn- réttað að óskum leigutaka. Skúlagata 19 213 fm salur á 4. hæð í nýju lyftuhúsi með eld- húsi. Glæsilega innréttað. Hentar undir skrif- stofur eða félagasamtök. Upplýsingar gefur Gunnar í síma 693 7310. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Sleðbrjótur I, Hlíðarhreppi, þingl. eig. Eysteinn Geirsson, gerðarbeið- endur Glitnir hf., Lífeyrissjóður Austurlands og Norður-Hérað, miðvikudaginn 6. nóvember 2002 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 1. nóvember 2002. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 12, Bolungarvík, kl. 15.00 á eftirfarandi eignum í Bolungarvík: Grundarhóll 3, þingl. eig. Ólafur Ingvi Ólafsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Bolungarvík. Mávakambur 2, þingl. eig. Byggðastofnun, gerðarbeiðandi sýslumað- urinn í Bolungarvík. Völusteinsstræti 30, þingl. eig. Þorgils Gunnarsson, Sigrún Elva Ingvarsdóttir og Bolungarvíkurkaupstaður, gerðarbeiðandi Trygg- ingamiðstöðin hf. Sýslumaðurinn í Bolungarvík, 1. nóvember 2002. Jónas Guðmundsson. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu 7, Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Austurvegur 18—20, n.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Bergmann Ársælsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudag- inn 6. nóvember 2002 kl. 14.00. Austurvegur 18—20, e.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudaginn 6. nóvember 2002 kl. 14.00. Blöndubakki, Norður-Héraði, þingl. eig. Gestur Jens Hallgrímsson og Bryndís Ágústa Svavarsdóttir, gerðarbeiðandi Lánasjóður land- búnaðarins, miðvikudaginn 6. nóvember 2002 kl. 14.00. Lagarbraut 4, hl. 00.01, Fellabæ, þingl. eig. Oddur Óskarsson, gerðar- beiðandi Landsbanki Íslands hf., höfuðst., miðvikudaginn 6. nóvem- ber 2002 kl. 14.00. Lagarbraut 4, hl. 0103, Fellahreppur, þingl. eig. Oddur Óskarsson, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands hf., Hekla hf. og Íslandsbanki- FBA hf., miðvikudaginn 6. nóvember 2002 kl. 14.00. Miðás 23, 50%, Austur-Héraði, þingl. eig. Bón- og pústþjónustan sf., gerðarbeiðandi Austur-hérað, miðvikudaginn 6. nóvember 2002 kl. 14.00. Miðvangur 1—3, hl. 02.02, Austur-Héraði, þingl. eig. Karl Gústaf Davíðsson og Davíð Jóhannesson, gerðarbeiðandi Austur-Hérað, miðvikudaginn 6. nóvember 2002 kl. 14.00. Skálar, Vopnafirði, þingl. eig. Ægir Kristinn Sævarsson, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóður Austurlands, miðvikudaginn 6. nóvember 2002 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 1. nóvember 2002. TIL SÖLU Lagerútsala Laugardaginn 2. nóvember verðum við með lagerútsölu frá kl. 13.00 til kl. 16.00 síðdegis. Seld verða leikföng í úrvali: Bílar, RISAEÐLUR með hljóðum, dúkkur, gæsaveiðitækið vinsæla, tölvustýrðir jeppar og fjórhjól, boltar, stórar vatnsbyssur, mikið úrval leikfanga í skóinn o.fl. o.fl. Einnig nokkuð af ódýrum KAFFIVÉLUM, brauðristum, handþeyturum. Herðatré: plast og tré, fægiskóflur, borðdúkar, servíettur, plast- hnífapör. VEIÐARFÆRI: Stangir, hjól, nælur, önglar, spúnar, veiðikassar, gervibeita, línur, flugulínur, vöðluskór, túbu-Vise, vatteraðir veiðigallar, regnjakkar. Ódýrar vöðlur í stærð- unum 41—42, hagstætt verð. VERKFÆRA- KASSAR á tilboðsverði. Bakkar fyrir örbylgju- ofna, hitakönnur, vínkælar, ÞURRKGRINDUR fyrir þvott, áklæði á strauborð. Grillgrindur, grillgafflar, uppkveikikubbar fyrir grill. GERVI- JÓLATRÉ á góðu verði. Hleðslubatterí. Vagn á hjólum með þremur hillum, tilvalinn á lager, í mötuneyti o.fl. Trilla fyrir lager. Lítið við, því nú er tækifærið að gera góð kaup og kaupa ódýrar jólagjafir og leikföng á hagstæðu verði í skóinn. Kredit- og debitkortaþjónusta. I. Guðmundsson ehf., Skipholti 25, 105 Reykjavík. TILKYNNINGAR Gvendur dúllari ehf. Fornbókaverslun Opið líka laugardaga 11-17 Klapparstíg 35, sími 511 1925 SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Miðlun — spámiðlun Lífssporin úr fortíð í nútíð og framtíð. Upplýsingar og tímapantanir í síma 561 6282 og 821 6282. TIL SÖLU Kristallasýning og -sala verður haldin á morgun, sunnu- daginn 3. nóvember milli kl. 15 og 18 í Ljósheimum, Brautar- holti 8. Fallegir kristallar frá öll- um heimshornum. Hjartanlega velkomin, Ljósheimar. FÉLAGSLÍF Svölur Annar félagsfundur vetrarins verður haldinn þriðjudaginn 5. nóvember kl. 20.00 í Borgartúni 22, 3. hæð. Kristín Stefánsdóttir förðunarmeistari verður gestur kvöldsins. Stjórnin. 3. nóv. Hengill að norðan. Gengið frá Nesjavallavegi og á Skeggja, gengið í 800 m hæð og gönguhækkun u.þ.b. 400 m. Áætlaður göngutími ca 4—5 klst. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Verð 1.700/1.900. Fararstjóri: Tómas Þröstur Rögnvaldsson. 4. nóv. Myndakvöld Mynda- kvöld kl. 20.00 í Húnabúð, Skeif- unni 11. Myndir frá gönguskíða- ferð á Grænlandi og gönguferð um Tindfjöll — Hungurfit — Entujökul. Verð kr. 700. Kaffi- hlaðborð. Sunnudagur 3. nóv. 2002 Grændalur — Klambragil — Reykjadalur — þar sem heitt og kalt kemur saman. Gengið verður úr Rjúpnabrekk- um ofan við Hveragerði, upp Grændal og yfir í Klambragil í botni Reykjadala. Þar mætast náttúruöflin þegar kalt og heitt kemur saman á áþreifanlegan hátt. 5 klst. ganga. Brottför frá BSÍ kl. 11.00 á sunnud. með viðkomu í Mörkinni 6. Verð: Félagsmenn 1700 kr., aðrir 1900 kr. Fararstjóri Eiríkur Þormóðsson. Aðventuferð í Þórsmörk, 30. nóv.—1. des. Áramót í Landmannalaugum 29. des.—1. jan. Upplýsingar á www.fi.is .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.